Vísir - 15.08.1968, Síða 7
VlSIR . Flmmtudagur 15. ágúst 1968.
morgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlond í morgun
útlönd
HEILL HER LOGREGLU OG HERLIÐS
HAFÐUR TIL TAKS í CHICAGO
Heill her lögreglu og her-
liðs er hafður til taks, til
þess að geta afgirt svæði í
borginni, ef til óeirða kynni
að koma, vegna þess, að
tugþús. manna streyma til
borgarinnar tii hvers kon-
ar mótmæla.
Hér er um að ræða 8.000 lögreglu-
menn, 6.000 hermenn úr þjóðvarn-
arliöinu og 1.000 sambandsríkisher-
menn úr öryggisliðinu. Lið þetta
hefur vélbyssur að vopnum og ræð-
'ur yfir skriödrekum, vatnsfallbyss-
um og táragasi. Meginhlutverk þess
er aö verja gistihús og samkomu-
stað^ flokksþings demokrata, sem
kemur saman 26. ágúst.
Hættan á ókyrrð er svo mikil, að
yfirvöldin hafa raunverulega gert
ráð fyrir, að til ástands kynni aö
koma, sem á styrjaldartíma, og verð
ur hér um samstarf að ræða alls
100.000 'manna á vegum upplýs-
ingastarfseminnar, þjóðvarnarliðs,
ríkis- og bæjarlögreglu.
Hefur aldrei fyrr í sögu Banda-
rfkjanna verið gripið til svo víð-
tækra varúöarráðstafana tengdum
flokksþinghaldi. — Fátækrahverfi
blökkufólks hefir verið afgirt með
800 metra langri giröingu og eru
lögreglumenn á veröi dag og nótt og
hafa sporhunda sér til aðstoðar.
Þyrlur verða notaðar til flutnings
á kjörmönnum milli samkomustaö-
Yfirlýsingu páfa varðandi
getnaðarvarnir lýst sem
,ialvarlegum harmleik'
//»
Vaxandi ókyrrð meðal rómversk-kaþólskra
klerka og guðfræðinga
London. Ókyrrð og óánægja með-
al rómversk-kaþólskra presta og
guðfræðinga út af jrfirlýsingu páfa
varðandi fæðingatakmarkanir, er
vaxandi.
Þessarar óánægju er nú farið að
gæta allmjög í Eire (írska lýðveld-
inu), sem er rómversk-kaþólskt
land. Dr. James Good, prófessor í
guöfræði við háskólann í Cork, var
í gær bannað að hlýöa á skrifta-
mál og predika, eftir að hann haföi
lýst yfirlýsingu páfa sem alvarleg-
um harmleik.
Áöur hafði Paul Weir prófessor f
London verið vikið úr starfi, vegna
þess, að hann hafði gagnrýnt yfir-
lýsingu páfa. Tveir aðrir prestar
hafa verið beönir að gera grein fyr-
ir opinberri gagnrýni sinni á yfir-
lýsingu páfa.
Mikill skoöanamunur er um mál-
ið meðal rómversk-kaþólskra bisk-
upa á Englandi og eiga margir í
deilum við biskupana.
Parísarráðstefn-
an um Vietnam
París. Fulltrúar Norður-Víetnam
og Bandaríkjanna á friðarráðstefn-
unni um Víetnam komu til fundar
í gær, eins og venjulega á miðviku-
dögum.
Le Duc Tho, sem er nýkominn
frá Hanoi, var ekki viðstáddur, er
fundurinn var settur, en viðstaddur
var Cyrus Vance, einn hinna sér-
: legu samningamanna Johnsons for-
• seta, en hann var nýlega í Wash-
; ington. Hann ræddi þar við Johnson
forseta, Dean Rusk utanríkisráð-
; herra og fleiri.
Averill Harriman, aðalfulltrúi
Bandaríkjanna á ráðstefnunni sagði
fyrir fundinn, að hann hefði ekki
neinar nýjar upplýsingar varðandi
hugsanlegt hlé á vopnaviöskiptum
f Víetnam, en hann kvaðst mundu
leiða athygli að því, að áframhald
væri á hryðjuverkastarfsemi Viet-
cong. ,
Mjög hefur dregið úr loftárásum
Bandaríkjamanna í Víetnam og á
Norður-Víetnam, en sagt f Saigon
að það sé vegna óhagstæðs veðurs
Bannið á flugi til Alsír mun
valda miklum erfiðleikum
AFP-fréttastofan tilkynnti i gær,
í París, að Félag flugmanna flutn-
ingaflugvéla myndi styðja bann það.
sem Alþjóðasamtök flugmanna hafa
sett við fjugi til Alsír, frá mánudegi
næstkomandi.
