Vísir - 21.10.1968, Blaðsíða 16

Vísir - 21.10.1968, Blaðsíða 16
VISIR Mánudagur 21. október 1968. Bnnbrot um helgina • Þjófar unnu mikil spjöll I Hafn- arböðum Reykjavíkur vestur á Grandagarði um helgina. Þar voru brotnar ruður 02 skúffur í leit aö verðmætum og stolið þaðan vindl- ingum og vörum fyrir talsvert verðmæti. Meðal þess, sem stolið var, voru nærföt og vinnuvettling- ar, reykjarpípur og annað þvi um líkt. Nýfit hraðamet í fiðalSorcaflugi ® GULLFAXI setti nýtt hraðamet á dögunum í flugi til Mallorca, flaug vegalengdina á 3 klst. og 20 mín., eða á nærri því 1000 km hraða til iafnaðar á klUkkustund. Staða R'ikisábyrgðarsióbs um síðustu áramót: YFIR 40 AÐILAR MEÐ MEIRA EN MILLJÓN KR. VANSKIL ■ Ríkisábyrgðarsjóð- ur átti útistandandi kröf ur að upphæð tæplega 167 milljónir króna vegna vanskila á ábyrgð arlánum um síðustu ára mót. Kröfur vegna van- skila á endurlánum rík- issjóðs námu á sama tíma rúmlega 133 millj. króna. Mestu vanskilin voru hjá Flugfélagi ís- lands, um 27.5 milljónir, en vanskilin munu vera vegna þotukaupa félags- ins, sem það hefur ekki getað staðið í skilum með. Upplýsingar um innborganir og útborgan ir í ríkisábyrgðarsjóð- inn á þessu ári liggja ekki fyrir enn sem kom- ið er. Vanskilalistinn, sem Seðla- bankinn tekur saman eftir hver áramót ásámt innborgunum og útborgunum úr ríkisábyrgðar- sjóðnum og endurlánum rikis- sjóðs er langur og mikill eftir síðustu áramót. Um 300 lántak- endur eru taldir upp, sem hafa verið í vanskilum með greiðslur um áramót 1066 og 1967. Að- eins um 40 aðilar voru ekki taldir skulda vegna vanskila um siðustu áramót, en nokkrum þessara aðila hafa fengið eftir- gefnar skuldir eða þaer verið af- skrifaðar. 41 aðili skukiaði meir en eina miiljón kröna. Þeir gætu þó ver ið miklu fleiri, því margir stórir skuidunautar geta leynzt þar sem aðems eru skráð vanskil á lánum tfl einstakra verkefna, þannig eru t. d. skráð vanskil á lánum vegna austur-þýzkra skipa að upphæð tæpl. 52 millj. króna og vanskil vegna Marshall láns 23 millj. kr. Stærstu skuldunautarnir um síðustu áramót voru: Flugfélag ístands 27.5 millj. kr. Hafnar- gerð í Þorlákshðfn 22.8 millj. 10. síða. 0K DRUKKINN Á UÓSASTAUR 3 árekstrar við Ijósastaura i nótt og morgun Alvarlegt slys varö á gatna- mótum Sóleyjargötu og Skothús vegar í nótt um kl. 2, þegar fólks bifreið var ekið á töluverðri ferð á Ijósastaur. Ökumaður, sem var ölvaður, skarst mikið í andliti og stúlka, sem var farþegi í bílnum, skarst einnig mikið í andliti. Auk þess brotnuðu í henni tennur. Voru bæði flutt á slysavarðstofuna og önnur stúlka, sem hafði verið farþegi f bílnum, en hún hafði sloppið með smáskrámur. 1 annan stað var ekið á ljósa- ?taur við Óðinsgötu og sat öku- r.iaður ofurölvi undir stýri, þégar komið var að. Viðurkenndi hann að þafa ekið bílnum, en síðar sneri hann við blaðinu og þverneitaði að hafa átt nokkuð við það. Þriðji ölvaði ökumaðurinn lenti í árekstri við Nesti á Reykjanesbraut í nótt, og stakk af frá bfl sínum. Hann náöist þó síðar eftir nokkra leit og viðurkenndi þá, að hafa neytt áfengis áður. I morgun var einnig ekið á ljósa- staur við Laugarásveg, en þf braut ökumaður sundur staurinn stórskemmdi bifreið sína. Við á- reksturinn meiddist hann ilLi í and- liti og var fluttur á slysavarðstof- una. — Eiga fjórar biðskákir við Tékka íslendingar kepptu í þriðiu um- ' «í/. ■ vpIusicákmðtsiD^ í Lugano í Sviss við