Vísir - 28.05.1968, Síða 3
3
Ví S'I R. Þríðjudagur 28. maí J9R8.
)
1
I
)
I
)
í
)
!
i
Ævintýraheimur íslenzks sjávarútvegs
Sigríður Guftmundsdóttir kynnir gestum fiskf ramleiðslu hraðfrystihúsanna ...
frá sýningunni og þau eru dá-
h'tið sólgin í svona nokkuð.
Þróun fiotahs —
og fjölgun brotanna
Benedikt Guðmundsson stend-
ur vörð við stúku Landhelgis-
gæzlunnar. Þar getur að lita
likön af öllum skipum, sem
Landhelgisgæzlan hefur átt. Við
revnum að svna í stórum drátt-
um það helzta í starfi gaezl-
unnar, segir Benedikt. Þetta
byggist mest á myndum hjá
okkur: Myndir frá ískönnun,
Surtseyiarævintýrinu. Þorska-
stríðið er dálitið fyrirferöamik-
ið á sýningunni. Þarna getur
ennfremur að líta kort yfir
landheigi okkar og stækkun
hennar frá upphafi. 1 horninu
stendur svo vörn okkar gegn
landhelgisbrjótum, heljarmikit
fallbyssa, sem veit að áhorfand-
anum. Athyglisverö tafla á
vegg stúkunnar sýnir okkur
hvernig þróun landhelgisbrota
hér við land hefur orðið frá því
árið 1922. Þetta eru ískyggileg-
ar tölur, segir Benedikt. Það
sem er uggvænlegast í því sam-
bandi eru landhelgisbrot ís-
lenzkra skipa, sem hafa marg-
faldazt seinustu sjö árin, voru
54 árin 1950—60 en eru 436
seinustu siö árin. Landhelgis-
brot útlendinga eru hins vegar
ekki vaxandi.
Fískur, sem skemmist á sjó,
verður ekki bættur í landi
Við stúku Ferskfiskeftirlits-
ins stendur stór strákahópur og
horfir á kvikmyndaskerm, sem
falin er inni í bjargbring.
— Þetta er kanadísk mynd.
segir Jón Helgason, sem þarna
heldur vörð. Hún sýnir með-
ferö á fiski. Við reynum að
sýna hérna hvernig rétt er að
meöhöndla fisk, segir Jón, og
hvernig á ekki að gera það. —
Einhvers staðar er þessi yfir-
skrift yfir einu horni stúkunn-
ar: Siómenn! Fiskur sem
skemmist í sjó verður ekki
bættur í landi. Það er lóðið.
— Við reynum að hafa hér
ferskan fisk i kössum. segir
Jón. Náum í hann nýjan á
morgnana og geymum hann hér
í ís til þess að halda honum
ferskum.
Myndinni á skerminum er
lokið. Strákarnir hafa fylgzt
með henni af athvgli, eins og
raunar fleiru, sem þarna er að
siá. — Það fer brátt að þrengi-
ast i salnum, úr þvf líður á
daginn. Eflaust eiga margir eftir
að leggja leið sína þangað
næstu vikurnar.
Benedikt Guðmundsson 1 stúku Landhelgisgæzlunnar. Bak við hann sér í Jíkan af nýjasta
farkosti gæzlunnar, sem væntanlegur er innan tíðar.
Strákahópurinn horfði spenntur á myndina um meðferðina á fiskinum, sem sýnd var á skermi
í stúku Ferskfiskeftirliísins.
Strákarnir virða fyrir sér gamalt far - þeir hafa greinilega
áhuga á mörgu, sem þarna er að sjá.
| augardalshöllin er þessa dag-
1 ana ævintýrahöll fyrir
unga sem gamla. Þar er brugð-
ið upp margbreytilegum mynd-
um úr daglegu striti við sjóinn
og á sjó. Sýningin speglar sögu
islenzks s.iávarútvegs gamla og
nýja. Öll helztu fyrirtæki sem
með sjávarútveg sýsla eiga þar
sina bása, sem sýna framleiðslu
þeirra og starf.
Útlendingar með áhuga
í stúku Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna mætir manni bros
ungrar stúlku, sem ætti að vera
ágæt auglýsing fyrir fiskinn
okkar. Hún heitir Sigríður Guð-
mundsdóttir, nemandi í Kenn-
araskólanum.
— Hingað koma margir og
spyria. ekki sizt útlendingar,
segir hún, við erum hér með
bæklinga, sem við afhendum
gestunum — upplýsingar um
starfsemina. Hér eru sýnd sýn-
íshorn af útflutningsvörunum
Hér er kort yfir frystihúsin og
fleira sem gefur hugmynd um
starf Sölumiðstöðvarinnar, segir
þessi unga námsmær og brosir.
— Það er alltaf töluverð um-
ferð hérna bætir hún við —
krakkar, sem safna bæklingum
s
*
OGREIDDIfí
REIKNINGA R
l
LÁTIÐ OKXUR INNHEIMTA...
Þaó sparar yður t'ima og óþægindi
INNHEIMT USKRIFST OFAN
Tjarnargötu 10 — 111 hæd - Vonarstrætismegin — S'tmi 13175 (3linur)