Vísir


Vísir - 21.06.1968, Qupperneq 10

Vísir - 21.06.1968, Qupperneq 10
V í SIR. Föstudagur 2L júní 1968 FöstiHhigsgreftn — -V 9. síöu. svo farið, að það gripi í taum- ana. Stendur sú hótun enn og má vera að hún sé þaö eina sem nú hindrar allsherjargyð- ingaofsóknir í landinu. "JVú skulum við víkja aö allt- annarri tegund kommún- isma, sem einnig hefur komið í ljós sem andsvar við upp- reisnar og frelsishug stúdenta. Atburðirnir í Tékkóslóvakíu eru nokkru þekktari hér á landi heldur en það sem var að ger- ast í Póllandi. Um það skrifaði ég hér grein á sínum tíma, svo ég þarf ekki að rekja þaö i löngu máli. Eftir að uppvist varð um það, að Novotny hinn gamli Stalinisti og einræðis- seggur ætlaði að beita herliði til að bæla niður frjálsræðiskröf urnar í kommúnistaflokki lands- ins, gerðist það, að stúdentar við háskólann í Prag risu upp eins og koliegar þeirra í öðr- um löndum. En sá varð munur- inn þar, að stúdentamir og frjálsræðisöflin höfðu þar sigur og Novotny var steypt frá völd- um sem yfirlýstum margföld- um morðingja. Sá maður í Tékkóslóvakíu, sem mest hefur borið á í þess- um atburöum er ungur maður að nafni Dubcek. Hann fram- kvæmdi það verk að steypa hin- um illræmda Novotny og tók síðan við forustu kommúnista- flokksins. En Dubcek er þó frem um millileiðarmaður, er vill fara varlega og forðast sérstaklega of geysta uppreisn gegn Rúss- um. Hér verður því að geta um annan mann sem hefur orðið aöalhreyfiaflið og foringi hins frjálslynda arms tékkneska kommúnistaflokksins. Gá heitir Smirkovsky og kom upphaflega fram í barátt- unni gegn nasistum í heims- styrjöldinni. Þá var hann for- ingi neðanjarðarhreyfingarinn- ar í Prag sem gerði uppreisn og náði borginni í sínar hendur á síðustu dögum stríðsins. Þá hagaði svo til, að bandarískar skriðdrekasveitir Pattons voru á leiftursókn inn f Tékkóslóv- akíu að vestan og var í lófa lagið að sækja fram til Prag, en þá var það Smirkovsky sem komst í aðstöðu til aö banna það. Sem sanntrúaður kommún- isti vildi hann að Rússar fengju heiðurinn af því að frelsa Tékkóslóvakíu. Síðan var hann f foringja- liði kommúnista, tók þátt f valdaráninu 1947 og skipaði ráð- herrasess. En hann var í ann- arri fylkingu en Novotny og varð því fyrir því óláni eins og margir kommúnistar að lenda f ónáð. Var hann dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir þjóðar- svik í þeim miklu hreinsunum, þegar kommúnistaforinginn Slansky var tekinn af lífi. Hann var áfram kommúnisti, en fór mjög að hugsa sitt ráð. Ávöxturinn af þessari fang- elsisdvöl hefur crðið það sem Smirkovsky nú berst fyrir af miklum móð og kallar „lýðræð-, islegur kommúnismi". Hann J krefst þess að raunverulegu | frjálsu lýðræði verði komið á í landinu, einokun kommúnista- flokksins verði afnumin og öör um flokkum heimilað að bjóða fram til þings. Þá skuli kosning ar vera frjálsar og leynilegar. Á standið f Tékkóslóvakíu er þannig, að sjálfsagt er tal- ið að þessi málstaður Smirk- ovskys ætti sigurinn vísan, ef ekki kæmu til utanaðkomandi áhrif. Þar hafa Rússar skorizt í leikinn eins og í Pólíandi en þó með öðrum hætti. Sá atburð- ur hefur sem sé gerzt að Rússar hafa beitt ósvffinni hervalds- ógnun til að bæla niöur hinn „lýðræðislega kommúnisma.“ Rússar höfðu ekkert hemáms lið í Tékkóslóvakíu, eins og þeir höfðu í Póllandi. En síð- ustu vikur hafa verið að gerast einkennilegir atburðir á þessu svæði, þó hljótt hafi verið um þá. Rússar hafa gert hernaðar lega innrás í Tékkóslóvakíu og er þaö nú staðreynd, að iandið er hernumið. Það er ekki nákvæm- lega vitað, hve fjölmennt her- námsliðið er, en þess hefur ver- ið getið til, að það muni vera um 40 þúsund manns með öll- um hergögnum skriödrekum, fallbyssum og eldflaugum. Þesar aðgerðir hafa farið fram í kyrrþey og verið kallaðar „heræfingar" Varsjárbandalags- ins. En tékkneskum almenningi er það ljóst, að þetta er her- nám og valdbeiting