Vísir - 21.10.1968, Qupperneq 2
VIS IR . Mánudagur 21. október 1968.
2
— Fram og HG skildu jöfn 16-16 i fremur leióinlegum leik
— ÞEIR VORU óánægðir áhorf-
endumír, sem yfirgáfu Höilina
á laugardaginn eftir leik Fram
og dönsku meistarara H.G. —
Er 10 sekúndur voru til leiks-
loka var staðan jöfn og fékk þá
,hinn ungi og efnilegi leikmaður,
Björgvin Björgvinsson, knöttinn
, inn á línu, en honum brást boga-
Iistin og skaut í stöng. Lyktaði
því leiknum með jafntefli og
verða það að teljast sanngjörn
úrslit eftir gangi ieiksins. Fröm-
urum tókst $kki að ná ejns góð-
. um leík og F.H. á, dögunum, og
bví miður tókst þeim ekki að
knésetja Danina.
Leikurinn var allan timann mjög
jafn, en þó var hann aldrei spenn-
andi. 1 fyrri hálfleik leiddu Dan-
irnir alltaf, en Framarar fylgdu
þeim eins og skuggar, hvað marka-
skorun viðvék. Staðan í hálfleik
var aöeins 9—9, en Framarar jöfn-
uðu á síöustu mínútu hálfleiksins.
Siðari hálfleikinn byrjuðu Fram-
arar af miklum krafti og tóku
strax forustu, en er hálfiejkurinn
var háifnaður var staðan aftur orð-
in jöfn. Framarar fenjíu, eins og
fyrr segir, gullið tækifæri til aö
sigra, en tókst ekki.
Liðin. Langbezti maður Fram var
fyrirliðinn Ingólfur Óskarsson, og
sýndi hann sinn langbezta leik um
iangan tíma. Hann skoraði 6 mörk
og stjórnaði liðinu mjög vel. Sig-
urður Einarsson sýndi mjög góöan
varnarleik, en Gunnlaugur Hjálm-
arsson má muna sinn fífil fegri.
Hann skoraði 4 mörk, þar af 3 úr
vítaköstum. Var sjáanlegt, að hann
var ragur við aö skjóta að markinu
og skora, spm áöur var hans sterka
hlið.
Hjá Dönunum bar Carsten Lund
af og sýndi, að þaö var engin til-
viljun að hann var valinn í heims-
liðið. Carsten skoraði 9 mörk. Einn-
ig var Palle Nielsen ágætur og skor-
aði 4 mörk. Markvöröurinn Bent
Mortensen var afbragðsgóður og
sennilega einn bezti markvörður,
sem hingað hefur komjð,
Dómarar voru Bjöirn Kristjáns-
son og Reynir Ólafsson og dæmdu
þeir mjög vel erfiðan leik. Hg.
Vísis-maður kjörinn
knattspyrnumaður
ársins í Tímanum
Óheppni á síðustu mínútu
kom í veg fyrir sigur Fram
•u I atkvseðagreiðslu, sem dag-
^ blaðið Timinn hafði meðal
lesenda sinna var Hermann
Gunnarsson úr Val, einn úr rit-
stjórnarliði Vísis kjörinn með
yfirgnæfandi atkvæðamagni
„Knattspyrnumaöur ársins
1968“. Hann fékk 378 atkvæði,
en næsti maður sem var Þórólf-
ur Beck, KR, fékk 162 atkvæði,
þá Elmar Geirsson, Fram, 153,
Kári Ámason, Akureyri, 137,
Sigurður Dagsson, Val, 99, og
Ellert Schram, KR, 91.
Á myndinni er Hermann með
styttu, sem Tíminn veittí hon-
um í heiður skyni. Þess skal get-
ið, að Hermann hefur i sumar
leikið meö Valsliðinu, landslið-
inu, — og Vísisliði, sem vann
sjónvarpið, en þar var Hermann
svo heppinn að vera valinn í iið-
ið, þvi þar er barátta um hvert
sæti, þvf að starfsmenn Vísis
eru mjög harðir á sprettinum og
þykja harðir í horn að taka.
Mýtt heimsmet I
200 metra hluupi
kvenna
arnir tækju smáspretti og jöfnuðu.
