Vísir - 15.08.1968, Page 8

Vísir - 15.08.1968, Page 8
8 VISIR Útgefandi. Reykjaprent h.í. Framlrvœmdastjöri Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingastjóri: Bergþór Olfarsson Augiýsingar: Aðalstræti 8. Simar 15610 11660 og 15099 Afgreiðsla: Aðalstræti 8. Simi 11660 Ritstjóm: l augavegi 178. Simi 11660 (5 Unur) Áskriftargjald kr. 115.00 á mánuði innanlands í lausasölj kr. 7.00 eintakið Prentsmiðja Vísis — Edda h.f. Skortir heildaryfirsýn Tíminn er alltaf að fræða lesendur sína á því, hvemig eigi að stjórna landinu. Framsóknarflokkurinn hefur nokkrum sinnum fengið tækifæri til þess að sýna þetta í verki á s'íðustu 40 árum, bæði einn og í sam,- starfi við aðra fjokka. Stjórnarforusta Framsóknar- flokksins hefur alltaf endað með ósköpum, og svo óheill hefur hann reynzt í samstarfi við aðra flokka, að eftir vinstri stjórnarævintýrið vildi enginn flokkur vinna með honum, nema helzt kommúnistar, en þeir kysu þó áreiðanlega fremur að vera í stjórn með hin- um flokkunum, ef þess væri kostur. Segja má að Framsókn hafi verið utangarðs í ís- lenzkum stjórnmálum s.l. áratug. Síðan vinstri stjórn- in fór frá í byrjun desember 1958 hefur tilvera flokks- ins verið sannkölluð eyðimerkurganga og saga hans öll hin ömurlegasta. Hann valdi sér strax eftir að við- reisnarstjórnin var mynduð það ógæfuhlutverk, að vinna gegn endurskipulagningu efnahagsmálanna, þar sem hann sjálfur átti aðalsökina á hvernig komið var. Hann hefur ásamt kommúnistum barizt með hnúum og hnefum gegn því að verðbólgan yrði stöðvuð, stutt hvers konar kröfur um hækkanir, frá hverjum sem þær hafa komið og hversu fráleitar sem þær hafa ver- ið, og aldrei borið fram raunhæfa tillögu um lausn á nokkrum vanda. Nú segir Tíminn, að menn séu farnir að velta því fyrir sér, hvers vegna sé svo illa komið í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar og spyrji sjálfa sig þeirrar spurningar, „hvort önnur og skynsamlegri stefna“ hefði ekki komið í veg fyrir að skellurinn af þeim áföllum sem yfir þjóðina hafa gengið að undanförnu, yrði jafn þungui og raun ber vitni. Þeir sem skrifa í Tímann hafa sýnilega ekki mikla trú á því sjálfir, að mark hafi verið tekið á því, sem þeir hafa verið að segja undanfarin misseri, og raun- ar s.l. tíu ár. Þeir hafa alltaf hamrað á því, að stjóm- arstefnan væri röng, þótt staðreyndirnar hafi talað öðru máli; og þeir vildu ekki til skamms tíma viður- kenna að áföllin, sem þeir eru nú farnir að viðurkenna að séu mörg og mikil, hefðu þurft að valda nokkrum teljandi erfiðleikum, ef stjórnarstefnan hefði verið önnur. Én þeir virðast vita að þessu hafa fáir trúað, en halda að menn séu nú fyrst að velta ástæðunum fyrir sér. Þess þarf enginn, nema þá einhverjir Fram- sóknarmenn. Allir vita hvað erfiðleikunum veldur, og það er ekki stjórnarstefnan. Þvert á móti er það henni að þakka, að ekki hefur verr farið en raun ber vitni. Og öllum áetti líka að vera Ijóst af fyrri reynslu, að Framsóknar- flokkurinn leysir aldrei vandann. Hann skortir allra flokka mest þá heildaryfirsýn yfir þjóðmálin, sem til þess þarf. Og ábyrgðarleysi hans nú í stjórnarand- stöðunni sýnir að hann lætur sig þjóðarheill litlu varða. íí i) V í SIR . Fimmtudagur 15. ágúst 1968. ——lllHUIllil——■——Wi V erður sprengjuárásum á Norður-Y ietnam hætt? Nú nálgast sá tími, er flokks- þing demókrata verður haldið. Það veröur sett í Chicago 26. þ.m. — eftir 11 daga — og margir spyrja hvort eitthvað ó- venjulegt muni gerast, meðan þingið stendur, svo að það verði annað og meira en þessar fjög- urra ára „sirkussýningar", sem sumir kalla þessi þing, og má Humphrey — „friður nær en nokkurn tíma fyrr?“ t þaö að nokkru til sanns vegar færa, en því má heldur ekki gleyma, að hér kann aö verða valinn maður til forystuhlut- verks, ekki aðeins semi leiðtogi bandarísku þjóðarinnar heldur sem forystumaöur á alþjóöavett- vangi, og þá fyrst og fremst á vestrænum vettvangi. Margir spyrja hvort eitthvað sé í bfgerð varðandi styrjöldina í Víetnam, sem kunnugt verði um þá — svo sem að boðaö verði að hætt verði sprengjuárás um á Noröur-Víetnam, og skal hér engu um þaö spáö, hvað ger- ast kann, en benda má á tvennt: Annað er, að hið kunna blað Wall Street Journal i New York skýrði frá því fyrir nokkrum dögum, að Johnson forseti hefði með leynd þreifað fyrir sér um það hjá leiðtogum Norður-Víet- nams og Vietcong, aö hætt yrði við „þriðju sóknina" í Suöur- Vietnam, gegn því, að sprengju- árásum yrði hætt á N.-V. Blaö- ið talar um þetta sem „friöar- sókn af hálfu Bandaríkjastjórn- ar“. Hitt er, að Humphrey vara- forseti bað keppinauta sína fyr- ir nokkrum dögum að ræða um Vietnam af gætni, og hann gaf fyllilega í skyn, að „friður kynni ' að vera nær í Víetnam en nokk- um tíma fyrr“. Johnson — friðarsókn? Sex með nýtt hjarta Myndin er af sex hamingjusömum Bandaríkjamönnum, fimm körlum og einni konu, sem öll eru með nýtt hjarta, sem grætt var í þau á undangengnum mánuðum. Það er mislangur tími vitanlega síðan er hjartaígræðslan átti sér stað, en öll eru þau við góða heilsu. Og í Sid ney í Ástralíu hefur dr. Barnard, sem framkvæmdi skurðaðgerðina á þeim sjúklingnum, sem lengst hefur lifað með nýtt hjarta, sagt, að það hefði nú að fullu aðlagazt öðrum iíffærum op myndi sjúklingurinn, Blaiberg tannlæknir, „útskrifast“ frá rjúkrahúsinu í Höfðaborg í bess- ari vfku.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.