Vísir - 29.02.1968, Page 12
12
V í SIR . Fimmtudagur 29. febrúar 1968.
Leiðangursmennimir niðri í gil-
inni voru í vonlausri sjálfheldu.
„Hvar er Reynolds?" spurði Cor-
ey-
Grenier benti í áttina að skrið-
drekanum. Einhvem veginn hafði
Reynplds, sprengingasérfræðingn-
um, tekizt að laumast óséðum alla
leið upp að hinu ferlega bákni.
Hann hafrti hnoðað sprengiefni í
annarri hendi, sem hann klessti
undir fallbyssuturninn; leysti síð-
an handsprengju frá beltinu og
smeygði henni, eftir að hann haföi
gert hana virka, inn undir eitt af
hjólunum, sem knúði dráttarbeltin.
Peir Grenier og Corey fylgdust með
athöfnum hans, furðu lostnir yfir
því að óvinunum virtist hann ó-
sýniiegur, þar sem þeir töldu úti-
lokaö að nokkur hefði hætt sér í
slíkt návígi.
En þegar hann hljóp til baka
og reyndi aö komast í var, þá var
ekki að sökum að spyrja. I sömu
andrá var öllum byssuhlaupum aö
honum beint, og kom ekki að haldi,
þótt þeir Corey, Grenier og Manuel
notuðu tækifærið og_ létu skothríð-
ina dynja á þeim japönsku, sem
féllu hver um annan þveran. Reyn-
olds var varla kominn tuttugu
metra frá skriðdrekanum þegar
hann féll, hæfður mörgum skotum
. senn.
„Það gat ekki öðruvísi farið,“-
tuldraði Corey.
En Reynolds 'hafði ekki fórnað
lifi.sínu til einskis. I riæstu andrá
sprakk handsprengjan og tætti
sundur beltishjólin, svo málmtætl-
urnar flugu í allar áttir eins og
skæðadrífa. Um leið kviknaði í
sprengjudeiginu og varð af hræði-
legur gnýr, en reykur og eldur
huldi .hið mikla skriödrekabákn
með öllu. Þegar rofaði til ætlaði
Corey ekki að trúa sínum eigin
augum. Skriðdrekinn hafði rifnað
sundur eins og pjáturdós. Öðrum
megin við hann lá vélbyssan, en
þrífóturinn, sem hún stóð á, hafði
kubbazt sundur. Japönsku fótgöngu
liðarnir lágu eins og hráviði í kring
dauðir eða í andaslitrunum.
Það varð drykklöng þögn, unz
Corey tók til máls. „Við skulum
halda niður í gilið, ef þeir Wartell
þurfa á hjálp að halda“.
Þeir voru lagðir af stað, þegar
Wartell, Maccone og Parrish komu
fram úr rjóðrinu og virtust hinir
hróðugustu.
,,Það er ómannleat að skjóta alls
nakta menn”, sagði Wartell. Um
leið kom hann auga á verksum-
merkin við skriðdrekann og setti
RYÐVÖRN Á B3FREIÐINA
í»ér veljiö efnin, vönduð vinna.
Gufuþvottur á mótor kostar kr. 250.00
Gufuþvottui, albotnþvottur.undirvagn kr. 600.00
Ryðvörr, undirvagn og botn. Dinetro) kr. 900.00
Ryðvörn undirvagn og botn, Tectyl kr. 900.00
Ryðvörn undirvagn og botn Encis fluid kr. 600.00
Ryðvörn undirvagn og botn Olíukvoðun kr. 450.00
Alryðvöm. Tectyl utan og innan kr 3500.00
Ryðvarnarst'óbin Spitalastig 6
FLJÓT OG GÖÐ ÞJÓNUSTA.
ÓDÝR 0G GÓÐ ÞJÓNUSTA
hljóðan af undrun. „Þið hafið líka
tekið til hendinni, piltar“, mælti
hann með stolti í röddinni.
En það var ekki stolt í rödd Cor-
eys, þegar hann svaraði. „George
og Reynolds féllu báðir ...“
Wart.ll bölvaði lágt.
Corey varp þungt öndinni og
rétti úr sér. „Það má ganga að því
vísu að gnýrinn af sprengingunni
verði til þess að siga öllu japanska
herliðinu á eyjunni á okkur“,
mælti hann. „En hvað um það. Við
verðum að grafa þá dauðu, og svo
hröðum við okkur af staö“.
Greftrunin tók ekki langan tíma,
enda var allri viðhöfn sleppt. Gren-
ier fannst sem kökkur sæti í hálsi
sér, þegar aftur var haldið af stað.
Tveim klukkustundum síðar bauð !
