Vísir - 27.05.1968, Blaðsíða 1
fáaijpai-
fKW
frsaíii* j
MYNDIN er tekin af H-umferð á Snorrabrautinni, þar sem hún sker Laugaveg (hægra megin) og Hverf isgötu. Á þessum stað voru breytlngarnar einna
BREYTINGIN GEKK SNURÐULAUST
NÚ ÖKUM VIDIHÆGRIUMFCRD
„Vegfarendur tillitssamir og gedgódir" segir lögreglan
■ í nokkrar mínútur stóðu öll vélknúin ökutæki
á landinu grafkyrr og aðeins örfá — með sérstak-
lega fengnar undanþágur — biðu með vélarnar í
gangi.
■ Hægt og hikandi færðu þau sig eitt og eitt yfir
á hægri kant og biðu eftir því að klukkan yrði 06.00.
■ „... í umboði dómsmálaráðherra lýsi ég því
yfir, að nú er hægri umferð á íslandi,“ hljómaði
rödd Valgarðs Briem, formanns Framkvæmda-
nefndar hægri umferðar, til landsmanna allra í
gegnum útvarpið nákvæmlega á slaginu sex, og
menn settu bifreiðir sínar í gír, juku bensíngjöfina
og sigu af stað hægt og gætilega í fyrsta sinn í
hægri umferð.
„Rétt bara eins og að drekka
vatn“, sögðu sumir, eftir að þeir
wrv búnir að aka fyrstu metr-
ana.
„Hvað? Þetta er ekkert!"
Jögðu aðrir, og þannig voru viö
brögö manna almennt —
Snægiublandin undrun yfir þvl
hve snuðrulaust umferðarþreyt-
ingin gekk fyrir sig.
í nýju lögreglustöðinni við
Hlemmtorg höfðu yfirmenn lög
gæidunnar og fulltrúar úr Fram
kvæmdanefnd hægri umferðar
fylgzt með síðustu þáttum und-
irbúningsins um nóttina og
stóðu í stöðugu sambandi við
löggæzlu og eftirlit úti á landí
þar sem samtimis var lögð síð-
asta hönd á verkið.
Vinnuflokkar höfðu verið á
ferli um nóttina og fært tii um
ferðarmerki, breytt gömlum og
sett upp ný, og hafði því verki
verið lokið víðast um land fyrir
kl. 6. I Reykjavík einni voru
flutt um 500 eldri umferðar-
merki frá kl. 3 til kl. 5.45 og
á sama tíma sett upp 300 ný
merki.
Um 200 lögreglumenn voru að
starfi f Reykjavík um nóttina
og höfðu margir verið á þönum
vnð eftirlit, en skömmu fyrir kl.
6 voru þeir komnir í sínar fyrir
fram ákveðnu varðstöður, þar
sem helzt var hættan á því, að
vegfarendum yrði eitthvað á i
messunni.
Að vísu var veðurfar ekki alls
staðar eins og menn hefðu bezt
kosið sér. Á Suð-vesturlandi var
súld og mistur og sums staðar
skúrir, en á Norður- og Norð-
austurlai di var léttskýjað. Um
miðbik landsins var skýjað. —
Akstursskilyrði voru þó sæmi-
leg.
Vegir voru í eðlilegu ástandi
viðast hvar hér sunnan lands
og einnig flestar alfaraleiðir
norðan lands og austan, en
sums staðar þar og á Vestfjörð
um voru einstaka vegir ófærir
ýmist vegna snjóa eða aur-
bleytu. Á einurn stað fyrir
norðan var ekki unnt að komast
til þess að skipta um umferð-
armerki, sem voru á kafi í
snjó.
Alls staðar gekk þó umferðar
breytingin samkvæmt áætlun.
Allt hafði verið skipulagt fyrir-
fram og gekk samkvæmt því —
eins og vel smurð vél.
Víðast var umferð lítil á þjóð
vegum fyrst í stað, en fór þó
vaxandi upp úr klukkan 9 I
morgun. I kauptúnum og kaup-
stöðum úti á landi var umferð
lítil fyrst í stað, en i Reykja-
vík var umferðin strax orðin
mikil kl. 7 um morguninn, þegar
umferðarbanninu var aflétt. —
Gekk umferðin þó greiðlega, þó
að sums staðar mynduðust um
ferðarhnútar.
Þegar á leið morguninn var
umferðin í Reykjavik orðin svip
uð og í jólaösinni á Þorláks-
messu og gekk stirðísrga á
gatnamótum. þar sem komið
hafði verið fyrir götuvitum,
enda kom á daginn, að þeir
höfðu ekki verið sem bezt
stilltir um nóttina en úr því
var bætt síðar.
Lögreglan rómaði mjög fram-
komu ökumanna og annarra veg
farenda í umferðinni og þótti
sem aldrei hefði verið sýnd
jafnmikil tillitssemi og jafnaðar
geð i umferðinni áður og varð
hvergi séð annað. en vegfarend
ur færu í öllu eftir fyrirmælum
Um kl. 1 á hádegi hafði aðeins
einn verið tekinn fyrir ofhraðan
akstur — unglingspiltur á bif-
hjóli á 70 km hraða.
Á hverju horni ’sáust annað
hvort umferðarverðir eða lög-
regluþjónar, sem leiðbeindu veg-
farendum, en alls munu milli
1200 og 1300 umferðarverðir
hafa byrjað umferðan'örzlu um
morguninn um land allt. f
Reykjavík var gert ráð fyrir, að
um 700 einstaklingar mjmdu
vinna að umferðarvörzlu á H-
dag.
Umferðin á Akureyri jókst
ekki að ráði fyrr en undir kl.
8 um morguninn, en samkvæmt
upplýsingum lögrejílunnar þar
gekk umferðin hægt, en þó ör-
Frh. á bls. 15.