Alþýðublaðið - 06.01.1966, Side 11
Evrópubikarkeppni
í handknattleik
Hugmyndin um Evrópukeppni í
liandknattleik er runnin frá Frökk
um. Kom hún fram á sérstökum
fundi sem þeir buðu til í sambandi
við þing I.H.F. í Stokkhólmi árið
1956. Heldur þótti þeim Frans-
mönnum undirtektir dræmar þar
sem aðeins rúmlega 10 menn
mættu og sumir lýstu því yfir að
þeir kæmu aðeins af einskærri
forvitni. Leizt mönnum misjafn-
lega á hugmyndina. Var þó talið
sjáifsagt að gefa Frökkum tæki-
færi til að koma keppninni á,
því ekki taldi I.H.F. slíkt vera í
sínum verkahring.
Ekki er mér kunnugt um hve
mörg lið tóku þátt Lfyrstu keppn-
inni en hún hefur farið fram ár-
. lega síðan 1957, nema þau ár, sem
: heimsmeistarakeppni er, þá fellur
þessi keppni niður. Keppnin varð
fljótt vinsæl og fór þátttökuliðum
fjölgandi ár frá ári þar til nú, að
færri eru með en áður vegna
breyttra ákvæða um greiðslu ferða
kostnaðar
Verður nú hver flokkur að greiða
Islandsmet / sundi
á innanfélagsmóti
Innanfélagsmót Ármanns og ÍR
haldið í sundhöll Reykjavíkur
fimmtudaginn 30. des. 1965.
50 m. skriðsund karla:
1. Guðmundur Gíslason, ÍR 27,3
2. Kári Geirlaugsson, ÍA 27,7
3. Guðm. Þ. Barðason, Æ 27,9
4. Pétur Kristjánsson, Á 28,2
200 m. bringusund kvenna:
Matth. Guðmundsdóttir, Á 3,03,7
200 m. bringusund karla:
1. Guðmundur Gíslason, ír 1,00,6
2. Guðm. Þ. Harðarson, Æ 1,00,8
3. Davíð Valgarðsson, ÍBK 1,03,1
4. Kári Geirlaugsson, ÍA 1,04,8
100 m. skriðsund kvenna:
1. Matth. Guðmundsdóttir Á 1,13,1
2. Sigrún Siggeirsdóttir, Á 1,33,8
50 m. bringusund karla:
1. Guðmundur Gíslason, ÍR 35,2
2. Gestur Jónsson, SH 35,9
3. Siggeir Siggeirsson, Á 39,5
4. Torfi Tómasson, Æ 41,0
sinn ferðakostnað. en gestgjafi sér
aðeins um uppihald. Ástæðan til
þess að færri lið eru með í keppn-
inni nú, en áður er því eingöngu
fjárhagslegs eðlis. Ekki sá að á-
huginn fari minnkandi.
íslendingar tóku fyrst þátt í
keppninni árið 1962 og voru það
íslandsmeistarar Knattspyrnufé-
lagsins Fram sem fengu heiðurinn
af því að vera fyrstu þátttökulið
okkar. Léku þeir við dönsku meist-
arana Skovbakken frá Aarhus og
fór leikurinn þar fram.
Þegar með þessari þátttöku var
, sannað að íslenzk félagslið eiga
I erindi í siíka keppni. Leikurinn var
I afburða skemmtilegur og lauk með
| jafntefli 24:24 varð því að fram-
lengja um 2 + 5 mínútur til að fá
úrslit og réðust úrslit ekki fyrr en
á síðustu sekúndum leiksins að
Skovbakken tókst að komast yfir
og sigra með 28 mörkum gegn 27.
: Aftur voru það Framarar sem
fóru til keppni árið 1964 og voru
andstæðinoa'Tiir sænsku meistar-
! arnir Redbersiid frá Gautaborg og
| fór leikurinn fram þar í borg. Ekki
i tókst Fram að sigra í þessum leik,
en honum lauk með 5 marka sigri
Svíanna 25:20, þessi úrslit mega
teljast viðunandi, þegar tillit er
tekið til bess að Redbergslid sigr-
aði 1. deildina sænsku það ár með
yfirburðum og hafði sem liðsmann
stórskvttuna Gösta Carlsson og
einn bezta markvörð sem völ er ó,
Donald Lindblom.
