Vísir


Vísir - 28.10.1968, Qupperneq 8

Vísir - 28.10.1968, Qupperneq 8
8 V1SIR . Mánudagui 28. október 1968. VÍSIR Otgefandi Reykjaprent h.t. Framkvæmdastjóri Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoðarritstjóri: Axei Thorsteinson Fréttastjóri Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingastióri: Bergþór Olfarsson Auglýsingar: Aðalstræti 8. Slmar 15610 11660 og 15099 Afgreiðsla- Aðalstræti 8. Simj 11660 Ritstjóm - Itugavegi 178. Sfmi 11660 (5 linur) Áskriftargjald kr. 125.00 á mánuði innanlands I lausasölu kr. 10.00 eintakið Prentsmiðja VIsis — Edda h.f. íbúðalán á villigötum Fyrir um það bil tveimur árum lék flest í lyndi hjá húsnæðismálastjóm. Afgreiðsla lána var komin í svo gott horf, að nánast var hægt að afgreiða lánshæfar umsóknir jafnóðum. Biðtími íbúðarbyggjenda hafði stytzt verulega. Og upphæðin, sem féll í hlut hvers lánþega, hafði farið ört hækkandi árin þar á undan. Nú er aftur á móti kominn afturkippur í þessar lán- \ veitingar. Óafgreiddar lánsumsóknir eru famar að } hlaðast upp á nýjan leik. Talið er, að nú taki um það J bil hálft annað ár að bíða eftir láni frá húsnæðismála- j stjóm. Þetta hækkar byggingarkostnað umsækjenda, l þar sem þeir verða að gera hlé á framkvæmdum, sem l mikið fé hefur verið bundið í. / Og ekki bætir úr skák, að vegna skömmtunarinnar ) virðist kvótakerfi stjómmálaflokkanna vera farið að blómstra á nýjan leik. Umsækjendur verða að fá ein- hvem nefndarmanninn til að taka umsóknina upp á sína arma. Vísir spurði einn nefndarmanna, hvað gert væri við aðrar umsóknir, sem lánshæfar væru, en ekki væri fylgt eftir með viðtölum við nefndarmann, og sagði hann, að þær væru látnar mæta afgangi. Hvað veldur þessum þáttaskilum? Það eru 240 millj- ónirnar, sem farið hafa af fé húsnæðismálastjómar til framkvæmda hins opinbera í Breiðholti. Þessi upp- hæð er lánuð til 335 íbúða, sem þar eru reistar í fyrsta áfanga. Ef þessari fjárhæð hefði verið ráðstafað á venjulegan hátt, hefðu 630 íbúðabyggjendur í stað 335 fengið lán. j Að vísu hefur mikið verið lánað til annarra íbúða l en Breiðholtsíbúða, 850—900 íbúða á ári. Er það l töluvert fram yfir það, sem lofað var á sínum tíma. i En reynslan sýnir, að þetta nægir ekki. Lánsþörfin j er meiri og umsóknirnar fleiri. (' Ef Breiðholtsstefnan hefði ekki komið til sögunnar, /i hefði húönæðismálastjórn getað lánað um 300 aðilum /( til viðbótar eða hækkað upphæð hvers láns eða gert hvort tveggja. Líklegt er, að í því tilfelli væri nú hægt að afgreiða umsóknir jafnóðum, eins og fyrir tveimur ámm, og jafnframt væri hægt að lána um það bil 450 þúsund krónur út á hverja íbúð í stað 380 þúsund króna, sem nú er gert. Breiðholtskerfið hefur komið upp stéttaskiptingu meðal íbúðabyggjenda. Annars vegar fá Breiðholts- menn lánað nærri allt verð íbúðanna og á mjög hag- stæðum kjömm. Hins vegar fær allur annar almenn- ngur ekki lánaðan nema rúmlega þriðjung íbúða- verðsins og ekki fyrr en eftir langan biðtíma. Spumingin er því sú, hvort ekki hefði verið betra og sanngjamara að hafa gamla kerfið áfram og efla það smám saman í það horf, að hægt væri að lána veruleean hluta kostnaðar við byggingu íbúðarhúsa. Sú var þróunin fyrir tveimur árum, en hún hefur nú stöðvazt vegna Breiðholts. Prófkjör mund’ fara fram meS svipuðum hætti og venjulegar kosningar, þannig að kjördeildir yrðu starfræktar. 18. skodanakönnun V'isis: „Teljið þér æskilegt, oð stjórnmála- flokkarnir verði skyldaðir til að láta prófkjör fara fram um, hvaða menn skuli bjóða fram til Albingis?" Æskilegt að ákveth fram- boðslista með prófkjöri ♦ Þótt alilangt sé nú til næstu kosninga, er ekki þar meö sagt, að ekki sé hugsaö um ýmislegt i sambandi við þær. Menn velta fyrir sér ýmsun aðferöum til að gera kosningar nútímalegri, og auka lýðræöislegt gildi þeirra. ♦ f umræðum um kosningar er oft minnzt á nrófkjör, sem athyglisverðan hlut, sem gjarna mætti koma á hér, í þeim til- gangi, að tryggt sé, að eingöngu þeir menn fari í framboð, sem njóta almennra vinsælda og stuðnings. Fyrirkomulag þetta