Vísir


Vísir - 25.09.1968, Qupperneq 9

Vísir - 25.09.1968, Qupperneq 9
Ví SIR . Miðvikudagur 25. september 1988. Búrfellsvirkjun I. grein: • Það hafa margir lagt leið sína upp í Þjórsárdal í sumar, að Búrfellsvirkjun, til þess að skoða þetta stærsta mannvirki íslendinga. Vegur- inn upp Hreppana, sem áður var þröngur krákustígur, er nú orðinn bein og þægileg þjóðbraut og hefur leiðin þangað upp eftir stytzt um eina 20 km síðan framkvæmd ir hófust við Búrfell. A/'irkjunin kemur ekki til með ~ að sýnast mikið mannvirki, þegar vegfarandinn litur hasa fyrst augum af Gaukshöfða á leið sinni upp Þjórsárdalinn. — Það, eina, sem sést, er myndar- legt aflstöðvarhús í vesturhlíð- um Sámsstaðamúla og fáein snotur íbúðarhús norðar undir hlíðinni. En að baki þessa húss verður fjórði hæsti foss á landinu inni byrgður í fjallinu 115 metra hár. Þar á Þjórsá eftir að belja^fram með öllum sínum þunga og knýja rafala, sem framleiða rösk lega þrisvar sinnum meira raf- magn á ári en allar okkar virkj- anir, sem þegar hafa verið byggðar. vöxtum á byggingartíma frá- töldum. Afköst virkjunarinnar verða 210000 kw og 1700 millj- ónir kw-stunda á ári, en saman- lagt afl Sogsvirkjananna þriggja er 89000 kw og vinnslugeta í meðalári 550 milljón kwst. Tíu þjóðir Það eru æði margar hendur sem vinna þetta mikla verk. Fjöldamörg fyrirtæki, innlend og erlend vinna við bygginga- framkvæmdirnar: — Frakkar leggja háspennulínuna milli Búr fells og spennistöðvar, sem rísa á við Geitháls, en spennistöð- ina þar og aðra við írafoss sér þýzKt fyrirtæki um. Rafaiar og spennar eru keyptir i Japan. — Tæknibúnaður við stiflur og þrýstivatnspípur frá Þýzkalandi efni í háspennulínu frá Japan, Finnl. og ítaliu, stöðvarvarðahús in eru keypt frá Finnlandi. Alls munu um tíu þjóðir koma við sögu framkvæmdanna að ein- hverju ráði. Ráðunautar Landsvirkjunar við undirbúning hönnun og 'framkvæmdir eru bandarískir. Hjá Landsvirkjun vinnur hóp- ur verkfræðilegra eftirlitsmanna sem fylgjast með verkinu og Göngin skiptast í tvær æðar framarlega í fjallinu og hvor æðin skiptist í þrjár greinar, þegar kemur að aflstöðinni, eins og sést þarna á myndinni. Við hverja pípu verður svo tengdur rafall. Þýzka fyrirtækið Krupps framleiðir þessar risastóru vatnspípur, sem eru út af fyrir sig mjög merkileg „konstrúksjón“. „Erum búnir að finna rytmann“ — segja yfirverkfræðingar Fosskraft — Fram- kvæmdirnar við Búrfellsvirkjun hafa gengið mun befur en i fyrra 220 milljónir Þegar blaðamaður Vísis var á ferð uppi við Búrfell á fimmtu- dagskvöldiö blasti raunar við Ijósadýrð frá fimm hundruð manna þorpi, sem reist var þama sunnan við Sámsstaða- múla á einu sumri vegna fram- kvæmda. Þetta þorp hýsir þó aöeins rösklega helming starfs- mannanna við virkjunina. Ann- að þorp litiu minna var reist of- an við Múlann, þar sem Þjórsá verður stífluð. — Þessi þorp eru mestan part innflutt timburhús, og er þeim að- eins ætlað að standa þama, meðan á framkvæmdum stend- ur. Búrfellsvirkjun á samkvæmt áætlun frá í vor að kosta 2200 milljónir fuligerð, að sjá til þess að verktakar skili því eins og ætlazt var til. Auk þess taka þeir ákvarðanir um breytingar, sem óhjákvæmilega verða á verkinu og leysa ýmis verkfræðileg vandamál. Norræn samvinna í verki En aðalverktakinn við Búr- fellsvirkjun — fyrirtækið sem hiti og þungi dagsins hvílir á, er norræna samsteypufyrirtæk- ið Fosskraft. Að samsteypunni standa þrjú fyrirtæki: Danska fyrirtækið E. Pihl og sen, sem unnið hefur að mörgum verkefn um