Alþýðublaðið - 07.01.1966, Page 4
Bltstjórar: Gylfl Gröndal (áb.) og Benedlkt Gröndal. - Ritstjórnarfull-
trúl: EiSur Guðnason. — SímaK 14900 - 14903 - Auglýsingasími: 14906.
Aösetur: AlþýöuhúsiS vlö Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Aiþýðu-
blaS3Íns. — Askriftargjald kr. 80.00. — 1 lausasölu kr. 5.00 elntakið.
Utgefandi: Aiþýðuflokkuritm.
Tillaga Óskars
ENDA ÞÓTT andstæðingar núverandi ríkis-
stjórnar kalli hana íhaldssíjórn, heíur hún fram-
kvæmt ýmsar umbætur, sem hefðu þótt góður
sósíalismi í tíð vinstri stjórnarinnar. Gott dæmi um
þetta eru þau fyrstu skref til áætlunargerðar, sem
stigin hafa verið, en óskir alþýðuflokks- og alþýðu
bandalagsmanna um slíkar aðgerðir strönduðu á
andstöðu framsóknarmanna í tíð vinstristjórnar.
Ríkisstjórnin hefur enn aðeins getað gert áætl-
anir um fjárfestingu þeirra aðila, sem starfa á ríkis
jns vegum. Slfk áætlunargerð verður að sjálfsögðu
einnig að rná til bæjar- og sveitarfélaga og til fram
kvæmcia einstaklinga, ef hún á að ná tilætluðum
árangri. Næsta skrefið er því að fá sveitarfélög til
að taka þátt í gerð framkvæmdaáætlana og starfa
eftir þeim.
Umræður um fjárhagsáætlun Reykjavíkur fóru
fram í gærkvöldi og nótt. Höfuðborgin er stærsti
framkvæmdaaðili í landinu að undanteknu ríkinu,
en mikið iskipulagsleysi hefur verið á beim málum
hjá borginni og stórfelld peningavandræði hafa vald
ið töfum og tjóni. Er borgarsjúkrahúsið gott dæmi
um fyrirhyggjuleysi á þessu sviði.
Óskar Hallgrímsson, borgarfulltrúi Alþýðu-
flokksins, hefur barizt fyrir þeim umbótum á
rekstri borgarinnar, að gerð yrði framkvæmdaáætl
rui. Tillaga hans á fundinum í nótt er á þessa leið:
„Borgarstjórn Reykjavíkur er ljóst gildi þess,
að fylgt sé fyrirfram gerðum áætlunum um allar
meiri háttar framkvæmdir borgarinnar og stofnana
Ihennar.
Fyrir því samþykkir borgarstjórnin að fela
borgarstjóra og borgarráði að láta gera heildaráætl
un um fyrirhugaðar framkvæmdir á vegum borgar
innar og stofnana hennar, svo sem íbúðabyggingar,
byggingar skóla, dag- og vistheimili, leikskóla og
leikvelli, útivistarsvæði, gatnagerð, hafnárgerð,
raf-, vatns- og varmavirkjanir og framkvæmdir
vegna skipulags.
Heildaráætlun þessi skal fyrst og fremst við
•það miðuð, að sem bezt yfirsýn fáist um fyrirhugað
ar framkvæmdir og fjármagnsþörf borgarinnar til
framkvæmdanna.
Undirbúningi framkvæmdaáætlunar skal hraða
ísvo sem tök eru á og áð því stefnt, að borgarstjórn
geti tekið áætlunina til umræðu fyrir lok aprílmán
<aðar 1966.“
f ,
Þannig hljóðar tillaga Óskars Hallgrímssonar
«m áætlunargerð Reykjavíkurborgar, Er erfitt að
mótmæla því, að hann hafi rétt fyrir sér og fuli
ástæða sé til að samþykkja tillöguna.
7. jan. 1966 - ALÞÝÐUBLA8IÐ
Stálvaskar -
Burstafell,
byggingavöruverzlun
Réttarholtsvegi 3. Sími 3=88-40.
Danskir, sænskir,
þýzkir
eins og tveggja Siélfa
með borði ©g án borðs
Hjá okkur fáiS þið vask
við yðar hæfi.
Eldhúsvaskar
M.
W A \ ir frelE bji T ! \ \ |
r, rn..rei p J Jj
<><><><><><><><><><><><><><><><><><><><>000000000000
<> ★- íbúSarverð í Reykjavík, Hafnarfirði og á Selfossi.
