Vísir - 06.02.1968, Side 16

Vísir - 06.02.1968, Side 16
VISIR Þriðjudagur 6. febrúar 1968. íí VIÐ ERUM EKKIISKAPI TIL ÞESS AD BROSA " s’ógðu sumarbústaðaeigendur við Lógberg — 6 piltar valdir að spjóllunum — handteknir i gærkvóldi rriftin hafði fyllt stofugólfið af snjó eins og gjörla má sjá á þessari mynd. □ Eigendur sumarbústaða við Lögberg unnu að því um helgina að moka snjó út úr bústöðum sínum og negla kyrfilega fyrir glugga. Rúður höfðu verið brotnar í sjö eða átta bústöðum og fleiri spjöll unnin á þeim. Fyllti suma bú- staðina gjörsamlega af snjó í hríðarveðrinu um helgina og eru þeir stórskemmdir Einn bústaðanna var brenndur til ösku. Við erum ekki í skapi til þess að brosa, sagði Magnús Davíðs- son, einn sumarbústaðaeigend- anna, við ljósmyndara Vísis, þegar hann ætlaði að taka mynd af honum við bústað sinn. Hús- ið var illa leikið, snjór hafði komizt inn um brotna glugga og fyllt stofuna. Húsgögn og aðrir munir, sem þar voru inni, voru á kafi og unnu tveir menn að því mestan partinn í gær að moka út og byrgja glugga. Víða lágu lauslegir munir úti fyrir bústöðunum, katlar og könnur. En sums staðar var bú- ið að negla fyrir hverja smugu. Skemmdarvargamir hafa nú náðst. Reyndust þama vera að verki sex piltar á aldrinum 12— 15 ára, allir úr Reykjavík. Hafði lögreglan í Kópavogi hendur 1 hári þeirra í gær. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar ligg- ur fyrir játning frá piltunum um verknaðinn, en ekki er enn full sannað hvern þátt hver þeirra um sig á í skemmdarverkunum, sem framin voru aöfaranótt laug ardagsins. Verulegur samdráttur Verulegur samdráttur varð I bílainnflutningi á nýliðnu ári mið- að við árið áður, 1966. Alls voru fluttlr inn 4465 bílar fyrir 355 milljónir króna (cif-verð), en árið 1966 voru fluttar inn 5558 bifreið ir fyrir 458 miiljónir króna. Sam dráttur í bílainnflutningnum hefur því orðið tæp 20% á milli! ára. j Bílainnflutningurinn í fyrra hefur ; ekki gert mikið meir en aö endur- j nýja þær bifreiðir sem verður að, Það virðist vera alleftirsótt starf afskrifa á hverju ári. I að vera leigubifreiðarstjóri. Um Þeir unnu að því að moka út og byrgja glugga mestan hluta dagsins í gær. — Eigandinn, Magnús Davíðsson, er fjær. 130 umsóknir um leyfí til leiuuuksturs hjá Frumu Dunskir leikurur skúluðu fyrir Brynjólfí □ Félag íslenzkra leikara hélt í gærkvöldi samsæti fyrir Brynjólf Jóhannesson leikara, en hann varð sjötug- ur á síðasta ári, en sökum anna og ýmissa annarra or- saka hefur ekki verið hægt að halda samsætið fyrr. Mikill mannfjöldi var í sam- sætinu, sem haldið var í Þjóö- ieikhússkjallaranum. Engar sýn- ingar voru í leikhúsunum og voru því að heita má allir leikar ar borgarinnar svo og starfsfólk leikhúsanna og aðrir gestir, þar samankomnir. Margar ræður voru haldnar, m. a. fluttu þeir ræðu Gylfi f>. Gíslason mennta- málaráðherra, Vilhjálmur f>. Gíslason fyrrv. útvarpsstjóri svo og fjölda margir af starfsbræðr um Brynjólfs. Sungnar voru vís- ur, sem ortar höfðu verið í til- efni hófsins, og lesin allmörg og skemmtiieg