Vísir - 15.08.1968, Síða 1
58. árg. - Fimmtudagur 15. ágúst 1968. - 180. tbl.
Olvaður diplómat
við stýri
Rússneskur diplómat var stöðv-
aður á bifreið sinnl á Hafnarfjarð-
. arvegi, þar sem akstur hans vakti
grunsemdir manna um, að hann
kynni að vera ölvaður við stýrið.
Hafnarfjarðarlögreglan hafði
'spumir af ferðum mannsins á leið
; inni frú Keflavik og stöðvaði hann.
Einhverra hluta vegna hélt hann
áram akstrinum, þrátt fyrir tilmæli
lögreglunnar, en var þá stöðvað-
ur aftur eftir að hafa ekið nokkum
spotta og þá af lögreglunni i
Reykjavík.
Það leyndi sér ekki, að diplómat-
inn var undir áhrifum sterkra veiga
og varð hann að víkja undan stýr-
inu, en annar maður, sem í bifreiö
inni var, tók að sér stjóm hennar.
Diplómatinn nýtur sérstakrar
verndar og gat lögreglan ekki
brugðizt óðruvísi við, Aðeins hindr-
að, að maðurinn ítrekaði brot sitt.
Rœða helztu
alþióðavandamál
— Fundur deildastjóra i utanrikisráðuneytum
Norðurlandanna haldinn hér i dag og i gær
í gær stóð hér yfir fundur
deildstjóra í utanríkisráðuneyt-
um á Noröurlöndum. Fundlnn
sóttu 8 fulltrúar frá Norður-
löndunum auk íslands, en full-
trúi íslands á fundinum var dr.
Gunnar G. Schram, deildarstjóri
i utanríkisráðuneytinu. Fundir
sem þessir eru haldnir til skipt
is í höfuðborgum Norðurlanda,
og er aðalverkefni þeirra að á-
kveða dagskrá utanríkisráðherra
funda Norðurlanda, en sá næsti
verður einmitt haldinn dagana
3—4 september í Stokkhólmi.
Á þeim fundi verður aðallega
fjallað um mál þau, sem koma
til með að veröa rædd á þingi
Sameinuðu þjóðanna I haust, og
sóttu þennan fund hér í Reykja
vík þeir fulltrúar viðkomandi
utanríkisráðuneyta, sem fjalla
um mál Sameinuðu þjóöanna og
annarra alþjóða stofnana.
Á utanríkisráðherrafundinum
verða sjónarmiðin samræmd. —
Rætt var um öll helztu alþjóða
vandamálin, svo sem afvopnun-
arvandamálið, ástandið í Grikk-
landi, vandamál ríkjanna fyrir
botni Miðjarðarhafs svo og
fleiri tengd mál Fundinum lýk-
ur í dag, en fulltrúar á fund-
inum fóru kl. 10 í morgun í
stutt ferðálag austur fyrir fjall.
ár hefur okkur lang■
að til að koma hingað,
sagði Sir Alec Guinness i viðtali við Visi
■ „Ég hef heyrt og lesið
töluvert um Island, og
mig hefur lengi langað til að
koma hingað,“ sagði brezki
leikarinn Sir Alec Guinness í
viðtali við Vísi. „Því miður
hefur ekki getað orðið af því
fyrr en nú. en nú erum við
hjónin komin hingað til hálfs
mánaðar dvalar. Þegar við
giftum okkur fyrir 30 árum,
ætluðum við hingað í brúð-
kaupsferð, en það fórst fyrir.“
„Hafið þér ekki verið störfum
hlaðinn að undanförnu?"
„Jú, ég hef sannarlega haft
meira en nóg að gera. Síðasta
kvikmyndin, sem ég lék í var
„Trúðarnir", sem gerð var eftir
samnefndri sögu Grahams
Greene. Að undanföirnu hef ég
leikið í ýmsum hlutverkum á
leiksviði, síðast í Lundúnum. Ég
hef ekki tekiö mér sumarleyfi
í þrjú ár, svo aö viö hjónin ætl-
um að nota okkur þennan tíma
héma til hvíldar. Við ætlum að
ferðast um landiö og skoða það,
sem fyrir augu ber.“
Sir Alec og kona hans dvelja
á Hótel Sögu, meðan þau em í
Reykjavík. í Myndsjá Vísis á bls.