Er tíu mínútur voru til leiksloka
var staöan 17—12 Dönum í hag,
en Islendingamir sýndu mjög góð-
an leik á síöustu mínútum og tókst
þeim að jafna, eins og þeirra var
von og visa.
Bezti maöur úrvalsins var tvi-
mælalaust Geir Hallsteinsson, en
hann skoraði 8 mörk. Jón Hjaita-
lín var ágætur í síðari hálfleik, en
aðrir léku undir getu.
Hjá Dönunum var Verner Gárd
mjög góður, og einnig Carsten
Lund. En „gamla“ brýnið, Bent
Mortensen var maðurinn á bak við
velgengni Dananna.
Dómarar vom Óli Ólsen og Magn
ús Pétursson. Þeir mættu mikilli
gagnrýni áhorfenda og leikmanna,
en sýndu það að þeir geta dæmt
vel. Þá vantar aðeins fleiri og stærri
verkefni. Hg.
■ Pólska stúlkan Irena Szewinska
vann gullverðlaunin í 200 metra
hlaupj kvenna á ÓL á föstudags-
kvöldið. Til þess þurfti hún að
setja nýtt heimsmet, 22,5 sekúndur.
Bandarísku stúlkurnar Tyus og
Barbara Farrell, sem taldar voru
sigurstranglegar, komu vel út úr
fyrra hluta hlaupsins en þá fóru
áströlsku stúlkumar Raelene Boyle
og Jennifer Lamy fram úr þeim, og
þegar 50 metrar vom eftir var það
hinn sterki endasprettur Irenu
Szewinska, sem nægði til sigurs,
en ást.rölsku stúlkumar komu í 2.
og 3. sæti, þær bandarísku í 4. og
6. sæti.
Gamla heimsmetiö átti pólska
stúlkan sjálf ásamt löndu sinni Ir-
enu Kirzenstein og var það sett
1965. Tími Boyle var 22.7 sek.,
jafnt gamla heimsmetinu, Lamy
fékk 22,8 sekúndur.
Sigurbergur skorar fyrir úrvalið í leiknum í gær.
anna og jöfnuðu á 58. mín.
LeiÓinlegasta leik i Hóllinni i langan tima lyktaói með jafntefli 20-20
0 Mikið lifandi skelfing-
ar ósköp ætla þeir að verða
okkur erfiðir þessir Danir.
Fyrst vinna Hafnfirðing-
arnir þá, síðan gera þeir
jafntefli við Fram og svo
gerast þeir svo ósvífnir að
gera jafntefli við landsliðið
' okkar. Það gengur ekki!
' Þeir verða að gjöra svo vel
að skilja að við erum orðn-
>ir aðeins betri en þeir.
Leikurinn í gær bar þaö samt
engan veginn með sér, að viður-
eignin væri á milli sterkustu hand-
knattleiksmanna Dana og Islend-
inga. Dómaramir fengu aldeilis að
heyra það af pöllunum, að þeir
væru ekki hlutverki sínu vaxnir og
var þeim meira og minna kennt um
„ósigur“ landans. Þeir áhorfendur,
sem horft hafa á handboltaleiki,
vita það nú orðið, að ef illa geng-
ur hjá öðrum aðilanum þá er dóm-
aranum hiklaust um kennt. Þetta er
leiðinda-ávani og átti miklu frek-
ar að reyna að gera betur heldur
en að kenna dómaranum um, því
að hann reynir ávallt sitt bezta,
Leikurinn í gær hófst með þrem-
ur mörkum Dana og voru margir
felmtri slegnir og bjuggust við yfir-
burðasigri Dana einu sinni enn! En
íslendingarnir unnu upp forskotið
og jöfnuðu metin. Fjögur mörk
gegn fjórum mátti sjá á Ijósatöfl-
unni og tóku þá áhorfendur að
hressast. En er leikurinn hafði að-
eins.staðið í tíu mínútur þurfti fyr-
irliði íslenzka liðsins Ágúst Ög-
mundsson, að yfirgefa völlinn og
kom i ljós, að hann var fótbrotinn.
Eftir áfall I'slendinganna tóku hinir
,,prúðu“ Danir við sér og í hálf-
leik var staðan 11 mörk gegn átta
Dönum í vil.
Síðari hálfleikur var aldrei
skemmtilegur, þrátt fyrir að land-
mgur unnu upp forskot Dan-