Vísir - 23.08.1968, Síða 12
72
V í SIR . Föstudagur 23. ágúst 1968,
iy EdG^^ÍIC^ÍuRROUGHS YOU'LL TAKE A\E WITH
tfflWMHBWjWIHr you, flr-less one..,ok
\ VIIIm I'LL SCREA.V,... ANP BRING
i\V! ~ S EVERY WARRIOR in kor-
K1V\' - BP.7TJ /\ Uh-PAN TO THIS CAYE!
SHE/HE/l/V.? IT' SJTSHE BELONGS
HERE..VVITH HER OWN PBOPlE’. X'LL
LEAVE HER AT THE JUNGLB'S EPÖS:
COME, THSN.
SILENTLY!
Skákmennirnir höfðu safnað sam
an minnisblöðum sínum, og sá eldri
þeirra, hafði trefil vafinn um háls-
inn, hallaði sér fram á borðið og
hvessti augun á andstæðing sinn.
„Stórkostlegur sigur.... glópa-
lukka'og ekkert annað. Það skal ég
sanna þér — Zambreski hershöfð-
ingi.“
Lauru varð litið út um glugga
dyrnar, sá hvar Gail Kerr stóð úti
. á veröndinni með hendurnar djúpt
í úlpuvösunum, og virti þau fyrir
sér.
,,Ég get ekkert sagt um það,
hvort ég verð hér um kyrrt eða
ekki, hr. Bean,“ sagði Laura. „Ég
veit ekki lengra í svipinn, en ég er
' aö fara í gönguferö ., . “
„Dásamlegt," mælti hr. Bean. „í
svipinn, segið þér, vitið þér ekki
lengra en það, að þér eruð aö fara
( göriguferð. Lengra þurfið þér ekki
heldur að vita. Hugsið aldrei fyrir
•norgundeginum, aldrei um daginn,
sem leið, og gérið ekki einu sinni
neinar áætlanir hvað kvöldið snert-
r. Nú er gönguferðin hiö eina, sem
er fram undan, góða mín, og rijótið
hennar sem bezt. Drekkiö lífsveig
morgunloftsins í löngum teygum.“
’-Iann hló lágt og kumrandi. „Hver
veit nema að þér lítið inn hérna
im morgunverðarleytið?"
Hann hafði smeygt hendinni und-
ir arm hennar og leiddi hana út að
veröndinni. Hún fann að hann réði
heilt og af einlægni. Fyrir andar-
taki hafði henni staðið hálfgerður
stuggur af honum, nú þótti. henni
vænt um hann.
Hann kvaddi hana í dyrunum, og
begar hún kom út á veröndina,
mældi Gail Kerr hana augum. „Ég
hef verið að fylgjast með dáleikum
ykkar, Bean gamla," sagði hún. „Og
þessi peysa, sem þér eruð komin í
og pilsið — hégóminn einber. Ég er
hrædd um að þér haldið ekki á
yöur hita í slíkum flíkum, og ég
er hrædd um aö hvorki krossfisk-
arnir né ígulkerin í fjörunni kunni
að meta slíka tilhaldssemi."
„Það kemur á daginn, hvort mér
tekst að halda á mér hita," svaraöi
Laura rólega.
Hún teygaði djúpt að sér morgun-
loftið, eins og hr. Bean hafði ráð-
lagt henni. Það var þokumistur í
| lofti og sólin logarauð, golan eins
. og kælt Rínarvín. Andartak lokaði
hún augunum, og þegar hún opnaöi
I þau aftur var eins og allt brygði á
' dans, trén, bárurnar við rifið. Svo
mælti hún hæversklega: „Eigum við
| að koma í gönguferð, eða bara
standa hér og tala?“ |
„Þér getið víst áreiðanlega bitið
frá yður, ef þér viljiö það við hafa
og eruð eins og þér eigið að yður,
er ekki svo? Eins og furðulegt ígul-
ker, nema hvað mænan er lengri
— og broddamir hvassari?" Gail
Kerr hló við. „Ég er ekki að sveigja
aö brjóstum yðar, sem öll þjóö yð-
ar dýrkar og dásamar. Þetta er ekki
heldur nein illkvittni. Ég sé það ein-
faldlega, að þér skerið yður úr
fjöldanum. Maður gleymir ekki auð
veldlega andlitinu, eftir að hafa séð
yður setja upp gremjusvip." Hún
þagnaði við og hélt ofan þrepin, af
veröndinni.