3 er nánar sagt frá komu Sir
Alec Guinness og komu hans
hingað til iands og birtar fleiri
myndir af þeim hjónum.
4 innbrot í
Kópnvogi í nótt
Brotizt var inn á fjórum stöðum
í Auðbrekku í Kópavogi í nótt. Allt
voru þetta fyrirtæki, sem innbrots-
þjófurinn lagði leið sfna um, verk-
stæði og smíðastofur. Farið var inn
í „Trésmiðjuna“, „Dúnu“, „Huröar-
iðjuna" og verkstæði við Auöbrekku
nr. 41.
Lítiö haföi þjófurinn upp úr krafs
inu — einskis var saknað við fyrstu
sýn, en starfsfólkið varð innbrot-
anna vart, þegar það mætti til
vinnu í morgun.
Nokkur spjöll höfðu verið unnin
10. síða.
Sir Alec Guinness og kona hans stíga út úr Gullfaxa, þotu F.I.,
á Keflavíkurflugveili.
urlanda við Vietnam
— að loknum vopnaviðskiptum — Fundur fulltrúa
rikisstjórna Norðurlanda hér i gær
Sameiginlegur fundur fulltrúa rík-
isstjórna Norðurlandanna um að-
stoð við Víetnam að loknum vopna
viöskiptum var haldinn hér á Iandi
í gær. Það var fyrir um það bil
ári, að Norðurlandaþjóðirnar fóru
að skiptast á skoöunum um það,
á hvern hátt bezt mætti koma Víet-
gm
nam-þjóðinni til hjálpar og aðstoð-
ar að loknum vopnaviðskiptum þar.
Hafa fundir um þessi mál verið
haldnir I höfuðborgum Norður-
landanna en fundurinn í gær var
sá fyrsti, sem haldinn er í Reykja-
vík.
Fulltrúi Islands á þessum fundi
var Ölafur Egilsson, fulltrúi f utan-
rikisráðuneytinu. Auk hans sóttu
| fundinn 8 fulltrúar frá utanríkis-
I ráðuneytum hinna Norðurlandanna.
Á fundinum var ástandiö í Víetnam
almennt rætt, og bomar saman
bækur varðandi skoðanir á þvi, á
hvern hátt aðstoð Norðurlanda við
Víetnam-þjóöina að loknum bardög-
um þar, mætti bera sem skjótast-
1 an árangur. Áframhald mun veröa
á þessum fundum.
Svín án fóðurs eða hirð-
ingar í nokkra daga
Slæm meðferð dýra i Mosfellssveit kærð til
lögreglu og dýralæknis
Fulltrúarnir á deildastjórafundinum utan við Hótel Sögu £ morgun. Stuttu eftir að myndin var
tekin var lagt af stað austur fyrir fjall i stutta kynnisfero.
■ Til lögreglunnar í Mos-
fellssveit hefur verið kærð
vond meðferð nokkurra svína
sem maður nokkur, búsettur
í Mosfellssveit átti, en hefur
nú lógað.
Lítur svo út sem svínin
hafi ekki verið hirt né fóðruð
í eina fjóra eða fimm daga,
meðan maðurinn var í burtu í
ferðalagi.
Hafði maðurinn fjögur svín
lokuð í húsi og voru þau greini-
lega soltin og óhirt, þegar aö
þeim var komið um síðustu
helgi. Ibúar í Mosfellssveit,
sem vissu til skepnanna gerðu
lögreglunni viðvart á sunnudag,
sem fór með dýralækni á stað-
inn og skoðuðu þeir svínin.
Þegar eigandinn kom úr ferða
tagi sínu, tók lögreglan af hon-
um skýrslu, en hann sagðist
hafa beðið mann um að fóðra
svínin fyrir sig, meðan hann
væri burtu, en sá hafi kannski
brugðizt því.
Meðan maðurinn var fjarver-
andi slapp eitt svínanna út úr
húsinu, en hin voru inni allan
tímann. Eftir heimkomuna lóg-
aði hann svínunum.
Framburður nágrannanna
varpar frekar skugga á svína
hald mannsins, því að þeir segj
ast hafa boðið honum, áður en
hann fór að heiman, að annast
-> 10. síða.