Tékka, sem er lang- sterkasta sveit riðilsins. Fóru allar skákimar í biö og ssgir ingvar Ás- mundsson fararstjórí íslending- anna í skeyti til Vísis, að ísiend- •ngarnir hafi lakari stöðu á ölium ixirðum. íslendingamir unnu Singapore í 'vrstu umferð 4-0 og tefldu síð- ?n við Tyrki í annarri umferð og haía 2 vinninga og eina biðskák út út úr þeirrí viöureign. Suer vann Inga, en Jón vann Uzman og Bjöm Kulur, en Guðmundur Sigur jónsson á unna biðskák á móti Ibrahinougou. í fyrstu umferðinni ur..,u Tékkar Tyrki 4—0 og í ann- arri umferð unnu þeir JTúnis 4—0. Eftir þessar þrjár umferðir er 'nðan þessi í 7. riðlinum: 1. Búlgaría 8y2 og 2 bið. 2. Tékkó- slóvakía.8 og 4 bið. 3. Kúba 6>/2 og 2 bió. 4. ísland 6 og 5 bið. 5. Túnis 5 og 2 bið. 6. Singapore 3 og I bið. 7. Tyrkland 1 og 2 bið. 8. Andorra 0 og 1 bið. Hefur viðurkennt 6 íkveikjur — Verður sendur i geðrannsókn i Reykjavik MAÐURINN, sem viðurkennt hefur að vera valdur að brun- anum á Laxamýri, hefur nú ját- að á sig samtals sex íkveikjur, að því er sýslumaðurinn á Húsa vík tjáð’ Vísi í morgun. Margt af þessu eru allgömul mál, en áður óupplýst, frá því um ára- mót ’66 — ’67. Sýslumaður sagði, að yfirheyrsl- ur hefðu staðið yfir allt frá því að maöurinn var handtekinn, og hefur Sigurður Briem fulltrúi sýslu manns annazt þær að mestu. Maðurinn, sem játað hefúr íkveikjumar, er á fertugsaldri, fjöiskyldumaður. Sýslumaður sagði að maðurinn hefði ekki komizt áður undir mannahendur, aö því undanskildu að hann hefði hlotið sektir fyrir ölvunarbrot, því að á stundum hefði hann verið töluvert hneigður tii víns. Sýslumaður sagði, að það gæti varla talizt til málsbóta að vera ölvaður við ikveikjurnar, en aftur á móti kynni að vera um sál- sýki að ræða, og verður maðurinn sendur til Reykjavfkur til geð- rannsðknar á morgun eða næstu daga. Ekki kvaðst sýslumaður að svo korrvnu máli treysta sér til að segja um, hver væri líkleg refs- ing fyrir íkveikjumar, í því sam- bandi væri margt að athuga. Yfirheyrslum er nú að mesfcu lokið á Húsavik, og aðeins beðíð eftir læknisvottorði til þess að mað urinn verði sendur hingað til Reykjavikur í geðrannsókn. ! Fischer hverfur Enginn veit hvar hann er niður kominn píuskákmótinu • Bandaríski skákmeistarinn • Fischer hvarf af hóteli sinu 2 á laugardaginn, sem tefla átti • fyrstu umferðina á Ólympíu- J skákmótinu. Enginn vissi • hvert hann fór, né hvers • vegna, að því er segir í skeyti 2 frá Ingvari Ásmundssyni, fararstjóra íslenzku skák- sveitarinnar. Bandarikjamennirnir höfðu engar spurnir af meistara Fisch- er í fyrrakvöld. Sumir haföa að hann hafi farið heim, aðrir að hann kunni að skjóta upp kollinum. Þetta er ekki í fyrsta skipti, • sem hann verður til vandræða á • stórmótum. Ekki varð svo lítið 2 veður út af honum á sfðasta 2 Ólynpkimóti, sem teflt var á • Kúbu. — Fischer átti að sjálf- * sögðu að tefla á fyrsta borði • Bandarikjamanna og mun sveit- • in missa mikið, ef hann lætur 2 ekki sjá sig meira á mótinu. — • Eitthvað I afði hann ekki verið * ánægður með aðbúnaðinn á mót- 2 inu og meðal annars hafði hann • heimtað að skipt yrði um ljös í 2 keppnissalnum, en það virðist • ekki hafa verið honum nóg. . 3 Jeppakeppnir eru orðnar mjög vinsælar og þegar þær eru auglýstar kemur ævinlega mikill fjöldi • íil að fylgjast með. í gær fór ein slfk fram og ’ á var þessi mynd tekin. 1 Wwiijftt

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.