Vísir - 30.04.1968, Side 5
VÍSIR . Þriðjudagur 30. apríl 1968.
5
QSl
V orbakstur
'l/'orið er ekki síður tími kaffi-
” boöanna en skammdegið. Á
vorin lýkur fólk ýmsum áföng-
um, tekur próf úr skólum og
kveður gömlu skólafélagana með
boði. Sumir bjóða í kvöldboð,
með víni og tilheyrandi og aðrir
í eftirmiðdagskaffi, þar sem
fram eru bornar ljúffengar
kökur og brauð og drukkið
kaffi og gos. Femingarveizlur
og aðrar veizlur eru ófáar á
vorin, og alltaf þarf að baka
eitthvað fyrir þær. Þaö er vissu
lega ekki ofsögum sagt að ís-
lenzkar húsmæður séu duglegar
að baka, en viö ætlum nú samt
að bæta nokkrum uppskriftum
í safnið, ef einhver kynni að
hafa áhuga.
Við höfum valið nokkrar upp-
skriftir af „iéttum" kökum, þ.e.
kökum, sem ekki eru mjög fyr
irferðarmiklar og seinbakaðar.
Þannig kökur eru þaö sem okk
ur vantar oftast á kaffiborðið
meö þungu tertunum og smuröa
brauðinu.
□ Haframjölsbollur
250 gr. hveiti
125 — haframjöl
250 — smjörlfki (jurta)
125 — sykur.
örlítið salt.
Smjörlíkið er hrært vel og
lengi þar til það verður nánast
hvítt á litinn. Þá er sykur,
hveiti, haframjöl og örlítið salt
sett saman viö og hnoöað vel í
litlar bollur sem settar eru á
smurða plötu og bakaðar við
góöan hita. Mjög góðar með
osti eöa ávaxtahlaupi og smjöri.
□ Kókosbitar
DEIG:
2 hg smjör eða smjörliki
3/4 dl sykur
5 dl hveiti
FYLLING:
1 dl ávaxtahlaup (jarðarberja-,
ananas- eða ribshlaup.)
KÓKÓSBRÁÐ:
5 þeyttar eggjahvítur
2i/2 dl sykur
5 dl kókósmjöl.
Hnoöið deigið og fletjið þaö
út á smuröri plötu, ca. 25x35
cm, og bakiö I 15 mín. í meðal-
heitum ofni. Á meðan er kókós-
bráðin búin til. Öllum efnunum
er blandað saman og síðan er
ávaxtahlaupinu smurt á heita
kökuna úr ofninum. Kókosjafn-
ingnum smurt yfir ávaxtahlaup-
ið og kakan sett í ofninn aftur
og bökuð í 5—10 mín ,eða þar
til kókosbráðin er orðin stif og
hefur fengið ljósbrúnan lit. Sker
ið í flangar kökur áður en kakan
kólnar.
□ Sykurkringlur
200 gr. hveiti
150 gr. smjör
4 matsk. rjómi
grófur sykur
eggjahvíta til að pensla.
Deigið er hnoðað saman og
iátið kólna vel. Rúllast síðan út
í sentimetersbreiðar ræmur, sem
skomar eru í sundur hæfilega
langar til að hægt sé að móta
kringlur. Kringlurnar eru pensl-
aðar með eggjahvitu og grófum
sykri stráð yfir þær. Bakaðar í
vel heitum ofni f ca. 5 fnínútur,
eöa þar til þær verða gulbrúnar.
□ Sýrópskaka
125 gr. hveiti
100 gr. sýróp
1 tsk. Iyftiduft
50 gr. púöursykur
2 egg
1 tsk. kardímommur
1 tsk. vanillusykur
2 msk. súkkat
rifinn börkur af 1 sítrónu
3 msk. brytjaðar döðlur.
Eggjarauðurnar eru hrærðar
vel saman við sykurinn og sýr-
ópið. Þurrefnunum blandað sam
an við og hinum efnunum, stff-
þeyttar eggjahvíturnar settar
síðast. Sett á plötu, eins og
rúlluterta og bakað f 5 — 10 mín-
útur í meðalheitum ofni. Kök-
unni er hvolft á smjörpappír
þegar hún er bökuð og er hún
fer að kólna er hún smurð með
áváxtablaupi eða mjúku kremi
og vafin upp eins og rúlluterta.
□ Ostastengur
Jafn miklu af rifnum osti,
hveiti og smjörlíki er blandað
saman og kryddað með sellerf-
salti og papriku. Látið bfða góða
stund. Flatt þunnt út og skoriö
í litla bita, sem smurðir eru
meö eggjahvítu og bakaðir f 10
mín. við meðalhita.
VELJUM ÍSLENZKT
ÍSLENZKAN IÐNAÐ
Gerið þér yður ljóst,
að ef sérhver Islendingur kaupir
innlendar iðnaðarvörur fyrir kr.
1000 í staðinn fyrir erlendar, þá
skapast við það atvinna fyrir 300
manns í iðnaðinum.
Með þvi að kaupa íslenzkar
iðnaðarvörur stuðlið þér að
atvinnuöryggi og aukinni
velmegun í landinu.
ástraar^
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Loftleiða h.f. verður haldinn
föstudaginn 31. maí n. k., kl. 2 e. h. í Hótel
Loftleiðir.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Hluthafar fá atkvæðaseðla í aðalskrifstofu
Loftleiða á Reykjavíkurflugvelli, fimmtudag-
inn 30. maí.
Stjórn Loftleiða.
WFTLEIDIR
TILKYNNING UM AT-
VINNULEYSISSKRÁNINGU
Atvinnuleysisskráning samkvæmt ákvörðun
laga nr. 52 frá 9. apríl, 1956, fer fram á Ráðn-
ingarstofu Reykjavíkurborgar, Hafnarbúðum
v/Tryggvagötu, dagana 2. 3. og 6. maí þ. á.,
og eiga hlutaðeigendur, er óska að skrá sig
samkvæmt lögum að gefa sig fram kl. 10—12
f. h. og kl. 1—5 e. h. ,hina tilteknu daga.
Óskað er eftir að þeir, sem skrá sig séu við-
búnir að svara meðal annars spurningunum:
1. Um atvinnudaga og tekjur síðustu þrjá
mánuði.
2. Um eignir og skuldir.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
R-RKÍ R-RKÍ
SUMARDVALIR
Tekið verður á móti umsóknum um sumar-
dvöl fyrir böm hjá Reykjavíkurdeild Rauða
kross íslands, dagana 2. og 3. maí n. k. kl.
10—12 og 14—18 á skrifstofu Rauða kross-
ins- Öldugötu 4. Ekki tekið við umsóknum í
síma.
Eingöngu verða tekin Reykjavíkurbörn fædd
á tímabilinu 1. janúar 1960 til 1. júní 1963.
Áætlað er að gefa kost á 6 vikna eða 12 vikna
tímabilum.
Stjórn Reykjavíkurdeildar
Rauða kross íslands