Það lá götuslóði þaðan og fram
á bjargbrúnina. Báðum megin við
stíginn stóöu stórir grágrýtisstein-
ar, grónir skófum og mosa, sums
staðar gat að líta lágt og kyrkings-
legt kjarr, kræklótt tré á stangli,
þar sem grásteinsklappirnar stóðu
, ekki upp úr grunnum jarðveginum,
■ harðar og stormfáðar. Skammt frá
bergbrúninni lá slóðin yfir mjóan
! stíg, sem lá meðfram berginu, og
I þegar þær komu á stíginn sá Laura j
smáhýsið, aðseturstað Christians I
St. Laurents, í skugga fjallsins.
Úti fyrir stóð gamall bíll af Jagúar-
gerð, flekkóttur af seltu og ryði.
Skammt frá lá svo vegur upp í
fjöllin, sem hún hafði ekið kvöldið
áður. Þarna stóðu allmörg önnur
smáhýsi í skjóli fjalls og kletta, og
frá einu þeirra kom maður, sem
gekk eftir stígnum til móts við þær.
Laura þóttist kenna þar þann rauð-
skeggjaða, sem verið hafði borð-
nautur þeirra við kvöldverðinn. Nú
bar hann ljósmyndavél í ól um öxl
sér og hélt á samanlögðum þrífót
undir hendinni. Hann veifaði og
kallaöi til þeirra, hljóp við fót síö-
asta spölinn.
Hann var mikill vexti, vel á sig
kominn og hreystilegur, hálffertug-
ur ef til vill, en virtist yngri fyrir
það hve snöggt hann var klipptur,
þrátt fyrir skeggið. Að þessu sinni
var hann f veiðimannajakka með
mörgum vösum, hermannadúkbux-
um og með fjallgönguskó á fótum.
„Kjáninn Kahler," varð Gail að
oröi.
„Yður fellur ekki við hann.“
„Hann er hér einmitt réttur maó
ur á réttum staö, býst ég við. 'i
viö eigum ekkert sameiginlegt. —1
Hann vill umfram allt taka ljós-
myndir af fiskum fyrir mig, en ég
hef ekki nein not fyrir ljósmyndir
af fiskum. Við skulum koma niður í
fjöruna. Stendur yður það ekki á
sama?“
„Ef þið viljið einungis gera mér
þann greiða að standa þarna andar-
tak,“ hrópaði Kahier til þeirra, „þá
fæ ég tækifæri til að taka þá falleg-
ustu litmynd, sem sögur fara af.
Bean gamli getur gefið hana út sem
póstkort... Hafgúan — og hafgú-
urnar, skiljið þiö.“
„Nei, þakka þér fyrir, Rodney,“
svaraði Gail. „Enga mynd af mér.“
Rodney Kahler leit spyrjandi,
næstum biðjandi á Lauru. „En þér
.,. meöal annarra orða, hvernig
líður yður í dag?“
„Ég hef allt í einu komizt að raun
um, að ég þoli ekki að sjá ljós-
myndavél."
„Ofnæmi fyrir ljósmyndum, ha?
Jæja, sé það satt, þá eruö þér á-
reiðanlega fyrsta konan, sem ég
veit til að kennt hafi þess kvilla.
Það hlýtur að vera atvinna yðar,
sem hefur leikið yöur þannig."
„Við erum einmitt að leggja af
staö niður klettana, ofan í fjöruna,“
i sagði Gail. „Viö veröum því að
1 kveðja þig í bili.“ Svo sneri hún
j hér að Lauru. „Þér veröið að fara
í gætilega. það er bratt ofan bergið.“
I „Hvað kemur til, að þú getur
. aldrei látið vesalings manninn f
! friði?“ spurði Rodney Kahler. „Þú
! hlýtur þó aö sjá, aö hann vill fá
að vera einn.“
Gail sendi honum reiðilegt augna-
tillit. „Hvað áttu við?“
„Ég sá hann hérna á ferli fyrir
; stuttri stundu. Þú ætlar að sjálf-
sögðu að halda suður fjörusand-
inn?“
„Ef þér er það ekki beinlínis í
mein, þá ætlum við einmitt þá leiö-
ina,“ sagði hún. „Meö því móti fá-
um við tíma til að ganga nokkum
spöl undir björgunum, þrátt fyrir
aöfallið. Hvers vegna geturðu aldrei
stillt þig um að skipta þér af því,
sem þér kemur ekki við, Kahler?“
Kahler hló. Hann horfði meðfram
bergbrúninni, þegar hann mælti.
