Vísir - 29.02.1968, Qupperneq 16
R
ISIR
m.
„Gamla
krónan í
fullu verð-
gildi
•#/
Nú er búiö að opna hinn átt-
unda og væntanlega síðasta
bókamarkað Bóksalafélagsins í
Listamannaskálanum. í ár eru
þar um 3000 bókatitlar eða jafn L
margir og þeir hafa flestir ver- ■
ið. Á þessum bókamarkaði eru
bækur, sem hafa verið innkall-
aðar frá bóksölum úti um land,
en víðast er ekki aðstaða fyrir
hendi hjá bóksölum til að liggja
með annað en nýjustu bækur.
Nýjasta bókin á bókamark-
aðnum er 4 ára, en bækurnar
eru þó yfirleitt mun eldri. 1
fyrra seldust upp 63 titlar.
Þegar bók Selst uþp á bókamark
aði hverfur verölagning hennar
bar með úr höndum útgefenda
og hún hækkar fljótt.
Nú eru á markaðnum margar
bækur, sem ekki hafa verið þar
áður, og sú nýbreytni er, að nú
er til sölu þar nokkurt úrval af
íslenzkum nótum.
Ekki er að efa að þessi mark-
aður verður fjölsóttur sem hin-
ir fyrri. Hann er opinn frá 9
til 6, en á föstudag er hann op-
inn til kl. 10, en á laugardag
til ki. 4. Markaðurinn verður
opinn alla næstu viku.
ÞAU ERU „FIMM" ARA I DAG
—■ V'isir ræð/r v/ð tvó ungmenni sem eiga afmæli i dag, 29. febrúar,
en þau bafa ekki átt afmælisdag nema fjórum sinnum til þessa og
þó eru þau fædd áriB 1943
í dag er 29. febrúar, og það er ekki nema fjórða hvert ár,
eins og flestum mun kunnugt og kallast það hlaupár. Þeir
sem fæðast þennan dag, eiga því ekki afmæli nema fjórða
hvert ár og geta því talið sig yngri að árum, ef þeir kæra
sig um. I dag er rætt við tvö ungmenni sem voru svo Ián-
söm að fæðast á þessum degi. Fyrst skulum við ræða við
Kristínu Þórðardóttur, Bergstauastræti 60, en hún er tvítug
í dag.
— Hvernig er að eiga afmæli
fjórða hvert ár, Kristín?
— Það er dálítið gaman nú
orðið. Þegar ég var yngri þötti
mér agalega leiðinlegt að eiga
afmæli svona sjaldan. Þó var
alltaf haldið upp á afmælið mitt
árlega, en það var í rauninni
enginn afmælisdagur. Nú er
þetta hins vegar breytt og bara
spennandi að eiga afmæli sjald-
an, enda meira um að vera. Þó
finnst manni þaö dálítið skrýtið
að eiga hvorki þrítugs- eða
fimmtugsafmæli.
— Ertu í skóla?
— Já, ég er í þriðja bekk
Kennaraskólans.
Er langt síðan þú ákvaðst
að verða kennari?
— Ég ákvað það eiginlega
ekki fyrr en ég var byrjuð í
fyrsta bekk.
— Hvaö hefurðu starfað á
sumrin?
— Ég hef verið úti í tvö
sumur, en svo hef ég unnið í
banka líka.
Við þökkum Kristínu fyrir
1M- 10. síða.
Kristinn.
Kristín.
Bandaríkin hætta stöðugu eftirlits-
fiugi B-52 sprengjuflugvéla með
kjarnorkusprengjur innanborðs
Fréttir frá Washington I stjórn hafi ákveðið að hætt
he:::ia, að Bandaríkja-1 skuli stöðugum eftirlits-
Þeir sem standa að bókamarkaðnum: Jónas Eggertsson, Lárus Blöndal, Gunnar Einarsson, Arin-
bjöm Kristinsson og Oliver Steinn.
ODDVITINN GEKK ÚT AF
HREPPSNEFNDARFUNDI
eftir oð búiB var oð samþykkja vantraust á hann
— enn er basar i hreppsnefndinni i Hólminum
Hreppsnefndarsamstarf Al-
þýðubandalagsins or Framsókn
arflokksins í Stykkishólml hef-
ur tekiö á sig hálfgerðan revíu-
blæ. — Framsóknarmenn hafa
skoraö á oddvitann, Jenna R.
Ólafsson, formann Alþýðubanda
lagsins að segja af sér og báru
upp vantrauststillögu á hann á
hreppsnefndarfundi í gær. —
Villagan var samþykkt með
fimm atkvæðum gegn einu, odd-
vitinn sat hjá og gekk síðan út
af fundi, en fulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins í hreppsnefnd studdu
tillöguna á þeim forsendum að
oddvitinn væri eins konar per-
sónugerfingur hreppsnefndar-
meirihluta Framsóknar og Al-
þýðubandalags, en milli þess-
ara samstarfsaðila ríkir nú megn
asta úlfúð. Varaoddvitinn, Leif-
ur Jóhannesson, ráðunautur,
sem er annar fulltrúi Framsókn-
ar f hreppsnefndinni hefur sagt
af sér. — Búið er aö segja upp
sveitarstjóranum í kauptúninu
og auglýsa stööuna lausa til
umsóknar. Ekki er ljóst undir
hvaða forustu hreppsnefndin á
að starfa, en hins vegar er sam-
komulag milli sjálfstæðismanna
og alþýðubandalagsmanna um
að ráða nýjan sveitarstjóra.