og þeir eru ekki Iausir við það næsta dag. Valdamenn kommúnista hafa ekki þorað annað en veita sam- þykki sitt, því ef þeir gerðu það ekki, myndi harmleikurinn frá Ungverjalandi aðeins endur- taka sig. Að vísu hafa Rússar lofað því að láta þetta nýja hernáms- lið sitt ekki skipta sér af tékkn eskum innanríkismálum. En jafnvel það er yfirskin, því að tilgangurinn er auövitað eng- inn annar en innanlandsaf- skipti. Svo mikilvægt telja Rúss ar það, að „lýðræðislegur komm únismi“ fái ekki risið upp. En Tékkar vita hvað klukkan slær, meðan rússneskt hernámslið dvelur í landinu, er þeim hollara að fara varlega. Þorsteinn Thorarensen. sé sannkallaður ferðamannabær þessa dagana. Á myndinni sem er tekin fyr- ir fáum dögum eru tvær blóma- rósir við brjóstmynd frú Mar- grete Schiöth í Skrúðgarðinum á Akureyri, en hún gerði öðrum fremur þann garð frægan. Blómarósirnar tvær voru meðal allra fyrstu gesta sem gistu tjaldsvæði Akureyringa á þessu vori, en fengu samt heita og lygna sólskinsdaga eins og á suðlægari breiddargráðum væri. Auðvitað var ekki látiö hjá líða aö heimsækja hinn róm- aða skrúðgarð Akureyringa þótt hann enn hafi ekki skartað sínu fagra sumarskrúði. Vonandi á Akureyri eftir að verða meira en hálfdrættingur á við Mallorca í móttöku ís- lenzkra feröamanna á þessu sumri af mörgum ástæðum. Konur — SÍS — -> 16. síðu. BORGIN -> 16. síðu. Roy — m—> 7. söíu. það réttarhald, og hann væri ekki opinber málsaðili í augum brezkra dómstóla. Hann vildi ekki skýra frá því, hver mundi greiða laun hans, eða hversu há þau væru. Þegar athygli hans var vakin á því, að Ray hefði ekki haft mikið fé í fórum sínum þegar hann var handtekinn, svaraöi Hanes því. að hann treysti því að hann fengi laun sín greidd. Hanes hefur áður varið þrjá meðlimi Ku Klux Klan-hreyfing- arinnar, sem dæmdir voru til langrar fangelsisvistar f Mont- gomery í Alabama fyrir morð á hvítri konu, sem baröist fyrir mannréttindum. Akureyri — 1. Síðu. eftir föngum, og skipulagningin við talninguna yrði nú með allt öðrum hætti en var við talningu atkvæða í alþingiskosningunum í fyrra. VlSIR ræddi viö Pétur Guð- finnsfcn hjá sjónvaipinu í morg- un. Sagði Pétur, aö sjónvarpið hefði ákveðið, að nafa einhverja dagskrá á mánudag eftir kosning- ar. Mætti ger< ráð fyrir, aö dag- skráin hæfist kl. 17.00 um daginn. Þó sagði Pétur, að ef talning at- kvæða hæfist strax um nóttina eftir að kjörstööum hefur verið lokað, yrði ákvörðun sjónvarpsins tekin til endurskoðunar í samræmi við það. veitingar, en sjaldnast væri slíkt tekið til greina. Taldi hún aö konur sætu mjög á hakanum er embætti væru veitt, t.d. eru mjög fáar ís- lenzkar konur t.d. skólastjórar, þó að konur í kennarastétt séu mjög margar. Flugvirkjar — l sfðu kvæmdastjóri Vinnuveitendasam- bandsins sagði í stuttu viðtali við Vísi í morgun, að ekki væri unnt að skýra frá að svo komnu máli, hvað hinir nýju samningar hefðu inni að halda. Sagði Björgvin, að fundur samninganefndarinnar og fulltrúa Vinnuveitendasambandsins hefði hafizt kl. 16.00 í gær, og eins og fyrr segir heföi samkomulag verið undirritað kl. 3 f nótt. Félagsfundur um samningana verður í Flugvirkjafélagi íslands kl. 17.00 í dag, og að því er Björg- vin sagði, verður einnig fundur f framkvæmdanefnd Vinnuveitenda- sambandsins f dag og þar fjallað um samkomulagið og það boriö undir atkvæði. Landanír — -> 1. sfðu Kosninganóft «— %--v 16 sfðu heföi komiö pöntun frá London fyrir 10 stóra hópa, sem ætla til Akureyrar í sumar. Mikið er líka af erlendum ferðamönnum í bænum, sem ferðast á eigin vegum, og má segja að Akureyri inn er ísaður um borð í bátnum á miðunum og reyndist hann misjafn- lega góður til vinnslu. Fleiri bátar munu nú vera að leggja upp í veiðiferðir með línu á Grænlandsmið. Þorsteinn RE mun vera að búast á veiðar þangaö, en hann er nýkominn frá Þýzkalandi, þar sem hann landaði síld úr Norðursjó. Þórkatla Grindavík landar í dag