Vísir - 17.01.1968, Blaðsíða 16
VI SIR
llsnræð&iiíuiidíur um
ÆrjEinhaldsBnennfun
á Islnndl
Almennur umræöufundur um
framhaldsmenntun á Islándi á veg-
um Stúdentafélags Reykjavíkur
verður haldinn í Sigtúni annað
kvöld og hefst kl. 20.30.
Framscguerindi flytja Jóhann
Hannesson, skólameistari, Egill
Stardal cand. mag. og Höskuldur
Þráinsson stud. þhilol.
Öllum er heimill aðgangur.
Frumvarp um gjörbreytingu á iögum
um hollustuhætti og heilbrígðiseítirlit
Nýrri stofnun, Heilbrigðiseftirliti
rikisins, komið á fót
á: Stjórnarfrumvarp um heil-
brigðiseftirlit og hollustuhætti
var lagt íram á Albingi í gær, en
í frumvarpi þessu fclast tillögur
um gjörbreytingu á lögum um
þessi mál. Ráð er gert fyrir, að
komið verð» á fót sérstakri stofn
un, Heilbrigðiseftirliti rikisins,
sem hafi yfirumsjón með heil-
brigðiseftirliti í landinu undir
stjórn landlæknis. Þá er kveðið
svo á um, að öll sveitarfélög
landsins skuli hafa heilbrigðis-
nefndir, en nú eru slíkar nefnd-
ir aðeins í 56 af nokkuð á þriðja
hundrað sveitarfélögum. Kaup-
staðir með fleiri en 10.000 íbúa
skulu ráða til sín sérmenntaða
heilbrigöisfulltrúa í fullu starfi,
einn eða fleiri, þannig að ekki
komi nema 15 — 1600 íbúar á
hvern fulltrúa.
í kauptúnum meg yfir 800 íbú
um skal einnig ráða heilbrigðis-
fulltrúa ,en menntun hans og
starfstími er ótiltekinn.
Heilbrigðisreglugerð fyrir allt
landið verður sett af ráðherra í
samvinnu viö landlækni, en hing
að til hefur hvert sveitarfélag
haft eigin heilbrigðissamþykkt
Heilbrigðisnefndum veröur fal-
ið aukið vald til stöðvunar starf
ræ'kslu og notkunar, ef ákvæð-
um heilbrigðisreglugerðar er
Framhald á bls 10
Tollalögin endurskoðuð
og samræmd
Gert ráð fyrir i nýju sijórnarfrumvarpi, að
follarar fái handtökuheimild og aðgang að
verzlunum og vörugeymslum
Hrönn heldur fyrsta skemmti
fundinn í Templarahöllinni
•k Frani var lagt á Alþing' í gær
íramvarp að miklum lagabálk
um tollheimtu og tolleftirlit. Þar
í eru samræmd öll fvrri gildandi
lög og reglur um tolleftirlit, auk
nokkurra nýmæla, en frumvarp
hetta er árangur endurskoðun-
n.r, sem ríkisstjórnin hefur látið
a á þessum lögum.
Frumvarpið er samið af 4-manna
néfnd, sem fiármálaráðherra skip-
aði 1932, með breytingum gerðum í
samráði við núverandi tollyfirvöld
og ráðuneytisstjóra.
Meðal þeirra nýmæla. sem eru
að finna í frumvarpinu, er eert. ráð
fyrir að tollgæzlustjóri skuli skip-
aður með sama hætti í embættið
og héraðsdómarar, og að fjármála-
ráðherra geti falið honum yfir-
stjórn ákveðinr^ þátta tollmála
eftir því, sem henta þykir. Þá er
gert ráð fvrir tollgæzlumanna
skóla, samkvæmt úrskurði síðasta
kjaradóms um laun opinb. starfs-
manna
Einnig eru í frumvarpinu taldar
upp' þær hafnir, sem skuli vera
tollhafnir. Gert er ráð fvrir, að 12
hafriir verði aðaltollhafnir. en 21
terihöfn auk þeirra.
Ráðgert er, að tollgæzlumönn-
um verði heimill aðgangur að
verzlunum og vörugeymslum
þeirra, ef ætla megi, að þar séu
vörur, sem ekki hafa verið greidd
gjöld af. Einnig er gert ráð fyrir,
að þeim verði veitt handtökuheim-
ild. Þá er gert ráð fyrir, að skipa-
félögin, eins og flugfélögin leggi
til húsrými til skoðsnar á far-
begum.
Sumt í frumvarpi þessu er sótt
beint í ákvæði tollalaga hinna
Norðurlandanna, og margt er þar
í samræmi við dönsk og norsk
tollalög.
