Vísir - 17.01.1968, Side 7
V í S IR . Miðvikudagur 17. janúar 1968.
'&MMi Ifirl ' o ' V _ ■ ✓ 1 }-
morgun útlönd í morgun :.útlönd í raorgun útlönd í raorgun Útlön
Wilson gerði í gær grein fyrir tiiiögum um
spurnuS, sem nemur einum miiijurði stpd.
á þremur úrum
P'óntun á F-lll herflugvélum afturkölluð, heim-
flutningi liðs frá setuliðsstóðvum utan Evrópu
hraðað — og lagt niður það fyrirkomulag, að
menn fái algerlega fria læknishjálp
Harold Wílson forsætis-
ráðherra Bretlands fIutti
ræðu í gær í neðri málstof-
unni og gerði grein fyrir til
lögum þeim, sem samkomu
lag hefir orðið um í ríkis-
stjóminni efnahagnum til
eflingar. Með þessum ráð-
stöfunum áætlar stjórnin,
að sparist útgjöld sem
nema um einum milljarði
sterlingspunda á þremur ár
um.
Wilson lagði áherzlu á, að þessar
ráðstafanir hafi verið nauðsynleg-
ar til þess að treysta grunn gengis-
lækkunarinnar í lok nóvember síð-
astliðs.
Meðal ráðstafananna eru afturköll
un pöntunar á 50 bandarískum flug
vélum til kjámorkuhernaðar, að
að hraða heimflutningi liðs frá setu
liðsstöðvum utan Evrópu, og leggja
niður það tryggingafyrirkomulag,
að menn fái læknishjálp sér aiger-
lega að kostnaðarlausu.
Það er búizt við harðri gagnrýni
á að grípa til svo róttækra spam-
aðaraðgerðar sem raun ber vitni.
Stjómendur landhers, flughers og
flota og þeir, sem þá styðja, munu
andmæla, og margir ætla að í hin-
um róttækari armi stjórnarflokks-
ins muni ýmsir ganga hart fram í
gagnrýni á V/ilson fyrir að hrófla
við fyrirkomulaginu um algerlega
fría læknishjálp.
Gert er ráð fyrir, að það muni
baka ríkisstjórninni útgjöld sem
nemi 100 miljónum punda, að aftur
kalla flugvélapöntunina.
Það eru hinar svokölluðu F-lll
herflugvélar sem hér er um að
ræða..
Bandariska iandvarnaráðu-
neytiö hefir birt tilkyningu þess efn
is, að mjög beri að harma, að ákveð
ið hafi verið að afturkalla pöntun-
ina á 50 orrustu-sprengju-flugvél-
um af gerðinni F-lll, eru þær með
hreyfanlegum vængjum, en að öðru
leyti vilji ráðuneytið ekki gera á-
kvörðun brezku stjórnarinnar að
umtalsefni varðandi ákvarðanir
hennar um brottflutning liös frá
stöðvum utan Evrópu.
sVo til allur liðlafli Brétiands
utan Évröpu og Miðjarðarhafs mun
verða fluttur heim og verða lokiö
eigi síðar en 1970. Lið í Suðaustur
Asíu og við Persaflóa þó ekki allt
fyrr en 1971, og undantekning er
að setulið verður ekki flutt frá
Hong Kong og ekki fækkað í setu-
liðinu þar. Liðið frá Suöaustur-As-
íu og Persaflóa verður flutt heim
4 árum fyrr en áformað var.
Flugvélaskip Breta 4 talsins verða
tekin úr notkun.
Af öllu þessu leiðir, að Bretaí
munu enga mikla herstöð hafa ut-
an Evrópu og Miðjarðarhafs, þegar
framkvæmd áætiunarinnar er lokið.
Missafnar undirtektir
I dag hefst í neðri málstofu
brezka þingsins tveggja daga um
ræða u n efnahagsmálin og í lok
hennar fer fram.atkvæðagreiðsla
um ráðstafanir til sparnaðar,
sem Wiison forsætisráðherra
boöaði í gær.
