Vísir - 21.06.1968, Blaðsíða 12

Vísir - 21.06.1968, Blaðsíða 12
V1SIR . Föstudagur 21. júní 1968 72 í ’LÆiEM. ANNE LORRAINE Þegar hún haföi lokið samtalinu gekk hún út að glugganum og horföi yfir garðinn. Hún var eirðar- laus. Jafnvel faöir hennar hafði ekki getað gefið henni þá sálarró, sem hún þráöi meir en nokkuð ann- að. Hvað hafði eiginlega komið fyr- ir í dag — annað en þessi óþægi- legu orðaskipti við Kenning lækni — sem hafði gert hana svona ó- ánægða og óvissa um allt það, sem henni hafði áður fundizt vera svo öruggt og óumbreytanlegt? Mary gekk að starfi sínu með al- vöru, hingað til hafði það verið það eina sem hún óskaði og þurfti. En nú hafði efinn fest rætur í henni og gróf undan öllum hennar áform- um og hugsjónum. Hún hafði helg- að líf sitt þessu, og henni fannst eðlilegt að afsala sér öllu því, sem gat: tafið fyrir henni að ná því marki, sem hún hafði sett sér. Hún hafði engan tíma haft til ástar- ævintýra og skemmtana. Alla æsku sína haföi hún verið önnum kafin við námiö, og fannst það vera fullt endurgjald fyrir gam- anið, sem hún fór á mis við. Hún og faðir hennar höfðu unnið saman. Hún hafði hrifizt af starfi hans og afráðið að feta í fótspor hans. Hann var starfandi sem læknir í smábæ uppi í sveit, og Mary hafði fund- izt hann vera öllum sjúklingum sinum eins og faðir. Þeir komu til hans meö vandamál sín og sjúk- dóma. Hún hafði þráö að verða lík honum, með þeim mismun, að hún vildi verða „móöir“ sjúklinga sinna. Hún haföi sagt honum frá þess- um óskum sínum þegar hún var bam, og hann hafði tekið hana á hné sér og strokið henni um hárið. — Ég efast um að þú vit- ir hvers þú ert að óska, hafði hann sagt. — Ég held að ég mundi deyja sæll, ef ég vissi að barnið mitt fetaöi í fótspor mín. Nei — fet- aðu ekki í fótspor mín, Mary, ég vil ekki að þú gerir þaö. Þú verður að komast lengra — komast miklu lengra en ég hef komizt! Ég ætl- aði mér að komast langt, en örlög- in voru mér erfið. Ég var væng- stýfður. Þú ert of lítil til að skilja það, en þú verður aö helga þig alla þessu stafi, ef þú tekur það fyrir á annað borð. Mary — viltu lofa mér því? Allt eða ekkert — lækn- islistin krefst þess af öllum, sem vilja ganga þá leiðina. Ég átti svo stór áform og hugsjónir. Hann hikaði um stund. Svo bætti hann við meö beiskju: — Það fór eins og ég hélt, Mary. Hefði ég veriö frjáls ... Hún hafði ekki skiliö bvaðibann átti við, en oröin höfðu fest sig í minni hennar. Það var móðir henn- ar sem hafði orðið þrándur í gðtu hans og hindrað að hann gæti gefiö sig allan að verkefninu sem honum var svo kært. Móðir hennar dó þeg ar Mary var fjórtán ára, en Mary hafi verið nógu þroskuö til þess ÝMÍSLEGT ÝAAISLEGf ESttll 30435 Tökum aö oKkur hvers konai múrbr;u og sprengivinnu l húsgrunnum og ræs um. Leigjum út loftpressui og víbra sleöa. Vélaleiga Steindórs Sighvats- sonai Álfabrekku við Suðurlands- braut. simi 10435 GÍSLl JÓNSSON Akurgerði 31 Slmi 35199 Fjölhæf jarövinnsluvél, annast lóöastandsetningar, gref hús- grunna, hoiræsi o.fl. TtKUR ALLS KONAR KLÆÐNlNGAR FLJÓT OG VÖNDUÐ VINNA IJRVAL AF ÁKLÆÐUM LAUGAVEG 62 - SlMI 10825 HEIMASlMI 83634 BOLSTR U N að hafa samúð með föður sfnum. Hún skildi að hjónabandið hafði orðið orsök þess að líf föður hennar náði ekki tilgangi sínum. Henni hafði þótt vænt urn móöur' sína. en hún hafði andúö á léttúðinni, sem haföi spillt svo mörgum tæki- færum fyrir föður hennar. — Þú verður aö halda áfram þar sem ég hætti, góða mín, sagði hann, þegar hún var orðin svo göm ul, aö hún vissi hvaö hún vildi. — Ef ég hefði átt son ... Mary haföi aldrei gleymt þessum oröum. Faðir hennar hafði ekki eignazt góða konu, og honum haföi ekki heldur orðið að þeirri ósk sinni að eignast son, sem hefði fetað í fótspor hans og lokið því, sem hon- um haföi ekki tekizt. En hann átti aðeins dóttur, sem honum þótti innilega vænt um. Það var þá, sem hún hafði strengt þess heit að faðir hennar skyldi einhvern tíma hafa ástæðu til að þakka guði fyrir þessa dóttur og hætta að harma þaö, aö hann hafði ekki eignazt son. Hún hafði sökkt sér niður í það sem hann lagði fyrir hana, og aldrei hefur nokkur kennari haft áhugasamari nemanda. Allt gekk vonum framar, og nú var hún hér — ein af yngstu læknunum á St. Pétursspítalanum og með bjarta framtíð í vændum. Hvers gat hún óskað frekar? Faöir hennar dáði hana og virti — hvað eftir annað hafði hann sagt henni, hve glaður hann væri yfir því hve vel henni vegnaði. Nú gæti hann dáið sæll... Loks fór hún að hátta, en hún svaf ekki vært. TRUFLANDI ATRIÐI. Mary vaknaði snemma morgun- inn eftir og fékk sér kalda steypu, i þeirri von að geta hrist af sér depruna. Síðan fór hún út í garð- inn&i gráum bómullarkjól og með breiðan hvítan kraga, sem setti á hariaeins konar nunnusvip. .Hún gekk hægt um garðinn og vonaði að morgunloftiö mundi hafa góð áhrif á sig. — Læknir að lækna sjálfan sig, muldraöi hún í hálfum hljóðum án þess aö vita að orö- in komu yfir varirnar. — Afsakið þér — voruð þér að tala við mig? Hún leit við og sá ungan mann með dökkt hár og dimm augu sitja á einum bekknum. Hann horföi á hana meö auðsærri aðdáun, og hún fann að hún roðnaði. — Afsakiö þér, sagöi hann og brosti eins og krakki. — Ég hef líklega gert yður hverft við. En ég fullvissa yöur um aö yður hefur ekki brugðið nærri eins mikið og mér. Mér, datt sem snöggvast í hug að'-þáma Væri kvekarastúíka aö koma á móti mér — beina leið inn í tilveruna mína! Ég hafði ekki hugmynd um að svona fallegar hjúkrunarkonur væru héma í sjúkrahúsinu — annars hefði ég komið hingað miklu oftar. Hún opnaði munninn og ætlaði að fara að skýra honum frá hver hún væri, en einhverra hluta vegna sem hun skildi ekki sjálf hætti hún við þaö. — Hvað eruð þér að gera héma? spuröi hún forvitin og tók nú eft- ir hvé hörundslitur hans var bjart- ur og augun skær. — Þér mun- uö ekki vera sjúklingur, sem hefur brotið reglurnar og farið út 1 garð inn fyrir morgunverð? Hann stóð upp og hló. — Nei, ég er bara vesæll læknissonur, sem bíð eftir að aka föður mínum heim, sagði hann glettnislega. — Ég heiti Tony Specklan, ef þér kannizt við það nafn. Hún hrökk við og nú ljómuðu augun, er hún heyrði nafnið. í þann svipinn var hún mjög lag- leg, og ungi maöurinn virtist enn hrifnari. — Er Specklan læknir faðir yö- ar? spurði hún forviöa. — Það var stórfenglegt! — Fyrir mig? spurði hann. — Eða fyrir hann föður minn? Nei — þér skuluð ekki svara því. Svarið mundi eflaust særa mig. Er til of mikils mælzt aö ég biðji yður aö setjast og rabba viö ungan ein- stæöing, systir? —Jú, geriö þér það! sagði hann þegar hann sá aö Mary hikaði. — Ég er búinn aö kynna mig, en þaö er meira en þér hafið gert! Ég lofaöi aö sækja pabba í dag — hann hefur gert nokkra erfiöa upp- skuröi pg vill síður aka sjálfur, þegar hánn er þreyttur. Ég átti leið hérna framhjá og bauðst til að sækja gamla manninn. Hún settist en þagöi enn. — Jæja? Hann sneri sér aö henni. — Talið þér yfirleitt aldrei? — Mér brá svo mikið viö, sagöi hún afsakandi. — Einhverra hluta vegna á maður erfitt með að hugsa sér að frægir menn eins og Speckl- an læknir, lifi fjölskyldulífi eins og fólk flest. Það kann að þykja óviðeigandi að segja .það, en ég meinti ekkert illt með því. Þetta stafar af því, að maður sér aðeins John Specklan einan ... Hún þagnaði og roðnaði. — Af- BIFREIÐAEIGENDUR ATHUGIÐ! Bónstöð, bifreiðnþjónusta LAUGAVEGI118 (ekið inn frá Rauðarárstíg). Veitir yður aðstöðu til að þvo og bóna bif- reið yðar, einnig tökum við að okkur þvott, hreinsun á sætum, toppum, húrðarspjöldum (leðurlíki). Bónum og ryksugum. SÍMI 21145. sakið þér, ég get líklega ekki skýrt það sem ég á við... Hagstæðustu verð. Greiðsluskilmálar. Verndið verkefini íslenzkra iianda. FJÖLIÐJAN HF. Sími 21195 Ægisgötu 7 Kvk. Róðið hitanum sjálf með ... MeS BRAUKMANN hitastiUi á hverjum ofni gelið þér sjálf ókveS- iS hitastig hvers herbergis — BRAUKMANN sjálfvirkan hitastilli er hægt aS setja beint á ofnihn eSa hvar sem er á vegg f 2ja m. fjarlægS frá ofni SpariS hitakostnaS og aukiS vel- liSan ySar BRAUKMANN er sérstakiega hent- ugur á hitaveitusvæSi SIGHVATUR EINARSSON&CO SÍMI24133 SKIPHOLT 15 FÉLAGSLÍF Knattspymudeild Víkings. Æfingatafla frá 20. mai tU 30. sept. 1968: 1 fl. og meistaraflokkuK Mánud. og þriðjud. kl. 7,30—9. miðvikud og fimmtud. 9—10,15. 2. ilokkun Mánud. og 'iriðjud. 9—10,15. Miðvikud og fimmtud. 7,30—9. 3. flokkur: Mánud. 9,—10,15, þriðjud. 7.30- 9 og fimmtud. 9—10,15. 4. flokkun Mánud og priðjud 7—8. Miö- vikud. og fimmtud. 8—9. 5. flokkur A. og B.: Mánud op þriðjud 6—7. Mið- vikud. op fimmtud 6,15—7,15. 5 flokkur C. og D.: Þriðiud og fimmtud. 5,30—6,30 Stjðmin.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.