Vísir - 06.02.1968, Blaðsíða 10

Vísir - 06.02.1968, Blaðsíða 10
f V í S IR . Þriðjudagur 6. febrúar 1968. Vilhjálmur Pér — Kramhaio ai ois i bankans til Kuala Lumpur í Malajsíu sem ráðgjafi nefndar sem athuga á urn lánveitingu til landbúnaðarins þar í landi. Mun Vilhiálmur dvelir við athuganir sínar þar í landi í hálfa aöra viku, en fer að.því búnu til Rómar og heimsækir aðalstöðvar FAO, sem Alþjóða bankinn hefur nána samvinnu við. Mun Vilhjálmur fara til Malajsíu næstu daga. í byrjun marz fer hann svip- aðra erind i til Narobi í Kenya og mun dvelja þar út mánuðinn, en þá snýr hann aftur tii Wash ington. .... færandi • • varnmgmn heim Þessi mynd var tekin uppi í Mosfellssveit í gærmorgun, en þar var þá hríðarbylur með skaf- renningi. Maðurinn brýzt áfram móti veðurofsanum. í fanginu ber hann pappakassa, enda á leið úr verzlun Kaupfélags Kjai- amessþings. Margir bílar áttu i erfiðleikum í sveitinni þennan morgun og áætlunarferð var ekki farin um morguninn og var kennsla felld niður I skólum sveitarinnar. — (Ljósm. R. L.) Tollar lækka — Framhald af bls. 16. Þó er undantekning gerð með Várniðnaðinn, frumvarpið gerir Iráð fyrir allmiklum lækkunum á (tollum á hráefni til málmsmíða. Meðal almennra neyzluvara, sem Jlækka í tolli má nefna matvörur, Ifatnað, vefnaðarvörur ýmsar ískófatnað, hreinlætisvörur, sjón- (varps- og útvarpstæki. Álmennt lækka tollar á matvör- lum um 30—50 prósentustig. HEIMSÓKNARTÍMI Á Viðfal dssgsins — Fran.hald al bls. 9 hafði fengið sér heldur mikið neðan í því, og sigldi út í uppgangsveðri, og afleiðingin var svo eins og ég hef greint frá. — Þið hafiö þá ekki komið með mikinn afla úr þessari veiðiför? — Við lentum í lygnu þegar við komum upp í Garðssjó, renndum þar og drógum uppi- haldslaust 1000 af fiski. Það var ailur aflinn í túrnum. — Hve margir voru á? — Við vorum 16. — Hve lengi varstu á Eyrar- bakka? — Þar bjó ég í tíu úr. Þá fór ég að hugsa til að fá mér konu, og flutti upp í Grímsnes, á jörð, sem hét Norðurkot. Konu- Til leigu Stórt herberel ‘ Vesturbæn- um, með innbyggðum skápum til Ieigu. Uppl. 1 sima 15327 mllli kl. 4 og 5 í dag. Til sölu Til sölu barnavagn og barna róla, Safamýri 44. Sími 36098. efnið haföi misst fósturforeldra sína, hana um vorið og hann um haustið, og var þá orðin ein með sjö ára gamla tökutelpu.. Ég fékk þá strax byggingu fyrir jörðinni og gekk aö eiga stúlk- una. Hún hét Kristín Jónsdóttir. Við áttum ekki börn saman, en ólum upp þessa telpu og svo dreng, sem kom til okkar viku- gamall. Ég tel þaö mikið lán fyrir mig að hafa átt þátt i aö koma til manns þessum tveim börnum, ég hef notið þess bless- unarlega nú á öfri árum, þau hafa reynzt mér afskaplega vel bæði tvö. Fóstursonur minn sótti mig til Hafnarfjarðar, þeg- ar ég var orðinn áttræður, ó- vinnufær ræfill og hef ég verið hjá honum síðan, en þaö eru nú orðin 12 ár. Fósturdóttir mín er húsfreyja austur í Biskupstungum og þar er ég oftast á sumrin fram að réttum. — Hve lengi bjóst þú í Norðurkoti? — Ég bjó þar í 23 ár. Þetta var notagóð jörð en lítil. Móðir mín var þarna hjá mér þangað til hún dó, þá 97 ára gömul, því bæinn minn á Eyrarbakka seldi ég, þegar ég