Þær sæta misjöfnum undirtektum
heima fyrir og erlendis eins og fyrir
fram var vitað og jafnvel innan
stjórnarflokksins sjálfs, einkum
vegna þess, að dregið er úr þeim
hlunnindum sem aimenningur hefir
notið á sviði trygginga þ.e. að geta
fengið lyfseðil hjá lækni sér að
kostnaðarlausu.
Þá veldur það vonbrigðum, að
frestað er að hækka skólaskyldu-
aldurinn, sem gert var ráö fyrir, að
hann mundi verða hækkaður um
allt að tvö ár.
í fráttaauka var sagt í morgun að
augljóst vséri að vegna þess að hætt
hefði verið við að kaupa F-lll hern
aðarflugvélar frá Bandaríkjunum,
myndu Bretar standa mun verr að
,:gi en áður að senda lið ef þörf
’-.refði úr landi í tæka tíð og m.a.
þess vegna ekki verða banda-
mönnum sínum að sömu notum
til skyndiaðgerða á hættutímum.
Leiðtogar stjórnarflokkanna
sögðu báðir í ræðum í gærkvöldi,
aö stjórninni bæri að leggja málin
undir úrskurð kjósenda. Heath leið
togi stjómarandstöðunnar sagði til
lögurnar sýna, aö efnahagsstefna sú
sem Wilson heföi fylgt væri í rúst-
um.
Forseti lávarðardeildarinnar hefir
beðizt lausnar út af ákvörðuninni
um ■ skólaskyldualdurinn.
Næstum öll morgunblöð í Bret-
landi lýsa sig mótfallin spamaðartil
iögum Wilsons á sviði varna. Að-
eins vinstriblaðið Daily Mirror styð
ur tillögur Wilsons eins og þær
leggja sig.
Daily Express segir, að með til
lögunum sé hafið nýtt tímabil á
Bretlandi — tímabil auðmýkingar-
innar.
Financial Times — Fjármálatíð-
indi — segja tillögurnar valda von-
brigðum öllum, sem vonað hefðu að
stjórnin gæti treyst grunn gengis-
lækkunarinnar.
í frétt frá Washington var sagt,
að það ylli beizkum vonbrigðum að
ákveðið væri að flytja burt lið frá
Persaflóa og tekið fram að Banda-
ríkin hefðu engan herafla til þess
að láta taka við vömum úr hendi
Breta austan Suez,
í Frakklandi var látin í ijós
ánægja yfir að ekki var boðað að
Bretland hætti þátttöku í fram-
ieiðeslu Concord-flugvéla.
í V-Þýzkalandi er ánægja yfir að
Wilson boðaði ekki frekari liðsflutn
ing þaðan.
Lee Kwan Yew forsætisráðherra
Singapore, sem fór til London gagn
gert til þess að reyna að fá Wilson
til þess að fresta ákvörðun um að
hraða borttflutningi liðs þaðan
sagöi, að þótt það ylli miklum von-
brigðum, að setuliðið yrði flutt
burt frá Singapore, væri þó bót í
máli að flutningum yrði ekki lokið
fyrr en 1971, og fengist þannig tími
til þess, að Singapore gæti undirbú
ið varnarsamstarf með Ástralíu,
Nýja Sjálandi og Malajsíu.
Allmikið er rætt um og gagnrýnt
af ýmsum, að sparnaöurinn nær
ekki til efnahagsaðstoðar erlendis
og að dregið verður úr framlögum
til skólabygginga, vega og margra
annarra framkvæmda.
Sá spamaður sem tilkynntur er
nær aðeins til beinna ríkisútgjalda,
en boðað er, að dregið verði úr fram
lögum til ýmislegs stuönings við
bæjar og sveitarfélöig.
Fjárlagafrumvarpsins er von um
miðjan marz og er gert ráð fyrir, að
Papandreou
í París
Andrean Papandreou fyrrverandi
þingmaður i Grikklandi og stjóm-
málaleiðtogi kom til Parísar í gær
ásamt fjölskyldu sinni.
