Vísir - 10.04.1968, Page 12
72
VI SIR . Miðvikudagur 10. aprfl 1968.
Grenier var því fegnastur, a/3
svo myrkt var orðiö að Corey gat
ekki séð að hann roönaði. „Ég á
við, að maöur þyrfti ekki að eyöa
löngum tíma í aö tala þær til“,
sagði hann hreimlaust. Hann leit
feimnislega til stúlkunnar, sem sat
á lækjarbakkanum. Vonaði að hún
heyrði ekki tal þeirra. „Það er víst
betra að hafa ekki hátt, liöþjálfi",
sagöi hann. „Ég var búinn að
gleyma þvi, að það er kvenfólk með
í förinni."
„Annað sýnist mér“, mælti
Corey liðþjálfi þurrlega. „Ég fæ
ekki betur séð, en þú hafir ekki
augun af henni allan daginn."
Grenier hitnaði í andliti. „Þú ert
fyndinn, liöþjálfi, þegar þú vilt það
við hafa. Ákaflega fyndinn. Ein-
hver verður að hafa auga meö
henni. Ekki gerir þú það. Þér
mundi standa á sama þótt hún
örmagnaðist af þreytu. Þú mundir
skilja hana eftir, eins og þér kæmi
það ekki við“.
Corey svaraði ekki neinu, glotti
velti sér á hliðina, frá Grenier. —
Bftir drykklanga þögn, gekk Gren-
ier til stúlkunnar, sem sat við læk
inn, settist hjá henni.
„Gott kvöld”, mælti hann glað-
lega. „Er þetta einkasamkvæmi,
eða eru allir boðnir og velkomnir?“
Hún virti hann fyrir sér og
brosti við honum. „Þú ert boðinn
og velkominn", sagði hún.
Hann fékk kökk í hálsinn, sem
gerði honum erfitt um mál. Þarna í
mánalýsunni var hún fegursta
stúlkan, sem hann hafði nokkum-
tíma augum litið. Það brann annar
leg glóð í augum hennar og tungls-
ljósið sló dulum bjarma á há kinn
beinin og svart hárið. Það er eitt
hvað það við konur af Asíukyni
sem gerir þær undarlega girnilegar
í tunglsljósi, og Grenier veittist
örðugt að leyna titringnum í rödd
sinni, þegar hann ávarpaði hana.
„Og þú ert ekki syfjuð, fremur
en ég ...“
„Ekki neitt að ráði“, sagði hún.
„Þegar við námum hér staðar, var
ég svo örþreytt, að ég mundi hafa
sofnað um leið og ég var lögzt út
af. Nú er ég glaðvakandi,. Það hlýt
ur að vera tunglsljósið, sem gerir,
blómaanganin og lækiarniðurinn.
Þetta er allt svo fagurt, að maður
yná ekki eyða tímanum í svefn..“
Grenier andvarpaði og hafði ekki
af henni augun. „Já“ sagði hann
og þráöi hana sterkar, en hann
hafði nokkurn tíma þráð konu áð-
ur.
„Er Corey liðþjálfi sofnaður?"
spurði hún.
Hann leit þangað, sem Corey lá.
„Það held ég“, sagði hann. ,,Og
hann sefur yfirleitt fast, þegar
hknn veit ekki neitt sérstakt að
óttast“.
Stúlkan brá hendinni í tært vatn
ið og lét það renna og glitra á
milli fingra sér. Grenier hallaði sér
fram, brá einnig annarri hendinni
ofan í lækinn og greip um hönd
hennar.
Miyu brá. Það var eins og hún
fyndi á sér hvernig honum leiö.
Rödd hennar var þýð, en ákveðin.
„Nei“, sagði hún. „Vertu rólegur“
En Grenier gat ekki viö sig ráð
ið. Hanh vafði hana klunnalega
örmum, þar sem hann lá á hnján-
um.Hlustaði á orðaflaum sinn og
varö í senn undrandi og skelfdur á
orðum sínum.
