Vísir - 10.12.1968, Blaðsíða 3
»^15TK~ »
TEKST ÍR AÐ HNEKKJA
EINVELDINU?
IR hefur gengið betur með andstæðinga sina til
bessa — I kvöld leika IR og KR til úrslita /
körfuknattleik
■ Reykjavíkurmótinu í
Körfuknattleik lýkur í
kvöld. Fara fram þrír leikir.
0 í 2. fl. karla leika til
úrslita Ármann og KR, en
þessi félög hafa unnið alla
sína leiki í mótinu og verð-
,ur því eflaust um skemmti-
Iega keppni að ræða.
Þá Ieika saman í mfl. lcarla Ár-
Inann og IÍFR en lið þessi eru jöfn
að stigum og berjast eflaust af
kappi um þriðja sætið í mótinu.
Loks fer svo fram úrslitaleikur
mótsins, en hans hefur verið beðið
með mikilli eftirvæntingu. Leiða
l'.ar saman hesta sfna enn á ný,
hinir gömlu k'eppinautar KR og
ÍR, en félög þessi hafa borið höfuð
og herðar yfir önnur körfuknatt-
leikslið okkar síðustu árin. KR-
ingar núverandi Reykjavíkur- og
Islandsmeistarar hafa eflaust hug
á að verja titla sína i vetur. Þaö
veröur þeim þó að likindum erfitt
verk, þar sem það er mál manna,
að ÍR-liðið hafi sjaldan veriö sterk-
ara en einmitt nú. ÍR-ingar hafa
unnið alla leiki sina í mótinu með
miklum yfirburðum og munar þar
eflaust mestu um endurkomu Þor-
steins Hallgrímssonar, en hann
hefur stundað nám erlendis síðast-
Iiðiö ár. KR-ingum hefur ekki geng-
iö eins vel í þessu móti og undan-
farin ár. Liðiö átti í miklum erfið-
leikum gegn KFR, en tryggði sér
þá sígurinn á síöustu mínútunum
meö góðum leik. Það hefur ávallt
verið hin sterka hliö KR-liösins,
að þeir sýna orðið beztu leikina
þegar mótspyman er hvaö mest,
en þaö hlýtur aö einkenna leiki
sterkra liða. Þá munu KR-ingar
sakna Guttorms Ólafssonar, en
hann er viö nám við iþróttaskólann
á Laugarvatni. Var ætlunin aö
sækja Guttorm austur fyrir þenn-
an leik, en hann er meiddur á fæti
og getur ekki leikiö með.
Það er því óhætt að hvetja
iþróttaunnendur til aö fjölmenna
í „höllina“ í kvöld og sjá spenn-
andi keppni. Eitt er vfsí, að ÍR-
ingar munu sækja fast að Reykja-
víkurmeistaratitlinum, en KR-ing-
ar hvergj gefa eftir.
Keppnin hefst (í Laugardalshöll-
inni) kl. 19.00 en leikur ÍR og KR
hefst um kl. 20.45.
Akurcyri - Kefiuvík
21:21
Akureyri og Keflavík gerðu jafn-
tefli um helgina í 2. deildarleik
sínum í handknattleik. Heimaliöið
með menn eins og Gísla Blöndal
náði aldrei neinu út úr leik sínum,
virtist leggja einum of mikla á-
herzlu á Gísla, sem aftur reyndi
um of að skjóta, hafði ekki auga
fyrir því, þegar hann hafði dregið
með sér menn út í horn, að miðjan
opnaðist fyrir hina leikmennina.
Akureyringar munu næst leika
hér i Reykjavík 18. og 19. janúar,
en vera má að þeir geti að ein-
hverju leyti brúað það bil, sem
hér myndast með því að fá KR
í heimsókn í þessum mánuði.
VALUR er bezta handknattleiksfélagið í ár. Hér eru þrir flokkar Valsmanna og kvenna, meistara-
flokkar kvenna og karla og 2. flokkur kvenna. Fyrirliðamir voru að taka við verðlaunum sínum,
þegar myndin var tekin. >
Jöfnunarmarkið
Guðjóni Jónssyni var vel fagnað í fyrrakvöld, þegar hann skoraði
mark hjá Haukunum af 25 metra færi og jafnaði leikinn, — eftir
að leiktíma lauk, en Haukarnir uggðu ekki að sér, vissu ekkert
um aukakastið, sem var dæmt á nauðaómerkilegt brot á síðustu
sekúndu leiksins. Myndin sýnir vel fögnuðinn. Númer 6 er Guðjón. ’
Hver hlýtur
Vítastyttunu ?
■ Eins pg fram hefur komiö
í fréttum er nú keppt i
fyrsta sinni um svokallaða Víta-
styttu. Hlýtur sá leikmaður
styttuna, sem hefur bezta
hittnipróscntu aö loknu mótinu,
er miðaö viö 12 skot sem lág-
mark!
■ Fyrir leikina í kvöld eru
þessir leikmenn líklcgastir:
Köst:
Sig. Gíslason, ÍR 8-6 75%
Hjörtur Hanss., KR, 14-10 72%
Þórir Magnúss., KFR, 10-7 70%
Agnar Friðrikss., ÍR, 6-4 67%
Kolbeinn Pálss., KR, 16-10 63%
Þ. Hallgrímsson, ÍR, 12-7 60%
B. Öm Birgis,, Árm., 20-10 50%
G. Gunnarss., Árm., 10-5 50%
Staðan
Opið til kl. 10
á hveriu kvöldi
Allar vörur
okkar eru enn
á gamla verðinu
;qoqna
<J O Simi-22900 Laugaveg 26
V 1 I lllll
Staðan í meistaraflokki
tkarla f körfuknattleiknum er
tþessi fyrir síðustu leikina í
/kvöld:
(iR 3 3 0 235:147 6
tKR 3 3 0 183:135 6
;KFR 3 1 2 155:172 2
ÍÁRMANN 3 1 2 154:190 2
US 4 0 4 167:250 0
í 1. flokki er ÍR sigurvegari?
Imeð 6 stig, vann alla sína leiki.l
|KR varð annað með 4 stig.i
stúdentar með 2 og Ármann^
^ekkert.
I 2. flokki er spennandij
,keppni milli KR og Ármannsl
í úrslitunum, sá leikur fer framl
'í kvöld á undan leikjunum í(
meistaraflokki.
í 3. flokki vann KR með 6t
» stig, Ármann hlaut 4, ÍR 2 og‘
■ KFR ekkert, Aukaleikur fert
fram í 4. flokki milli KFR og|
Ármanns, sem bæði hlutu 4}
stig, IR hlaut 2 og KR' 2.
Stigahæstumenn i meistara- j
flokki eru þessir:
Þórir Magnússon, KFR, 80 stig./
Birgir Örn Birgis, Árm., 64.
Agnar Friðriksson, ÍR, 50.
Jón Sigurðsson, Ármanni, 46.
I Hjörtur Hansson, KR, 43.
I Kolbeinn Pálsson, KR, 43.
Þorsteinn Hallgriirísson, ÍR, 4Í.1
Siguröur Helgason, KFR, 33. (
I Birgir Jakobsson, ÍR, 29. /
Siguröur Gíslason, ÍR. 28.
I