Vísir - 23.08.1968, Side 10
V1SIR . Föstudagur 23. ágúst 1968.
w
ííiíiVíSSiSSvSTO'iSSiíivSvSvS'viiSvvivSSiSSS'iWS
HÚSGÖGN ‘68
Húsgagnaarkitektar sýna i nýbyggingu Iðnskólans
6&
„Húsgögn ’68“ heitir sýning, sem
Félag húsgagnaarkitekta efnir til í
nýbyggingu Iönskólans. Sýning
þessl verður opnuð í dag, og verð-
úr hún opin daglega kl. 14 til 22
fram tll 3. september. í Félagi hús-
gagnaarkítekta eru 22 meðlimir og
12 þeirra taka þátt í þessari sýn-
ingu, sem er þrlðja sýningin, sem
féiagið gengst fyrir.
Sýningartíminn að þessu sinni
hefur einkum verið valinn með til-
liti til þess aö um þessar mundir
stendur yfir í Reykjavik „Norræni
byggingardagurinn" og fjölmargir
forustumenn um byggingamál á
Norðurlöndum dvelja hér.
Tilgangur sýningarinnar er eink-
um sá, aö vekja athygli á góðri
formsköpun og þýðingu hennar í
húsgagnagerð. Ýmislegt nýstárlegt
kemur fram á sýningunni, sem hef-
ur verið í undirbúningi síðan um
áramót.
Sjórekin lík
Tvö sjórekin lík fundust í fjör-
anni fyrir neðan bæinn Siglunes
í gær. Er talið fullvlst að um þá
íelga V. Jónsson og Sigurð Helga
;on sé að ræða en þeir voru báðir
í trillubátnum Njáli, sem týndist í
/or.
Jón Oddsson, bóndi á Siglunesi
/ar á gangi um fjöruna, þegar
íann rakst á lík Helga V. Jónsson-
ar á stað, sem nefnist Innri Krók-
ur, var það í gærmorgun. Við ieit
fannst lík Sigurðar Helgasonar ekki
langt frá seinnipart dagsins.
Þeir félagar lögðu af stað í róð-
ur að kvöldi til í vondu veðri en
um þær mundir var töluverður ís
á þessum slóðum. Er talið að bát-
urinn hafi farizt á útleið 1 fjaröar-
mynninu.
Líkin hafa verið flutt inn til
Siglufjaröar.
ÞAKKARAVARP
Ég þakka ykkur, heiðruðu kjósendur, við síðasta
forsetakjör, 30. júní síðastliðinn, sem skrifuðuð nafn
mitt á seðla, sem fram komu í kjörkössunum, er talið
var. Svo þakka ég lfka þeim, sem 1952 gjörðu slíkt
hið sama við forsetakosningarnar þá, svo og þeim, sem
veittu mér aðstoö við forsetaframboð mitt 1956 og
1960.
Ég bið minn Guð að vernda mitt föðurland.
Pétur H. Salómonsson.
Kvikmyndatökuvél 8m.m.
Kvikmyndasýningavél
Kvikmyndatökuvél TORMAT 8 EEZ með zoomi, aut-
omatiskum ljósmæli og innbyggðum filter. Verð kr.
3800.
Kvikmyndasýningavél EUMIG 8 mm með innbyggð-
um syncroniser fyrir hljóð, zoomi, mismunandi hraða
aftur á bak og joðlampa kr. 4800.
Skoðari meö innbyggðum klippara, kr. 750.
Ennfremur Voigtlander automatic 35 mm myndatöku-
vél, kr. 2800. ’ *
Upplýsingar í dag og á morgun frá 9-18 í síma 33271.
Svoboda —
m- i «fðu
ráðs segir. að 10 þjóöir hafi greitt
atkvæði með ályktunartillögunni,
Sovétríkin og Ungverjaland gegn,
en Pakistan, Senegal og Ceylon
sátu hjá.
Jakob Malik fulltrúi Sovétríkj-
anna beitti neitunarvaldi gegn sam-
þykktinni.
í nótt skoraöi fulltrúi Breta
Carraden lávarður á Malik að „gera
grein fyrir örlögum Dubceks".
Ekki var þess getið hverju Malik
svaraði eöa hvort hann vék sér
undan að svara, en hann líkti
fundinum viö „andúðarvekjandi
kómedíu", er neitaö hafði verið að
fresta umræðum.
Valdatogstreita í Moskvu.
í fréttum frá New York segir,
að getgátur séu uppi um það aö
hernámið hafi leitt til valdatog-
streitu í Moskvu. Áður hefir heyrzt
sitt af, hverju í þá átt, og jafnvel
að stjórnarkreppa væri komin til
sögunnar.
Dubcek skotinn?
Bandarískar hlustunarstöövar
náöu í nótt frétt frá Tékkóslóvakíu
þess efriis, að Alexander Dubcek
heföi verið myrtur. Einstaklingur
er talinn hafa sent þessa frétt frá
leynistöð sem hann hafði komið
sér upp. Kanadísk hlustunarstöö
náði einnig frétt um þetta. Orð-
sendingin var svohljóðandi og náð-
ist um miðnæturbiliö:
Dubcek dó fyrir klukkustundu.
