Vísir - 25.09.1968, Síða 4

Vísir - 25.09.1968, Síða 4
/ Kirsten Peuliche. Hópur frægra danskra leikara kastar klæðum á sviðinu Hippíasöngleikur einn í Dan- mörku hefur hneykslað marga. Stór hópur frægra leikara kastar klæðum á sviöinu og stendur þar berstrípaður. Þetta er í leiknum „Hárið“, sem sýndur er í Glad- saxe leikhúsinu. Ýmsir hafa orðið til þess að mótmæla þessum ósköpum opinberlega. Nú erú sýn- ingar að hefjast fyrir börn. For- svarsmaður leikhússins segir: „Börnin munu skemmta sér mjög vel og líta á þetta allt sem ósköp eðlilegan hlut og sjálfsagðan. Nokkrir hinna fullorðnari kennara •:f, eftirlitsmanna munu þó vísir t:l að hneykslast". I.eikkonan Kirsten Peuliche, ein leikenda segir um þetta: „Ég finn ekki hjá mér neina sérstaka íöngun til að afklæðast, og það hefur engin sérstök áhrif á mig, þótt hinir geri það. Ég vil þó ekki taka þátt í þessu, þótt ég geti ekki skýrt, hvers vegna ég vil það ekki. Það er ekki vegna þess, að ég sé feimin, en ef til vill hef- ur það nokkuð að segja, að ég er gift. Eiginmaðurinn hefur þó ekki sagt orð, og ég held, að hann mundi ekki gera það“. Hvað svo sem Kirsten líður, halda allir hinir áfram að kasta klæöum sínum á sviðinu. Ákærandi í thalido- mid-málinu gerist kvikmyndaleikari Ákærandinn í thaiidomidmál- inu fræga í Svíþjóð, Henning Sjöström, varð þekktur um alla Evrópu fyrir framgöngu sína í því máli. Lyfið thalidomid er talið hafa valdið dauða og vansköpun fólks, einkum barna. Henning Sjöström er þó einnig frægur að öðru. Hann er talinn mesti „play- boy“ í Svíaríki. Fyrir alla þessa verðleika hefur honum boðizt tækifæri til að leika í kvikmynd- um og í sjónvarpi. Meðleikandi hans er Ulla Jacobsson, sem lék meöal annars I kvikmyndinni „Hún dansaði um sumarnótt“. Þau leika í myndinni „Bangsi", sem Arne Mattson stjómar og verður gerð við Kaup- mannahöfn. Henning Sjöström mun einnig leika verjanda í sjón- varpsþáttum, sem vestur-þýzka sjónvarpið hefur keypt. Hann gefur tekjur sínar af þessum leik í sjóð til styrktar fómarlamba lyfsins thalidomid. Hann á að leika lögfræðing í öllum myndunum, en sjálfur kysi hann helzt hlutverk glæpamanna. Hann vill stöðugar breytingar. Henning Sjöström er 46 ára og hefur um langt skeið dvalizt í klaustri Búddamunka í Tíbet. Þar hefur hann stundað hugleiðslu. Svo sólbakaður var hann, að hann þurfti ekki andlitsfarða, við fyrstu upptökur kvikmyndarinnar „Bangsi". Auk þess er hann síð- hærður. Þessi óvenjulegi maður er því merkilegasta blanda virðulegs lögfræðings og spraðabassa. And- legheitin eru þó að jafnaði ofan á. Hann hefur ritað nokkrar bækur, alvarlegs eðlis og aðrar, er vekja hneykslun fólks. Brátt mun koma út eftir hann bók um eðli búdd- ismans. Afrekaskrá Hennings Sjö- ströms er svona: -<S> wáfw' 1 Lars Magnus Lindgren. Hann átti II msm drýgstan hlut | ( “ ,5, |p||i| f myndinni „Kæri Jón“. Henning Sjöström og Ulla Jacobsson viö leik í kvikmyndinni „Bangsi“. — Hann hefur keppt f spjót- kasti í landsliöi Svía. — Situr á fyrsta bekk við allar frumsýningar. — Á Rolls-Royce bifreiö fyrir hálfa aðra milljón króna. — Lítur út eins og gleðimaður. — Lætur sig aldrei vanta við hnefaleika. — Mest umræddi búddisti i Svfþjóð. — Hefur skrifað umdeildar bækur. — Var ákærandi t thalidomid- málinu. — Leikur f kvikmyndinni „Bangsi“. — Leikur í sjónvarpsþáttum. Hvað kemur næst? Lögfræðing- urinn hyggst reyna enn nýjar leið- ir. Hann verður bókstaflega að lifa í stöðugri tilbreytingu. Vænt- anlega mun enn eiga eftir að fréttast nánar af Henning Sjö- ström í náinni framtíð. Maburinn bak v/ð „Kæri Jón" meb nýja mynd: Fjármálajöfrar og ástir hippía Kvikmvndahöfundurinn Lars Magnus