Vísir - 19.04.1968, Page 10
VlSIR . Föstudagur 19. aprfl 1968.
10
uam
*>
Eldur í
kjallara
Miklar skemmdir uröu í kjallara-
íbúð í gömiu timburhúsi viö Berg-
staðastræti 63, þegar eldur kom
þar upp í gærdag. Mikinn reyk lagði
um húsið, en slökkviliðinu tókst
að varna því, að eldurinn næði
upp í íbúðina á hæðinni fyrir ofan,
og urðu þar litlar skemmdir. í
kjallaranum bjuggu ein hjón, og
var konan heima, þegar eldurinn
kom upp, en hana sakaði ekki.
Þá kom upp eldur ,í reykhúsi
Búrfells við Skúlagötu í nótt og
lagði mikinn reyk frá húsinu og
ramman þef, svo víða um borgina
varð fólk vart við og bárust lög-
reglunni margar tilkynningar sam-
tímis um eldinn.
Eldurinn hafði komið upp í reyk-
ofni fyrirtækisins og skemmdist
nokkuð af bjúgum, sem inni í hon-
um voru, en aðrar skemmdir urðu
ekki. Var eldurinn fjlótlega
slökktur.
180 manns
, Olympíuturninn / Miinchen
Enda þótt enn sé langt til Ólympíuleika í MUnchen er borg-
in þó farin að bera þess merki að þessir miklu leikar verða
haldnir þar eftir rúm 4 ár. Þessi mynd er af sjónvarpsturn-
inum mikla sem þar var reistur.
Turninn er 290 metra hár, sem er ekki mikið samanbor-
ið við loranmastrið mikla á Snæfelisnesi, en það er, þótt
mörgum þyki þáð undarlegt, þriðja hæsta mannvirki í
heiminum, yfir 400 metra hátt.
VNAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA^AAAAAAAAAAAAAAA^
Atvinnulíf glæðist
800 verkamenn v/ð Búrfellsvirkjunina
9 Þegar sumarið kemur og veðurblíðan, glæðist atvinnulífið
að mun. Nú er unnið aí fullum krafti hjá Búrfellsvirkjun og í
starfsmannahaldi Fosskrafts fékk blaðið þær upplýsingar að und-
anfarið hefðu verið ráðnir 50 verkamenn til viðbótar við þá sem
fyrir voru, en samt þyrfti enn að fjölga eitthvað, og að líkindum
yrði lokið við að ráða vinnukraft um miðjan maímánuð.
1. síðu
arljósa við mót Suöurlandsbr. og
Álfheima annars vegar og Grens-
ásvegar hins vegar, en 26. maí
verða ný umferðarljós tekin í notk-
un á' 6 gatnamótum í borginni.
Borgarbúar fá nú götur sínar
merktar með varanlegu efni. Eftir
helgina verður tekin í notkun vél,
sem fengin er frá Danmörku og
fræsir upp malbikið á stöðum, þar
sem merkja þarf, en setur hvítan
malbikunarmassa í staðinn. Er
þessi aðferð mun endingarbetri en
þær aöferðir, sem notaðar hafa
verið hingað til hér í borg.
Að lokum sagði Ingi Ú. Magn-
ússon, að um alla borg væri unn-
iö að malbikunarviðgerðum á göt-
um og öðru viðhaldi þeirra, svo
og að þvotti gangstétta víða um
borgina.
FÉLAGSLÍF
Ferðafélag íslands fer í tvær
ferðir á sunnudaginp. Gönguferð
á Skarðsheiði. Hin ferðin er öku-
ferð um Krísuvík, Selvog og Þor-
Iákshöfn. Lagt af stað í báðar ferð-
irnar kl. 9.30 frá Austurvelli. —
Farmiðar seldir við bílana.
Um 800 íslenzkir verkamenn
starfa við Búrfellsvirkjuniná, og
hjá starfsmannahaldinu fenguSt
þær upplýsingar, að framboð á
vinnuafli hefði minnkaö. Til marks
um það er, að fyrirtækið hefur
lista yfir menn, sem óskað hafa
eftir vinnú og nær sá listi aftur í
nóvember sl., en þegar haft er
samband við þá, sem á honum eru,
reynast þeir yfirleitt komnir í aðra
vinnu.
Ekki er þó hægt að segja, að
ekki sé nægilegt framboð á vinnu-
afli, nema í einstökum greinum. T.
d. er mikill skortur á vönum jáma-
mönnum og mönnum vönum borun-
* Meðalvikutekjur verkamanna við
Búrfell að undanskildu fæöi og
húsnæði munu vera um 4000 kr
á viku.
1 Straumsvik var svipaða sögu
að segja. Þar er veriö að fjölga
mönnum, þvi að nú auðveldast mjög
aðstaðan til ýmissa verka. 1 vetur
hefur t.d. verið hafður sá háttur
á, að steypt hefur veriö undir
skýli úr plasti, til þess að forða
þyí að steypan frysi.
Ekki er þó unnt að segja um
það hversu fjölgað verður um
marga starfsmenn í Straumsvík á
sumri komanda.
Verkamerm
og menn vanir vinnuvélum óskast.
O K H.F.
Fossvogi.
Sími 41692.
m Frétt frá Rangon hermir, að lok
að hafi verið landamærum Thai-
i lands og Lagos, til þess að hindra
kommúnista í að komast inn í land-
ið.
■ Eitt hundrað pólitískum föng-
um hefur veriö sleppt í Grikklandi.
Þeir hafa verið í haldi í fangabúð-
um á eyjunum Yaros og Leros
Tilkynnt var að þeim væri sleppt
vegna góðrar framkomu þeirra.
