Vísir - 01.06.1968, Side 1
vism
S8. árg. — Laugárdagur 1. júnf 1968. — 119. tbl.
Bændur á Snæfellsnesi bera
minnst úr býtum
Samkvæmt nýlega birtum
skýrslum í Hagtíðindum, eru
bændur landsins yfirieitt meðal
tekjulægstu þjóðfélagsþegna, ef
Dr. Gunnar Thoroddsen hefur kosningabaráttuna opinberlega. Á fundi með blaðamönnum í gær.
VonbrígSi ef enginn hiti kemst
kosningarnar
— segir dr. Gunnar Thoroddsen, sem nú
hefur hafib opinbera kosningabaráttu
Hann heldur i kynningarferh um landib
eftir helgina
Skáksnaistararnir
komnir
AUir hinir sjö erlendu skák-
meistarar, sem tefla munu hér á
Fiskemótinu eru nú komnir til
landsins. Á mótlnu, sem er eitt
stærsta, sem haldið hefur verið
hér á landi, munu 16 skákmeist-
arar, stórmeistarar og alþjóðlegir
meistarar leiða saman hesta sína.
Það hefst á annan í hvítasunnu í
Tjamarbúð.
Erlendu skákmennirnir eru:
Addison og Byme frá Bandarikjun-
um, Vasjúkoff og Taimanoff, Sovét-
ríkjunum, Uhlman, A,-Þýzkalandi,
Szabo, Ungverjalandi, og Ostojic,
Júgóslavíu.
Mestu athyglina í fyrstu umferö j
mótsins mun sennilega beinast að ]
skák S abos og Vasjúkoffs en
einnig er beðið með mikilli eftir-
væntingu eftir því, hvernig Friðrik
Ólafsson mun spjara sig á mótinu,
en hann lauk lagaprófi f gær. Það
má því búast við því, að hann sé
þreyttur eftir prófestur og próf.
• Það yrði mikil vonbrigfti,
ef enginn hiti kæmist í kosn-
ingabaráttuna. Hins vegar
vona ég, að ekki sjóði upp úr,
sagði annar frambjóftendanna
til forsetakjörs, dr. Gunnar
Thoroddsen, sendiherra, á
fyrsta blaðamannafundinum,
sem haldinn hefur verift
vegna forsetakosninganna 30.
júní n.k. Með þessum blaða-
mannafundi hefur dr. Gunnar
Thoroddsen kosningabarátt-
una opinberlega, en nýlega
rann framboðsfrestur út fyrir
forsetakosningarnar.
Tilefni fundarins er það,
sagði forsetaefnið, að ég tel eðii
iegt oe æskilegt að almenningur
fái upplýsingar um það helzta
i kosningaundirbúningnum.
Á þriðjudaginn held ég i
kynningar- og fundarferð um
landið, eri stuðningsmenn mín-
ir munu efna til almennra
funda. Fyrstu fundirnir verða
haldnir á Snæfellsnesi í mínu
gamla kjördæmi, en ég var þing
maöur Snæfellsnesinga i mörg
ár.
Með þessu er að hefjast opin-
ber þáttur kosningabaráttunnar.
Fundirnir verða þannig skipu-
lagðir, að fyrst verða flutt nokk
ur stutt ávörp, síöan flyt ég
stutt ávarp, en að Iokum verður
fyrirspurnum svarað ef þær
verða einhverjar. Þaö er þó
ekki ætlast til þess að fundirn-
ir verði í kappræðustíl, enda
eru forsetakosningar hérlendis
gjörólíkar aiþingis og bæjar-
og sveitastjórnarkosningum.
Dr, Gunnar Thoroddsen
skýrði frá því á fundinum, að
útvarpsráð hefði ákveðið að
bjóða þeim frambjóðendunum
að koma fram í viðtalsþáttum í
hljóðvarpi og sjónvarpi 19. júní,
þar sem fréttamenn munu
leggja fyrir þá spurningar. Á
sama tíma var samþykkt að
bjóða frambjóðendunum að
flytja ávörp í hljóðvarpi og sjón
varpi, en ávarp hvors um sig
veröur flutt samtímis í bóðum
deildum útvarpsins. í þriðja
lagi var samþykkt að flytja i
sjónvarpi og útvarpi sérstaka
30 — 40 minútna þætti til að
kynna frambjóðendur, sem bezt
fyrir þjóðinni. Óskað er eftir þvi
að stuðningsmenn frambjóðend
anna undirbúi og flytji þessa
þætti. — Ég hef fyrir mitt levti
samþykkt að taka þátt í þessu,
sagði forsetaefnið.
Staðirnir, þar sem stuðnings-
menn dr. Gunnars Thoroddsens,
munu efna til almennra funda.
eru sem hér segir:
Stykkishólmur 4. júní, Hellis-
sandur 5. júnf, Vestmannaeyjar
6. júní, ísafjörður 7. júní,
Blönduós, Siglufjörður, 9. júní,
Húsavtk 9. júní, Akureyri 10.
júni, Egilsstaðir 11. júnf, Höfn
í Hornafirði 12. júní og Akra-
nesi 13. júní.
Ennfremur verða fundir haldn
ir á Suðurlandi, Reykjaneskjör-
dæmi og Reykiavik. Dr. Gunnar
Thoroddsen og kona hans munu
mæta á öllum fundunum.