Lindgren stóð að mynd- inni „Kæri Jón“, sem sýnd var hér í fyrra við talsverða aðsókn og umtal. Ástarlýsingar þóttu op- inskáar, en sfðari sænskar kvik- myndir hafa þó slegtð öll met í þeim efnum. Lindgren hefur nú mörg jám í eldinum. Hann hyggst gera kvikmynd eft ir sögu Graham Green „Hinir skipreika“, sem fjallar um fjár- málajöfurinn sænska Ivar Kriiger. Þá vinnur hann að mynd með hippíabrúði og miðaldra lærdóms- haus í aðalhlutverkum. Kvikmyndin „Kæri Jón“ vakti mikla athygli í Bandaríkjunum, þar sem opinskáar ástarlýsingar eru sjaldgæfar. Ástarlíf hippíanna verður áreiðanlega fullkomlega „sænsk“ kvikmynd og mun vekja heimsathygli. „Áþreifanleg“ velmegun Það varð mörgum á að brosa yfir þeirri niðurstöðu, sem birt var í Vísi, að íslenzkir karlmenn væru 5 kflóum þyngri, en Jafn- aldrar þeirra f Svíþjóð. Rann- sókn þessi fór hérlendis fram á vegum Hiartavemdar f Reykja vfk, en í Svíþjóð var miðað við rannsókn, sem fór fram f Eskils- tuna. En þessar niðurstöður eru víst vart tll að brosa að, því holdmiklum mönnum er meiri hætta á ýmsum velmegunar- sjúkdómum, en þeim sem eru í meðalholdum. Þessi kroppþunga samanburður kemur fram í við- tali við Ólaf Ólafsson lækni, sem er forstöðumaður rannsókna þessara á vegum Hjartavemdar, og kemur fram f viðtalinu, áð hyggilegast sé fyrir menn að ná af sér þessum aukakílóum, sem menn hafa flestir hverjir. Samkvæmt þessu er ljóst að ofát er ekki síöur heilsusplllandi en skortur. Það er einkennilegt til þess að hugsa, að á sama tíma og við virðumst samkvæmt þessura niðurstöðum borða okk- á góðri leið að verða heimsins feitasta þjóð. Þetta hafa vafa- laust verið orð að sönnu. Niðurstaðan með þessi fimm kíló er f aldurflokknum 45— 55 ára. Ef við gerum það að nefna það svo. Þpð verða hvorki meira né minna en 50 tonn. Þá vaknar sú ápurning, hversu mik- ið magn af matvælum burfi til að hleypa slikum ofvexti í menn, en þá vandast nú dæmið. En Umdnq Götu ur til óbóta, þá skuli ein allra bezta viðskiptaþjóð okkar svelta suður í löndum. Gæðum jarðar- innar virðist misskipt. Einhvern tima hlustað ég á húsmæðraþátt með öðru eyranu, og heyrði þá aö stjórnandi þátt- arins ráðlagði húsmæðrum að gefa bændum sínum meira af grænmeti, því íslendingar væru gamni okkar að slá þessu upp í svolítiö reikningsdæmi, þá getum við vafalaust komizt að furðulegustu niðurstöðum. Viö skulum gizka á, að íslenzkir karl menn f þessum aldursflokki, 45 —55 ára, séu tíu þúsund. Þá er auövelt að reikna út hversu mörg kíló af kiöti eða spiki er hreinlega ofvöxtur, ef það má öllum er Ijóst að ofátið nemur stórri upphæð, hvort sem við reiknum í kílóum eða jafnvel f peningum. Auövitað má velta svona dæmum fyrir sér enda- laust, því niðurstöður verða aldrei nákvæmar. En hitt er ljóst að góðærin hafa vaniö okk- ur á vonda siði til matar og drykkjar. Niðurstaðan er sú, auk hinnar heilsufarslegu niður- stöðu, að við höfum lifað um efni fram, og étið okkur út á gaddinn. Það væri nú gott að eiga f varasjóði, í eins konar verðhruns-sjóði sjávarútvegsins andvirði ofátsins, sem þeir bera framan á maga sínum hinir tíu þúsund herrar á aldrinum 45— 55 ára. Það yrði líklega dálagleg fúlga. Þó þetta reikningsdæmi sé í gamni gert, þá er alvaran sú, aö við hefðum f heild verið betur undirbúin að mæta verðhruni og aflabresti, ef þeir Iffshættir sem við höfum velflest tamið okkur væru hóflegri, Þó að velsæld- in hafi með niðurstöðum lækn- anna verið gerö „áþreifanleg", þá er hófleyslö það ekk; á ölíum sviðum. Hins vegar er hóifeyslð fyrir hendi á flestum sviðuic, og okkur meðvitandi, ef við hugs- um um það. Þrándur í Götu.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.