Vísir - 11.11.1968, Blaðsíða 3
VISIR . Mánudagur 11. nóvember 1968.
J
Smáauglýsingar
þurfa að berast auglýsingadeild blaðsins
eigi síðar en kl. 6 daginn fyrir birtingardag,
AUGLÝSINGADEILD VÍSIS er i
AÐALSTRÆTI
Símar: 15610 • 15099
Sextán ára sunddrottning
Debbie litla Meyer er aöeins
16 ára, — og þó kom hún heim
úr sólinni í Mexíkó í sólina
heima hjá sér í Kaliforníu meó
þrjá gullpeninga frá Ólympíu-
leikunum. Debbie er um þessar
mundir hin ókrýnda sund-
drottning, því aö hún vann alla
gullpeningana f einstaklings-
greinum.
Don Schollander vann fern
gullverðlaun í Tokyo eins og
menn muna, en hann vann
tvenn þeirra í boðsundi.
Greinarnar, sem Debbie vann
eru 200, 400 og 800 metra
skriðsund.
Einn keppandinn á leikunum
sló þó Debbie litlu út, það var
tékkneska stúlkan Vera Gas-
iavska, sem vann fern gull-
verðlaun í fimleikum. Eftir
heimkomuna afhenti hún
Svoboda forseta og fleirum
leiðtogum landsins verðlaunin,
sem hún kvað þá hafa unnið til
ekki síður fyrir frammistöðu
þeirra í sjálfstæðismálum
Tékka.
HEILDSALA:
Pólar H/F, Einholti 6, Reykjavík Pósthólf 809 Símar 18401 og 15230.
Véladeild S.Í.S., Ármúla 3, Reykjavík — Pósthólf 180 — Sími 38900.
Framleiðsla: POLAR HJF.
Um þessar mundir er að hefjast frarr.IeiSsia hérlendis á rafgeymum undir hinu heimsfraega
vörumerki CHLORIDE- Hér er um að ræða samyinnu, sem tekizt hefur með rafgeymaverk-
smiðjunni Pólar H/F og brezka risafyrirtækinu Chloride Electrical Storage Co Ltd.
Samband íslenzkra samvinnufélaga hefur haft milligöngu um þessá samvinnu,.en það
hefur um árabil baft á hendi aðalumboð Chloride hérlendis.
Chlortbe RAFGEYMAR
Chloride rafgeymirinn framleiddur af Pólum H/F mun innifela allar þær tæknilegu nýjungar,
sem hafa gert Chloride heimsfrægt á þessu sviði.
Jafnvel enn mikilvægari er þó sú staðreynd, að ýmsir hlutar framleiðslunnar, sem of dýrt
er að framleiða hérlendis vegna takmarkaðs fjölda munu fást frá Chloride á mun lægra
verði vegna fjöldaframleiðslu þeirra fyrir heimsmarkaðinn.
Einnig hafa verið gerðar ráðstafanir til framleiðslu á geymum til margvíslegra annarra nota-
Pólar H/F munu framleiða 37 tegundir Chloride rafgeyma, sem panta má frá verksmiðjunni
beint eða Véladeiid S.Í.S.
Þessi samvinna hefur m. a. það i för með sér, að nú geta Pólar nýtt að 'vild allar tækni-
riýjungar Chloride, en á rannsóknarstofum þeirra vinna yfir 300 mánns og auk þess opnast
nú Chloride notendum alþjóðleg þjónusta Chloride fyrirtækjanna.
Bein afleiðing þessarar samvinnu er veruleg verðlækkun, sem er mismunandi-eftir gerðum.
Rétt stærð rafgeymis verður fáanleg fyrir allar tegundir bila, báta og dráttarvélá.*
SMÁSALA: UmboSsmenn um land allt.
Aðstaða til
innanhúss-
knattspyrnu
í vetur mun ætlunin aö komiö
I verði upp fullkominni aðstööu
I til að halda innanhússmót í
I knattspyrnu í Laugardalshöll-
inni. Til aö svo megi verða, þarf
1 að setja upp hlera meðfram
| vellinum, og er þá leikið „á
I batta" sem gerir það að verkum
að boltinn er ekki eins mikið úr
I leik og áður, og gerir ieikinn
skemmtilegri.
Rætt hefur verið um Islands-
I mót í innanhússknattspymu, og
I er ekki efi á að með því mundu t
knattspymumenn fá hentugt >
1 viðfangsefni til að glíma við í \
aðgerðaleysinu á veturna. ^