Vísir - 21.12.1968, Page 3
V1SIR . Laugardagur 21. desember 1968.
r.iíESfaii®
Tj’inu sinni á jólanótt — endur
fyrir löngu gerðist margt
kynlegt, sem nú er gleymt. Þá
komu jólasveinar af fjöllum.
Einn og einn örkuðu þeir á bæ-
ina og gerðu þar af sér marga
skömmina, kenjóttir karlar og
öllu viðsjálli jólasveininum,
sem birtist okkur á jólunum nú
til dags, en sjálfsagt beztu sál-
ir.
Þá áttu dýrin það til að ta’a
mannamál í fjósinu og gera sér
þar skemmtun. — Huldufólk-
ið fór á stjá með dansi og
söngvum, dvergar hvískruðu í
steánum og tröllin kváðust á í
hömrunum. Það var jafnvel
ekki óttalaust um nærveru
Grýlu kerlingar. — Að minnsta
Dýrin skemmta sér í fjósinu á jólanótt. (Myndin er tekin á æfingu). Þarna má þekkja af hausunum kú, hund, hest,
geithafur og á, og uppi á tunnunni dansa snjótittlingur og mórauð mús.
Leiðinleg jól
Lubbatrýni
kosti fóru börnin hennar á stúf
ana. Við getum kallað þau Lang
legg og Bólu, Leiðindaskjóðu,
Leppatusku, Dúðadurt og
Skrugguskjóðu. Það eru heldur
ófrýnileg kvikindi og þau segja:
— „Leiðinleg jól, Lubbatrýni"
við þá sem mæta þeim úti í nótt
inni.
Frá þessu og fleiru í ætt viö
gamla íslenzka þjóðtrú segir í
leiksýningu Litla leikfélagsins,
sem frumsýnd verður á annan
dag jóla. — Leikurinn er að
miklu leyti byggður á sex ljóð-
um eftir Jóhannes úr Kötlum.
Þetta er annað verkefni
„Litla leikfélagsins“, en það
sýndi í fyrra ,,Myndir“ í Tjarn-
arhæ. Þetta er félagsskapur
ungs fólks, sem útskrifazt hefur
úr Leiklistarskóla Leikfélags
Reykjavíkur og starfar félagið
í nánum tengslum við Leikfé-
lagið.
Leikstjóri að þessari sýningu
er Guðrún Ásmundsdóttir. Leik
endur eru tíu, en hlutverkin
eru æðimörg, eða 49 talsins.
Eru þar meö taldir þrettán jóla
sveinar
Tónlist hefur ungt tónskáld,
Jónas Tómasson, samið eða val
ið.
Leikararnir hafa sjálfir samið
textann í leiknum, og gert tjöld
og búninga.
Þetta ævintýri á jólanótt
hyggst Litla leikfélagið sýna
fram á þrettándann, á hverj-
um degi nema á stórhátíðunum,
gamlársdag og nýársdag.
Hófar glymja í svellum og engum mennskum manni er vært
... segir álfamærin (Helga Jónsdóttir) við Sigga strák (Önnu
Kristínu Arngrímsdóttur).
Hesturinn Smári og kýrin Rós, mús og snjótittlingur.
1
Heima í baðstofunni eru sögur sagðar: Húsfreyja (Helga Hjörvar) - Strákur (Anna Am-
grímsdóttir) Gunna vinnukona (Þórunn Sigu rðardóttir) Amma (Ásdfs Skúladóttlr)
Magnús (Kjartan Ragnarsson).
J3B