Forsetaefnið var að því spurt
á blaðamannafundinum, hvort
stuðningsmenn hefðu leitað að
fvrirmyndum utthvað út fyrir
landssteinanna vegna kosninga
10. síða.
marka má þær tölur allar. Af
einstökum sýslum landsins, er
Kjósarsýsla efst með 214 þús.
kr. meðaltekjur á bónda. Bænd-
ur í Eyjafjarðar- og Árnessýslum
hafa haft um 208 þús. að meðal
tali. Hins vegar hafa bændur í
Austur- og Vestur-Skaftafells-
sýslum aðeins uppskorið um 131
þúsund hver að meðaltali, en
SnæfeMsnessýsla er enn lægri
eða aðeins um 129 þúsund.
Umferöin m hvítasunnuna:
Sízf minni hætta
en á H-dag
Tólf bifreiðir ríkislögreglunnar
hafa verið við eftirlits- og lög-
gæzlustörf úti á þjóðvegum síðan
á H-dag, en nú um hvítasunnuhel'g-
ina verður þjóðvegslöggæzlan stór-
aukin enn — einkum á Suövestur-
landi og í nágrenni Akureyrar, þar
sem búast má við mestri umferð.
Fólkið flykkist þúsundum saman
út á þjóðvegina um hvítasunnuna,
sem er orðin önnur mesta ferða-
helgi íslendinga, en flest þetta fólk
er byrjendur í hægri-umferð á
þjóðvegum, þótt það hafi öðlazt
einhverja reynslu í hægri akstri í
þéttbýli. Ríður nú á því, að öku-
menn hafi góðan andvara á sér i
þjóðvegaakstrinum, engu minni en
fyrstu dagana í þéttbýlinu.
Mest ríður á því, að ökumenn
haldi hraðanum innan löglegra tak-
marka eins og sést bezt á þvi, að
þau óhöpp, sem orðið hafa í um-
ferðinni fram til þessa hafa flest
verið smávægileg vegna þess hve
hraðinn hefur verið lítill á bif-
reiðunum, sem fyrír óhóppunum
urðu.
„Vísir í
vikulokin
íylgir hlaöinu i dag
til askritenda
Stolið af tveim Frökkum, er
hírðust í bát í slippnum
Tveir franskir „ferðamenn", þeirra var, svo vitað sé ennþá,
sem að undanförnu hafa hafzt en þeir sem kvnnu aö hafa séð
við í báti i slippnum í Reykja- til þjófanna, eru beðnir að gera
vík, kærðu til lögreglunnar f gær lögreglunni viðvart.
þjófnaö á nokkrum munum Þessir tveir frönsku piltar
þeirra, sem einhver hafði stolið kynna okkur nýja tegund ferða-
úr farangri þeirra. manna til viðbótar við tjaldbúa
og hakpokaferðamenn. Þessir
Söknuðu þeir úr farangrinum virðast hafast við undir bátum
ralmagnsrakvélar og smántuna og í bátum, eða bara þar sem
og einnig tveggja eða þriggja þeir finna sér skjól gegn veðri
100-franka seðla — mynt, sem og vindi, en gistingu kauna þeir
fæstir ágirnast þessa dagana. sér helzt ekki.
Þjófarnir höfðu komið að far- Kom í ljós, að þessir tveir
angrinum að Frökkunum fjarver höfðu ekkert leyfi fengið til
andi og hafði enginn orðið |)t>ss ;tð halda til í slippntim.
Allt í óvissu um ólympíu-
mótið í bridge í Frakklandi
Verkf'óllin og ólgan þar kemur 'óllu úr skorbum
■ Allt er í óvissu um ólíutppíu-
mótið í bridge, sem ráögert var.
að haldið yrði í Deanville í
Frakklandi og hæfist 5. júní n.k
Vegna ólgunnar i Frakklandi,
verkfallsins og óvissunnar, hafa
menn áhyggjur af þvi, aö ekk-
ert geti orðiö úr mótinu.
Islendingar höfðu valið sveit
manna til þess að spila á mót-
inu og aitlaði hún utan 4. júní
n.k . eti fararstjóri og leikmenn
liafa aö imdanfömu gert ítrekað-
ar tilraunir til þess að ná sam-
bandi við forráðanienn mótsins
i Frakklandi. en engar öruggar
uþplýsingar fengist.
Barst þeim skeyti síðast i gær
frá fyrirliða bandarísku sveilar-
innar, sem staddur er á Ítalíii.
O;; vnr á því aft skilja, að áæt'l
unum hefði verið breytt á sið-
ustu stundu og ólympíumótið
yrði haldið í Sviss, en það hefur
ekki enn fengizt staðfest.
Skeyta- og talsamband innan
Frakkiands hefur verið í ólestri
vegna verkfallanna og forráða-
möinnum bridgefélaganna hér
hefur því ekki tekizt að ná tali
af þeim mönnum, sem annast
eiga mótið.
Milli landa á
„puttanum" lil að
geta hringt heim
16 íslenzk stúlka, Sigriður Sig-
urðardóttir, fór fyrir skömmu
,,á puttanum“ frá Frakklandi tii
Ítalíu, þar sem hún gat tilkynnt
heim til ístands ættingium s(n-
um að hún væri við heztu heilsu
og iiði vel. Sigríður var orðin
fjárvana oe ekki hafði tekizt áð
koma peningum til hennar, |
vegna verkfalianna og óeirðanna ö
í Frakklandi að undanförnu. —
Sigríður. sem möreum er kunn
fyrir stjórn þáttarins „Óskalög
sjúklinga". er stúdent að mennt j'
og leggur nú stund á frönsku- t
nám í Nizza. Sigriður sagði, að j:
ástandið væri miöp slæmt og ■
óvíst væri hvort próf i æðri
skólum landsins færu fram að
þessu sinni — Vió fáum að vera
á stúdentaearðinum ennþá. en
mat fáum við aðeins öðru
hverju, sagði Sigríður að lokum.
t;