Vísir - 29.04.1968, Síða 2
V1 SIR . Mánudagr- 29. apríl 1968.
Landsleikurmn í handknaftleik:
Sigtryggur Sigurðsson.
Yfirburðasigur SPANVERJA 29:17
íslenzka vörnin mjög léleg
■ f gærdag léku fslendingar fyrri landsleik sinn við
Spánverja. Leikurinn fór fram í borginni Alicante
á Suður-Spáni og fór hann fram á steinsteyptum úti-
velli í 25 stiga hita, eða vel það.
Blaðið hafði i gær samband við
Einar Mathiesen einn af farar-
stjórum liðsins og var heldur
dauft f honum hljóðiö, þegar við
náðum loks tali af honum. „Þetta
var mikil og erfið þrekraun fyrir
strákana, hitinn var óskaplegur, 25
stig í forsælu, en við lékum i
steikjandi sól og veit ég ekki hvað
hitinn hefur verið mikill þar.
Spánverjamir höfðu veriö á
æfingum hér á þessum steinsteypta
útivelli í 5 daga, og kunnu sýni-
lega betur vlð sig, en okkar menn. tókust hjá þvi.
Við mótmæltum við þá, þegar við
vissum, að leikurinn ætti að fara
fram úti en það hafði enga þýö-
ingu, og því reyndum við þetta, en
árangurinn var ekki góður.“
Spánverjarnir eru snöggir og
fljótir leikmenn, og skoruöu þeir
flest sín mörk úr hraðupphlaupum,
og með að komast inn í sendingar
Islendinganna, sem voru þungir og
seinir miöað viö þá.
Vörn íslenzka liðsins var léleg,
en markvarzlan sæmileg, þó ekki
góð. Sóknarlotur íslenzka liðsins
voru margar og enduðu flestar
með mistökum, sem mörg komu af
þreytu í þessum hita, og að birtan
var ofsaleg I þessu glampandi sól-
skini.
íslenzka liðið átti fjöldann allan
af stangarskotum í þessum leik,
og ekki færri en 3 vítaköst mis-
Sigtryggur SigurBson KR
Glímukóngur Islands 1968
58. Íslandsglíman var háð að
Hálogalandi f gær að viðstöddum
mörgum áhorfendum, sem sýni-
lega skemmtu sér vel, hvöttu
piltana af miklum áhuga og
var spenningur mikill í flestum
glímunum. Og mikið var þrefað og
þjarkað um hverja glímu að henni
loklnni.
Er gaman til þess að vita að
þessi þjóðaríþrótt okkar er aö ná
upp sinum fyrri vinsældum hér,
þótt enn vanti nokkuð á að
svo sé.
Eitt atvik skyggöi þó á þessa
góðu keppni, en það var að hinn
skemmtilegi glímumaður Steindór
Steindórsson, yfirgaf keppnina áður
en henni var lokið, í mótmæla-
skyni við hlutdræga dóma, að
hann taldi.
Sigtryggur Sigurðsson, KR, varð
glímukóngur íslands 1968, hlaut
hann 8 vinninga og felldi alla
keppinauta sína. Sigtryggur er
stór og þungur glímumaður, og átti
hann misjafnar glímur í þetta sinn.
Þetta er í fyrsta sinn að hann vinn-
ur þennan eftirsótta titil, en Ár-
mann J. Lárusson, sem nú var á-
horfandi, hefur verið ósigrandi i
Íslandsglímunni til þessa, og hætti
hann keppni nú, eins og sannur
meistari, ósigraður í 14 ár í röö.
Úrslit Íslandsglímunnar uröu sem
hér segir:
Vinningar:
1 Sigtryggur Sigurðssson, KR 8
2. Sveinn Guðmundsson, HSH 6
3. Guðm. Jónsson, UMSE 5 + 1
4. ívar H. Jónsson, UBK 5
5. Hannes Þorkelsson, Víkv. 4
6. Ingvi Guðmundsson, Víkv. 4
7. Ómar Úlfarsson, KR 3
8. Elías Árnason, KR 1
9. Rögnvaldur Ólafsson, KR 0
Leikurinn var jafn framan af,
og skildi ekki nema eitt mark á
milli eftir 20 mín. leik, 6—5, en
síðustu mínúturnar í fyrri hálfleik
byrjuðu Spánverjarnir á snöggum
skiptingum og hröðum leik og þeir
voru heldur ekki seinir að breyta
töflunni sér í hag, því aö á þessum
10 mín. skoruðu þeir 5 mörk á
móti 1. 1 hálfleik var staðan 11—6
Spánverjum í vil.
í byrjun síðari hálfleiks komust
þeir enn betur upp á lagið, og með
hraðupphlaupum og ,,húkki“ (kom-
ust inn í sendingar íslendinga),
breyttu þeir stöðunni enn betur sér
í hag.
Leikurinn endaði með yfirburða-
sigri þeirra, 29—17, og það voru
sárir og þreyttir landsliðsmenn
sem yfirgáfu brennandi heitan
völlinn, sem var það heitur að vel
hefði mátt steikja egg á honum.
