Vísir - 21.12.1967, Blaðsíða 1
Hátt á þriðja hundrað
Fyrir frumsýninguna á „Þrettándakvöldi":
Ein helzta upplyfting borgar-
búa á seinni árum í skammdeg-
inu er að fara á frumsýningar |
leikhúsanna um jólin. Er jafnan ['j
mjög mikil aðsókn að frumsýn- ,
ingum og nú eru þegar komnir j
hátt á þriöja hundrað manns á :
biðlista fyrir frumsýningu Þjóð- j
leikhússins á „Þrettándakvöldi" ;
eftir Shakespeare, sem verður ,
á annan í jólum. Allir aukamið- 1
ar eru seldir, en fastir frum- !
sýningargestir vitja miða sinna
á föstudag og laugardag og þeir-
miðar sem ekki verða sóttir eru
síðan seldir þeim sem eru á bið-
lista. i
Jólaveðrið hér verður að öllum líkindum í hlýrra lagi, — rauð jól, eins og það er kallað. Á myndinni er „jólastemmning“ frá
ísrael. Þannig er jólaveðrið gjarnan þar í landi, en myndin var tekin fyrir 5 dögum á baðströnd í Tel Aviv. Fleiri myndir frá
baðstrandarlífi í jólamánuði eru í MYNDSJÁ í dag, — bls. 10, en fréttamaður Vísis tók þær á ferðalagi um Landið helga.
JOLASALAN MINNI EN I FYRRA
Fólk kaupir ódýrari hluti
Jólainnkaupin eru nú að ná
hámarki. Ýmsum þykir verzl-
unin að þessu sinni tregari en
verið hefur fyrir jól. Jólaösin
byrjaði miklu seinna en und-
anfarin ár og fólk virðist
miða innkaup sín við ódýr-
ari hluti — og ef til vill nyt-
samari en áður tíðkaðist.
Vísir hringdi í nokkrar
verzlanir í morgun til þess að
forvitnast um jólasöluna og
fékk þessi svör:
Margrét Gunnarsdóttir verzl-
unarstjóri í London dömudeild:
Salan er minni en í fyrra og
verzlunin rólegri. Fólk virðist
vera miklu seinna á ferðinni
með jólainnkaupin en áður, en
þetta hefur verið að glæðast
seinustu daga. Núna fer miklu
meira af ódýrari hlutum en áð-
ur og fólk virðist frekar kaupa
nauðsynjavörur til jólagjafa,
eins og til dæmis undirföt, tösk
ur og því um líkt. ..
Öm Ingólfsson í Liverpool: —
Salan er svipuð að krónutölu.
Við höfum kannski verið heppn-
ir hérna. Annars segir það til
sín að nóvembersalan var miklu
meiri en venjulega vegna geng-
isbreytingarinnar. Þess vegna
var óvenju rólegur tími í verzl-
unum fyrstu vikuna í desem-
ber. Síðasta vika hefur hins veg
ar veriö góð^og aðalösin er að
sjálfsögðu eftir .
Símon Símonarson, gullsmið-
ur hjá Jóni Sigmundssyni:
Salan er frekar minni en í
fyrra og jólaösin seinna á ferð-
inni. Annars hefur verið mikið
að gera seinustu dagana, tals-
vert keypt af skartgripum og
öðru slíku til jólagjafa.
Ingibjörg Kristjánsdóttir, verzl-
unarstjóri hjá Pennanum, Hafn-
arstræti: Salan er ósköp álíka
og í fyrra, en þess ber þó að
gæta að þá höfðum við aðra
verzlun hér beint á móti rtieð
hliðstæðar vörur, en núna ekki.
Aðstaðan er allt önnur, Jólaös-
in byrjaði eiginlega ekkert að
ráði fyrr en 10.—12. desember
og hefur verið ag aukast síðan.
’ Seinustu dagana hefur hún auk-
^ izt mjög mikið.
Þórbergur og Hagalín
fá heiðurslaun
Síðasta verk þingmanna fyrir
jólaleyfi var að afgreiða fjárlögin
Bloðið í dag j
24 síðu IL
fyrir árið 1968. Atkvæðagreiðslan
stóö yfir á fjórðu klukkustund og
sjötíu og þrisvar sinnum réttu þing
menn upp hendurnar — með eða
á móti tillögum.
ALlar breytingatillögur meirihluta
fjárveitinganefndar voru samþykkt-
ar, en flestar aðrar felldar. Tillög-
ur um, ag Þórbergur Þóróarson og
Guðmundur G. Hagalín skyldu
hljóta 100 þúsund króna heiðurs-
laun listamanna, voru meðal þeirra,
sem samþykktar voru og -ekki voru
bomar fram af fjárveitinganefnd.
Magnús Kjartansson og Pétur Bene-
diktsson höfðu við 3. umræðu um
fjárlögin lagt fram tillögu um að
fella niður fjárveitingu til Hall-
grimskirkju, en sú tillaga var felld.
V
„Bezta jólagjöfin sem
Akureyri getur fengið'
- sagðí bæjarstjórinn Bjarni Einarsson
í viðtali við blaðið í morgun
Þegar Vísir hafði tal af bæj-
arstjóranum á Akureyri í morg-
un og innti hann eftir þeim á-
hrifum sem verkefni í sambandi
við skipasmíði mundu hafa í för
með sér, komi til þess, sagði
hann m. a.:
— Við vonumst til aö fá þessi
verkefni, en höfum ekki fengiö
staðfestingu um það opinberlega.
Að sjálfsögöu mundi áhrifanna
ekki gæta samstundis, en sé á
lengri tíma litið mundi það hafa
geysileg áhrif. Ég veit ekki hversu
fljótir þeir yrðu í gang, en Slipp-
stöðin hefur ekki sagt upp mann-
skap ennþá.
— Atvinnuhorfur i mundu sem-
sagt batna að mun'?
— ,'ið sjálfsögðu tekur ekki Slipp
stöðin allt vinnuafl, en hún mundi
þó sennilega bæta við sig mann-
slcap kæmi þetta til framkvæmda.
— Hefur verið mikið um atvinnu
leysi á Akureyri í vetur?
Skemmdarverk
á Ægissíðu
Fyrir ári voru settir upp fall-
egir ljösastaurar viö Ægissíðu í
Reykjavík. ’iú hafa einhverjir
skemmdarvargar fundið síg
knúna til að svala fýsn sinni á
þessum staurum og skemmt jj
fjölmarga þeirra allt frá Hofs- jj
vallagötu að Fornhaga. Er þaö l
furðulegt hve lángt menn geta
gengið í athæfi sem þessu.
og ennfremur hefur vantaö fólk til
fiskvinnu en þaö fer ekki hver
sem er í hana svo að fjölbreytni
í atvinnulífinu er nauösynleg. Ef
— í sumar sköpuöust nokkrir | tunnuverksmiðja rikisins fer ekki
erfiðleikar hjá sumum fyrirtækj- J fljótlega í gang verður hópur
um, en nokkuö rættist úr með manna af vinnu sem treysti á
haustinu. Þess má geta aö niður- J vinnu við verksmiðjuna á þessum
suðuverksmiðjan hefur veriö starf tíma. Tunnuverksmiöjurnar eru
rækt með eðlilegum hætti, en þar tvær, hér og á Siglufiröi, en þar
vinna 150 manns þegar bezt lætur I Framh. á bls. 8
■