Hefur á ýmsu gengið á hrepps
nefndarfundum í Stykkishólmi
að undanförnu.
ferðum risaflugvéla með
kjarnorkusprengjur innan-
borðs.
Leiddi það til þessarar ákvörð-
unar að Bandaríkin misstu sprengju
flugvél við Grænland meö 4 vetnis-
sprengjum I fyrra mánuði. Ákvörð-
unin er eitt seinasta verk Roberts
McNamara landvarnamálaráðherra,
sem lætur af embætti í dag. Við
athöfn í Hvíta húsinu í gær sæmdi
Johnson forseti hann heiðursmerk-
inu Medal of Freedom, sem er hið
æðsta sem bandarískum manni
borgaralegrar stéttar er veitt.
Þegar hið stöðuga eftirlitsflug
sprengjuflugvéla af gerðinni B-52
hættir verður eftirlitinu þannig hag
að, að sprengjuvélar á jörðu niðri
verða jafnan hafðar reiðubúnar til
þess að hefja sig til flugs með
stundarfjórðungs fyrirvara, ef árás-
arhætta kæmi til sögunnar. Hið
stööuga eftirlitsflug hófst með 75
sprengjuflugvélum 1961, þeim var
fækkaö að miklum mun síðar.
Haldið áfram að
sfóða vatnið
Borgarbúar eru minntir á, að
I brýn nauðsyn er að halda á-
i fram að sjóða Gvendarbrunna-
1 vatnið, en það verður að teljast
i mengað þar til rannsóknir á því
»sem fram fara, og eðlilega taka
’ nokkum tíma, leiða annað f flós.
Dansleikur til
ógóða fyrir Viet-
nam-söfnun
í kvöld verður stofnað til fjár-
öflunarskemmtunar í veitingahús-
inu Glaumbæ, og hefst skemmtunin
kl. 9.00. (21.00)
Væntanlegur ágóði af skemmtun
inni rennur til alþjóða Rauðakross-
ins, vegna VIETNAM söfnunarinn-
ar.
Til fjáröflunar þessarar er stofn-
að af á'hugasömum einstaklingum.
Á skemmtuninni munu koma fram
meöal annars: hljómsveitirnar ÓÐ-
MENN og FLOWERS og TÓNA
TRÍÓIÐ ásamt nýrri hljómsveit
10. siða.
Fjórklofin nefnd um tekju-
stofna sveitarfélaga
Sitt sýndist hverjum í heilbrigð-
is- og félagsmálanefnd efri deildar
Alþingis um stjómarfrumvarp um
tekjustofna sveitarfélaga, sem rík-
isstjómin flytur samkvæmt ein-
dreginni ósk stjómar Sambands
íslenzkra sveitarfélaga, en nefndin
hefur nýlcga skilað álitum sínum
að lokinni athugun á málinu.
Klofnaði nefndin i fjóra hluta,
sem er fáheyrt, og skilaði hver
hluti sér áliti. Þótt oft hafi orðið
ágreiningur í nefndum Alþingis,
þykir það með fádæmum, að nefnd-
armenn skiptist í fleiri en tvo eða
þrjá hópa.
í greinargerð frumvarpsins er
gerö grein fyrir efni þess þannig
i stuttu máli, að það fjalli um:
Skýrari ákvæði um aðstöðugjalds
stofn í samræmi við þá framkvæmd
álagningar skattyfirvalda, sem tíðk-
azt hefur. Breytingin er nauðsyn-
leg vegna nýgengins Hæstaréttar-
dóms.
Að útsvör verði aðeins frádráttar
bær, ef helmingur þeirra er greidd-
ur fyrir 1. júlí ár hvert og hinn
helmingurinn fyrir árslok. Sam-
kvæmt núgildandi ákvæðum eru
þau dregin frá tekjum ef þau eru
greidd aö fullu fyrir áramót.
Að samræma álagningu eigna-
útsvara álagningu eignaskatts, svo
aö eignaútsvar verði jafnhátt og
eignaskattur vegna þeirrar hækk-
unar, sem nú er áformuö í kaup-
stööum og kauptúnahreppum.
Framlengd verði heimild til að
víkja frá ákvæöum skattalaga um
frádrátt vegna tekna, sem eigin-
kona aflar, um tapfrádrátt á milli
ára, um gjafir til menningarmála
o. fl., um sjómannafrádrátt og um
varasjóðsfrádrátt. Lagt er til, að
heimildin gildi áfram árin 1968—
1973.
Um sum atriði frumvarpsins eru
nefndarmenn sammála, en um önn-
ur greinir á. Hverjir um sig flytja
breytingartillögur við frumvarpið
. »->- 10. síða.
V
i