íslenzka liðið var lélegt í þess-
um leik, og léku allir leikmenn
liðsins, langt undir getu. Allir
leikmenn liðsins 12 aö tölu, léku
meö í þetta sinn, og veitti ekki af,
því að hver maöur var ánægöur,
þegar honum var skipt útaf.
Hiti er óþekkt fyrirbrigði í
handknattleik hér á landi, og úti-
handknattleikur ekki æfður svo
neinu nemi, enda er mikill munur
á úti- og innihandknattleik. Þaö er
því furðulegt, að ráðamenn liðs-
ins skuli hafa samþykkt að leika
þennan landsleik úti, þar sem HSl
hafði samiö við Spánverja um 2
innilandsleiki, og hlýtur að vera
til betri afsökun en sú, aö ekki
hafi veriö til salur til aö leika í.
Spánska liðið er mikið breytt
frá því, að það lék hér fyrir 5
árum og tapaði stórt báðum lands-
leikjum sínum á Keflavíkurvelli.
Með liðinu leikur nú einn Norð-
urlandabúi, en þaö er Svíi, sem
nýlega hefur fengið spænskan
ríkisborgararétt, og var hann einn
bezti maður liðsins, og kunni hann
sýnilega vel við sig £ þessum hita
allan leikinn, mun betur en kolleg-
ar hans frá fslandi
I íslenzka liðinu eru nær allir
leikmennirnir þungir og svifa-
seinir, en sterkir. Gefur það því
augljósa mynd af leiknum, hvernig
hinir þungu leikmenn hafa verið í
höndunum á léttum og liprum
Spánverjunum, sem hreinlega sner-
ust í kringum þá.
Enginn íslendinganna átti betri
leik en annar, allir voru um og
fyrir neðan meðalmennskuna. —
Mörkin geröu: Sigurður Einarsson
5, Gísli Blöndal og Ingólfur Ósk-
arsson 3, Jón Hjaltalín 2 og Guð-
jón, Gunnlaugur, Ágúst og Ásgeir
eitt hver.
Ekkí er annað hægt að segja en
að þessi úrslit hafi komið yfir
handknattleiksunnendur sem reið-
arslag, eftir hin frábæru úrslit í
leiknum við Dani á dögunum,
bjuggust menn við góðum sigri yf-
I ir Spáni. En heldur betur léku þeir
okkur grátt þar og ber þar fyrst
að nefna, að þeim skuli takast að
fá forráðamenn liðsins til að láta
það leika úti, og það í svona hita.
.Hræddu' er ég um, að þeir hefðu
neitað ef við hefðum boðið þeim
að koma hér á síðastliðnum vetri,
og að leika svo einhvers staðar
fyrir norðan, eða á Hveravöllum,
þar sem frostið var um 20 stig,
og okkar menn hefðu verið búnir
að æfa þar og venja sig við hitann
eins og þeir í Alicante. Þeirra svar
hefði örugglega verið blákalt NEl,
en viö látum t /ma okkur á asna-
eyrunum út í hvað sem er, og
segjum aldrei neitt, fyrr en á eftir.
Vonandi tekst okkar mönnum
betur upp n.k. þriðjudag, en þá
fer síöari leikurinn fram í Madrid
og verður leikinn innanhúss í þetta
sinn.
Tvö félagslið kepptu við
ÍBK í litlu bikarkeppninni
Á laugardaginn léku í Litlu bik- | nema tvö stig, se’m ÍBK fékk verð-
arkeppninni á þungum og blautum | skuldaö fyrir þennan leik.
velli í Keflavík lið I'BK og IBH. Leiö
indaveður var, þegar leikurinn fór
fram, rok og rigning, og hafði það
sýnileg áhrif á leikinn, til hins
verra, og þó var knattspyrnan ekki
mikil í þetta sinn.
Leikurinn var leiðinlegur á að
horfa, og skildi ekkert eftir sig,
Akumesingar í erfiðleikum
itieð að sigra Kópavog 2:1
Litla bikarkeppnin hélt áfram sl.
laugardag . I Kópavogi léku Akur-
nesingar við Breiðablik, en í Kefla
vík léku heimamenn við Hafnfirð-
inga. Á báðum vfgvöllum gat að
Iíta hina albekktu íslenzku „vor-
knattspyrnu“ af lélegri gerðinni.
Akurnesingar með Hrein Elliðason
fyrrverandi leikmann í Fram i
broddi fylkingar áttu í talsverðum
erfiðleikum með hið unga lið Kópa-
vogs.
Veður var ekki hagstætt og varð
völlurinn fljótlega illur yfirferöar
vegna mikillar rigningar og háði
það leikmönnum mikið. Samleikur
var ekki reyndur í leik þessum held
ur réðu langspörk og hrindingar
öliu um gang leiksins. Þó brá fyrir
dugnaði og knattmeðferö hjá ein-
staka leikmanni.
