Vísir - 23.08.1968, Blaðsíða 4
Leikarinn Steve McQueen gaf
nýiega 2 milljónir íslenzkar fá-
tækum börnum í Bandáríkjunum
til handa. Steve segir, að þeir
séu fáir sem reyni að hjálpa
þeim sem erfitt eiga. Hann segir,
að þegar hann sem leikari hafi
nú eignazt nóg fyrir sig, þá sé
honum skylt að reyna að hjálpa
svolítið til. Þessi skemmtilegi leik
ari hefur áður gefið eina milljón
til fátækra.
Allir verða vel klæddir í Mexíkó
Ólympiuleikarnir í Mexíkó hef j
ast í haust og að venju leggja
þúsundir ferðalanga land undir
fót og verða viðstaddir þessa
stærstu og glæsilegustu íþrótta-
hátíð sem haldin er. Frá Þýzka-
landi fara 350 íþróttamenn ásamt
tugum blaðamanna og ljósmynd-
ara, svo ekki sé nú talaö um alla
fararstjórana. Nú hefur verið á-
kveðið hvemig íþróttamenn Þjóð-
verja munu klæðast og fær hver
keppandi þrenns konar búninga
til að íklæðast. Allir fá samkvæm
isföt, æfingabúninga og létt sum-
arföt sem munu eflaust koma sér
vel i hitanum í Mexíkó. Það er
enginn vafi á því, að hópurinn
frá Þýzkalandi verður glæsilegur
á velli og er þá aðeins vonandi
að þeir standi sig vel, eins og
endranær.
Peter Sellers ásamt dóttur sinni frá fyrsta hjónabandi.
„ÉG ÆTLA ALDREIAÐ
GIFTAST AFTUR“
Leikarinn heimskunni Peter
Sellers gaf nýlega út yfirlýsingu
þess efnis, að hann ætlaði aldrei
aö gifta sig framar. Hann sagði
þetta við blaöamenn í London er
hann kom þangaö nýlega. Peter
er að fara að leika í tveimur
kvikmyndum í Englandi, en und
anfarna mánuði var hann við
vinnu i Hollywood.
Hann gáf sér þó tíma til ferða-
lags til Miðjarðarhafs en meö
honum fór átta ára gömul dóttir
hans frá fyrsta hjónabandi hans.
Næst þegar ég hitti stúlku, sem
ég elska, ætla ég að búa með
henni en ekki að giftast, segir
hann.
Ég er ekki einmanna, því ég
vinn og vinn og allur tími minn
fer f það. Vinnan er mér allt,
hún veitir mér afslöppún og á-
nægju. Þaö eina sem angrar mig
er hve oft ég hef þegið boð f
veizlur sem áfengi hefur verið á
boðstólum. Ég hef gaman af því
að umgangast kvenfólk, en gef
mér ekki tíma til að leita að
nýrri vinkonu, því ég veit að
henni skýtur upp fyrr en varir.
Þegar ég var giftur Britt Ek-
lund fékk ég að vera f friði, en nú
álíta flestar stúlkurnar að ég sé
orðinn svo rólegur fyrir glaumi
heimsins.
Britt Eklund og Peter Sellers er þau giftu sig.
Ofbeldi harmað.
Fólk er þrumu lostið. Frétt-
irnar um innrás Rússa inn í
Tékkóslóvakfu komu eins ogreið
arslag. Þessu hafði enginn getað
búizt við. Gróf ofbeldisinnrás
af þessu tagi var talin gjörsam-
lcga óhugsandi nú á tfmum og
það á meðal svokallaöra menn
ingarþjóða.
Þegar slfkar harmafregnir
dynja á fólki, verka bær svo
undarlega lamandi, þvi að það
rennur upp fyrir flestum, hversu
einstaklingsfrelsið er lítilsvirt.
Tilganglnn skilur enginn, þvi
þetta er eins og ógnþrungið brjál
æöi, að stórveldi skúli á þennan
hátt fara með ofbeldisher á hend
ur nágrannaþjóð sinni, einung
is til að hefta hana í fjötra. Þvf
getur varla nokkur trúaö aö
sósfalismi oða það stjórnarfar,
sem sósíalistar berjast fyrir
standi taustum fótum meðal
þjóðar, sem þannig hefur verið
svipt frelsi sínu.
Með innrás Rússa er verið að
hneppa heila þjóð í fjötra og
gera hana að allsherjar þræla-
búð. Tilgangurinn virðist helzt-
ur vera sá, að halda við lýði út-
breiðslu kommúnismans í Tékkó
slóvakíú. Hverjum þaö á að
þjóna er óskiljanlegt, þvi eftir
fréttum var vilji tékknesku
þjóðarinnar sá, að stefna inn á
frjálsari brautir, m.a. með því
að einstaklingar fengju að tjá
sínar frjálsu skoðanir.
Með þessum viðbjóðslegu að-
geröum virðist eiga að gera
tékknesku þjóðina að eins konar
kommúnistiskri vélasamstæöu,
þar sem enginn má ráða sér
sjáifur né eiga frjálsa hugsun.
Þessi frelsissvipting tékknesku
þjóöarinnar er þvf aðeins risa-
vaxið þrælahald, sem er ótrú-
legur harmleikur.
Viðbrögð okkar hér norður á
hjara veraldar verða einungis
þau að harma það að sifkt skuli
geta komið fyrir nú á tímum,
þegar svo mikiö er talað um
menningu og betri heim. Myrk-
ur miðalda átti fyrir svo löngu
aö vera afstaðið, og flestir ís-
lendingar höfðu taliö að bjart
ara væri framundan. En þessir
atburðir sanna okkur nauðsyn
þess, aö við tryggjum sess okk
ar meðal þeirra þjóða, sem hafa
svipaöar skoðanir og túlkun á
frelsi og sjálfsákvörðunarrétti.
Sú staðreynd rennur upp fyrir
okkur, að við hljótum að meta
rétt okkar innan Nató enn um
stund, því ótrúlegustu harm
Ieikir virðast enn geta gerzt.
íslendingar standa einhuga að
mótmælum gegn þessu ofbeldl
ásamt öðrum frelsisunnandi
þjóöum.
í
V
\
Þrándur f Götu.