Vísir - 06.01.1968, Page 1

Vísir - 06.01.1968, Page 1
Danskir lögreglumenn koma hingað vegna faktú rumálsins völdunum hér við Iokaþátt rannsóknarinnar í faktúru- málinu, — svindlmáli Páls Jónassonar frá Lambastöð- um, sem kom fram í dags- ljósið, þegar danski forstjór- inn Elmo Nielsen kveikti í verksmiðju sinni í Kvistgaard til þess að hilma yfir svindl- brask sitt. Mál þetta kom upp seint á árinu 1966 og þáttur íslenzku innflytjendanna í þvi hefur ver ið í rannsókn siðan, en rann- sókn gengið hægt. Á meðan eru Danir búnir að rannsaka mál forstjórans og í fyrra var hann dæmdur í tukthús fyrir svindl. >að ’.ar danska lögreglan, sem vakti á sínum tíma at- hygli yfirvalda hér, að eitthvað myndi gruggugt við viðskipti íslenzkra innflytjenda við fyrir- tæki Elmo Nielsens. Leiddi þetta til rannsóknar hér heima og handtöku Páls Jónassonar og aðstoðarmanns hans, sem báðir voru úrskurðaðir í gæzluvarð- hald. Svo var að sjá af rannsókn- inni, að faktúrur með vörusend- ingum Nielsens væru falsaöar Með hverri sendingu fylgdu tvær faktúrur, önnur stfluð á lægri upphæð en sendingin nam að verðmæti og var sú sýnd tollayfirvöldunum til álagningar tolla, en hin hljóðaði á hærri upphæð og var sýnd í bönkum við öflun gjaldeyris. Sumar faktúrurnar hljóðuðu á aðrar vörutegundir en í sendingunni voru. Samkvæmt niöurstöðum rannsóknar tollayfirvalda og rík isendurskoðunarinnar virtist sem Páll ætti ógreiddar 2 millj- ónir 664 þúsund krónur í að- flutningsgjöld af þessum við- skiptum sínum við Hovedstad- ens Möbelfabrik i Kvistgárd, auk þess sem margt benti til þess, að hann hefði gerzt sekur um gjaldeyrissvik. í nóvember 1966 komu hing að tveir danskir lögreglumenn og endurskoðandi vegna rann- sóknarinnar í máli Nielsens for- stjóra, og síðar sendu Danir gögn í málinu hingaö til lands til liðsinnis yfirvöldum hér og snertu gögnin viðskipti íslend- inga við fyrirtæki Nielsens. Við- skipti yfir nokkurt tímabil, sem námu í allt um þrem milljónum dönskum krónum. Framhald á bls 10 Ovissa um freðfisksölu til Rússiands — Ibæð/ hvað snertir verð og magn — samningar tilbúnir i næstu viku • Kufiniir listdans-: : flokkur kentur • ihinpð á vegunt • j Þjóðleikhússins • : Næsta fimmtudag kemur hing • Jað til Jands 25 manna flokkur: • listdansfólks frá Júgóslavíu ogj ^sýnir hér tvisvar sinnum á vegs • um Þjóðleikhússlns, föstudag og J ^laugardag. • J „Frula“, en svo nefnist þessia • söng og dansflokkur á frummái: ^inu leitast við að halda við • • lýði og safna upprunalegum al-« • þýöusöngvum og þjóðdönsum • ^og vinna á listrænan hátt úr • • því efni. Flokkurinn hefur lað^ ^ að að sér marga kunnustu dans J Jara, söngvara og aðra hljóm- • • listarmenn Júgóslavíu og hefur: l hann farið víða um heim ogj Jsýnt listir sínar við góðar við- • otökur. Flokkurinn dvaldist með: ^ al annars fimm mánuði í S-Ame • • riku á síðasta ári, einnig hefur • • flokkurinn sýnt víða í EvrópuJ Jog hér kemur flokkurinn við á* • ieið sinni til Bandaríkjanna, þar: ^sem hann mun sýna næstu fjóra J Jmánuðina í öllum helztu stór-« • borgum. ^ ^ „FrulaK-dansfIokkurinn var • • stofnaður af Sambandi atvinnu* • listdansmanna aðaldansari og^ ^bjálfari flokksins heitir Dragos- • • 'avs Dzadsevics. ^ • • „Vísir í vikulokin#/ til úskrifendo * í dng „ v ,sir í vikulokin“ fylgir blað- inu í dag til áskrifenda. Athygli lesenda er vakin á því, að nú fell- ur niður sala á „Viisi í vikulokin" I lausasölu. Verður hann framvegis aðeins sendur áskrifendum og verð- ur ekki á boðstólum á annan hátt. — Áskriftarsími blaðslns er í-16-60. Um þessar mundir standa yfir samningar við Rússa um fisksölu, og er samn- inganefnd á vegum íslands stödd ytra til viðræðna við Rússa. í viðtali, sem Vísir birtir í dag við fiskimála- stjóra, Má Elísson, segir hann meðal annars, að horf ur séu mjög óvissar um freðfisksölu til Rússlands í ár, bæði hvað snertir magn og verð, eftir því, sem samninganefndin