Amman: Eitt af helztu blöðum
Jórdaníu birti grein ,í gær um á-
kvörðun Alþjóöasambands flug-
manna, að banna flug til Alsír og
■ kvað hana óhyggilega og bera vitni
um skammsýni. Ennfremur sagði
blaðiö. að hún myndi valda erfið-
leikum á öllu flugi til Austurlanda
nær, og góð tengsl myndu spillast
eöa eyðileggjast. Stjórnarfundur
mun verða haldinn um málið.
í Beirut tilkynnti utanríkisráð-
herra Líbanon, dr. Abdullah al-
Yafi, að Líbanon myndi styðja
hvers konar mótaögeröir Alsfrstjórn
ar.
arins og gistihúsa þeirra.
Allt er gert sem unnt er, til þess
að finna staði, sem eru freistandi
aðseturstaðir fyrir leyniskyttur.
Slökkviliðið verður einnig haft til
tækt og sprengingasérfræðingar. Ör
yggislögreglumenn, vopnaðir og
með sjónauka og „walkie-talkie“-
tæki verða á palli miðsvæðis í sam-
komusal flokksþingsins.
Leynilögreglumenn munu dreifa
sér meðal kjörmanna og gesta.
Dalay borgarstjóri hefir tilkynnt,
að engin ólæti verði þoluð, og við-
búnaður er innangarös í Cook-fang-
elsinu, ef framkvæma veröur fjölda-
handtökur.
Þátttakendur í Baráttu hinna
snauöu og hippíar hafa boðað, aö
þeir muni streyma til borgarinnar,
og ganga í fylkingum um göturnar
að kveldi 28. ágúst er búizt er við,
að tllkynnt verði um val forseta-
efnis.
Áhöfnin á Pueblo
ræðir við fréttn-
menn
riongkong: Hin opinbera frétta-
stofa i Norður-Kóreu skýrir frá því
að áhöfnin á bandaríska könnunar
skipinu Pueblo, sem tekið var og
flutt til Noröur-Kóreu, hafi beðizt
afsökunar á glæpsamlegu atferli
sínu. Hafi þetta gerzt á fundi með
fréttamönnum að einróma beiöni
áhafnar. Þá var sagt, að á fundin
um hefði Lloyd Bucher skipherra
þakkaö sérlega góða meðferð og
fyrir leyfiö til þess að fá að tala
viö fréttamennina. — Skipið var
tekið 23. janúar. — Ekkert liggur
fyrir um, að áhöfn og skipi verði
skilað.
Iðnskólinn í Reykjavík
Innritun nemenda fyrir skólaárið 1968—1969 og námskeið í september,
fer fram í skrifstofu skólans dagana 20.—28. ágúst kl. 10—12 og 14—
Í7, nema laugardaginn 24. ágúst.
Námskeið til undirbúnings inntökuprófum og öðrum haustprófum hefj-
ast mánudaginn 2. september.
Við innritun skulu allir nemendur leggja fram nafnskírteini og náms-
samning.
Skólagjald kr. 400,— og námskeiðsgjöld fyrir septembernámskeið kr,
200,— fyrir hverja námsgrein, skal greiða við innritun.
Nýir umsækjendur um skólavist skulu auk þess leggja fram prófvottorð
frá fyrri skóla.
FORSKÓLI FYRIR PRENTNÁM
Verklegt forskólanám í prentiðnum hefst mánudag-
inn 2. september.
Forskóli þessi er ætlaður nemendum, sem eru að byrja
nám í prentsmiðjum, en hafa ekki hafið skólanám, .
svo og þeim, er hyggja á prentnám á næstunni.
Innritun fer fram á sama tíma og mnritun í Iðnskól-
ann. Námsgjald er kr. 400,— og greiðist við innritun.
VERKNÁMSSKÖLI í MÁLMIÐNAÐI
OG SKYLDUM GREINUM
Verknámsskóli fyrir þá, sem hyggja á störf í málm-
iðnáði og skyldum greinum, verður starfræktur frá
byrjun september—maíloka.
Kennsla verður bæði verkleg og bókleg og miðast við
að nemendur ljúki námsefni 1. og 2. bekkjar iðnskóla
á skólaárinu.
Inntökuskilyrði eru að umsækjandi sé fullra 15 ára og
hafi lokið miðskólaprófi.
Iðnnámssamningur til þessa náms er ekki áskilinn.
Nánari upplýsingar verða veittar á skrifstofu skól-
ans á innritunartíma.
Vegna breytinga á kennslutilhögun er mjög mikilvægt að allir, sem ætla
sér að stunda nám í Iðnskólanum í Reykjavík í vetur, komi til innritunar
á ofangreindum tíma.
Til þess að reyna að stytta biðtíma nemenda innritunarda^ana, verða
afhent afgreiðslunúmer frá skrifsrofu umsjónarmanns og hefst afhend-
ing þeirra kl. 8 f.h. alla dagana.
SKÓLASTJÓRI
i