„Já, í alvöru talað, þá ættuð þið
að fara gætilega. Það hefur veriö
aö hrynja úr bjargbrúnunum í alla
nótt og í morgun, eftir rigningar-
hvolfurnar í gær. Ég hef heyrt
það...“
„Hefurðu heyrt hvað?“
„Grjóthmn. Þunga dynki, meira
að segja, svo að það hafa ekki ver-
iö neinir smáhnullungár." Honum
varð litiö til Lauru. „Það yrði ekki
beinlínis gaman að fá stærðarklett
ofan á kollinn á sér ...“
„Hefurðu athugað stærðfræöileg-
ar líkur fyrir þvf, aö slíkt geti kom-
ið fyrir?“ spurði Gail Kerr. Svo
sneri hún sér aö Lauru. „Við skul-
um koma,“ sagði hún og lagöi af
strað niður' einstigið.
Laura dokaði viö andartak, horfði
fram hjá Kahler, heim að kránni.
Þetta var f fyrsta skiptiö, sem hún
virti fyrir sér bygginguna úr hæfi-
legri fjarlægð til þess að geta greint
svip hennar og yfirbragð, þar sem
hana bar við myrkan skóginn. Sér-
kennilega stílflúruð bygging frá lið-
inni öld; það voru einungis bílarnir
á stæðinu, sem minntu á nútfg og
; líðandi stund. Hún tók eftir stóru
bogagluggunum, hinu nákvæma!
jafnvægi í , staðsetningu þeirra og !
j allri gerö. Hún sá skákmennina i
I koma út á veröndina og leggja af i
stað niður stíginn. Þeir báru alpa-
| húfur á höfði, sá eldri talaði án af-
j láts, ómurinn af orðum hans barst
aö eyrum hennar undan vindinum,
og aö venju sveiflaði hann höndum
til áherzlu. Síöan kom Trölli fyrir
homið á byggingunni, nam staöar
og horfði í áttina til þeirra, Kahler
og hennar.
„Jæja,“ sagði hún við Kahler. ,,Ég
þakka yður viðvörunina ...“
Að svo mæltu lagði hún af stað
niður einstigið, hikaði andartak, fet-
aði sig svo eins gætilega og henni
var unnt niður tæp þrepin. sem
höggvin höföu veriö í bersfláann
Reyndar vissi hún aö þerta gai
hvorki veriö hættuleg né erfið leið
þvf aö Gail hafði hlaupið niður viö-
stööulaust og stóð nú niðri á fjöru
sandinum og beið.
Þótt varla væri byrjað að falla að
var fjörusandurinn ekki nema mjó
ræma þama undir björgunum, hvít
ur og ...júkur ægissandur, sums
staöár nærri slitinn sundur af kletta
snösum sem sköguöu fram úr berg
inu. í suður breikkaöi sandræman
jafnt og þétt, að höfða, sem lokaði
allri útsýn nema til hafs og him
ins, Þar braut sjóina án afláts með
þungum gný við brattar klettaræt-
ur, en bergið margfaldaði gnýinn,
þeytti hljóöinu frá sér eins og glitr
andi sjávarlöðrinu.
Þú tekur mig með þér eða ég öskra Henni er alvara. Hún tilheyrir fólkinu
og þá koma allir hermennimir í Kor-UI- hér. Ég skii hana eftir við jaðar fmm-
Dan hingað í hellinn. skógarins. Komdu þá, hljóðlega.
Hagstæðustu yerð.
Greiðslustilmálar.
Vernðið verkefui
íslenzkra hanða.
FJÖLIÐJAN HF.
Sími 21195
Ægisgötu 7 Btofc
Maðurinn sem annars
aSdreá les augiýsingar
auglýsingar
allir
lesa
LÁTIÐ OKKUR INNHEIMTA...
Oað sparat vðut t'ima og ójbægmc/i
INNHEIMTUSKRÍFSTOFAN
Tiarnargötu JO — III hæð — Vonarstrætismegin — Simi 13175 (3tínur)