Alþýðublaðið - 06.01.1966, Side 1
Fimmtudagur G. janúar 1966 — 46. árg. - 3. tbi. — VERÐ 5 KR.
Hröktust á fjðllum
uppi næturlangt
Reykjavík, — GO.
Fjórir menn, tveir úr Norðfirði
og1 tveir úr Helgustaðahreppi í
Reyðarfirði, lentu í hrakningum
á fjöllum uppi milli Hellisfjarðar
og Norðfjarðar. Norðfirðtng'amir
tveir komust tíðindalítið til byggða
en urðu þó að skilja kindur eftir
á fjallinu, en Reyðfirðingarnir
villtust og grófu sig í fönn á há
fjallinu og áttu þar illa vist og
kalda. Fundust þeir í gærmorgun,
hraktir nokkuð og blautir, en hress
ir og kátir og var farið með þá til
Skuggahlíðar í Norðfirði, þar sem
þeir voru enn i gær að jafna sig
eftir volkið og bíða færis að kom
ast heim.
Samkvæmt frásögn Steinþórs
Þórðarsonar bónda í Skuggahlið'
í Norðfirði fóru tveir menn, Guð
Framhald á 15. siðu.
OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO OOOOi
HAPPDRÆITI ALÞÝÐUBLAÐSINS
DREGIÐ VAR í happdrættinu 24. des. seinni dráttur 1965.
Yinningar komu á eftirtalin númer:
★ 22699 Volkswagen-bifreið.
★ 25024 Volkswagen-bifreið.
★ 11384 Landrover-bifreið.
Vinninganna sé vitjað á skrifstofu happdrættisins Hverfisg. 4.
OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOf
Tillögur Alþýðuflokksins i bargarstjóm:
ooooooooooo
s
s
s
N
S
s
í breytingartiliögum sínum
við fjárhagsáætlun borgarinn
ar leggur borgarfulltrúi A1
þýðuflokksins, Óskar Hall
grímsson til, að dregið verði ^
úr ýmsum rekstutfcútgjöld
um borgarinnar og framlag
til ráðhússins lækkað, ep
þess í stað verði framlög til
íbúðabygginga, skólabygg
inga, barnaheimila og leik
valla stórhækkuð .
SÍÐARI UMRÆÐA um fjárliagsáætlun
Reykjavíkurborgar fyrir árið 1966 fer fram
á fundi borgarstjórnar í kvöld. Óskar Hall-
grímsson borgarfulltrúi Alþýðuflokksins flyt
ur allmargar breytingartillögur við áætlunina,
sem allar miða að því, að draga úr reksturs-
útgjöldum borgarinnar, en auka framlög til
hverskyns félagslegra þarfa, íbúðabygginga,
skóla, barnaheimila, dagheimila og leikvalla.
Einn'ig mun koma til afgreiðslu á þessum
fundi borgarstjórnar sú tillaga Óskars, að
Reykjavíkurborg geri framkvæmdaáætlun til
fjögurra ára.
Fundur borgarstjórnar þar sem
fjárhagsáætlun verður tekin til
endanlegrar afgreiðslu hefst kl.
fimm. í dag og ef að líkum lætur
mun hann standa fram undir
morgun.
Óskar Hallgrímsson, borgarfull
trúj Alþýðuílokksins hefur flutt
allmargar breytingartiilögur við
fjárhagsáætlunina. Hann leggur
til, að áætlunin um tekjur vérði
leiðrétt þannig, að tekjur af húsa
gjöldum hækki um eina milljón,
framlag úr jöfnunarsjóði um eina
milljón og aðstöðugjöld um sjö
milljónir.
Tillögur Óskars um breytingar
á gjaldaliðum áætlunarinnar eru
í aðalatriðum þær, að hann legg
ur til að kostnaður verði lækkað
Ur við niðurjöfnun útsvara við
gerð borgarx-eiknings og fjárhags
áætlunar, launakostnaður verði
lækkaður á ýmsum boi”garskrif
stofum, kostnaður við gatnahreins
un verði lækkaður um eina millj
ón, hækkað verði um 400 þúsund
Framhald á 15. síífu.
FRAMLÖG TiL FÉLAGS
LEGRA ÞARFA HÆKKI
Borgin láti gera framkvæmdaáætlun