Corey að numið skyldi staðar. „Það !
er kominn timi til að prófa sendi-1
tækiö“, sagði hann við Grenier. 1
Grenier kinnkaði kolli. Hann sett
ist flötum beinum undir tré og
hafði senditækið milli hnjánna. Hin
ir stóðu í kring um hann og fylgd-
•ust með af athygli og eftirvænt-
ingu, þegar hann dró upp loftnets
stöngina og fór þjálfuðum fingrum
um stilla og rofa. Þegar hann hafði
útilokaö þannig suð og truflanir,
ræskti hann sig og tók til máls:
„Blái demantur . .. blái demant-
ur, þetta er gullmoli’nn ... Gullmol-
inn kallar á bláa demantinn ...
Heyriröu til mín? Skipti...“
Sambandið lét ekki á sér standa.
„Blái demanturinn svarar“, heyrð-
ist skýrt og greinilega. „Við heyr-
um mjög vel til þín. Skipti“.
Grenier brosti og leit hróöugur
til félaga sinna. „Blái demantur..
þetta er gullmolinn. Sambandið er
eins og bezt verður á kosið. Nóg í
bili .. Skipti. Farinn”. Hann dró
inn loftnetsstöngina, sneri stillum
og rofum og reis að því búnu
stirðlega á fætur og gekk á brott.
Corey liðsforingi kallaði á eftir
honum. „Komdu lagsmaður".
Grenier leit um öxl, undrandi á
svipinn. „Ég heföi þó haldið að
maður mætti ganga nauðþurfta'
sinna,“ maldaði hann í móinn.
Corey tók upp senditækið og
gekk til móts við hann. Hann var
rauður í vöngum af reiði.
„Það er leitt að komast ekki hjá
því að segja þér það einu sinni
enn“, mælti hann, „að þér ber að
líta á þetta tæki sem hluta af sjálf
um þér. Þú mátt aldrei og ekki und
ir neinum kringumstæðum skilja
það við þig. Aldrei, hvorki vakandi
né sofandi. Hvenær, sem ég svip-
ast um eftir þessu tæki, krefst ég
þess að sjá það, í hönd-
um þér. Skilurðu mig nú. Þú ,og
tækið eru sem óaðskiljanlegir, sam-
vaxnir tvíburar!“ Að svo mæltu af-
henti hann Grenier tækið, og það
var bersýnilegt, að það sem hann
hafði sagt, var honum fyllsta al-
vara.
Corey ætlaði að ganga á brott
að svo mæltu, en Grenier elti hann
með viðtækið í höndunum, og það
leyndi sér ekki að hann var reiður.
„Corey liðsforingi". mælti hann og
ekki blíölega. „Þaö er bersýnilegt,
að þú metur þetta tæki sýnu meira
en llf okkar. Ég hefi gaman af að
vita hvað það er, sem gerir það
öllu dýrmætara að þínu áliti“
„Fyrst og fremst það, að við
höfum ekki nema þetta eina tæki
undir höndum", svaraöi Corey ann
ars hugar og fór að athuga landa-
bréfið.
Grenier stóð yfir honum, þar sem
hann sat og mátti helzt ráða það
af. svip hans, að hann hefði mesta
löngun til 'að mola senditækið á
kolli hans. „Ég tek það ekki sem
góða og gilda vöru lengur, að mér
sé svaraö út af eins og einhverjum
strákkjána, í hvert skipti sem ég
spyr“, sagði hann „Þú veizt full-
vel hvað ég er að fara, Corey. Ég
stofna lífi mínu í hættu ekki síður
en þið og ég á heimtingu á að fá
að vita þaö, eins og þiö hinir, í
hvaða tilgangi það er gert“.
Corey athugaði landabréfið og
svaraði honum ekki.
Grenier dró djúpt andann, og
það er ekki að vita hvernig farið
hefði, ef Wartell hefði ekki tek-
ið þaö upp hjá sjálfum sér að
miðla málum. Hann gekk til Gren-
íers og lagði höndina á öxl honum.
„Við þurfum & þér að halda sem
fjórða manni. ef okkur langar til
að fá okkur slag“, sagði hann glettn
islega.
Þér getið
sparað
Með bví að ^era við bílinn sjált
ur. Rúmgðður og bjartur salur.
Verkfæri á staðnum. Aðstaða til
að þvo, bóna og ryksuga bflinn.
Nýja bilaþjónustan
Hafnarbraut 17 — Kópavogi.
Sími 42530.
ÞY0IÐ 0G BÖNIÐ
-BlLINN YÐAR
SJÁLFIR.
ÞVOTTAÞJÖTOSTA
BIFREIÐAEIGENDAJ
I REYKJAVlK
SlMI: 36529
waior
fráJMh
„Blái demantur - gullmolinn kallar
PLAVlNG A CUBS
LUCKV WE
?EN'T BOTH
K.IUUEO!
S GOOD TO
SE YOU, OU5
FRIENP!
„Jad“.
„Jad, svo þú ætlaðir bara í ljðnsunga- ekki báðir tveir. Gott að sjá þig, gamli
leik. Þú varst heppinn að við drápumst vinur“.
tfenwoad
■« CHEF
Frá Jfeklu
i