upplýsir. Fyrir tveimur árum var gerður rammasamningur við Rússa um fiskkaup til þriggja ára og sam- þykkja þeir þar kaup á minnst 12- 15 þúsund lestum af frystum fisk- flökum auk 5 þús lesta af heilfryst um fiski. Rússar eru næststæfstu viðskipta vinir okkar hvað frystar fiskafurð ir snertir, næst á eftir Bandaríkja mönnum, en þar hefur dregið mjög úr fisksölu síðan páfi afnam bann kaþólsku kirkjunnar við kjötáti á föstudögum. Rússar keyptu til að mynda sjö fyrstu mánuði síðasta árs tæpar 9 þúsund lestir frystra fiskflaka, en Bandaríkin aðeins um 11 þúsund í stað 16.400 lesta árið áður Yrði það þungt áfall fyrir hrað- frystiiðnaðinn, ef þessi sala frystra fiskafurða til Rússlands drægist saman. Rammasamningurinn renn- ur út i lok þessa árs. Rússar hafa mjög aukið fiskveið ar sínar undangengin ár og verða brátt sjálfum sér nógir með fisk- afla. Ekki er þó beinlínis ástæða til svartsýni varðandi Rússlandssamn- ingana en búizt er við að þeim verði lokið seint í næstu viku. ÓFREMDARÁSTAND Á VOPNA- VEGNA OL/ULEYSIS FlRÐl □ Ófremdarástand hefur nú skapazt á Vopnafirði, vegna olíuleysis. Olíuskipið Stapafeíl er á leiðinni til kaup staðarins og mun væntanlegt þangað um hádegisbilið I dag. Óvíst er hvort því teksí að landa olíunni í dag vegna ókyrrðar í höfninni, en aust- an- og na-átt er mjög ó- hagstæð fyrir innsiglinguna til hafnarinnar. Blaðið ræddi í gær við Hlalldór Halldórs- son, kaupfélagsstj. á Vopna- firði og Hjört Hjartar, for- stjóra skipadeildar S.Í.S. um mál þetta. Halldór sagði m. a.: — Við vonum að úr því á- standi, sem hér hefur ríkt i olíumálum, sé nú að rætast, þvi nú rikir ófremdarástand í bæn- um. Stapafell er væntanlegt hingað um hádegi á morgun, (þ e. a. s. laugardag). Við erum mjög hræddir við ísinn og von- umst því eftir olíuskipinu sem fyrst. Vegna þess hve höfnin hér er óörugg, þyrftum viö að eiga olíubirgðir um áramótin, sem enzt gætu í 3 til 4 mánuði. Rafstöðin gengur fyrir dísilolíu, þannig að þegar olíulaust verð- ur, veröur allt rafmagnslaust, auk þess að kyndingar stöðvast. Við erum því algerlega háö ol- iunni, ef svo mætti segja. — Er lítið geymslurými fyrir olíu á Vopnafirði? - Nei, síður en svo, hér er nóg geymslupláss. Olíufélögin segja okkur hins vegar að Rúss- ar hafi ekki staöið við gerða samninga, hvað afgreiðslu og flutninga á olíu viðkemur og hafa þau þess vegna orðið að skammta olíuna. — Hvernig er þá ástandiö á Vopnafirði núna? Er mikiö af húsum olíulaust? — Sem betur fer höfum viö getað bjargað okkur meö því að dæla dreggjunum upp úr geym- unum, en til þess höfum við notað olíubifreiðadælurnar, vegna þess að geymadælurnar sjálfar ná þeim ekki. Með þessu móti hefur okkur tekizt að halda logandi í kynditækjum húsanna, en það er á takmörk- unum að við getum það öllu lengur. — Hvernig eru horfurnar á að Stapafelli takist að leggjast að bryggju? — Höfnin er ófær eins og er, en við vonum það bezta. í aust an og n-austanátt er mjög vont sjólag f höfninni og má geta þess í því sambandi, að Arnar- fellið bíður hér úti á firðinum, en það á að lesta síld. Hjörtur Hjartar sagði, að Stapafellið hefði sem kunnugt er reynt að komast inn á höfnina í Keflavík eystri, en án árang- urs. Skipið væri nú á leiðinni austur með olíufarm, en eins og væri, íiti ekki út fyrir aö mögu leikar fyrir löndun væru fyrir hendi, þar sem algerlega ófært væri inn í höfnina. Höfnin í Vopnafirði væri einhver sú erfið asta á landinu, hafnarskilyrði léleg. Innsiglingin hættuleg og svo væri hálfkláraður hafnar- garður til lítilla bóta. Hjörtur sagði, að Arnarfell hefði nú legið úti á firðinum um tíma og kæmist ekki inn á höfnina, vegna fyrrgreindra ástæðna, en það biði þess að geta lestað « síld á Vopnafirði. Hjörtur sagði en. Jremur aö Helgafell hefði orðið að flýja höfnina á Vopna- firði fyrir nokkru og hefði þó hlotið skemmdir áður en þvi Framhald á bls 10

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.