Vísir - 21.12.1968, Blaðsíða 5
Vi S IR . Laugardagur 21. desember 1968.
5
JÓLASÆLGÆTI
I
i
J
*
\
\
Tjað verður nóg að gera á flest
um heimilum núna um
helgina. Einhver þáttur jöla-
haldsins verður undirbúinn.
Sumar eru snemma í þv£ en aðr
ar hafa látið þaö dragast. Eink-
um verður helgin kærkomin
þeim, sem vinna úti og geta
ekki sinnt jólaundirbúningnum
fyrr en eftir vinnutíma. Helgin
kemur því ákaflega heppilega
inn fyrir þær útivinnandi og
ekki síður fyrir þá, sem geta
hugsað sér aö hafa það huggu-
legt fyrir jól sem á jólum.
Helgin gæti t.d. verið tilval
in til þess að búa til ofurlítið
jólasælgæti með krökkunum.:
Hér á eftir birtum við nokkrar
uppskriftir að jólasælgæti, sem
er ekki of tafsamt áð búa til.
Marsípan eða möndludeig er
góð uppistaða í alls konar jóla
sælgæti. Það er hægt að kaupa
það tilbúið og hræra út með;
flórsykri og ofurlitlu vatni en
einnig er hægt að búa þaö til.
Marsípan — eða möndlumassi.
250 gr. möndlur, 250 gr. flór
sykur, ofurlítil eggjahvíta. Af-
hýöið möndlumar og skiptið,
og látið á hreina þurrku. Lát-
iö liggja um tíma (3-6 dagar
er bezt, en til þess er enginn
tími nú). Möndlurnar malaðar
tvisvar í möndlukvörn. Flór-
sykrinum bætt í og malað einu
sinni enn. Möndlu-deigið sett í
steyti og steytt í 10—15 mín.
Ofurlítilli eggjahvítu bætt við
smámsaman.
Röndótt konfekt.
í þaö er notað marsípan og
grænn og rauður ávaxtalitur.
Marsípaninu er skipt í þrjá
hluta jafnstóra og er einn lit-
aður rósrauður, annar ljósgrænn
en sá þriðji er látinn vera ólitað
ur. Hlutarnir em flattir út 1 lag
y2 — 1 cm. þykkt og lagðir sam
an. Þrýst léttilega á þá og þeir
skomir út £ snittur.
Möndlukúlur.
Tilbúið möndludeig, kakó.
Kúlur af hæfilegri stærð em
búnar til úr möndludeiginu,
rúllað á eft'ir upp úr kakó.
Marsfpanhnetur.
Tilbúið marsipan, grænn á-
vaxtalitur, hálfar valhnetur,
bráðið hjúpsúkkulaði.
laði.
Litið marsipanið grænt og rúll
ið í kúlur jafnar að stærð.
Klemmið y2 valhnetukjarna
fastan sitt hvoru megin á nokk
ur konfektstykkjanna, klemm-
ið y2 valhnetu fast á það sem
eftir er af konfektinu og dýfið
neðsta hlutanum í bráðið súkku
laðið. Látið þessi stykki þorna
olíubornum pappír. Geymið ton
fektið i loftþéttum kössum
með pappir milli laganna.
Piparmintutöflur.
225 gr. flórsykur, 1 dl. vatn,
1 tsk. edik, 2-3 dropar pipar-
mintuolía, bráðið hjúpsúkku-
laði.
Sykur, vatn og edik sett i
skaftpott og soðið þar til dropi
af deiginu, sem er kældur og
settur milli bendi- og þumal-
fingurs, myndar þræði, þegar
fingurnir eru glenntir sundur.
Deiginu hellt á fat og piparmintu
olíunni bætt við. Hrærið vel
saman þar til deigið virkar
þykkt. Setjið deigið í dropum á
smurðan álpappir og látið
þorna. Setjiö ofurlítið af hjúp-
súkkulaði á hverja töflu. Þegar
súkkulaðið er alveg orðið þurrt
setjið þið töflurnar í dósir.
Fylltar döðlur.
Döðlur, marsípan, ávaxtalitur.
Döðlurnar skornar langsum og
kjarninn tekinn út, marsípanið
litaö meö ávaxtalit og mótað í
rúllur, sem eru aðeins stærri
en kjarninn. Marsípanið sett í
stað kjarnanna og döðlunum
þrýst létt saman.
Kókoskúlur.
100 gr. 175 gr. sykur, 100
gr. saxaðar valhnetur eða hesli
hnetur, 2 msk. kakó, 1 tsk. van
illusykur, 2 msk. mjög sterkt
kaffi, ca. 200 gr. kókosmjöl.
Smjörið hrært hvítt og lint
ásamt sykrinum. Hnetunum
bætt í, kakóinu, vanillusykrinum
og kaffinu, hrært vel saman. Bæt
ið við svo miklu af kókosmjöli,
að deigið verði fremur þykkt.
Búið til kúlur úr deiginu og
veltið þeim vel upp úr kókos-
mjöli. Látið þær stífna á köld
um stað og geymið £ loftþéttum
dósum með álpappír eða þvílíku
milli laganna.
Jólagjafirnar
teknar upp
„Sinn er siður í landi hverju“
segir málshátturinn og við get
um snúið þessu ofurlítið við
og sagt að hvert heimili hafi sín
ar siðvenjur.
Það, ::m við t^.lum að víkja
að er jólagjafirnar og hvemig
þeim er úthlutaö. Eflaust er
það svo sums staðar, að allir
taka pakkana upp í einu. En
við það fer mikil skemmtun
fram hjá garöi. Ef pökkunum
er úthlutað fyrst og síðan tekn-
ir upp t.d. í aldursröð, þeir
yngstu og e.t.v. allra elztu
fyrst getur allt heimilisfólkiö
fylgzt með ánægju hinna yfir
því, sem þeir fá. Börnin fá þá
einnig ofurlítið aðhald því hægt
er að minna þau á, hver hafi
gefiö gjöfina og aö þakka fyrir
sig en £ hitanum og æsingnum
yfir öllum gjöfunum vill allt
slíkt gleymast.
S
Bótagreibslur almanna-
trygginganna í Reykjavík
Sérstök athygli skal vakin á því, að bóta-
greiðslum almannatrygginga lýkur á hádegi
þriðjudaginn 24. þessa mánaðar (aðfanga-
dag), og að engar bætur verða greiddar á ný
fyrr en á venjulegum gréiðslutíma í janúar.
Mánudaginn 23. þ.m. verður afgreiðslusalur-
inn opinn til kl. 4 síðdegis.
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS
Laugavegi 114.
Mikið úrval
af sænskum Lindshammar krystal og öðrum
gjafavörum. Einnig jólaskreytingar og skreyt-
ingaefni. Mjög fallegar þýzkar styttur ný-
komnar. — Opið allan sunnudaginn.
BLÓM & ÁViXTIR
Hafnarstræti 3.
EEKÉöi'ÍEE-TSSESiVEBS
tmrí mmvivt t *