Vísir - 28.10.1968, Blaðsíða 2
SSSWSfi
Bandaríska liðiö vann langflest verðlaun i Mexikó.
OL-ELDURINN SLOKKNAÐUR
1 NÓTT kulnaði Ólym-
píueldurinn í Mexíkó, —
og eftir fjögur ár verður
hann vonandi aftur lif-
andi í Miinchen í Þýzka-
landi, en þar verða
næstu leikar haldnir, —
20. Ólympíuleikamir.
Lokaathöfnin fór fram í
heföbundnum stíl, Ólympíufán-
inn var felldur, Ólympíueldur-
inn slökktur, en fulltrúar landa
þeirra, sem þátt tóku í leikun-
um gengu fylktu liði undir
þjóðfánum inn á völlinn.
Leikarnir voru I heild sinni
hreinir yfirburðir Bandaríkja-
manna, einkum í þeim tveim
greinum, sem taldar eru „aðal-
greinar“, þ. e. í frjálsum iþrótt-
um og í sundi. Alls unnu Banda-
ríkjamenn 45 sigra, en keppt
er um 170 gullverðlaun á leik-
unum, Sovétmenn komu næstir
með 29 sigra.
Það eru því fleiri en Islend-
ingar sem eru „litlir" á leikum
sem þessum. Margar stórþjóð-
anna koma heim með stærri
hóp en íslendingar, — en til-
tölulega rýran feng hvað tekur
til verðlauna. Þó mun nær
helmingur þátttökuþjóðanna
hafa nælt sér í verðlaunapen-
ing af einhverri gerð.
Bandaríkjamenn koma heim
með fangið fullt af gulli, silfri
og bronsi, — en vandamál þess
flokks eru stærri í sniðum en
nokkurs annars lands vegna
kynþáttavandamálanna, sem
upp komu á leikunum. Jafnvel
Rússar, sem eru skammaðir
opinberlega af æðstu mönnum
ríkisins eiga ekki við annað
eins að stríða.
Mjög sennilegt er að Mexíkó-
leikarnir eigi eftir að verða um-
ræðuefni iengi vegna þeirra
furðuafreka sem þar unnust,
einkum i frjálsum íþróttum, og
þá hvort ekki beri að meta
afrek uunin i háfjallaloftslagi á
annan hátt en þau sem unnin
eru á leikvöngum í hæð rétt um
sjávarmál.
“ ^ ■ ^ ^ É
L
Skipað í I
nefndir
hjá HSÍ
; Á stjórnarfundi 15. þ. m. i
1 skipaði stjórn H.S.l. eftirtaldar i
4 nefndir: 7
i Landsliðsnefnd karla: t
\ Hannes Þ. Sigurðsson, Hjörleif- /
ur Þóröarson, Jón Erlendsson. )
Landsliösnefnd kvenna: \
Þórarinn Eyþórsson, Heinz í
Steinmann, Viöar Símonarson. í
Landsliðsnefnd pilta:
ÍJón Kristjánsson, Hjörleifur J
Þórðarson, Karl Jóhannsson. t
Landsliðsnefnd stúlkna:
Þórarinn Eyþórsson, Heinz
, Steinmann, Viðar Símonarson. ,
J Dómaranefnd:
L Hannes Þ. Sigurðsson, Karl
t Jóhannsson, Valur Benedikts-
7 son.
J Mótanefnd:
t Rúnar Bjamason, Einar Þ.
4 Mathiesen, Birgir Lúövíksson.
í Stjóm H.S.Í. hefir skipt með l
; sér verkum þannig: 7
1 Axel Einarsson, formaöur, J
1 Rúnar Bjamason, varaformaður, «
t Valgeir H. Ársælsson, gjaldkeri, 4
7 Axel Sigurðsson, bréfritari, 7
) Einar Þ. Mathiesen, fundarritari. ;
\ Jón Ásgeirsson, meðstjómandi. J
4 Sveinn Ragnarsson, meðstjóm-
7 andi.
I
Lcikir í
undankeppni HM
í knaftspyrnu
Um helgina fóru fram þrír leikir
í undankeppni HM í knattspyrnu
1970, en aðalkeppnin fer fram í
Mexíkó.
Belgrad: Júgóslavía — Spánn 0:0.
Sofia: Búlgaría —Holland 2:0.
Nbola: Zambía—Súdan 4:2.
Atlanta: USA—Kanada 1:0.