Nú er keDpnin í fyrsta sinn flutt
til íslands ng fá núverandi íslands-
meistarar Fimleikafélags Hafnar-
í'iarðar tækifæri til að spreyta sig.
Vonandi tekst þeim að snúa tafl-
inu við ob levfa okkur áhorfendum
að verða vitni að fyrstu íslenzku
sigrunum í þessari keppni.
Hannes Sigurðsson.
ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS 1965?
Nú stendur yfir kosning íþróttamanns ársins 1965 á vegum sam-
táka íþróttafréttamanna. tirslit verða kunngerð á morgun í hófi,
sem ipróttafréttamenn efna til. Myndin er frá afhendingunni í fyrra,
en þá sigraði Sigriður Sigurðardóttur, Val.
íslandsmót
í körfubolta
íslandsmótið í körfuknattleik
hefst í byrjun febrúar n.k. Þátt-
tökutilkynningar þurfa að berast
stjórn K.K.Í. fyrir 20. jan. Póst-
hólf 864 .Reykjavík. Tekið skal
fram, að ekki er leyfilegt að senda
meira en eitt lið í hverjum aldurs-
flokki frá hverju félagi.
Svæðaskipting verður í yngri
aldursflokkum, ef þátttaka gefur
tilefni til.
Vinsamlega tilkynnið jafnframt
um fjölda leikmanna £ meistara-,
1. og 2. flokki karla, svo og í meist
áraílokki kvenna vegná keppnis-
skírteina.
Jon Runertsen, hin unga stjarna Fredensborg skorar glæsilega'í
tei'.z inð Rjukan.
SEXÞRAUTARKEPPNI KR
Frjálsíþróttadeild KR hefur á-
kveðið að efna til æfinga- og keppn
isnámskeiðs í frjálsum íþróttum
innanhúss í íþróttahúsi félagsins
við Kaplaskjólsveg, og hefst n.k.
laugardag kl. 4,30 fyrir unglinga
16 ára og yngri, en fyrir eldri
miðvikudaginn 12. jan. kl. 6,55.
Fyrirkomulag þessa námskeiðs
verður þannig, að í hverjum
tíma verður, ósamt, æfingum,
keppt í einni grein. Keppt verður
i samtals 6 greinum. Fyrst í lang-
stökki án atrennu svo hástökki
með atrennu síðan spretthlaupi,
þrístökki án atr., grindahlaupi og
síðan stangarstökki. Veitt verða
þrenn verðlaun til þriggja beztu
skv. stigum.
Hér er tækifæri fyrir þá sem
unna karlmannlegum íþróttum, að
reyna getu sína í skemmtilegri
keppni, jafnt fyrir byrjendur og
þá sem lengra eru komnir.
Væntanlegir þátttakendur eru
beðnir að mæta 15 mínútum fyrir
ofangreinda tíma.
Æfingar deildarinnar í vetur
verða sem hér segir:
í íþróttahúsi Háskólans: Mánu-
daga og föstudaga kl. 8.
Þrekþjálfun og tækniæfingar
Þjálfari: Benedikt Jakobsson.
Mánudaga og föstudaga kl. 9.
Þrekþjálfun og tækniæfingar
fyrir stúlkur. — Þjálfari: Benfc-
dikt Jakobsson.
Miðvikudaga kl. 7,45.
Sameiginleg þrekþjálfun fynir
aliar deildir félagsins. — Þjáít
ari: Benedikt Jakobsson.
í KR-húsinu:
Miðvikudaga kl. 6,55.
Tækniþjálfun og keppni fyifir
17 ára og eldri. — Þjálfari Beríe-
dikt Jakobsson og Þórarii
Ragnarsson.
Utanhússþjálfun fyrir hlaupa * 1
fer fram frá íþróttahúsi Hásk( 1-
ans daglega frá kl. 6—9 í samrall
við þjálfarana, og ennfremur lyft-
ingaþjálfun í KR-húsinu.
(Stjórn Frjálsíþróttad. KR)
^ooooOOOOOOOOOOÖ
’ 5m.
í Reykjavík? ;
Miklar líkur eru á því að !
30 manna fl. bandarskra:
frjálsþróttamanna á léið'j
til Evrópu keppi í Reykjavík ij
í lok júní í sumar. Heims''
Framhald á 15. síffu.
yOOOOOOOOOOOOOOO
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 6. janúar 1966