— í tilkynningu um þetta voru
þeir allir kallaöir kommúnistar
— Páskadagur er hjá grísk-
kaþólskum um næstu helgi og
er litiö svo á að stjórnin
hafi þess vegna sýnt vclvildar-
hug, meö því að sleppa þessum
föngum. — Á eyjunum eru enn í
haldi 2356 pólitískir fangar.
Gluggarnir —
8. síðu.
3.710.040,— mínus 1200.000.—
eða kr. 2.510.000.— þar eð 50%
tollur og söluskattur er með í
tilboðinu frá Chamebel.
Þegar ljóst var, að hagfelld-
asta tilboðið væri frá Chamebel
var ákveðið að athuga nánar í
Danmörku og Belgíu málavexti
í sambandi við framleiðslu um-
ræddra útveggja.
Hafði húsameistari ríkisins
gert lítils háttar breytingar viö
útlit veggjarins og voru nokkur
önnur atriði rædd og nokkrum
spamaöi viökomið. í því sam-
bandi var verðið lækkað um B.
fr. 205.500. Var þá heildarverö-
ið frá Chamebel komið niður í
kr. 3.381.040.— að frádregnum
tollum kr. 1.000.000.— eða kr.
2.381.040,—
Auk þessa var gerð hagræðing
sem ekki var reiknuð til fjár en
Iauslega metin á kr. 100.000.—
Þegar á allt er litið í þessum
málum, kemur í ljós, aö hags-
munir Rafha og hagsmunir rík-
isins eiga ekki samleið, þar sem
tilboðin frá Rafha eru óhagstæð
ari en þau tilboð, sem gengið
hefur verið að, og svo fer því
fjarri, að hjá því fyrirtæki sé
um alíslenzkt tilboð að ræða.
Því að fram kom við opnun til-
boða í Tollstöðvarhúsið, aö ekk-
ert þeirra var íslenzkt að meira
en y3 hluta — Rafha ekki und-
anskilið.
Háskólinn —
m-> í. siðu.
Mesta vandamálið í undirbún-
ingnum var aö finna hótelher-
bergi fyrir allan þennan skara,
en í Reykjavík eru ekki nema
um 300 hótelherbergi samtals.
Sámt hefur tekizt aö vinna bug
á þvi vandamáli með ýmsum
ráðum.
Hátíðasalur Háskólans verður
fundarstaður ráöherranna, og í
kennarastofunni þar verða
fréttatilkynningar fundarins
samdar. Blaöamenn fá miöstöð
í Hagaskólanum, þar sem sett
verður upp símstöö fyrir þá o.
s. frv. Einnig veröur komið upp
nokkurs konar landkynningar-
stöð í Hagaskólanum fyrir
blaðamennina, þar sem þeir geta
aflað sér margvíslegs fróðleiks
um land og þjóð, sem þeir síðan
senda lesendum sínum.
Aö sjálfsögðu verða geröar
ýmsar ráðstafanir út af örygg-
ismálum til þess að tryggja, að
ekki fari aörar fregnir af fund-
um, en fundarmenn vilja sjálfir,
og koma til þessa öyyggisverðir
frá bandalaginu sjálfu, sem
munu hafa samvinnu viö ís-
lenzku lögregluna um ýmiss
mál, sem að öryggi lúta, svo
sem umferðarstjórn o.s.frv.
Á vetrarfundinum síðasta,
sem haldinn var í Luxembourg,
var hin svonefnda Harmel-
skýrsla lögð fram, en hún fjallar
um framtíð og tilgang banda-
lagsins. Viðræðurnar á fundin-
um í Reykjavík verða væntan-
lega i framhaldi af þessari
skýrslu,' og fundurinn í heild
merkilegur fyrir margra hluta
! sakir.
Willys 1954
í toppstandi til sýnis og sölu, er
með útvarpi og keðiur á öll hjól.
Til sýnis í Bílasölunni Borgartúni
1 í dag og næstu daga.
I'MÚHL'I
BELLA
Ég verð að fá að hugsa mig
vel um, Steini, hvort ég giftist
þér. Viltu hringia eftir 5 mínútur?
VEÐRIÐ
í DAG
Norðaustan
gola eða kaldi,
úrkomulítið en
skýjað. Hiti 3-6
stig.
BILASOUNIN
í dag er skoðað:
R-1501 — R-1650
VISIR
■?50
fyrir
anum
Bæjarfréttir. — Innbrot var
framið í geymsluhús verzl.
„Breiðablik" um kl. 11.30 í nótt.
Húsið er bakhús og var farið þar
inn um glugga, en kona, sem býr
þar uppi á loftinu heyröi til þjófs-
ins og fór á fætur. En hann
heyrði einnig til hennar í tæka
tíð til að komast undan, en kon-
an sá þó manninn, er hann hljóp
í burtu með poka í hendinni.
19. apríl 1918.
HEIMSÓKNARTIMI Á
SJÚKRAHÚSUM
Elliheimilið Grund. Alla daga
kl 2-4 og 6 30-7
Fæðingardeild Landspítalans.
Alla daga kl. 3-4 og 7.30-8
Fæðingaheimili Reykjavíkir
Alla daga kl. 3.30—4.30 og fyrir
feður kl. 8-8.30
Kópavogshæiið. Eftir hádegið
daglega.
Hvitabandið. Alla daga frá kl
3-4 og 7-7.30
Farsóttarhúsið .Alla daga kl.
3.30—5 og 6.30—7.
Kleppsspítalinn. Alla daga kl
3-4 op 6.30-7
Landspitalinn kl. 15-16 og 19-
19.30.
Borgarspítalinn við Barónsstíg,
14— ’5 og 19-19.30.
Sólheimar, kl. 15 — 16 og 19—
19.30.