Alþýðublaðið - 07.01.1966, Side 10

Alþýðublaðið - 07.01.1966, Side 10
OPNA Framhald úr opnú. með sanni segja, að tilraunin hafi borið góðan árangur og hafi með henni verið unnið brautryðjenda- starf á þessu sviði. Nokkru eftir að leigutímabili skipsins lauk bárust um það til- mæli frá leigutökum og fleirum, að selja skipið til síldarflutninga. Með hliðsjón af hinum vafasömu afkomuhorfum skipsins við olíu- flutninga innanlands, sem lýst er í bréfum forstjórans hér að fram- an, og ennfremur með hliðsjón af því, að verkefni fyrir skipið við síldarflutninga virtust miklu meiri, og loks með tilliti til þess brautryðjendastarfs, sem unnið hafði verið af leigutökum og kostnaði, sem þeir höfðu lagt í við breytingar á skipinu, var á- kveðið að þeir skyldu fá skipið keypt. Var skipaskoðunarstjóra falið að meta skipið til verðs, þar sem hann var bæði hlutlaus kunn- áttumaður á þessu sviði og emb- ættismaður ríkisins. Var mat hans 5 milljónir króna, og var skipið selt fyrir það verð. Verðtilboð forstjórans, sem lýst er hér að framan, eru að vísu lítilsháttar hærri, en hvorttveggja er, að ég ætla að þar hafi ekki verið um fgst tilboð að ræða, heldpr aðeins verðhugmynd, enda skipið þá ekki skoðað, og svo hitt, að með þessari sölu var tryggt mjög gagnlegt verkefni fyrir skipið. Því hefur þetta verið rakið svo ítarlega, að Tíminn kallar þessa sölu hneyksli, sem, að því er virð- ist, beri að víta. Ég, sem ijer á- byrgð á sölunni, og skal ekki’und- an henni skorast, tel hana aftur á móti eðlilega og réttmæta, þeg ar allar aðstæður eru sanngjarn- lega metnar, svo sem ég hefi lagt þær fyrir hér. Um önnur atriði í Tímagrein- inni get ég verið fáorður. Mér er rþar borið á brýn, að ég hafi ekki sýnt mikinn áhuga á byggingarmál- um Skipaútgerðarinnar, og er í blaðinu birt ljósmynd af 20 ára gömilu bréfi frá mér, sem á að sanna þetta. í bréfinu er þó ekki annað sagt, en að Skipaútgerðin eigi að gera tillögu um fjárveit- ingar í þessu skyni, og undirskil,- ið, að ráðuneytið muni taka hana. upp í sínar tillögur til fjárveit- inganefndar. Mun það hafa verið gerU þó að samþykki fjárveitinga- nefndar hafi ekki fengizt. Tveim- ur árum síðar hvarf ég úr ríkis- stjórninni og hafði engin afskipti af málum Skinaútgerðarinnar næstu 10 ár. Ailan þann tíma munu Þessi mál hafa verið undir stjórn framsóknarmanna í ríkisstjórn- inni, en ekki bólaði þó á. að þessu býggingarmáli útgerðarinnar væri þokað neitt áfram. Ef um sök er að ræða í þessu efni, eru því fleiri undir þá sök seldir. Þá er mér borið á brýn, að ég hafi sýnt óhæfilegt tómlæti um hag Skipaútgerðarinnar með þvi að samþykkja hafnarreglu- gerðir fyrir ýmsar hafnir, þar sem hafnar- og vörugjöid hafi ver- ið ákveðin óhóflega há. Um þetta er aðeins það að segja, að mér er kunnugt um að þeirri reglu liefur verið fylgt undanfarin 30 ár að minnsta kosti, hvort sem ég íhefi verið í ríkisstjórn eða ekki, að heimila öllum hafnarstjórnum að taka þau gjöld af umferð um höfnina, sem nægðu til að standa undir nauðsynlegum útgjöldum, og meira ætla ég, að ekki hafi verið tekið. Kostnaður við hafn- argerðir er víða mjög mikill, en flutningamagnið, sem um hafn- irnar fer lítið, og hlýtur því gjald á hverja einingu að verða allhátt víða og lenda á