Vísir - 06.01.1968, Blaðsíða 2

Vísir - 06.01.1968, Blaðsíða 2
2 V1SIR. Laugardagur 6. janúar 1968 TÁNINGA- SÍÐAN BRIAN JONES slapp við fang- elsishegningu, en varð að lofa dómaranum því að fara á fund Brian Jones, hinn 25 ára gamli gítarleikari „Rolling Stones". á ekki í vændum að sitja innan veggja fangelsisins næstu níu mánuði eins og við hafði verið búizt og reyndar næstum fullá- kveðið með dómi. Þann 13. des- ember s.l. hnekkti áfrýjunardóm stóll í Lundúnum fangelsishegn ingunni í 140.000 króna sekt, en auk þess varð Brian Jones að lofa dómaranum því, að fara strax á fund geðlækns — þess bezta I London — í Harley Street. Læknisvottorð, sem lagt var fram við réttarhöldin, bar með sér, að Brian Jones hafi verið í misvægi meðan hann reykti „hash“. „Nú er hann hættur að neyta eiturefna", segir í yfirlýs ingunni. 31. október var Brian Jones dæmdur til 9 mánaða fangelsis vistar af sakamáladómstólnum 1 Lundúnum fyrir að hafa reykt „hash“ og leyfa notkun þess inn an veggja híbýla sinna. Hann á- frýjaði dómnum strax. Meðan réttarhöldin stóðu yfir, þann 13. desember, voru öll á- heyrendasætin í réttarsalnum skipuð hárprúðum ungmennum beggja bynja, sem gáfu frá sér gleðióp um leið og dómsúr- skurður var upp kveðinn. Dómarinn, Lord Parker, tók það skýrt fram, að ekki væri hægt að dæma þekkta og eða vinsæla persónu harðara fyrir misnotkun deyfandi lyfja, en hinn almenna borgara. Undirrétt ur hafði álitið hið gagnstæða. Og það var rökstuðningurinn fyr ir hinni löngu fangelsishegningu er rétturinn dæmdi Jones í, en sem svo var virt að vettugi. er hann klæddur sauðskinnspels. GAUTAR með nýja plötu Það er víst liðinn tæpur ald arfjórðungur siðan tveir bræður I Skagafirði eignuðust sín fyrstu hljóðfæri. Það voru harmonikk- ur og þóttu heilmikil hljóðfæri í þann tíð. Piltamir vom á ferm ingaraldri, hétu Guðmundur og Þórhallur, vora Þorlákssynir og áttu heima að Gautlöndum. Innan fárra ára voru þeir orðnir þekktir um allt Norður- iand, og léku þar fyrir dansi við miklar vinsældir. Voru þeir kallaðir Gautlandsbræður. Árin liðu og bræðumir flutt ust til Siglufjarðar. Þeir eignuð- ust fleiri hljóðfæri og þeim bætt ust fleiri liðsmenn. En þegar meðlimir hljómsveit arinnar voru orðnir fjórir, og bræðumir frá Gautlöndum því aðeins helmingur hennar, gat hún ekki lengur borið nafnið Gautlandsbræður. Var því horfið að því ráði að stytta það niður í Gautar og hefur hljómsveit- in haldið því nafni síðan. Nú era Gautarnir orðnir sex talsins. Auk Gautlandsbræðr- anna tveggja eru í hljómsveit- inni trommuleikarinn Jónmund- ur Hilmarsson, söngvarinn Bald vin Júlíusson, gítarleikarinn Ell- as Þorvaldsson og slðast en ekki sízt Geirharður Valtýsson, en uppáhaldshljóðfæri hans er trompet. Vakti trompetleikur. hans mikla athygli I lögum þeim sem karlakórinn Vísir söng inn á hljómplötur á árinu 1966 og ' notið hafa mikilla vinsælda. ' Gautar sáu um undirleik með kórnum, en nú lltur fyrsta plata þessarar vinsælu hljómsveitar dagsins ljós. Geirharður Valtýs son hefur útsett öll lögin og ’ samið eitt þeirra sjálfur, en reynt hefur verið að hafa þau sem fjölbreyttust, Gautamir hafa átt miklum vin- sældum að fagna norðan lands og austan, þar sem þeir hafa leikið fyrir dansi á undanföm- um árum, og án efa á þessi hljómplata eftir að gera þá vin sæla um land allt. Á hljómplötu þessari eru fjög ur lög. Þau eru: „Kysstu mig“, „öldur rlsa“. „Okkar dans“ og „Tvlfarinn". ' Dólgsleg framkoma „The Move44 í Kaupmannahöfn Meðlimir brezku bítlahljóm- sveitarinnar „The Move“ komu ekki fram sem prúömenni I hljómleikasal Tívolís I Kaup- mannahöfn I miðjum desember mánuði síðast liðnum. Eins og á ákveðnu augnabliki þeyttu hinir fimm meðlimir hljómsveitarinn- ar öllum hljóðfærum sínum fram af sviðinu og niður á gólf eftir stundarfjórðungs leik, bölvuöu há stöfum og yfirgáfu sviðið. Létu þeir ekki sjá sig meir, heldur söfnuðu saman pjönkum sínum og gengu út I náttmyrkur Kaup mannahafnar. Rökfærsla þeirra fyrir aðgerð- um sínum var, að söngkerfið hafi ekki verið nógu gott. En 'samdæg urs höfðu þeir verið á æfingu í hljómleikasalnum, og hefðu þeir átt að vita ásigkomulag þess. Án þess að ræða galla kerfisins, ef þeir hafa þá nokkrir verið, fóru fimmenningamir að æfingu lok- inni í næsta veitingahús og sett- ust að snæðingi. Og um kvöldiö voru þeir mættir hálftíma áður en hljómleikarnir áttu að hefjast. „The Move“ gerðu enga tilraun til að laga títt nefnt söngkerfi. Þess I stað mölduðu'þeir ófeimn- ir I móinn yfir kringumstæðun- um, og létu I það skína, að þeir myndu aldrei aftur til landsins koma. „Þess þurfa þeir heldur ekki“, sagði Knud Thorbjömsen, skipu lagsstjóri hljómleika þeirra I Dan mörku. „Þeir fá hér aldrei at- vinnuleyfi framar. Greiðsluna geta þeir ekki gert sér vonir um að fá. Ég hef einnig sagt þeim, að þsir þurfi ekki að koma fram á hljómleikunum I Stokkhólmi á þriðjudagskvöldið (21. des.), eins og um hafði verið samið“. Eins og plástur á sárið brá norska hljómsveitin „The Van- guards" sér, sem þá var til staðar inn á sviðið og veitti áheyrend- um hálftíma ánægju, og var fram koma þeirra eJns og bezt verður á kosið. Miklu betri en sú, sern „The Move“ hafði sýnt af sér I KaupmannahÖfn.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.