Hann hefir ekki látiö neitt upp-
skátt um áform sín, en talið er að
hrnn muni fara til Bandaríkjanna.
Hann var fyrmm kennari við Kali-
forniuháskóia.
í því verði ymis ákvæði, sem komi
hart niður á öllum sem skattabyrð-
arnar bera.
LAND-
SKJÁLFT-
ARNIR
Paiermo: Alþjóðastarfsemi er haf
in til hjálpar þúsundum manna á
Sikiley, sem heimilislausir eru
vegna landskjálfta á vesturhiuta
eyjarinnar. Og í gærkvöldi varð
nýrra hræringa vart í bænum Gib-
ellina, sem er að mestu í rústum
eftir kippina á sunnudag og mánu-
dag.
Frá Camporeale austan Palermo
lögðu allir ibúarnir — 6500 manns
á flótta þegar 5 gígir mynduöust,
en ur þeim lagði gufu og brenni-
steinsfýlu. Fjær, í Agrigenti og Tra
ani, varð og hræringa vart. Þús-
undir manna leituöu út í sveitirnar.
Langar iestir vörubíia sem hlaðnir
eru matvælum eru á leið til bæj-
anna á landskjálftasvæðinu.
George Romney.
Jenkins.
Jenkins:
Bretland ekki
stórveldi lengur
JENKINS fjármáiaráðherra fiutti
ræðu í sjónvarp í gærkvöldi og
sagði, aö horfast yrði í augu við
þá staðreynd, að Bretland væri
ekki stórveldi lengur, og skuidbind
ingar til vama yrðu að vera innan
þeirra marka, sem efnahagurinn
leyfði.
Svissneskir fjármálamenn eru yf-
irieitt sagöir þeirrar skoöunar, að
ráðstafanirnar muni eiga drjúgan
þátt í að koma efnahag Bretlands
á réttan kjöl.
Sterlingspundið var stöðugt á
peningamarkaði í gær.
Romney leggur fram
friðaráætlun
Fregn frá Keene i New Hamps-
hire í Bandarikjunum hermir að
George Romney, sem hefir gefið
kost á sér sem forsetaefni rebubli-
kana í forsetakjörinu á hausti kom
anda, hafi iagt fram nýjar tillögur
um frið í Vietnam.
Romney er nýkominn aftur til
Bandaríkjanna að afloknu ferðalagi
til margra landa, og var þeirra á
meðal Vietnam.
1 ræðu sem Romney flutti í
Keene sagði hann að „öll hin stóru
iönd heims ættu að taka á sig á-
byrgð fyrir hlutleysi og friði i Norð
ur- og Suður-Vietnam, Laos og Kam
bodiu.
Þá lagði hann til að ríkisstjórnin í
Saigon og þjóðfrelsishreyfingin
(stjórnmáladeild Vietcong) komi
saman og gangi frá samkomulagi
um lausn á deilum þeirra í milli.
Malik tekur við af Federenko
— sem aðalfulltrúi Sovétrikjanna á vett-
vangi Sameinuðu þjóðanna
t NTB-frétt t'rá Moskvu í gær
segir, að Jakob Malik aðstoðarutan
ríkisráðherra Sovétríkjanna taki við
af Nikolaij Federenko sem aðalfull-
trúi Sovétríkianna í höfuðstöðvum
Sameinuðu þjóðanna í New York.
Jakob Malik er sérfræðingur utan
ríkisráðuneytisins varðandi mál As-
íu og Afríku.
Tass-fréttastofan hefir birt til-
kynningu um þetta og einnig er
hún birt í Izvestia. í henni segir, að
Federenko veröi falið annað starf,
en ekkert er sagt nánara um það.
Jakob Malik er 62 ára. Hann hef
ir verið í utanríkisþjónustu lands
síns síðan 1937. Hann hefir verið
ambassador í Japan og var full-
trúi Sovétríkjanna í Öryggisráði
1948—1952 og ambassador í Lond-
on frá 1953 ti'l 1960.