skeyti til Brynj- ólfs undirrituð af ýmsum þeim persónum, sem Brynjólfur hef- ur gætt Hfi á leiksviðinu. Þá var spiluð segulbandsspóla, sem borizt hafði frá Kaupmanna- höfn, þar sem danskir leikarar sendu Brynjólfi kveðjur, skál- uðu og hrópuðu húrra, og gestir Þjóðleikhússkjallarans tóku und- ir. Félag ísl. leikritahöfunda sæmdi Brynjólf heiðursmerki fé- lagsins, svo og Félag fslenzkra leikara og að lokum var stiginn dans. þessar mundir liggja frammi um 130 umsóknir um leyfi til leigu aksturs hiá Frama — stéttarfélagi atvinnubifrelðastjóra. Eldur í radíóbúð I gær um sjöleytiö kom upp eldur i kjallara hússins að Klappar stíg 26, en þar hefur Radíóbúðin aðsetur. Starfsmaöur verzlunarinnar skýrði blaðinu frá því, að eldurinn hefði kviknað í rafmagnstöflu, en slökkviliðið hefði þegar komið á vettvang og stöðvað útbreiðslu elds ins. Skemmdir urðií engar á vörum verzlunarinnar, svo að ekki er brunaútsölu að vænta hjá Radíó- búðinni á næstunni. Tollur á mutvælum stórlækku — 160 milljón kr. tollalækkun — 100 milljón útgjöldum — 10°/o hækkun á í gær lagði Magnús Jóns- son fjármálaráðherra fyrir \lþingi frumvarp um breyt ingu á lögum um tollskrá. Er í því gert ráð fyrir 159 milljón króna tollalækkun. Ráðherra sagöi, er hann fylgdi frumvarpinu úr hlaði að upphaf- lega hefði verið gert ráð fyrir talsvert meiri tollalækkunum, eða um 270 milljón króna lækkun. Aðstoðin við sjávarútveginn hef- ur numið 320 milljónum króna alls og kvað ráðherra enn vanta 50 kr. sparnaður á rikis- áfengi milljónir til aðstoðar sjávarútveg- inum. Fjármálaráöherra sagði ennfrem ur að sá tekiumissir, sem ríkissjóð ur yrði fyrir vegna tollalækkun- arinnar vrði unninn upp með 100 milljón króna lækkun útgjalda og 50 milljónum króna. sem rynnu til ríkissjóðs vegna 10% hækkun- ar áfengis og tóbaks, en gert er ráð fyrir heimild til slíkrar hækk unar í frumvarpinu. Lækkun tolla er fyrst og fremst miðuð við nauðsynjavörur að því er ráðherra sagði í greinargerö sinni Hins vegar væri ekki um lækkun á tollum til iðnaðarins, nema á fullunnum iðnaðarvörum og kæmi þá jafnframt til tolla- lækkun á hráefni til sams konar íslenzks iðnaðar. Framhald á bls. 10. Nú munu vera í gildi um 660 slík leyfi. svo að ef öllum um- sóknunum verður sinnt þýðir það, aö um 800 manns hafi leiguaksturs leyfi. En á skrifstofu Frama vildu menn ekkert segja um hvenær næst veröa gefin út leyfi ellegar hversu mörg þau verða. Blóðsöfnun hjá stúdent- um í Háskól- anum í dag □ Stúdentaráð Háskóla ís- lands og Rauði kross íslands gangast fyrir söfnun blóðgjafa hjá háskólastúdentum í dag. — Tekið verður á móti blóðgjöfum í norðurálmu kiallara Háskól- ans frá kl. 9 árdegis til kl 16:30 síðdegis. Það þarf varla að taka fram að vonazt er til að stúdentar bregðist vel viö tilmælum söfn- unarinnar. Um leið og blóðgjöf getur orðið til þess að bjarga sjúkum og slösuðum, veitir skrásetning og flokkun blóðgjaf arinnar ómetanlegt öryggi fyrir *iann sem gefur. Skorað er á alla að fjölmenna i dag.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.