„Þú ert svo falleg, Miya. Ég
verð aö segja það eins og er...
| þú æsir mig svo, að ég fæ ekki
við mig ráðið. Miya, þú mátt ekki
hrinda mér frá þér. Ég elska þig,
Miya ...“
I „Nei, nei...“ maldaði hún í mó-
■ inn. Hún hafði ríka samúð með hon
um, vegna þess hve mikill einstæö
ingur hann var og sárt þurfandi
fyrir ást og vináttu, að hana lang
aði helzt til að gráta. Hann var svo
ungur og óréyndur og einmana.
Þannig voru menn svo þúsundum
skipti hvarvetna í heiminum. Menn
sem teflt var í dauðann áöur en
þeir höfðu kynnzt lífinu.
Hann reyndi að kyssa hana, en
hún ‘vék sér undan. Hún var gamal-
reynd í átökum milli kynjanna.
Hann hallaði ser fraro og var að
því kominn að missa jafnvægiö.
Og hún gat ekki stillt sig um að
ýta á öxlina á honum. Áður en
hann vissi af, lá hann endilangur
í læknum.
Æðið rann af honum óðara og
hann kom í kalt vatnið. Hann sett
ist upp, ringlaður eins og hann
heföi ekki hugmynd um hvemig
hann hefði lent í slíkri gildru. —
Hann var svo broslegur ásýndum
að Miya gat ekki að sér gert að
hlæja.1
„Fyrirgefðu", stamaði Miya
vandræðalega.
Grenier vissi það ósköp vel sjálf
ur, að hann var hlægilegur eins og
hann var á sig kominn. Samt sem
áður fannst honum hláturinn í senn
óviðeigandi og óþarfur, og þessa
stundina var hann henni reiðari
en að hann væri ástfanginn af
henni. „Blessuð vertu ekki að biöj
ast afsökunnar", mælti hann kulda
lega. „Ég er orðinn þvf vanastur
að stúlkur hrindi mér frá sér ef ég
reyni að kyssa þær“.
„Þetta var alls ekki ætlun mín“,
sagði stúlkan og reyndi að stilla
hlátur sinn, en einungis meö þeim
afleiðingum, að hún hló enn hærra
en áður.
„Þú kannt lagiö á að kæla til-
finningar manns“, sagði hann og
brölti upp á bakkann. „Þaö væri
synd aö segja annað“. Hann
reyndi að gera sér upp hlátur og
hristi sig, eins og hundur dreginn
af sundi.
Hún hló enn lægra en áður. „Þaö
I er bezt að ég haldi mig í ná-
munda við Corey liðþjálfa“, tautaði
Grenier. „Hann er viðlíkavingjam
legur og skellinaðra, engu að síður
elskulegur samanborið við þig, ljúf
an ...“
. Corey lá hréýfingarlaus með lok
uð augun eins og dauður vaéri, þeg
ar Grenier kom aftur. Engu að
síður varð hann aö beita allri sinni
sjálfstjórn svo ekki bæri á því, að
hann titraði af hlátri. Strákgreyið,
hugsaði hann, sá fékk fyrir ferðina.
En hann hefði líka til þess unnið
með öllum klaufaskapnum. Þar
sannaðist hið fomkveðna — aldrei
að fila dreng það sem fullorðinn
karlmann þarf til.
Corey lá og hreyfði hvorki legg
né lið, þangað til ,Grenier var far_
inn að hrjóta. Þá reis Corey hægt
og gætilega á fætur1 og gekk niður
læknum, þar sem Miya sat enn.
Hann staðnæmdist fyrir aftan
hana, sagði ekki neitt, en lagði
báðar hendur á axlir henni. Hún
leit til hans, og hann fann, aö hún
titraði þegar augu þeirra mættust.
Hann færði aðra höndina fram
hálsinn, strauk kverk hennar og
vanga mjúklega en ákveðið. Þá
teygði hún sig upp til hans, en
hann laut niður að henni og kyssti
hana laust á þjálar varimar. Hún
vafði grönnum, en sterkum örm
um sínuni um háls honum og dró
Fyrir aðeins kr. 68.500.oo getið þér fengiö staðlaða
eldhúsinnréttingu i 2—4 herbergja fbúðir, mcð öllu tll-
heyrandi — passa I flestar biokkaríbúðir,
Innifaliö i verðinu er:
%> eldhúsinnrétting, klædd vönduðu plasti, efri
og neðri skápar, ásamt kústaskáp (vinnupláss tæpir 4 m).
