Vísir - 21.12.1967, Blaðsíða 6

Vísir - 21.12.1967, Blaðsíða 6
V1SIR . Fimmtudagur 21. desember 1967. 6 Utgefandi: Blaðaútgaran visrn rramkvæmdastjóri: Dagur Jönasson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson AOstoóarritstjóri: Axe) Thorsteinsson Fréttastjóri: Jón Birgti Pétursson Auglýsingastjóri: Bergþór Clíarsson Augiýsingan Þingholtsstræti 1, simar 15610 og 15099 Afgreiðsla: Hverfisgötu 55. Ritstjóm: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 llnur) Áskriftargjald kr. 100.00 á mánuði innanlands I lausasölu kr. 7.00 eintakiö Prentsudðjr Visis — Edda h.f. Þáttaskil ^A.lþingi hefur veitt þingmönnum jólaleyfi. Að þessu )) sinni verðúr það styttra en oft áður. Þingið mun koma lj saman aftur 16. janúar 1968. Þetta jólaleyfi markar V þáttaskil í þingstörfunum. Fyrri hluta þingsins er lok- (( ið — síðari hlutinn eftir. i( Líklega hafa fyrri hlutar þings hin síðari ár ekki lt verið jafn viðburðaríkir og sá, sem nú var að ljúka. )/ Þetta var nýtt þing eftir almennar þingkosningar. Nýr )j stjórnarsamningur milli fyrri stjórnarflokka var birt- ] ur í upphafi þings. Sama stjórnarstefnan heldur áfram ( þriðja kjörtímabilið í röð. Það er algert einsdæmi í ( íslenzkri stjórnmálasögu. / Árið 1967 gerbreytti atburðarásinni í málum at- ( vinnulífsins eftir áralanga framþróun. í stað vaxandi / framleiðslu, aukinnar framleiðni og stöðugs hagvaxt- / ar kom afturkippur. Útflutningsverðmæti féllu í verði, J afli var tregari og torsóttari en áður, og sumir mark- ] aðir lokuðust með öllu. ( En vel hafði verið að búið. Safnað hafði verið tvö- j þúsund milljóna gjaldeyrisvarasjóði, ný framleiðslu- ( tæki keypt, nýr. fiskiskipafloti, nýjar vinnuvélar, ný ( véltækni tekin i þjónustu þjóðarinnar, landið ræktað / og grætt. Þjóðin var því að ytri aðstæðum vel búin ; undir erfiðleikana, en síður að hugarfari. Velgengni undanfarinna ára hefur reynzt góðúr jarðvegur fyrir kröfupólitík og jafnvel fyrirhyggjulausa eyðslusemi. Samt er þjóðin ekki spilltari en svo að þessu leyti, að hún er furðu drjúg að jafna sig. Auðvitað skamma /! allir alla nema sjálfan sig, eins og oft vill brenna við. En menn skyggnast um og huga að sér, þótt þeir séu að skammast. Líklega verður dómur sögunnar sá, að oft hafi íslendingum tekizt verr en nú að átta sig á miklum straumhvörfum. Með afgreiðslu fjárlaga og ýmissa gengislækkunar- (( laga er lokið fyrra þætti þingsins. En hvað tekur við eftir áramótin? Enn eru ekki komin fram áhrif geng- islækkunarinnar nema að litlu leyti og enn er eftir að f jalla um ýmis mál, sem eru tengd henni. Boðaðar hafa verið tollalækkanir til að vega á móti gengislækkun- inni. í þeim breytingum verður öðru fremur stefnt að því að lækka neyzluvörur almennings, — innfluttar vörur, sem eru almennar þarfir á hverju heimili. Síðan má búast við margþættri löggjöf til almennra umbóta, sem orðið hefur að bíða í ölduróti haust- pmgsins. En víst er, að þáttaskil eru á þingstörfunum. Annar svipur verður á síðari hluta þingstarfanna. M jgin- máli skiptir, að þau stuðli að öryggi og festu í fram- V þróun íslenzku þjóðarinnar. (( Listir-Bækur-Menningarmál Eiríkur Hreinn