Látiö allan heiminn fá vitneskju um
þetta.
Ófundinn —
I b SIÖL*
VE 120 haföi verið í söluferð, en
hann hafði fengið nokkurn afla.
Mjög víðtæk leit hófst strax að
Siguröi og stendur hún enn yfir
Sigurður P. Oddsson er giftur
Vestmannaeyjum og er hann reglu-
samur maður. |
5 óra teipa —
ffip— > lb álöu
„Mér varð fyrst á, að leita
að stiga“, sagði Ingóifur Sveins
son, lögregluþjónn, sem bjargaði
litlu telpunni úr sjálfheldunni.
„Heppnin var með mér og ég
fann hann strax. Hitt var svo
varla uintalsvert. Ég kom henni
inn um gluggann aftur.“
Rétt i sömu svifum komu lög
regluþjónar, sem sendir höföu
verið til aðstoðar vegna tilkynn
ingar leigubílstjórans, sem sást
hvergi.
„Ég átti þarna leiö framhjá
bara af tilviljun“, sagði Ingólf-
ur.
„Hún var furðu róleg, litla
skinnið.“
Níðingsverk —
-> 16 slðu
lands ályktar eftirfarandi um Tékkó
slóvakíumálið 21. ágúst 1968:
„íslenzkir stúdentar fordæma í-
hlutun erlendra ríkja í innanríkis-
mál Tékkóslóvakíu og lýsa yfir ein-
lægri samúð með þjóðum landsins.
Þessi atburöur er ótvírætt brot
á stofnskrá Sameinuðu þjóöanna,
og er skorað á ríkisstjómina aö
stuöla að upptöku málsins á Alls-
herjarþingi Sameinuðu þjóðanna og
lausn þess í anda samtakanna."
9 Auknar viðsjár í
alþjóðamálum
Yfiriýsing frá Samtökum um vest-
ræna samvinnu:
„Stjórn Samtaka um vestræna
samvinnu fordæmir tilefnislausa á-
rás Sovétríkjanna og bandingja
þeirra í Varsjárbandalaginu á
Tékkóslóvakíu og lýsir yfir dýpstu
samúð sinni með ’baráttu Tékkó-
slóvaka fyrir frelsi, fullveldi og lýð-
ræðislegum stjómarháttum. Jafn-
framt harmar stjórnin þær auknu
viðsjár £ alþjóöamálum, sem þessi
svfvirðilega árás mun hafa í för
með sér, og þann viðgang aftur-
haldsafla í heiminum, sem hún
stuðlar áð. Árásin er freklegt brot
á stofnskrá Sameinuðu þjóöanna, er
hljóta að láta málið til sín taka og
gera það sem í þeirra valdi stend-
ur til að koma í veg fyrir að stór-
veldi og leppríki þeirra fái þannig
fótum troðið sjálfsákvörðunarrétt
og fullveldi smáþjóða."
LOKAÐ
í dag vegna jarðarfarar.
INNHEIMTU SKRIFSTOF AN
Tjamargötu 10
NÝKOMIÐ
mikið úrval af HANNYRÐAVÖRUM.
Hannyrðaverzlun Þuríðar Sigurjónsd.
Aðalstræti 12 . Sími 14082
BORGI
BELLA
Ég keypti þessar bækur þegar
sjónvarplð var í sumarfríi, en
komst ekki til að lesa þær. Nú
er sjónvarpið byrjað aftur og ég
ætla að fá aurana mína.
VEÐRID
I DAG
Norðaustan gola
eða kaldi, skýjað,
en úrkomulítið.
EZ rr
| árum
Bjarni Jónsson frá Vogi veiktisi
í Kristjanfu er hann var þar á
ferö í erindum fossanefndarinnar
Lá hann fáa daga og ferðaðist^
þess vegna minna um en sam-
nefndarmenn hans.
Vísir 23. ágúst 1918.
TILKYNNINGAR
Stangveiðifélag Reykjavíkur.
Veiðiferð í Úlfljótsvatn laugar-
daginn 24. ágúst kl. 1.30. Til-
kynnið þátttöku og greiðið gjald
fyrir föstudagskvöld.
Æskulýðsráö Reykjavíkur.
FELAGSLÍF
Ferðafélag tsiands ráögerir eftn
taldar ferði. um næstu hélgi:
1. Kerlingarfjöll — Hveravellir, kl
20 á föstuuagskvöld.
2. Þórsmörk
3. Landma.malaugar
4. Híta lalur, þessar þrjár eru á
laugardag kl. 14.
5. Gönguferð um Leggjarbrjót, kl.
1,30 á sunnudag.
Síðasta sumarleyfisferð Ferðafé-
lags íslands
29 ág. hefst 4 daga ferð. Farið
verður norður Kjöl, austur með
Hofsjökli í Laugafell, síðan í Jökul
dal við Tungnafellsjökul, suður
Sprengisand og f Veiðivötn.
Nánari upplýsingar veittar á skrif-
stofunni Öldugötu 3, -símar 19533
og 11798.