Vísir - 28.10.1968, Blaðsíða 7
VISIR . Mánudagur 28. október 1968.
7
morgun
útlöild í morgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlönd
HÁLFRAR ALDAR AFMÆLI TÉKKÓ-
SLÓVAKÍU ER í DAG
Svoboda.
Afmælisins minnzt með stofnun sambandsrikisfyrirkomulags
0 Um helgina voru þing-
menn, sem sæti eiga á þjóð
þingi Tékkóslóvakíu farn-
ir að streyma til Prag,
þar sem þingið kom sam-
an í gær til þess að sam-
þykkja sambandsríkis-fyr-
irkomulag, eða skiptingu
landsins í tvö sambands-
ríki.
9 Efnt er til hátíðahalda,
en það er sorgbitin þjóð og
í vanda, sem til þeirra geng
ur, vegna hernámsins.
337A
DANISH
GOLF
Nýr stór! gódur
smávindill
Smávindill í réttri stærd, fullkominn smávindill, fram-
leiddur úr gædatóbaki. DANISH GOLF, nýr, stór!
Smávindill,sem ánægja er ad kynnast.DANISIÍ GOLF
erframleiddur afstærstu tóbaksverksmidju Skandina-
viu, og hefir í mörg ár verid hinn leidandi danski
smávindill.
Kaupid í dag DANISH GOLF í þægilega 3 stk. pakkanum.
SCANDINAVIAN TOBACCO COMPANY
DENMARK
Kvíði hefur píkt vegna óttans að
sorg fó’Iksins og beiskja brjótist út,
vegna framkomu Sovétrfkjanna, en
leiðtogum þykir nú afit undir því
komið, að ekki komi til árekstra við
Rússa. í fyrradag vöruöu leiðtogar
landsins al'lan almenning viö afleið-
ingum þess, ef allt færi ekki fram
með friði og spekt, og var aðvöir-
unum einfcum beint ti'l ungra
manna. Meðal fyrstu manna, sem
undirrituðu bréf þessa efnis voru
rfkisiforseti, Dubcek, flokksleiðtog-
inn og Cemik forsætisráðherra. Og
í gær tilkynnti Dubcek, að 14. fundi
kommúnistaflokksins væri frestaö.
í bréfinu var sagt, að horfast yrði
aif raunsæi við afleiðingar þeirra
atburða, sem hefðu haft ákvarðandi
áhrif á sögu þjóðarinnar nú, og
lausnarinnar yrði að leita með til-
liti til þeirra. Óhjákvæmilegt væri
að uppfyila Moskvu-sáttmálann í
samræmi við raunveruleikann,' en
öfgakennd afstaða gæti torveldað
eða jafnvel hindrað sMksa lausn.
í bréfiou er minnzt hinnar mikilu
reynsiu, sem þjóðin hafi orðið fyrir
og lýðræðissósíali sminn í landinu,
en þjóðin hafi staðizt allar raunir
og mótmælt með festu og hugprýði,
og von leiötoganna sé, að þjóðin at-
hugi vandlega aMt, sem hún taki sér
fyrir hendur, og fari með gát á
brautinni til framtíðarinnar.
í gær kom fyrsti hópur tékk-
neskra og slóvaskra flóttamanna til
Bandarikjanna. í hópnum voru 36
böm. Þetta er fyrsti hópurinn af
mörgum og er búizt við um 2000
til Bandaríkjanna fyrir áramót. —
Margt af þessu fóíiki kom slyppt
og snautt. Hjáiparstofnanir, og
stundum vinir og ættingjar, greiða
fyrir fólkinu.
Prag í gærkvöldi: I dag er hálf
öld liðin frá stofnun lýðveldisins
Tékkóslóvakíu og þess minnzt með
hátfðahöldum, en í gærkvöldi kom
þjóöþing landsins saman og sam-
þykkti einróma lög þess efnis, að
landið skyldi vera sambandslýð-
veldi, þar sem Tékkar og Slóvakar
yrðu bandalagsþjóðir með jöfn rétt-
indi.
Lögin eiga að koma til fram-
kvæmda á næsta ári og er litið á
þau sem fyrsta skref að nýrri
stjórnarskrá og með samþykkt lag-
Dubcek.
anna er lokiö með samkomulagi og
eftirminni'lega tengt hálifrar aldar
aifmælinu, að Slóvakar hafa eftir
langa baráttu náö langþráðu sjálf-
stæðu marki.
Þingið verður í tveimur deild
um og kosið í fulltrúadeildina meö
hlutfallskosningum. í efri deild eiga
Tékkar og Slóvakar jafna fulltrúa
tölu.