Finnbogason skrifar bókmenntagagnrýni: Sverrir Kristjánsson og Tómas Guðmundsson: HORFIN TÍÐ — lslenzkir örlagaþættir. Fomi — Reykjavík, 1967. Félagsprentsmiðjan hf. — 256 bls. — Myndir. Tjetta er fjórða bókin 1 flokkn- um íslenzkir örlagaþættir. sem þeir Sverrir Kristjánsson og Tómas Guðmundsson rita. Einhverja hef ég heyrt ympra á því, aö slíkum ritsnillingum, sem þessir höfundar eru, sómi vart að rita bækur eins og þessa þætti, um liöna tíö, sem séu þó hvorki skáldskapur né sagnfræði. En fengur er aö öllu, sem vel er ritað, hverju nafni sem þaö nefnist. Vitaskuld má ekki fara meö staðleysur. þegar ritað er um fyrri tíma, og það gera þessir þættir vissulega ekki. En hvað er það þá, sem skilur þá frá sagnfræði? Ekki annað en það, að höfundamir blása lífi í frásögnina meö hug- kvæmni sinni, draga kannski upp myndir af atburöum, sem ekki er alveg vlst, að gerzt hafi í veruleikanum nákvæmlega á þann hátt, kveöa ef til vill upp lítilvæga dóma án þess aö rök- styöja þá, og vitna ekki alltaf í heimildir. Annars er athyglis- vert, að sagnfræöingurinn er of- urlítið gjamari til fullyrðinga en skáldið, sem ég fæ ekki bet- ur séö, en sé mjög varfærið i öllu slíku. Af hinum 7 þáttum í þessari bók hefur Sverrir Kristjánsson ritað 4, en Tómas Guðmunds- son 3. Þættir hins fyrmefnda heita: Prestssonurinn frá Ball- ará, um Torfa Eggerz, skamm- lífan íslenzkan stúdent í Kaup- mannahöfn, samtíðarmann Jón- asar Hallgrímssonar; Köld em ómagans kjör, um lítinn niður- setning, sem lifði ekki af illa Alþingi í aldarspegli. Þátturinn um Torfa er þessi venjulega frá sögn um drykkjuskap, van- heilsu og skammlífi íslenzkra stúdenta í Höfn á 19. öld, sem klifað hefur verið á meö kyn- sjúkdómagetgátum og tilheyr- andi, allt frá því atburðimir gerðust og eyrun hér heima hafa löngúm veriö helzt til op- in fyrir. Öðru máli gegnir um næsta þátt um Iitla drenginn Pál Júlíus Pálsson. Er sú saga, eins og hún er rituð hér, ein nístandi kvalastuna allra þeirra illa höldnu bama, sem sagt gátu með sanni á dauöastundinni: Sjúkur var ég, og þér vitjuðuð mfn ekki. Bóndinn á Eyri er mestur þátta Sverris Kristjánssonar, mikil mannlýsing á skopskyggn- um athafnamanni, sem vel hefði getað blásið Einari Benedikts- syni í brjóst hugmyndinni: Vort heimslíf er tafl fyrir glöggeyg- an gest,/þar sem gæfan er ráð- in, ef leikurinn sést... Þessi maður liföi ævintýriö þrátt fyr- ir meira en lítið óhentugar aö- stæöur, setti síöan allt í áhætt- una háaldraður, nema sjálfan sig og kotið, þar sem ævintýr- ið hófst — og glataöi öllu nema þessu tvennu. Ekki skal ég leggja dóm á, hversu nálægt þessi lýsing fer hinum raun- verulega Þorvaldi á Þorvalds- eyri, en greinilegt er, aö við- fangsefnið hrífur höfundinn. Tómas Guðmundsson er var- færinn. Og stórbóndinn, sem hann ritar um, Þorleifur á Há- eyri, var líka varfæmari en Þorvaldur á Þorvaldseyri. En hann var líka stórgáfaður og átti geysiörðuga æsku. Átakan- leg er frásögnin af því, þegar hinn snauöi unglingur gengur í örvilnan sinni og tötrum tii Reykjavíkur með bæn á vörum um þaö, aö einhver styddi hann menntaveginn. Vitaskuld synj- aöi höfuðstaðurinn svo skítug- um