Vísir - 05.06.1968, Blaðsíða 6

Vísir - 05.06.1968, Blaðsíða 6
6 V1SIR . Miðvikudagur 5. júní 1968. TÓli-ABÍÓ j—Listir-Bækur-Menningarmál- 3 lslenzkur textl. — („Duel At Diablo") Víöfræg og snilldar vei gerð, ný, amerísk mynd 1 litum, gerö af hinum heimsfræga leik stjóra „Ralph Nelson." Sýnd kl. 5 og 9. Bönnuð börnum innan 16 ára. Allra síðasta sinn. NYJA BIO Hjónaband i hættu (Do Not Disturb) ÍSLENZKUR TEXTI Sprellfjörug og meinfyndin amerísk CinemaScope litmynd. Doris Day Rod Tailor. Sýnd«,kl. 5, 7 og 9. AUSTURBÆJARBÍÓ Hugdjarfi riddarinn Mjög spennandi ný frönsk skilmingamynd í litum og Cinemascope. Aðalhlutverk: Gerrard Bnrry. Sýnd kl. 5 og 9. íslenzkur texti. WÓÐLEIKHÖSIÐ mm m Sýning fimmtudag kl. 20. Aðeins tvær sýningar eftir. Nemendasýning Listdansskólans verður endurtekin föstud. kl. 20. Aögöngumiðasalan opin frá kl. 13.15 til 20. — Sími 1-1200. Hjörleifur Sigurðsson skrifar myndlistargagnrýni: Sýningar á vori 1968 JÓHANNES GEIR sýnir ekki á hverjum degi. Nokkur mál- verka hans hafa þó birzt á fé- lagssýningum síðustu haustin og ótvírætt gefið f skyn, að málar- inn hygði á endumýjun. f sum- um voru litimir fjölbreytilegri. en áður og reyndar lfka bæði hreinni og léttstígari. Rauðir og gulir logar teygöu feimnislega ár sér og hreyfðu sig gætilega eins og nývaknaðar manneskjur. Langbezta málverk- ið á sýningunni f Unuhúsi er einmitt af þessari gerð. Slátrun heitir það. — En hverju er Jóhannes Geir að slátra? Fyrst og fremst svart- bláa hlaupinu, sem leggst eins og klumpur ofan á grunn margra verka og spillir sköpulagi þeirra: aflagar teikninguna, óhreinkar litina. En það er ósanngjamt að staðnæmast of lengi við atriði, Sinfóniuhljómsveit 'lslands: 18. tónleikar Stjómandi: Bohdan Wodiczko. Einleikari: John Ogdon. John Ogdon, brezkur píanó- leikari og tónskáld, kom fram f fyrsta sinn hér á landi á lokatónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands 30. maí s.l. John Ogdon á þegar að baki sér mjög glæsilegan feril. Fyrst vakti hann sérstaka athygli á Englandi með þvf að hreppa Franz Liszt-verðlaunin í London og alþjóðlega athygli með þvf að vinna fyrstu verð- laun (ásamt Askenazi) í Tsjaf- kovský-keppninni. Auk tónleika- halds víða um heim er ástæöa að benda á, aö Ogdon er nokkuð sérstæður meðal píanóleikara vegna þess hve vítt verkefnasvið hann hefur. Auk hinna klassfsku pfanóbókmennta, sem hann leik- ur spjaldanna á milli, hefur hann komizt í mikið álit f túlk- un nútímaverka fyrir pfanó. Nýlega lék hann t.d. verk ungra, brezkra höfunda inn á hljómplötu, þá hefur hann leikið eitt lengsta nútímaverk fyrir pfanó, sem tekur um 2 klst. í flutningi, „Vingt regards sur l’enfant Jésus“ eftir Messiaen, sem þykir mikið afrek. Þá hefur hann kynnt talsvert af óþekkt- um verkum eldri höfunda, sér- staklega Liszt og Busoni. Hann hefur nýlokið að leika pfanó- konsert, sem talað er um sem „tröllaukið verk“, eftir þann síðamefnda og fengið mikið lof fyrir. Að lokum má geta þess, að í síðasta mánuði frum- flutti Ogdon fyrsta píanókon- sert sinn, en af blöðum aö dæma virtist honum vera vel tekiö. Þá er komið að tónleik- unum f Háskólabíói, en þar lék hann fyrsta