Vísir - 06.01.1968, Síða 3

Vísir - 06.01.1968, Síða 3
VIS IR . jLauraruciéai o, janúar 1968. pggzagaanMirwig^ffl^^ 3 Hér eru 7 af þeim 10, sem efst urðu í atkvæðagreiðslunni. Frá vinstri: Árdís Þðrðardóttir, Eriend- ur Valdimarsson, Geir Hallsteinsson, Guðmundur Gíslason, Guðmundur Hermannsson, Öm Hallsteins son og Sigrún Siggeirsdóttir. létt að komast fram hjá því í sumar, og ekki sé ólíklegt aö hann muni ógna 19 metrunum. Ekki vildi Guðmundur spá neinu um þetta, — hann er ákaf lega hógvær og vill ekki gera mikið úr afrekum sínum. Guðmundur er skemmtilegt dæmi um íþróttamann, sem ekki gefst upp, sem við eigum þvi miður of litið af. Nafn Guðmund ar má finna í árbók íþrótta- manna 1948. Þar sigrar hann á Vestfjarðamóti í kúluvarpi og varpar 11.95 metra, þá 23 ára gamall, eða á þeim aldri, sem fiestir iþróttamenn vinna sín stærstu afrek. Næstu 20 árin bætti Guðmundur afrek sín, en eitt ár, 1958, var hann frá keppni v.egna alvarlegra meiðsla i baki og uppskurðar þeirra vegna. Þá munu flestir hafa reiknaö með að ferii íþrótta- manns væri lokið. — en svo var ekki. í hitteðfyrra, eða í september kom hingað bandarískur kúiu- varpari, Steinhauer að nafni, sem kenndi Guðmundi hvemig bæta mætti árangurinn, — og næsta vor eftir mikla og góða ástundun við lyftingar kom ár- angurinn í Ijós. Alls komu nöfn 28 íþrótta- manna fram við atkvæöagreiðsl- una, en 10 efstu menn og kon- ur voru þessi: 1. Guðmundur Hermannsson KR, frjálsíbróttir 77 st. 2. Geir Hallsteinsson, FH, handknattleikur 49 st. 3. Þorsteinn Þorsteinsson, KR, frjálsiþróttir 47 st. 4. Erlendur Valdimarsson, ÍR, frjálsíþróttir 36 st. 5. Guðmundur Gíslason, Á. sund 33 st. 6. Sigrún Siggeirsdóttir, Á, sund 24 st. 7. Þórir Magnússon, KFR, körfuknattleikur 19 st. 8. Jón Þ. Ólafsson, ÍR, frjálsíþróttir 11 st. 9. Árdís Þórðardóttlr, Siglufj. skiðaiþróttir 10 st. 10. Öm Hallsteinsson, FH, handknattleikur 9 st. Eftir verðlaunaafhendinguna í gærdag þakkaði Guömundur Her mannsson fyrir sig meö ræðu og sagði m.a. að hann hygðist halda áfram æfingum af kappi. „Það er enginn kominn á topp- inn fyrr en hann er örugglega á niðurleið aftur“, sagði hann og minnti íþróttamenn á að of mikl brögð væm að bví aö menn hættu of snemma þátt- töku í iþróttum. Guðmundur Hermannsson, aðst oðary f irlögregluþ j ónn. GUÐMUNDUR HERMANNSSON með hina veglegu styttu, sem fylgir nafnbótinni „íþróttamaður ársins“. Guðmundur Hermannsson, íþróttamaður ársins: 42 ára lögreglumaður óumdeilanlega beztur Það mun sennilega ekki oft sem 42 ára menn eru sæmdir heitinu „íþróttamaöur ársins“, en það var þó gert í gærdag. Þá var Guðmundur Hermanns- son, aðstoðaryfirlögregluþjónn, kjörinn „iþróttamaður ársins 1967“, — og allir kjörgengir i- þróttafréttamenn, einn frá hverju fjölmiðlunartæki höfuð- borgarinnar, völdu Guðmund i efsta sæti á lista sínum yfir 10 beztu íþróttamennina. Guðmund ur hlaut því 77 stig af 77 mögu legum. Guðmundur Hermannsson var lengi framan af sínum íþrótta- ferli algjörlega í skugga annarra og það var fyrst i fyrrasumar, sem virkilega tók að kveða að honum í kúluvarpi. — strax á fyrsta móti sumarsins, bætti hann met Gunnars' Huseby og um haustið voru Islandsmet hans oröin 10 talsins, og gamla íslandsmetið hafði verið bætt um meira en einn metra. Undir lokin var Guðmundur farinn að glima við 18 metra-strikið, og flestir spá því að honum veitist Frá hófinu i gær, þar sem úrslitin voru tilkynnt. Fyrir enda borðsins situr Sigurður Sigurðsson, formaður samtaka íþóttafréttamanna.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.