tðtrastrák. En Þorleifur Kol- beinsson gafst ekki upp fremur en Edison. Hann „leysti hnút- inn, en skar hann ekki“, sagði hann sjálfur viö manninn, sem var aö skera böndin af bögg- um sínum og spurði Þorleif, hvemig á því stæöi, að hann hefði efnazt svona vel. Listrænasti þáttur bókarinn- ar er Hörpusveinn frá horfinni tíð. Ingimundur, þessi einkenni- legi fiðlungur, sem ritaði kver- ið Huldudrenginn og Tómas Guömundsson byggir frásögn sfna aö nokkru leyti á, varö reyndar aldrei annaö en lodd- ari, ef til vill af því að hann fæddist 12 árum of snemma. Bróðir hans, heimskunnur mál- ari, var 12 árum yngri, en þessi stutti tími skipaöi þeim þó „sitt hvorum megin við aldahvörf", eins og höfundurinn kemst aö oröi. Saga þessa manns var alls ekki fátíð saga fyrrum í þessu landi, en eins og hún kemur úr penna Tómasar Guðmunds- sonar veröur hún einstæð. Vel má vera, að höfundar þessarar bókar gefi hugmynda- fluginu eitthvað lausan taum- inn í þessum þáttum. En ailt sem máli skiptir þar eru stað- reyndir — og þættir þeirra verða lesnir og munaöir, svo er ritsnilld þeirra og hugkvæmni fyrir aö þakka.-'Og er ekki aö- alatriðið, að það sem skrifað er, sé lesið, þ. e. a. s. ef það er vænlegt til aukins fróðleiks og víðsýni. Og það eru þessir þættir Sverris Kristjánssonar og Tómasar Guðmundssonar fortakslaust. Orðaspilið (stafaspil) Uppfinning S. K. Linnets loftskeytamanns meðferð; Bóndinn á Eyri, um Þorvald á Þorvaldseyri, og Al- þingi í aldarspegli, stutt yfir- lit yfir nokkur sakamál á Al- þingi á 16. og 17. öld. Þættir Tómasar Guðmunds- sonar heita: Friöþæging, um Agnesi og Friörik. aðdraganda morösins, morðið sjálft og af- tökuna, en þó einkum hinn heimsfræga, en ekki einstæða þátt, sem við þá sögu bættist 100 árum eftir aftökuna; Hann leysti hnútinn, um Þorleif Kol- beinsson á Háeyri, og Hörpu- sveinn frá horfinni tíö, um Ingi- mund Sveinsson, bróður Jó- hannesar Kjarvals. Þættimir em misjafnir, og ræður þar efnið mestu um. Lít- ið athyglisvert finn ég t. d. í þáttunum um Torfa Eggerz og S. K. Linnet loftskeytamaður hefur fundið upp orðaspil (stafa- spil), sem er nýkomið út, og hefir hann sótt um einkaleyfi á þessari uppfinningu sinni. Orðaspilið er keppnisleikur heppni og þekkingar, segir Linn- et í inngangi að leikreglum, og skemmtun fyrir unga og gainla. Til þess að spila það, eru notuö sérstaklega gerg spil — stafa- spil — og keppa þátttakendur um að fá sem flest stig, sam- kvæmt reglum þeim, er fylgja og stigatöflum, en þau fást með því að mynda sem flest og lengst orð úr þeim spilum, sem hver hefir yfir að ráða. Stafa- spilin eru meö bókstöfum hinna ýmsu stafrófa, svo sem hinu latneska, gríska, hebreska, arab- íska, rússneska o. s. frv. Þátttakendur geta verið tveir eða fleiri og keppir hver fyrir sjálfan sig. Hver og einn hiýtur stig samkvæmt stigatöflunum. Tveir og tveir geta spilað sam- an sem félagar og eru stig þeirra þá lö.gö saman sem ein heild. Mjög greinargóðar nánar' skýringar fylgja. Orðaspilig er til þess fallið að auka þros)-a og þekkingu keppenda — og ekki er að efa, að það er ágæt dægra \ stytting.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.