píanókonsert Tsjaí- kovskýs. Þetta verk er nú svo margþvælt, að æskilegra hefði verið að heyra þennan ágæta tónlistarmann sýna okkur eitt- hvað annað úr pokahomi sínu. Að vfsu er þetta mjög vinsælt verk og langt síðan það hefur vérið flutt hér, svo það er e.t.v. afsökunarvert. Meðferð Ogdons á þessu verki var mjög frá- brugðin því venjulega og sýnir, að hér er tónlistarmaður meö frumlega hugsun. Þrátt fyrir mjög góða tæknikunnáttu, t. d. ótrúlega áttundatækni, lætur hann hana aldrei ná yfirhönd- inni, hún þjónar alltaf þeirri túlkun, sem hann vill fá fram. Sú túlkun er óvenju frjálsleg, rétt eins og hann „leiki af fingr- um fram“ og á þennan hátt varð þessi margþvældi konsert eins og nýr f höndum Ogdons og er þá mikið sagt, því það er ekki ósjaldan að þessi konsert hefur verið „endurskapaður" í túlkun einhvers snillingsins. Bohdan Wodiczko, pólski hljómsveitarstjórinn, sem verið hefur aöalstjómandi hljómsveit- arinnar þrjú s.l. ár, er nú á för- um. Það verður varla ofsagt, hvílíkt verk hann á hér að baki. Enginn vafi er á, að mörgu fólki hér á landi er ókunnugt um, hve mikilsmetinn tónlistarmann við höfum haft hér, þvf að Iftið hefur verið á slíkt minnzt í blöðum og er þaö undarlegt að vissu leyti. Ýmsir hafa þó feng- ið nasasjón af þvf utan úr heimi, að hér hafi verið aö starfi maður, sem vegna kunn- áttu, reynslu og skarpskyggni, — sé slíkur, að vel megi leita, til að finna annan slíkan. Þetta er ekki ofmælt, þvf að hér nægir t.d. að benda á norrænu tón- Iistarhátíðina s.l. haust. Það eru ekki margir, sem mundu stjórna svo mörgum erfiðum og nýstár- legum verkum f sömu viku með þeim ágætum sem raun varð á. Þó hefur aðalverk hans hér verið aö „ala upp hljómsveitina", sem sjá mátti stundum af verkefna- vali og svo af stöðugum fram- förum. Ekki er ástæða til að fjölyrða það meir, en nægir að benda á þjálfun og getu hljójn- sveitarinnar nú, sem er hinn Iifandi árangur starfs hans hér. Hljómsveitin mun lengi búa aö þessum mikla skerf Wodiczkos og er vonandi, að hann eigi leið hér um áður en langt. lfður. Lokaverkefni hans, Schehera- zade“ eftir snilling hljómsveit- arinnar Rimsky-Korsakoff, var ágætt dæmi um þann áfanga, sem náðst hefur og vil ég sem einn af hlustendum tónleika Wodiczkos sfðustu tvö ár þakka honum fyrir margar góð- ar stundir. H. H. OPERAN APÓTEKARINN eftir Joseph Haydn Einnig ntriðl úr Ráðskonuríki, Fidelio og La Traviata. Stjórnandi Ragnar Björnsson Leikstj. Eyvindur Erlendsson Sýningar í Tjarnarbæ' Fimmtudag 6. júnf, kl. 20.30. Sunnudag 9. júní, kl. 20.30. Fimmtud. 13. júní, kl. 20.30. Aðeins þessar sýningar. Aðgöngumiðasala f Tjamarbæ frá kl. 5—7. Sfmi 15171. HÁSKÓLABÍÓ Sim' 22140 STJÖRNIIBÍÓ LAUGARÁSBÍÓ tilkynnir: Vegna óviðráðan- legra orsaka veröur sýningum á Sound of Music frestað 1 nokkra daga. Fiskimaðurinn frá Galileu Heimsfræg amerísk stórmynd tekin og sýnd í litum og 70 mm. — Aðalhlutverk: Howard Keel Susan Kohner. Endursýnd kl. 5 og 8.30. Fórnarlamb safnarans ÍSLENZKUR TEXTI Ný verölaunakvikmynd. Sýnd kl. og 9. Bönnuð börnum. Blindfold Spennandi og skemmtileg amer fsk stórmynd ‘ litum og Cin- ema Scope, með hinum frægu leikurum Rock Hudson Claudia