,Farið sé í hvívetna eftir reglum
um búnað glímumanna
segir i tillögu GLI
9 Ársþing Glímusambands Is-
lands var haldið að Hótel Sögu
20. okt. s.l. og sett af formanni
sambandsins, Kjartani Berg-
mann Guðjónssyni.
• 1 upphafi fundarins minnt-
ist formaður tveggja glímu-
manna, sem látizt höfðu frá síð-
asta glímuþlngi, þeirra Jóns
Helgasonar, stórkaupmanns f
Kaupmannahöfn, og Jóhannesar
Jósefssonar, hótelstjóra á Hótel
Borg.
Gestir á Glímuþingi. Á Glímu-
þingj mættu úr stjórn íþróttasam-
liands íslands Gísli Halldórsson,
torset; I.S.I., sem kosinn var for-
íeti Glímuþings, Guðjón Einarsson,
Gunnlaugur J. Briem og Sveinn
Bjömsson. Aörir gestir voru: Þor-
steinn Einarsson, íþróttafulltrúi,
Þorgils Guðmundsson, Þorsteinn
Kristjánsson, landsþjálfari Glímu-
sambandsins, og Þórður B. Sig-
urðsson, ritstjóri Iþróttablaðsins,
sem kosinn var þingritari.
Þingforsetar voru kjörnir Gísli
Halldórsson, forseti fþróttasam-
bands Islands, og Sigurður Inga-
son, en ritarar Þórður B. Sigurðs-
son og Ólafur Guðlaugsson.
Formaður gaf skýrslu um starf-
sem samb_ndsins á s.l. starfsári,
en hún var fjölþætt og ýms mál í
athugun til eflingar glimuíþróttinni
í landinu.
Ýms mál voru tekin til umræðu
og afgreiðslu, meðal annars var
rætt um glímu í sjónvarpinu og
kom fram áhugi á aukinni sam-
vinnu við sjónvarpið eftir hina á-
gætu reynslu, sem fékkst af glímu-
keppni sjónvarpsins, en jafnframt
var bent á, að hvergi mætti slaka
á kröfum um hæfni þeirra glímu-
manna, sem þar kæmu fram.
Eftirfarandi tillaga var samþykkt:
„Ársþing Glímusambands ís-
lands, haldið 20. október 1968,
leggur áherzlu á, að farið sé í hví-
vetna eftir reglum um búnað
I glímumanna á opinberum mótum,
I og beinir því til stjórnar GLÍ, að
| viðurlögum verði beitt, sé út af
| brugðið."
I glímudómstól voru þessir menn
I kjörnir: Sigurður Ingason, Ólafur
H. Óskarsson, Siguröur Sigurjóns-
son.
Stjórn Glímusambandsins var öll
endurkjörin og er hún þannig
skipuð:
Kjartan Bergmann Guðjónsson,
Reykjavík, formaður, Sigurður
Erlendsson, Vatnsleysu, varafor-
maður, Sigtryggur Sigurðsson,
Reykjavík, gjaldkeri, Ólafur H.
Óskarsson, Reykjavík, fundarstjóri,
Sigurður Sigurjónsson, Reykjavík,
bréfritari.
Til vara:
Sigurður Ingason, Reykjavík,
Ingvi Guðmundsson, Garðahreppi,
■ Elías Árnason, Reykjavík.
16870-24645
Einbýlishús í Smáíbúðahverfi. Húsið er um 80 ferm. að
grunnfleti, hæð, ris og V2 kjallari. Á hæöinni eru 2 stofur,
2 herb., eldhús og bað, í risi eru 3 svefnherb., geymsla og
leikherb. Stór ræktuð lóð.
4ra herb. risíbúð í tvíbýlishúsi við Hátröð, Kópavogi.
Verð: 850 þús.
4ra herb. ný endaíbúð á 3. hæö (efstu) við Hraunbæ. Suð-
ursvalir. Frágengin lóð.
3ja herb. lítið niðurgrafin kjallaraíbúð við Rauðagerði.
Vönduð innrétting. Sér hiti.
3ja herb. lítið niðurgrafin kjallarafbúö við Hofteig. Sér
hiti. Björt ibúð.
2ja herb. sem ný íbúð á 1. hæð við Rofabæ. Verð 650 þús
2ja herb. nýleg íbúð í háhýsi við Ljósheima.
Austurstræti 17 (Silli&Valdi).3.hæð
Simar 16870 & 24645 Kvöldsimi 30587
Stefán J. fíichter sölum. fíagnar Tómasson hdl.
Tir n^TTiWl