Vísir - 18.12.1968, Blaðsíða 16

Vísir - 18.12.1968, Blaðsíða 16
.i».onan elskar ilr.iinn af.. Miðvikudagur 18,/des. 1968. i/œ Maðurinn þekkir' gæðin. Uuemeí 17B ■ Siml 21120 Reykjavik r .S JL œwennn Sími 13835 Hörkugaddur eftir veðurblíBu 20 stiga frost á Gr'ims- stóðum á Fj’óllum — 9 stig i Reykjavik ® Margir veigruðu sér við að fara fram úr hlýjum bólun- um í morgun, næðingurinn um ?luggana vitnaði um kulda, bif- reiðarnar veigruðu sér einnig við að fara í gang og margur bíl- stjórinn varð að fara bíllaus í vinnuna. Frostið var 9 stig í Reykjavík í morgun en mest á landinu 20 stig á Grímsstöðum á Fjöllum. Mesta frost á láglendí var innarlega í Skagafirðinum á Nautabúi 16 stiga frost. Annars staðar á landinu var mjög víða 11 til 13 stiga frost, t. d. 12 stiga frost í Hreppunum. — Minnsta frostið var í Vestmanna- cyjum 5 stig en þar snjóar. Norð- anátt er um landið og éljagangur norðan- og austanvert um iandið, bjartviðri vestan- og sunnanlands, en þó él á norðanverðu Snæfells- nesi. I fyrradag fór að kólna eftir ein muna veðurblíðu í margar vikur og hefur frostið hert síðan þá. Veður- fræðingar spá því að dragi eitthvað ur frostinu á morgun — þó ekki mikið. Vængjalaus flugvél gerir víðreist «aw ■ Þegar Douglas DC- 4 flugvélin steyptist út af flugbrautinni á Rvík- urflugvelli í fyrravetur, töldu margir, að hún hefði lokið sinni síðustu ferð. Það var þó öðru nær. Síðan hefur hún ver ið á töluverðum ferða- lögum, og frægð hennar er jafnvel enn meiri, held ur en þegar hún klauf háloftin forðum. Eftir slysið tóku framtak- samir menn sig saman um að innrétta flugvélarbúkinn sem „diskótek“ eða klúbb, en eftir nokkurt þref kom á daginn, að ekki vír hlaupið að því að finna fyrirtækinu stað, sem yfirvöld- in hefðu ekkert út á að setja. AÖ lokum hafnaði flugvélar- skrokkurinn við Sandskeið, ogfl þar var gengið allrammlega frá honum til þess að hann yrði ekki veöri og yindum að bráð. Staöurinn, þar sem flugvélin var, mun tilheyra afréttarlandi Seltjarnarneshrepps. Að sögn bæjarfógetans 1 Hafn arfirði var amazt við flugvélinni þarna. Vegamálastjóri kvartaði undan því, að hún hefði trufl- andi áhrif á umferð, þar sem hún stóð ekki alllangt frá hættu legri beygju, og umferðarlög- reglan tók í sama streng. Eigendum vélarskrokksins var síöan tilkynnt, að eign þeirra væri illa séð á þessum stað, og ef þeir fjarlægðu hana ekki sjálfir, mundu yfirvöldin ann- ast það á þeirra kostnað. Og nú er svo komið, að flug- vélin hefur veriö flutt aftur á Reykjavíkurflugvöll, þar sem hún bíður þess aö leggja upp nýjar ævintýraferðir. Ameríska Skymaster-vélin heidur áfram að ferðast eftir að flughæfni hennar er Iokið. 176 milljóna lán úr Viðreisnar- sjóði — til Norðurlandsáætlunar 1000 nemendur í Kennara- skólanum, ætlaður fyrir 150 Tvær milljónir dala, eða 176 J ur varið til framkvæmda á Norð- milljóni}- króna, háfa ferigizt ör I urlandi á grundvelli Norðurlands ,Viðreisnarsjóði Evrópu og verð-' áætlunarinnar. Viðreisnarsjóður inn hefur áður lánað meginhluta fjár þess, er farið hefur til Vest- fjarðaáætlunarinnar, helzt sam- göngumála í þeim landshluta. Gerð áætlunar um atvinnumál á Norðurlandi mun vera að ljúka og er búizt við, að sá hluti komi til framkvæmda á næsta ári. Svo sem áður hefur verið greint frá, annast Lárus Jónsson viðskipta- fræðingur stjóm áætlunargerð- arinnar á Norðurlandi fyrir hðnd Efnahagsstofnunarinnar og situr hann á Akureyri. // // B Um eitt þúsund nemend- ur munu nú vera í Kenn- araskólanum, sem aðeins er ætlaður fyrir um 150. Þetta upplýstist í umræðum á Al- þingi í gær um skólamál. Magnús Kjartansson átaldi harðlega þetta ástand. í svari dr. Gylfa Þ. Gíslasonar menntamálaráðherra kom fram, að nemendafjöldi í Kennaraskólanum hefði ní- faldazt, frá því að lögin um skólann tóku gildi, og hefði engan órað fyrir slíku. Ráðherrann kvað forráðamenn skólans hafa farið þess á leit við sig, að aðgangur aö skólanum yrði takmarkaður. Sagði ráð- herra, að ekki mundi verða leyfð nein takmörkun á aðgangi nem- enda að neinum skólum, meðan hann sæti í ráðherrastóli. Næði það einnig til læknadeildar Há- skólans, sem tillögur hafa verið um að takmarka ætti aðsókn að. Allir, er próf hefðu, fengju rétt til setu í skólum. Ekki hefði verið unnt að taka til viö frekari stækkun Kenn- araskólans fyrr, vegna mikilla framkvæmda við menntaskóla- byggingar að undanfömu. Dulbúin eignaupptaka í mynd fasteignagjalda — segja húseigendur Húseigendafélag Reykjavíkur svo aö það sé aö bera í bakka- hefur skorað á borgarfulltrúa að> fullan lækinn að bæta þar enn fella tillögu, sem fram hefur við. komið um hækkun á fasteigna- skatti. Er minnt á f áskoruninni að eignaskattar og útsvör hafi hækkað um 110% á þessu ári, Húseigendur segjast skilja fjár- þörf borgarinnar, en fái ekki skil- ið að þörf sé að hækka enn þenn- 10. síða. Fá tvfíugir að kaupa áfeagi? Kennaraskólinn — nemendur margfalt fleiri en eðlilegt má teljast, „Yngri mönnum er 20 ára má ekki veita, selja eða afhenda áfengi með nokkrum hætti”. Þannig segir í frumvarpi um breytingu á áfengis lögum, sem alisherjarnefnr Neðri deildar Alþingis hefur lagt fram. Á nú aö miða við 20 ára aldur í stað 21 ár, og er þaö talið í sam- ræmi við breytingar á aldursmörk- um, sem samþykktar voru á síð- asta Alþingi, það er kosningaréttur og kjörgengi. lögræðisaldur og hjú skaparaldur. / Þá er ekkj ætlunin, aö skylda vínveitingahús til aö hafa opið án vínveitinga eitt laugardagskvöld af hverjum fjórum, en það ákvæði haföi verið í frumvarpi fyrir tveim ur árum, sem þá var ekki útrætt. Nú er Iagt til, að önnur skilríki en nafnskírteini geti orðið sönn- unargögn aldurs á sama hátt og nafnskírteini, og er þá átt við öku skírteini, vegabréf og önnur slík. Þess ber að gæta að þessi ákvæði eru enn aðeins í frumvarpi, sem liggur fyrir Alþingi en eru ekki orð in að lögum. ' DAGAR TIL JÓLA \

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.