saltfiski og lúðu af Græn- landsmiöum 40—50 tonnum. í vikunni lönduðu þessir tog- arar í Reykjavík: Ingólfur Am- arson 273 tonnum, Jón Þorláks- son 296 tonnum, Narfi 350 tonn- um og Sigurður 150 tonnum af karfa, en hann hafði losað nokk- uð af afla sínum úr seinustu veiðiferð í Vestmannaeyjum. Virðist afli vera góður hjá tog- urunum. Mestur hluti hans er karfi. Trollbátar hafa fengið reytings afla. Til dæmis kom Fróði inn til Reykjavíkur nýverið með 20 tonn, sem hann fékk á einum sólarhring. Fróði er aðeins 35 lesta bátur. Suðurnesjabátar hafa einnig rekið í sæmilegan afla í fiski- troll, en humarbátar hafa hins vegar lítið aflað. verið dregnar saman eða lagðar niður. Starfsfólki var fækkað um 145 á árinu. Erlendur Einarsson benti á að þrátt fyrir skakkaföllin, sem íslenzkt atvinnulíf hefði orðið fyrir, væri samvinnuhreyfingin fjárhags- og félagslega öflug, en vegna ástandsins yrði að breyta um stefnu. Sýna yrði meiri að- gæzlu í fjármálum en áður, lánsverzlun væri orðin svo á- hættusöm, að samvinnufélögin yrðu nú að stórminnka og í sum um tilvikum stöðva með öllu lánsverzlun. Taka yrði upp sparnað á öllum sviðum. bJOHUSTA Reiðhjól. Hef opnað reiðhjóla verkstæði t Efstasundi 72 Gunnar Palmersson, Slmi 37205. Tek að mér að slá bletti með góðri vél. Uppl. I síma 36417. Gluggaþvottur — HreinSerningar Gerum hreina stigaganga og stofn- anir, einnig gluggahreinsun. Uppl i síma 21812 og 20597. Geri við kaldavatnskrana og WC kassa. Vatnsveita Revkjavíkur. Húseigendur — garðeigendur! —1 Önnumst alls konar viðgerðir útií og inni, skiptum um þök, málumJ einnig. Girðum og steypum plön.i helluleggjum og lagfærum garða.j Sími 15928 eftir kl. 7 e.h. i Slæ garða með orfi. Sími 109231 eftir kl. 4. _ ( Sláum bletti í Vesturbænum. — Góð vél. Sanngjarnt verð. Óli og Gummi. Sími 14950. vmm. ökukennsla Lærið að aka bíl þar sem bflaúrvalið er mest. Volks wagen eða Taunus. þér getið valið hvort þér viljið karl eða kven-öku-, kennara Otvega öll gögn varðandi bílpróf Geir Þormar ökukennan I Símar 19896. 21772, 84182 og 19015 | Skilaboð um Gufunesradíó Slmi t 22384. ÖKIJKENNSLA. Guðmundur G Pétursson. slmi 34590 Ramblerbifreiö Ökukennsla. Vauxhal) Velox bif- reið Guöjón Jónsson, slmi 36659 Ökukennsla — æfingatimar Simi^ 81162. Bjarni Guðmundsson.___ Ökukennsla, kennt á Volkswagen^ æfingatímar. Sími 18531. Lærið akstur g meðferö bifreiða hjá löggiltum ökukennara, hæfnis- vottorð og ökuskóli. G V Sigurðs- son, ökukennari. Sími 11271. Ökukennsla. Taunus. Sími 84182. ” aátfiilil BELLA „Það er nú samt miklu verra fyrir mig en yöur að ég skuli hafa týnt miðanum — nú man ég ekki hvar ég ætlaði úr vagninum. niKVNNING „Litlabíó“ kvikmyndaklúbburinn. Háskóladagar mínir (Gorkí) eftir Danskoj (Rússn. 1938). Sýnd kl. 9. íslandsmynd frá 1938 o.fl. myndin Sýnd kl. 6. Dansk Kvindeklubs sommerud- flugt til Vestmannaöerne er plan lagt d. 25. 6., og vi mödes i luft- havnen kl. 8. I tilfælde af udsætt else pá grund af dárlig flyvevejr bedes man tirsdag morgen pr. telefon have 'orbindelse med Flugfélag Islands Bestyrelsen. Ökukennsla — Æfingatímar. —, Kenni á Taunus, tímar eftir sam-t komulagi, útvega öll gögn. Jóel. B Jakobsson. Símar 30841 og l 14534 Ökukennsla, æfingatímar. Hörð-t ur Ragnarsson, Imar 35481 og; 17601. — Volkswagenhifreið. Ökukennsla. Kenni á VW-bif-1 reið. Vardimar Lárusson. Uppl.) í síma 42123._______________ Ökukennsla. Kennt á VolkswagenJ Æfingatímar. Sími 18531. Bæjarfréttir. Ráðhús bæjarins er ekki til ennþá, en í gær skip aði bæjarstjórinn nefnd til þess að velja heppilegan stað fyrir það. I nefndína voru kosnir: borgar- stjóri, forseti og skrifarar borgar stjórnarinnar. 21.júní 1918. i/EORIÐ OAG Norðaustan gola, léttskýjað að mestu. Hiti 11—14 stig I dag, 6—9 í nótt WMET Minnsta ríki >' heimi er Vatíkan ið á Italíu, sem er aðeins um 44 hektarar aö flatarmáli.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.