Það hlýtur að vera öllu ungu
fólki mikið nleðiefni, að nú er ver-
ið að taka í notkun fyrsta salinn í
hinni glæsilegu Templarahöll. Að
vísu verður bessi skemmtilegi salur
ekki onnaður til almennra dans-
leikja fyrr en í febrúar, en ung-
templarafélagið Hrönn hefur feng-
ið salinn annað kvöld til afnota
tig fær bar með tækifæri til að
bjóða Hrönnurum og öðru ungu
fólki, sem áhuga hefur á að kynn-
ast starfsemi félansins, til skemmt-
unar í þessum elæsilegu húsakynn-
Þetta verður ódýr skemmtun, að-
gangseyrir aðeins kr. 50, og eru
þar innifaldar kræsingar miklar, og
góð skemmtiatriði og hljómsveit.in
SÓLÓ leikur fyrir dansi, bæði
gamla dansa og nýja.
Þar sem skemmtunin hefst á
veitingum og skemmtiatriðum kl
21 er áríðandi, að allir verði komn-
ir fyrir þann tíma. Ýmislegt verður
einnig til að koma fólki á óvart og
er ekki að efa, að þarna verður
fjölmennt mjög.
<8>um.
Fer THULE á Bandaríkjamarkað?
Ekki er útilokað að Thule-
bjórinn verði fluttur á Ameríku-
markað innan skamms, þ.e. sá
veikari, en erlendis er talsvert
keypt af óáfengum bjór, svo-
nefndum low-alcoholic beer.
Eysteinn Ámason, fram-
kvæmdastjóri Sana h.f. á Akur-
eyri sagði í morgun að mál
þessi væru enn á algiöru frum-
stigi, en hrevfing væri í þá titt
að selia framleiðsluvöru verk-
smiðjunnar eða magn af henni
til Bandarikjanna.
Ef af þessu yrði, er nauðsyn-
legt að senda ölið í sérstökum
umbúðum, og kvað Eysteinn
vélar verksmiðjunnar geta tapp-
að á þær geröir af flöskum,
sem nota þarf á Bandaríkja-
markað.
Nýtt ísíenzkt leikrit i
frumflutt í sjónvarpinui
Um þessar mundir standa yf-
ir æfingar á nýju íslenzku leik-
riti eftir Jökul Jakobsson og
veröur bað frumflutt í sjónvarp-
inu. Leikritið nefnist „Romm
handa Rósalind" og er þetta
fyrsta leikritið, sem æft er frá
upphafi í sjónvarninu. TIJ. þessa
Kefur siónvarnið sýnt leikrit,
sem æfð hafa veriö upphaflega
og sýnd í leikhúsum borgarinn-
ar. Leikstióri er Gísli Halldórs-
Gert er ráð fvrir að upptaka
á leikritinu verði 7. og 8. febr-
úar, en ekki er ákveðið hvenær
það veröur sýnt í sjónvarpinu.
Aðaihlutverkin eru leikin af
Þorsteini Ö. Stenhensen. Nínu
Sveinsdóttur og Önnu Kristínu
Arngrímsdóttur en hún lýkur i
vor námi við Leiklistarskóla
Leikfélags Reykjavíkur. Lengd
leikritsins er áætluð um 40 mín-
útur. Leikmynd gerir Björn
Björnsson.
Lokið við innréttinguna í Tepplarahöllinni.
Endurskoðun á lögum um verzl-
unaratvinnu lokið
•k Ríkisstjórnin lagði fram á Al-
þingi í gær nýtt frumvarp um
verzlunaratvinnu, samið af
nefnd, sem atvinnumálaráðuneyt
ið skipað í des. 1964.
Nefndin var skipuö vegna ítrek-
aöra óska Félag ísl. stórkaup-
manna og Kaupmannasamtaka ísl.
um endurskoöun á gildandi lögum
um verzlunáratvinnu -til samræmis
við breyttar aðstæöur og verzlun-
arhætti frá þeim tíma, sem gildandi
lög voru sett.
Tilgangur þessara laga er að
tryggja, að borgararnir eigi völ á
sem beztri verzlunarþjónustu á
hverjum staö og tíma; að þeir að-
ilar, sem fást viö verzlun, séu búnir
þeim hæfileikum, að þeir geti upp-
fyllt þær skyldur, sem slikur
rekstur leggur þeim á herðar, ekki
hvað sízt gagnvart samfélaginu í
heild; að tryggja, að verzlun sem
atvinnugrein geti þrifizt í landinu.
í I greinargerð frumvarpsins segir
j nefndin, sem samdi frumvarpið, að
j þróun hafi átt sér stað í þá átt,
að veita einstökum hópum manna
einkarétt eða forgangsrétt til á-
Framhald á bls. 10.