Stofnun sambandslýðveldisins
var eitt af helztu atriöum þeirrar
umbóta- og framfarastefnu, sem
boðuð var fy^r á árinu og löngu
fyrir hernámið.
Czernik forsætisráðherra sagði í
þingræðu, er lagafrumvarpið var
rætt, að meö samþykkt þess væri
girt fyrir, aö annar hluti landsins
neyddi hinn til þess að lúta vilja
sínum.
Ekki er búizt við, að kospingar
fari fram bráölega, og er meginor-
sökin hernámið.
StórskotaliBsbardagi viB
SúezskurB
3 oíiugeymar i Súez stóðu i björtu báli
i fyrradag og lauk honum með jbv/ að
1 fyrradag var háður stórskota- Hvor aöili um sig haföi kennt
liðsbardagi við endilangan Súez- | hinum um upptökin og báöir sent
skurð - varð aðeins stutt hlé á ! Ó^S&isráði kæru.
tvívegis. Nokkurt manntjón varð
Tel Aviv: Eban utanríkisráðherra
Ísraeís sagði á þingi í gær, aö þessi
atburður myndi verða til þess að
gera ísraelsmenn ákveðnari í að
hörfa efcki frá vopnaíhlésMnunni
fyrr en friður hefði verið tryggöur.
Fregnir hafa borizt um skothríð
á landamærum Jórdaníu og ísraels
og í frétt frá Líbanon segir, að
ísraelsmenn hafi varpað sprengjum
af sprengjuvörpum inn í þorp í
Lfbanon skammt frá landamærun-
liði beggja, eða mannfall 15—20
manns í liði beggja. Hvor aðili um
sig kennir hinum um upptökin og
hefur sent Öryggisráði kærur.
Israelsmenn segja, aö Egyptar
hafi laumað tveimur árásarflokk-
um yfir skurðinn.
Undir kvöldið gripu fsraelsmenn
til sama ráðs og fyrir ári, — þeir
beindu skoturn sínum að olíustöð-
inni í Súez, sem þeir lögöu í rúst
þá, en nú hafði veriö endurbyggð
með miklum tilkostnaði. Þrír geym-
ar stóðu í björtu báli, að því er
Lundúnaútvarpið hermdi á miö-
nætti aðfaranótt sunnudags.
New York í morgun: Greinar-
gerð byggð á upplýsingum frá eft>r-
litsliði Sameinuðu þjóðanna við Sú-
ezskurð, var birt í New York í
morgun, og segir í henni að Egypt-
ar hafi átt upptökin, að fallbyssu-
skothríðinni við skurðinn á laugar-
daginn var — hafið hana 10 mín-
útum áður en ísraelska liðið við
skurðinn fór að skjóta.
Kröfugangan í London
fámennari en ætiað var
Kröfugangan til mótmæla gegn
Víetnamstyrjöldinni varð fámennari
en búizt hafði verið við, þar sem
ýmsir háskólar og félög hættu við
þátttöku eða færri komu frá þeim
en ráðgert var.
Búizt hafði verið við, að þátttak-
endur yröu um 50.000, en í aðal-
fylkingunni munu hafa verið um
25.000 manns og lagði hún leiö
sína þannig, að hvergi var komiö
nærri bandaríska sendiráðinu, en
þar reyndu um 2000 „vinir Víet-
cong“ og Maósinnar að koma af
stað uppþoti, hentu flöskum og
flugeldum að fjölmennu lögreglu-
liöi, sem þar var fyrir, en það
haggaðist ekki.
London: Þáttakendur f mótmæla-
göingunni í gær munu ekki hafa
verið yfir 30.000 — tuttugu þúsund
færri en búizt var við fyrir helgina.
Aðalgangan.fór friðsamlega fram,
en um 6000 sögðu skilið við hana ’
og héldu til Grosvenor-torgs, þar
sem bandaríska sendiráðið er, og
hópar úr því liði réðust að fjöl-
mennu liöi, sem þar vdr, og reyndu
að komast aö byggingunni, en
hverju áhlaupi þeirra af ööru var
hrundið. 40 menn vom handteknir
og álika margir meiddust, þeirra
meöal lögregluþjónar. Allt var með
kyrrum kjörum í borginni eiftir að
kröfugangan var um garð gengin.
Callaghan innanríkisráðherra kom
á Grosvenortorg þegar mest gekk
á. Hann bar mikið lof á lögregluna
fyrir stillingu hennair og festo.