í Danmörku, Færeyjum Grænlandi og íslandi — m.a. við hafnargerð, jarðgöng og vatnsvirkjanir. — Sænska fyrir- tækið Sentab, sem starfaö hefur við stórframkvæmdir víða um heim og átti meðal annars þátt í að bjarga Abu Simbel hofinu í Egyptalandi frá því að fara í kaf í uppistöðulón Assuan-stífl- unnar. — íslenzki aðilinn að Fosskraft er Almnnna bygginga félagið, sem er stærsta verk- takafyrirtæki hér á landi og hef- ur meðal annars komið viö sögu Sogsvirkjana, Áburðarverksmiðj unnar, Sementsverksmiðjunnar, Laugardalshallarinnar, Sunda- hafnar o.fl. Má með sanni segja að þarna sýni' norræn sam- vinna sig í verki, merkilegt nokk. Fosskraft hefur skrifstofu sína í miðju þorpinu, í aflöngu timburhúsi. Þar glíma verk- frSeðingar og tæknimenn við ýmsar hliöar þess vanda, sem fyrirtækið hefur tekið á sig og gefa síðan hinum fjölmörgu verk stjórum og undirsátum fyrir- mæli um hvernig vinna skuli verkin. Halda áætlun í sumar Við hittum æðsta mann Foss- kráfj:, . saenska yfiryerkíræö- inginn Seren Langvad, og Pál Sigurjónsson yfirverkfræö- ing A.B.F. á staðnum og spjöll- uðum lítillega við þá um verk- iö. Eins og kunnugt er fóru ýms- ar sögur af því að verkinu mið- aði seint, einkum þó í fyrra sumar og haust er leið. — Þeir félagar bentu á línurit sem hengd hafa veriö upp á vegg í aöalskrifstofunni og sýna hversu hinir ýmsu hlutar verksins hafa unnizt miðað viö áætlun. — Samkvæmt því hefur áætlun verksii veriö haldið í flestum greinum í sumar og sumir hlut- ar verksins hafa heldur fariö fram úr áætlun. — Jú, ástæðan fyrir þessum góöa gangi í sumar, sagöi sænski yfirverkfræðingurinn, er í fyrsta lagi vinnukrafturinn. — Hann hefur verið miklu „stab- Um þetta gil á Þjórsá eftir að belja inn í Sámsstaðamúlann. Aðrennslið að göngunum er sprengt. bergið og verður fóðr- að með steinsteypu næst opinu. illi“ í sumar en í fyrra. Auk þess eru menn nú orðnir van- ari. Þeir eru komnir „inn í rythmann“ og afköstin hafa aukizt. Það var mun auðveldara að ráöa fólk í vor, sögðu þeir. Framkvæmdirnar liðu í fyrra- sumar fyrir það aö fá ekki vinnu kraft en í vor voru 200 manns á biðlista. Steypa eins og í þúsund einbýlishús Framkvæmdunum verður hald ið áfram að svo miklu leyti sem unnt er fram eftir hausti og bjuggust þeir við að starfsmenn yrðu yfir 800 fram að jólum, en sennilega um 500 eftir jólin. I vetur verður gengiö frá stöðvar húsinu, jarðgöngin verða fóör- uð innan, þar sem þess þarf, en það varð meira verk en búizt var við í upphafi. — Annars kváðu þeir verkfræðingarnir steypuverk allt vera vel á veg komið. Alls fara um 90 þúsund kúbik metrar af steypu í framkvæmd- imar, eða álíka mikið steypu- magn og í eitt þúsund sæmileg einbýlishús. — Er þetta nokkru meiri steypa en áætlað var í upp ^ hafi, einkanlega þó í jöröu niöri í ýmsum undirstöðum. Þaö er margt handtakið eftir að vinna áöur en fyrri áfangi virkjunarinnar klárast. Afköst- in verða þá sem svarar rúmlega heimingi endanlegrar orkugetu virkjunarinnar. En einhvern tíma um mitt næsta sumar verö ur vatninu hieypt gegnum göng- in í Sámsstaöamúla og 1. septem ber veröur straumi hleypt á há- spennulínu,, sem flytur orkuna til álversins í Straumsvík og á neyzlusvæðiö hér í þéttbýiinu. Þá er tiltölulega lítill hluti eftir af verkinu. Það þarf aðeins aö fjölga túrbinum í aflslöövar- húsinu til þess að virkjunin nái fullum afköstum og þei-i ■-am- kvæmdum kann að verða flýtt eitthvað, eins og byggingu ál- verksmiðjunnar.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.