Cardinale Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð bömum innan 12 ára. íslenzkur texti. KÓPAVOGSBÍÓ Hvað er að frétta kisulóra? („What's new pussycat?") Heimsfræg og sprenghlægileg ensk-amerísk gamanmynd i litum. Peter Sellers Peter OToole Capucine Ursula Andress Endursýnd kl. 5.15 og 9. Bönnuð innan 12 ára. GAMLA BÍÓ BÆIARBÍÓ Syngjandi nunnan (The Singing Nun) Bandarisk söngvamynd S litum og Panavision með fsl. texta Debbie Reinolds. Sýnd 2. hvítasunnudag. kl 5, 7 og 9. Greiðvikinn elskhugi Bandarfsk gamanmynd f litum með Rock Hudson Leslie Carol Charles Boyer Sýnd kl. 9. sem undirritaður telur neik^æð. Ýmislegt er harla gott. Til dæm is finnst mér Jóhanoesi Geir verð- furðu mikið úr litlu frá- sagnarefni — þröngu sögusviði. Enginn sýnir meiri þolinmseði en hann. Sú tíð kann að koma fyrr en við höldum er höftin losna í brjósti málarans og orkan nýtist miklu betur. Fyrst nú hef ég sannfærzt um hæfileika Jóhann- esar Geirs og djúpa alvöru hans og sakna þess einlæglega, að árangurinn er lakari f mörgum verkum en hann ætti að vera .....og gæti orðið. Kristfn og Jóhann Eyfells héldu sýningu f Listamannaskál- anum sfðustu daga aprílmánað- ar. Lfklega á hinn hrörlegi salur nokkum þátt f því, að höfundi þessara orða fannst heildarsvipurinn slakari en á fyrri sýningum hjónanna. I ann- an stað voru myndirnar hver annarri líkar, svo nauðalfkar, að þær gátu tæplega myndað keðju, sem stokkaðist upp í sífellu. En þetta er vitaskuld aukaatriði. Þegar ég festi orðin á blaðið hefur myndhringurinn f skálan- um rofnað fyrir löngu. Verkin eru aftur orðin að einstaklingum hér og hvar um bæinn. Og þann- ig skoðum við þau einmitt hvers- dagslega: sem einstaklinga. Lág- myndir Jóhanns — ég ætla að leyfa mér að kalla þær svo — eru athyglisverðar um margt. Rétt er að segja strax, að um leið og ég gekk í salinn fannst mér þær eiga að stækka til mikilla muna — þenja sig út um veggfleti meiriháttar bygg- inga. Sú tilfinning hefur ekki vikið frá mér sfðan. Þó eru form brotin, efnisbútamir hvorki stór- ir né fyrirferðarmiklir. Þvert á móti. Hið smáa og ljúfa auð- kennir verkin, sem gjörð eru af málmi. Skildir Jóhanns Eyfells, hrúgumyndir hans og lágmyndir eru að ýmsu leyti nýjung í list okkar. Fyrir því orka þær ein- att á hugann eins og planta, sem er að vakna til lífsins snemma vors. Sjálfsagt eiga þær eftir að dafna, já breiða úr sér á næstu árum. Um verk Kristfn- ar skal ég vera fáorður — eink- um sakir þess, að þau eru ekki annað en þrjú eða fjögur brot, sem erfitt er að fella saman í heild. Kristfn er hvergi nærri jafnoki Jóhanns sem myndhöggv ari. Þó eru það hnútalengjumar, sem ég man bezt eftir að liðn- um fáeinmn vikum. Styrkur þeirra liggur fólginn í vitrænu 13. síða NAFN ARBÍÓ Likið i skemmtigarðinum Afar spennand' og viðburðarfk ný þýzk litkvikmynd með Georfie Nader fslenzkur texti. Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl 5 7 og 9. Leynimelur 13 Sýning í kvöld kl. 20.30. Fáar sýningar eftir. Heddo Gablet Sýning fimmtudag kl. 20.30. Fáar sýningar eftir. Aðgöngumiðasaian Iðnó er ipin frá kl 14 Söni 13191

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.