0 ir Gífurlegur munur á verðinu.
ó íc í hverju liggur hann.
$ ★ Nýjungar framundan.
->00 ooooooooooooooooooooooooooooo*
NEÍ, ÞVÍ MIÐUR get ég ekki
BENEDIKT SKRIFAR: „Getur,
þú frætt mig- á því Hannes minn, j
hvernigr standi á því, aff nýjar I
íbúðir af sömu stærff os: aff því
er virðist byggffar eins, skuli vera
allt frá liundraff þúsundum til
hundraff og sextíu þúsund krón
um ódýrari í Hafnarfirffi held
ur en hér í Reykjavík? Mér er
sagt, aff nokki-u valdi um þetta
undariega fyrirbrigði, aff í Reykja
vík eru lóðirnar seldar en í Hafn
arfi'ði ekki. Ég hef svo lítiff
kynnt mér þetta og komizt aff
raun um, aff þetta getur ekki ver
iff skýringin á því hversu mikill
munurinn er. Hann hlýtur aff
liggja í öðru.
ÞÁ ER MÉR SAGT, að laun
byggingarmanna séu ekki eins mik
il í Hafnarfirði og í Reykjavík
og að uppmælingarnar komi ekki
eins hart niður í Firðinum og þær
gera hér í höfuðstaðnum. En hvað
sem því líður, þá hlýtur þetta
að vekja furðu og ekki nema eðli
legt, að maður sé forvitinn að
heyra hvað það getur verið, sem
veldur. Þá vil ég minnast á ann
að í þe^su sambandi. íbúðir eru
miklum mun meira en betta ódvr
ari á Selfocsi en hér. Þetta munar
svo miklu að á Selfossi kostar
hús udd á tvær hæðir ekki meira
en áttatíu og fimm fermetra íbúð
í Reyk.iavík.
NOKKRU MUN VALDA um
þetta mismunurinn á lóðaverðinu.
En mig langar að vita, hvort bvgg
ingamenn á Selfo^si hafi miklu
lægri laun en hér í Reykjavík.
Ekki getur þessi gífurlegi mismun
ur legið í bví. að bvegingarefni
sé svo miklu ódvrari fvrir austan
en hér. Engin stevDU=töð er starf
andi bar. Og allur flutningu- er
dvr. Þó að stevoan sé bá kannski
hrærð með öðrum hætti fvrir aust
an bá hlýtur það að kost.a mikið
fiármaen og marga sta"fsmenn.
Þetta allt veltist fyrir mannL”
svarað þessum spurningum frá
Benedikt. Ég er ekki svo kunnug
ur kringilkrókum þesara mála.
Miltil viðleitni er nú uppi af
liálfu hins opinbera að reyna að
efna til stórfelldra íbúðabygginga
og gera íbúðahúsabyggingar ódýr
ari en þær eru nú. Við skulum
vona að þetta takist. Nú er unnið
sleitulaust að rannsóknum í þess
íim efnum undir forystu Jóns
Þorsteinssonar alþingismanns,
sem er kunnur fyrir hugkvæmni
og dugnað. Ég trúi því að þetta
rannsóknar og undirbúningsstarf
leiði til ýmissa nýjunga og ann
arra leiða en farnar hafa verið
í þessu nauðsynjamáli undanfarið.
EF TIL VILL birtir framund
an, þannig, að byggingarkostnað
ur minnkar og liæfilegum íbúð
um fyrir almenning fjölgar. Ég
held að það hafi verið rangt hjá
okkur að byggja jafn mikið og
raun er á af stórum íbúðum og
miða auk þess við það, að þær
gætu skýlt mörgum kynslóðum.
Hanncs á horninu
Starfsfólk óskast í
skrifstofu borgarstjóra
sem hér segir:
Fulltrúi. Lögfræði, viðskiptafræði eða önn-
ur áþekk menntun æskileg.
Fulltrúi til skjalavörzlu.
Stúlka til vélritu’narstarfa,
Laun skv. gildandi kjarsamningi við Starfs
mannafélag Reykjavíkurborgar.
Umsóknum skal skilað í skrifstofu borgar-
stjóra, Austurstræti 16, eigi síðar en 14.
þ.m.
Skrifstofa borgarstjórans í Reykjavík,
6. janúar 1966.
Borgarstjórinn í Reykjavík.