er víða notað, en einkum hefur það verið reynt í Bandaríkjun- um. ♦ Til þess að athuga, hvort fs- lendingar væru hlynntir þvf að breyta skipulaginu, framkvæmdi Vísir skoðanakönnun, og bar upp spuminguna: Teljið þér æsidlegt, að stjómmálaflokkam- ir verði skyldaðir til að láta próf kjör fara fram um, hvaða menn skuli bjóða fram til Alþingls?" essi hugmynd virðist eiga mikil ítök f fólki, því að yfirgnæfandi meirihluti þeirra, sem leitað var til, lýsti sig fylgj andi þvf, að þetta fyrirkomu- lag yrði tekið upp. Aðeins 23 af hundraði vom andvígir þvf, að hrófla við ríkjandi skipulagi á þessu sviði, og 22 af hundraði treystu sér ekki til að taka af- stöðu. Fleiri konur en karlar voru skoðanalausar, en það er eðli- legt þvi að stjórnmálaáhugi mun vart vera eins almennur með konum og körlum. Þó brá svo við á Akureyri, að fjómm sinnum fleiri karlar en konur kváðust enga afstöðu hafa til málsins. Heldur fleiri konur en karlar vom fylgjandi núverandi skipu lagi, þannig að breytingin átti meiri ftök meðal karimanna. Ekki leit út fyrir það yfirleitt, að þetta væri fólki mikið kapps mál, og sumir svömðu, eins og þeim hefði aldrei fyrr dottið þessi möguleiki f hug. Svörin vom margvísleg: „Já, það gæti kannski verið ágætt.“ „Já. þvf ekki bað.“ „Jú, ætli það væri ekki lýðræðislegra ,,Ég er ópólitfsk og leiði þetta hjá mér,“ sagði einhver kona. ,,Það er ekki æskilegt, að skylda stjórnmálaflokkana til þess ama, en það er mjög æskilegt að þeir taki betta upp af frjáls- um dáðum." Einn, sem svaraði virtist vera töluvert fúll út í stjómmálaflokkana yfirleitt, og sagði: ,,Það væri nú það minnsta sem þessir asnar <;ætu gert.“ Skoðanakönnunin var fram- kvæmd á venjulegan hátt, með s að hringt var f ákveðinn fjölda símanúmera. sem fundin vom samkvæmt vissu kerfi. Skoðu.._könnunin nær til alls landsins, bæði þeirra sem búa i bæjum og sveitum. Þó nær hún ekki til þeirra, sem ekki hafa aðgang að síma, en varla er ráð fyrir gerandi, aö það geti haft mikil áhrif f úrslitin. Ýmsar hugmyndir hafa kom ið fram um, hvemig prófkjöri innan flokkanna hér yrði bezt hagað. Prófkjör hefur ýmsa erf- iðleika f för mcð sér, en þá vari eflaust hægt að yfirstíga með nákvæmum undirbúningi. Tlugsanlegur gangur próf- kjörs gæti t.d. verið eitt- hvað á þessa leið: Ákveðnum manni er afhent áskomn frá flokksbræðmm sín um, þar sem þess er farið á leit að hann gefi kost á sér til próf kjörs. og kjörstjóm flokksins fær samþykkj hans til að birta nafn hans á kjörseðli, en þar em síðan birt nöfn allra fram- bjóðenda f stafrófsröð. Eitt helzta vandamálið í sam bandi við prófkjör innan flokka er, kjörskráin, það er að segja hverjir eiga að hafa kosninga- rétt. Að sjálfsö'-tu hafa flokks félagar á kosningaaldri leyfi til að areiða atkvæði í kosningun- um, en þar fyrir utan em ýmsir kjósendur, sem ekki em flokks- félagar, þótt þeir hafi hug á að greiða flokknum atkvæði sitt. Þessir óflokksbundnu stuðn- ingsmenn gætu síðan látið skrá- sig á skrifstofu flokksins, bar • sem kjörstjórn flokksins mundi síðan taka ákvörðun um, hvort þeir eigi að fá að greiða atkvæði * sem „líklegir stuðningsmenn". Ýmislegt fleira þarf að at- huga í sambandi við prófkjör. en ‘ þetta eru helztu atriðin. Reynsl . an mundi örugglega leiða eitt og annað í Ijós, sem lagfæra þyrfti með tímanum. ~f til vill gefa skrifin hér að framan til kynna að prófkjör sé sjálfsagt að taka upp sem miklu fullkomnara skirmlag, heldur en það sem við eigum við að búa . Málið er þó ekki svo einfalt því að okkar skipular hefur sína kosti. Töluvert örvggi er fólgið f þvi að fulltrúaráð á hverjum stað ákveði hverjir fara skuli ' framboð fyrir flokkinn. og baC fyrirkomulag útilokar einnig þann möguleika, að aðrir flokk ar geti haft áhrif á hverjir eíga sæti á framboðslistanum. Niðurstöður úr 18. skoðanakönnun Vísis urðu þessar: Jó............55% Nei...........23% Ódkveðnir . . 22% Ef aöeins eru taldir þeir, sem ákveöna afstöðu tóku, lítur taflan svona út: Ja........71% Nei.......29%

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.