Fvrsta mark leiksins kom seint
i fyrri hálfleik og skoraði það
Guðjón Guðmundsson eftir
skemmtilegan einleik. I hálfleik var
því staðan í 1:0 Akurnesingum í vil.
I síðari hálfieik sóttu Breiðabliks-
menn talsvert í sig veðrið og voru
oft nærri því að skora. Þó voru það
Akurnesingar sem skoruðu og var
þar Hreinn Eiliðason að verki eftir
fyrirgjöf frá Birni Lárussyni. —
Skömmu síðar skorar Guðmundur
Þóröarson fyrsta mark Kópavogs.
Komst hann einn inn fyrir vörn
Akurnesinga, áberandi rangstæður
og ýtti boltanum til markmanns
sem með ólýsanlegum hætti tókst
að koma knettinum í markið. Síð-
hærður unglingspiltur var linu-
vörður og var að ræða við kunn-
ingja sína og virtist Óla Oisen
dómara í þessum leik, allt með
feildu og úrskurður hans var mark.
Leiknum lyktaði því með sigri Ak-
urnesinga og voru þeir skárri að-
ilinn í þessari viðureign. Áreiðan-
legt er, að bæði þessi lið geta gert
mun betur og hefur völlurinn og
veðrið eflaust haft sín áhrif þar
á. Dómarinn Óli Olsen virðist al-
gjörlega æfingarlaus sem knatt-
spyrnudómari, en með sæmilegri
æfingu ætti hann að geta gert vel.
® 2:0. Var sögulegt mark, það
er fyrsta markiö, sem dæmt er á
Liðiö hefur mun meiri leikreynslu I markvörð fvrir aö taka of mörg
en Hafnfirðingarnir, og eitt ann-1 skref samkvæmt alþjóðareglunni
að, sem ekki var í þetta sinn að j öér á landi. En hið svokallaða
finna í liðum Hafnfirðinga, er þaö ! „fjögurra skrefa regla'
var samvinna og góður félagsandi,
og aö lokum veigamesta atriðið,
engan félagsríg aö sjá eða heyra
á meða’n á leiknum stóö.
En þaö vakti þegar furðu áhorf-
enda að þessum leik, að þegar lið
ÍBH kom inn á leikvöllinn komu
leikmennirnir ekki saman. „Nei“
heldur komu þeir í tveimur hópum,
og til að kóróna þaö, í búningum
frá sitthvoru félaginu FH og Hauk
um, en ekki í búningi íþróttabanda
lagsins, eða þá allir í svart-hvít-
um búningi FH, eða í hinum rauöa
og hvíta . þúningi Haukanna.
Það er alltaf slæmt, þegar rígur
er á milli- félaga, <en þessi rígúr
Hafnfirðinganna er að eyðiíeggja
alla samvinnu á milli þeirra, og
það sem verra er,að á leikvellinum
er hann það mikill, að útiokað er,
aö útkoman verði jákvæð knatt-
spyrna.
Lið ÍBK var vel að þessum sigri
komið, og var sigur þess, 5:0, sízt
of mikill. Mörkin í leiknum komu
bannig:
© 1:0. Hinn ungi og efnilegi nýliði
ÍBK, Gunnar Sigtryggsson, skaut
lausu skoti í átt að marki, bolt-
inn lenti í stórum polli, sem var
fyrir framan markið. og úr honum
baut hann með auknum hraða fram
hjá þrumulostnum markverði ÍBH.
var nú not-
uð í fyrsta sinn og það án vitund-
ar leikmanna, og líklega án vitund
ar dómarans Sveins Kristjánsson-
ar, sem fann sig knúinn til að
dæma eftir þessum nýju reglum,
sem hann þó hafði ekki gert fyrr í
leiknum. „Fjögurra skrefa reglum-
ar“ hafa ekki enn verið kynntar
fyrir ísl. markvörðum og held-
ur ekki gefnar út af KSl til dómara
og enginn veit enn hvort eftir þess
um reglum verðúr leikið í Reykja-
víkur- eða íslandsmótinu í ár. En
nóg um það, Magnús Torfason tók
þessa fyrstu spyrnu og notfærði
sér hana vel, skaut þrumuskoti
í hornið niðri.
© 3:0. Magnús Torfasoh var enn
að verki stuttu síðar, þegar hann
fékk góða sendingu frá Friðriki
Ragnarssyni og hann renndi bolt-
anum í netið af stuttu færi.
© 4:0. Gunnar Sigtryggsson gaf
góðan bolta fyrir markið sem
annar efnilegur nýliði, Ástráðu'
Gunnarsson, skallaði mjög glæsi-
lega og alveg óverjandi i markhorn
ið.
® 5:0. Síöasta mark leiksins, skc.i
aði Gunnar Sigtryggsson svo í
seinni hálfleik, þrátt fyrir að ÍBK
léki móti vindi, og var það gott
mark, sem hann átti allan heiður-
inn af sjálfur.