Vísir - 15.08.1968, Side 3
V í S IR . Fimmtudagur 15. ágúst 1968.
:íwwí;:
Brúðkaupsferð númer tvö
Sir Alec Guinness og frú eyða sumarleyfi sinu á Islandi
Gengið til tollskoðunar. Sveinn Sæmundsson, blaðafulltrúi Flugfélags íslands, tók á móti
Slr Alec Guinness og konu hans.
Ctendur eitthvað til“, spurðu
99 menn l.vern annan í fiug-
stöðinni í Keflavík í gær, þeg-
ar, blaðamenn og Ijósmyndarar
voru orðnir fjölmennir þar á
göngunum Og fljótlega hafði
það spurzt út, að brezki leik-
arinn, Sir Alec Guinness, væri
væntanlegur ásamt konu sinni
með þotu Flugfélagsins, sem
átti að lenda innan fárra mín-
útna.
Veörið var eins gott og bezt
verður á kosið, logn og sólskin,
og margir túristanna, sem biðu
í flugstöðinni virtust vera hálf-
undrandi yfir þessu indíánska
sumri.
Kiukkan rúmlega tvö — á
áætlunartima — lenti síðan Gull
faxi, þota Flugfélagsins á Kefla
víkurflugvelli. Blaðamenn og
flugvallarstarfsmenn þyrptust
þegar í kringum landganginn og
biöu þess í ofvæni, að dyrnar
lykjust upp og hinn frægi maö-
ur kæmi í ljós.
Fjölmörg andlit voru í glugg
um flugstöðvarinnar, þegar Sir
Alec Guinness birtist í dyrum
þotunnar ásamt konu sinni.
Hann gekk hægt niður land-
ganginn og staldraði ögn við
hálffeimnislegur í bragöi með-
an ljósmyndarar smelltu af
myndum í gríö og erg.
Bersýnilega hafði hann ekki
búizt við sólskini og steikjandi
hita, því að hann var klæddur
þykkum frakka. Spurningum
blaðamanna tók hann af hægö,
og sagði að þau hjónin hefðu
myndarar smelltu af í gríð og erg.
lengi haft áhuga á því að koma
hingað til lands til að eyða sum-
arleyfi sínu.
„Viö erum hérna í brúðkaups
ferð okkar númer tvö“, sagði
Sir Alec og brosti. „Margir
vinir okkar hafa komið hingaö
og þeir segja, að þetta sé land,
sem enginn ætti að láta hjá
líða að heimsækja“.
„Þér hafiö aldrei komið hing-
að áöur?“
„Nei, þetta er gamall draum-
ur, sem er núna fyrst aö ræt-
ast. Ég á fáar frístundir, og
þetta er fyrsta sumarleyfi mitt
x þrjú ár“.
Kona hans tók undir orð
hans, og sagði aö þeim væri
mikið ánægjuefni að fá tæki-
færl til aö heimsækja ísland.
. „Ætlið þið að ferðast mikiö
um landið?“
„Aö sjálfsögðu viljum við
reyn;' að sjá sem flest þennn
hálfa mánuð, sem við getum
dvalizt hér“.
Sveinn Sæmundsson blaðafull
trúi F.í. tók á móti þeim hjón-
um og fór með þeim í gegnum
tollskoðun, sem gekk ekki sér-
lega fljótt fyrir sig, þótt far-
angur þeirra hjónanna væri ekki
mikill.
Síöan settust þau upp í bifreið
Sveins, frúin í gftursætið og
Sir Alec framí, og ekið var
áleiðis til Reykjavíkur — og
Myndsjáin hélt í humátt á eft-
ir.
Þau hjónin virtust hafa mik-
inn áhuga á útsýninu, horföu i
allar áttir og bentu og samræð-
urnar virtust ganga greiðlega.
Þegar til Reykjavíkur kom skild
ust loksinr le::ir, þau hjónin
héldu tii gistihúss síns til að
eyða í næöi sumarleyfinu, en
Myndsjáin hélt heim á leið,
hjartanleg. sammála flugfreyj-
unni í Keflavílt, sem sagði: „Mik
il lifandi skelfing eru þetta
indæl hjón“.
Þau hjónin virtust sannarlega ánægð yfir því að vera komin í sumarleyfi hingað til lands.
Á þessari mynd gæti Sir Alec Gúinness vel veriö að hugsa:
„Jafnvel hér.fær maður ekki frið fyrir blaðamönnun!“