0 ísskápur, hæfilega stór fyrir 5 manna fjölskyldu I
kaupstað.
Quppþvoitavé), (Sink*a*matic) ásamt eldhúsvaski.
Uppþvottavéiin þvær upp fyrir 5 manns og að auki má nota
hana til mlnniháttar tauþvotta. (Nýtt einkaleyfi).
0 eldarvéiasamstæða méð 3 hellum, tveim
ofnum, grillofni og steikar* og bökunarofni. Timer og önnur
nýtizkú hjálpartæki.
0 lofthreinsari, sem með nýrri aðferð heldur eld-
húsinu lausu við reyk óg lykt. Enginn kanall — Vinnuljós.
Ailt þetta fyrir kr. 68.500.oo. (söluskattur
innifalinn) Ef stööluð innrétting hentar yður ékki gerum viö
yður fast verðtilboð á hlutfallslegu veröi. Gefym ókeypis
verðtilboð I éldhúsinnréttingar f ný og gömui hús.
Höfum einnig fataskápa. síaðiaða.
- HAGKVÆMIR GREIÐSLUSKlLMÁLAR -
K
'. 'ÍZf KIRKJUHVOLl
t\\>: REYKJAVlK
mÆ SlMI 2 17 18
T V EbGAR RjceI
*r BurroughsI
Bústaöur Tarzans.
„Þú ert kominn með makka eins og
Ijónið okkar, hann Jad-Ral-Ja.“ „Já ég er
ekki alveg eftir höfði herra Grevstoke.
Þú hefur rétt fyrir þér, Jane.“
„Það er bezt að ég athugi hvort Mug-
ambi hefur tíma til að klippa það snöggv-
ast.“ - „Ef þú hefur tíma, þú hefur ver-
ið svo upptekinn síðan þú komst.“
„Jæja, ég læt það bara bíða. Komdu,
við skulum heimsækja gamla tréhúsið
okkar - aðeins þú og ég.“ - „Ég verð
tilbúin eftir þrjár mínútur.“
M, I. og II. flokkur
Æfingar á Melavelli
Þriðjudaga kl. 18.00
Fimmtudag kl. 18.00
Sunnudaga kl. 10.00 f.h.
Þjálfari
DERCO
BELTI og
BELTAHLUTIR
á BELTAVÉLAR
Keðjur Spyrnur Framhjól
Botnrúllur Topprúlíur
Drifhjó! Boltar og Rær
jafnan fyrírliggjandi
! BERCO
er úrvals gæSavara
ó hagstæðu verði
EINKAUMBOÐ
ALMENNA
VERZLUNARFÉLAGIÐf
SKIPHOLT 15 -SIMI 10199
BÍLASALINN
V I Ð VITATORG
SÍMAR: 12500 8t 12600
Austin Mini station ’62
Morris Mini ’67 fólksbíll
Morris 1000 station ’62
Morris ’63 sendiferöa
Opel ’55 til ’66 model
Daffodil ’62 til ’65
B.M.W. „1600“ ’67
Cortina ’65
Cortina ’64
Volkswagen ’55 til ’67
Citroen ’65
Prins ’62 og ’63
Renauit ’62 til 67
Skoda Sport ’63
Skoda Olctavia og Skoda Combi
Taunus ’54 til ’66 de luxe 17M
station og 2#a dyra fólksbílar
Trabant ’64 til ’66
SAAB '64 ’65
Vauxhall Viva,
Vauxhall Victor Vauxhall Festa
Vauxhall station.
Enskir Ford Zodiak, Zephir og fl.
Simca Arian ’63 og fl.
6 manna bílar ameriskir
Jeppar og fleiri tegundir framhjóla- ’
drifs-bíla.
Gamlir og ný'ir vörubílar.
Sendiferðabílar m/leyfum
VW rúgbrauð og Micro bus með
sætum fyrir 8 manns.
Mercedes Benz með sætum fyrir
17. manns.
Vantar bfla fyrir skuldabréf.
Nýir og gamlir bílar.
Bílaskipti viö allra hæfi.
Höfum kaupendur vantar seljendur
Akið i eigin bfl í páskafríinu.
Opið alla daga frá 10—10
Laugardaga frá 10 til 6.