fór að búa. — Hvernig var með bústofn- inn? — Ég átti dálítinn stofn, tuttugu og fjórar ær og þrjú hross; þessu hafði ég komiö mér upp á Eyrarbakka. Fóður handa þessum skepnum keypti ég op dró að mér áður en haustróðrar byrjuðu, systir mín annaðist svo hirðingu þeirra yfir veturinn. Eftir 23 ára búskap í Norður- koti flutti ég svo til Hafnar- fjarðar, þá var konan farin að heilsu og varð aö vera undir læknishendi. Hana missti ég svo 1939. Það var raunastund. í Hafnarfirði var ég svo þangað til ég fluttist hingað á Akranes til Gísla míns og konu hans. Hér líður mér vel og lít yfir liðna ævi með þakklæti til guðs og góðra manna. Heilsan má teljast góö, þó er sjónin orðin döpur. Ennþá get ég þó farið út og utan og er þar nokkuð sjálfbjarga. Þ. M. SJÚKRAHÚSUM Elliheimiiið Ginnd. Alla daga kl. 2-4 og 6.30-7 Fæðingardeild Landsspítalans. Alla daga kl. 3-4 og 7.30-8. Fæðingarheimili Reykjavíkur. .lla daga kl. 3.30—4.30 og fyrir feður kl. 8—8.30, Kópavogshælið. Eftir hádegi daglega. Hvítabandið. Alla daga frá kl. 3—4 og 7-7.30. Farsóttahúsið. Alla daga kl. 3.30-5 og 6.30-7. ■ Kleppsspítallnn. Alla daga kl. 3-4 og 6.30—7. Hjartkær eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir Sigurður Jónsson lézt 2. febrúar. Guðlaug Jónsdóttlr. Þórdís Sigurðardóttir Hreiðar Jónsson. Ungur listmálari, Bjarni Ragnar Haraldsson, hefur opnaö sýningu á 20 myndum sfnum í Mokkakaffi á Skólavörðustíg. Myndir Bjarna Ragnars eru málaðar í súrrealistískum stfl. Er þetta fjöröa sýning hins unga listmálara, sem er aðeins 21 árs gamall, - og hélt sína fyrstu sýningu aðeins 15 ára gamall. Allar myndirnar á sýningunni eru til sölu. BELLA Fröken Bella, vitið þér ekki ennþá að það á að setia eina te- skeið en ekki einn bolla af blóma áburði á hengiplöntuna mína. Veðr/ð » dag Austan og norð- austan gola, skýj- að með köflum. Hiti um frost- mark eða rétt yf ir frostmarki. VISIR 50 jyrir árum Eplin ljúffengu með ástarlitn- um, sem aldrei hafa frosið fást í Matarverzluninni Grettisgötu 1. Vísir 6. febrúar 1918. SðFNIN Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74, er opið sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 1,30—4 Tæknibókasafn IMSÍ Skipholti 37. Opið alla virka daga frá kl. 13—19, nema laugardaga frá 13 — 15 (15. maf—1. okt. lokað á laug- ardögum). Listasafn Einars Jónssonar er Iokað um óákveðinn tíma. Bókasafn Kópavogs, Félags- heimilinu. Sími 41577. Útlán á þriðjudögum, miðvikudögum. fimmtudögum og föstudögum Fyrir börn kl. 4.30—6, fyrir full- orðna kl 8.15—10. Barnadeild- ir Kársnesskóla og Digranes- skóla. Útlánstímar auglýstir þar Sýningarsalur Náttúrufræði- stofnunar íslands Hverfisgötu 116, verður opinn frá 1 septem- ber alla daga nema mánudaga og föstudaga frá kl. 1.30 til 4 Landsbókasafn tslands, Safna- húsinu við Hverfisgötu Lestrarsalur er opinn alla virka daga k! 10-12. 13-19 og 20-22 nema laugardaga kl 10—12 og 13—19. ■'•'cs.dur er opinn alla virka daea kl 13 — 15 Borgarbókasafn Reykjavíkur Aðalsafn Þingholtsstræti 29A ‘mi 12308 Mánud — föstud kl 9-12 og 13-22 Laugard kl 9—12 og 13 — 19 Sunnud. kl. 14 —19 ■v

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.