Vísir - 25.09.1968, Blaðsíða 16

Vísir - 25.09.1968, Blaðsíða 16
Miðvlkudagur 25. aept. 1968. Góð aðsókn hjó Vilhjólmi Góð aðsókn hefur veriö að mál- verkasýningu Vilhjálms Bergssonar í Bogasal. Fimm myndir hafa selzt, ein á kr. 35 þús. og nefnist hún Teningarn Sýningin er opin daglega kl. 2—10 s.d. og stendur fram yfir næstu helgi. Síldarnót brann á Akureyri Töluverður eldur varð, þegar kviknaði í skúr einum á sjávar- kambi fyrir norðan Glerárása hjá Akureyri á mánudag. Skemmdist skúrinn mikiö en inni i honum brann síldamót lítil, ein af þeirri gerðinni, sem notuð er til velða inni á Pollinum. Gatan lokaðist í tvo tíma vegna óreksturs i • Loka þurfti Kaupvangsstræti á Akureyri í tvær klukkustundir I gærdag vegna áreksturs, sem varö þar milli gröfu og bifreiðar. Rakst blfreiðin á gröfuna, þar sem hún var að verki hjá húsi Sápugerðar- innar Frigg. Við áreksturinn rann allur vökvi af tækjum gröfunnar á götnna. — Myndaðist við það mikill lækur, sem rann niður bratta götuna, en við það skapaðist hætta annarri um- ferð, vegna hálku. Þurfti að loka götunni meðan vökvinn var hreins- aður upp. Við áreksturinn skemmdist bif- reiðin all mikið, en grafan lítiö sem ekkert. Frá hóteli i Reykjavík, — útlendingarnir kvarta yfir dýrtíðinni hér, — enn frekari hækkun mundi geta haft örlagaríkar af- leiðingar að áliti sérfræðinga í ferðamálum. DYRARISNAFSAR NÆSTA SUMAR? Veitingamenn ræða hækkanir — Verð til erlendra ferðamanna verði það sama og 7966 og 1967 • Veitinga- og gistihús • ráðgera nú einhverjar • hækkanir á þjónustu ; sinni fyrir næsta sumar. • Á haustfundi Sambands ; veitinga- og gisíihúsaeig • enda, sem var haldinn nú í vikunni, var rætt um þann möguleika að hækka verðið að meðal- tali um 12—13%, að því er Konráð Guðmunds- son, formaður sambands ins, sagði Vísi. Á fundinum kom fram, að menn teldu þessa hækkun nauö synlega til aö mæta þeim hækk- unum á kostnaði innanlands, sem þegar eru orðnar og fyrir- sjáaniegar eru. Þótt af hækkun- inni verði, munu erlendir ferða menn ekkl greiða nema sama verð miðað við döllara, er þeir greiddu sumarið 1966 og 1967, en nú í sumar varð lækkun á þjónustunni miðað við dollar. Þegar gengisfellingin var gerð haustið 1967, dem þýddi að doll arinn hækkaði um 33% miðað við íslenzka krónu, var hækk- un þjónustu gistihúsanna að- eins hluti af þessari prósentvís lækkun krónunnar og lækkaði því þjónusta gistihúsanna f raun og veru til erlendra ferða manna í sumar. Verðskrá gistihúsana var til umræöu vegna þess að gistihús- in þiirfa aö hafa gefið skýrslu um hvemig hún verður næsta sumar.fyrir 1. október. Erlendar og innlendar ferðaskrifstofur byrja þá að undirbúa sig fyrir ferðamannatímabil næsta árs. Engin endanleg ákvörðun hefnr verið tekin um hækkun ennþá. 4 Minjasafnið fær góðar gjafir ir Hjónin María Magnúsdóttir og Sverrir Sigurðsson kaupmaður, Ægisíðu 46, hafa nýlega afhent borgarskjalasafni og borgarminja- safni Reykjavíkur að gjöf ýmis skjöl og muni úr búi Magnúsar Benjaminssonar úrsmíðameistara og konu hans Sigríðar Einarsdóttur. ★ Meðal þessa eru skrautrituð handrit lióða eftir Benedikt Grön- dai, ljóðahandrit Þorsteins Erlings- sonar o. fl„ einnig er um að ræða muni gerða af Stefáni Eiríkssyni myndskera og ýmsa aðra gripi og skjöl, sem söfnunum er mikill feng- ur að. ■k Hér er um mjög kærkomna gjöf að ræöa, enda voru þau hjón meðal kunnari borgara Reykjavík- ur á sínum tíma og Magnús Benja- mínsson auk þess bæjarfulltrúi um skeið. Sýningu Helgu lýkur annað kvöld Sýningu Helgu Weisshappel í sýningarsalnum Hliðskjálf Lauga- vegi 31 lýkur annað kvöld. Máiverk Sólveigar freista • Listhncigð þjófa hefur til þessa verið lítt viðbrugðið og þvi kom það nokkuð flatt upp á fólk, þegar þess varð vart í gærkvöldi, að stol- iö hafði verið tveimur andlitsmynd unt eftir Solveigu Eggerz. Smámyndir þessar höfðu hangiö í stigagangi í Mokkakaffi. Voru báðar málaðar á tré að hætti Sol- veigar. Þeirra var saknað í gærkvöldi um kl. 10 og taldi starfsfólkið að mynd unum hefði þá verið stolið fyrir stuttu, ella hefði það saknað mynd- anna fyrr. Björgunarmenn gista í strœt- isvagni á Landeyjasandi — Og eru bjartsýnir á að ná Surprise út Gjöfin, sem barst borginni Tíu manna flokkur vinnur enn að björgun togarans Sur- prise, sem strandaði austur á Landeyjasandi. — Björgunar- aðgerðunum stjórna þeir Bergur Lárusson og Pétur Kristiánsson og náði Vísir tali af Pétri í morgun, en hann kom til Reykjavíkur í nótt. Sagði hann að björgun- araðgerðirnar hefðu gengið vel. Búið væri að rétta skipið af í fjörunni, en það hefur ver ið gert með því að grafa und- an skipinu að ofanverðu og strengja vira upp í land. Og er tekinn af þeim slakinn eft- ir þvi sem skipið réttist. Sagði Pétur að engar skemmd- ir sæjust á skrokknum, en lunn- ingin væri brotin öörum megin á kafla og brotnaði hún þannig rétt eftir strandið. — Sagði hann að þeir væru bjartsýnir á að skipið næðist út. — Hins vegar dettur engum f hug að fullyrða neitt um það, hvenær það mætti takast, það gæti allt eins orðið eftir viku, hálfan mánuð og jafnvel enn lengur og fer eftir hvemig aðstæður verða þá, en við von- um að þetta takist ef veður helzt svipað og það hefur verið. Þeir félagar gista f strætis- vagni þar austur á sandinum. Aðalvinnan er nú fölgin í því aö þurrka mótora og þrífa olíu sem flætt hefur út um allt vélar- rúmið með sjónum. Pétur kvaðst ekki mega láta uppi um björgunarlaun þeirra félaga, takist þeim að ná skip- inu út, en þar væri um ákveðna upphæð að ræða og samningar mun ákveðnari en við björgun danska skipsins norður á Mel- rakkasléttu í vor. «

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.