Skipaútgeröinni eins og öðrum. Að lokum er þess getið, að frá mér hafi jafnan andað köldu til Skipaútgerðarinnar, og raunar hafi ég verið fullur af illvilja í hennar garð. Þetta er auðvitað alrangt, og virðist eiga að vera tilraun til að kenna mér um rekst- urshalla Skipaútgerðarinnar, und- ir stjórn Guðjóns Teitssonar. Ég hefi þvert á móti gert mér allt far um að styðja þessa útgerð, fyrr og síðar. Á meðal Pálmi Loftsson veitti henni forstöðu tókst milli mín og hans hin bezta samvinna. Við stóðum saman að endurnýjun og aukningu skipa- stólsins fyrir tæpum 20 árum, og ótaldar eru þær ferðir, sem ég upp á síðkastið hef farið til fjár- málaráðherra til þess að herja út fé, umfram fjárveitingu, til þess að bjarga úr hreinu öngþveiti. Má raunar hver ló mér það sem vill, að ég hefi ekki ávallt borið hlýjar hugsanir til Guðjóns Teitssonar, þegar rekstrarhalli fyrirtækisins fór að nálgast HUNDRAÐ ÞÚS- UND KRÓNUR Á DAG, undir hans stjórn, en Guðjón Teitsson og Skipaútgerðin er sitt hvað. Allt yfirklór Tímans til þess að verja þennan hneykslanlega reksturshalla, svo að notað sé orðalag blaðsins sjálfs, blekkir engan. Mitt síðasta verk, áður en ég lét af starfi siglingamálaráð- herra. var að skipa nefnd til þess að athuga allan rekstur Skipaút- gerðar ríkisins, og er vonandi að henni takist það, sem Guðjóni Teitssyni hefur aldrei tekizt, að koma rekstri fyrirtækisins í skyn- samlegt horf. Emil Jónsson. i€astljós Framhald af 5. síðu hington ætti að hverfa frá ihinni iálkvæðu afstöðu sinni til skilyrð islausra samningaviðræðna. Utanríkisráðuneytið ber til haka, að no'kkur slík eindregin neitun hafi borizt frá Saigon stjórninni. Hins vegar hefur ver i'ð Ijóst um nok'kurt skeið, að suð ur-vietnamiska stjórnin tók t.d. óoveiigjanlega afst'öðu gegn. því að Vieteong fengi fulltrúa í samn ingaviðræðum. * HÆTTAN Þegar Bandarískir embættis- menn skýra í fóum orðum af- stöðu Bandaríkjamanna til Viet- namstríðsins fyrir Evrópumönn- um, sem .gagnrýna stefnu Banda rí'kjanna, leggia beir áherzlu á það, að ef Bandaríkjamenn brygð ust skuldbindingum sínum t.d. í Suðaustur-Asíu mundi sú alvar léga hætta skapast, að liin.n kommúnistíski heimur legði rangt mat á þann ásetning Bandaríkja manna að balda skuldbindingar sínar í heiðri, t. d. í Evrópu, Þessir fróðu heirnildarmenn telja þetta langþýðingarmesta at riðið í allri Vietnamdeilunni. Þeim er hugsað rti-1 Kúbudeilunn ar oig þeir velta því fyrir sér hvort bandamenn hefðu fljótlega orðið að berjast um Berlín eða láta toana af hendi ef Kennedy forseti hefði ekki horfzt í augu við vandann og krafizt þess að Krústjov flytti burtu eldflaugar þær, sem han.n sendi til Kúbu. FangelsaÓir Framhald af 7. síðu. ar í stað látnir lausir, þann úr- skurð höifðu nazistar og kvisl- inlgar að sjálfsögðu að engu. Því norsk löig og norskur rétt- ur voru ekki lengur við lýði í Noregi nema þá rétt í orði 'kveðnu. Fjórða marz 1941, var föng- unum svo lesinn sá dómur sem hver og einn hafðr hlotið. Johan Schwingel og Omar Gjesteby fenigu 18 mánaða fangelsi hvor. Vik og Hofna fengu 15 mánaða fangelsi. Allir fengu þeir óskil orðsbundinn dóm. Hin.ir voru dæmdir í eins árs fangelsi skil- orðsbundið í eitt ár. Allir misstu 'borgarréttindi sín í tíu ár og urðu hver og einn að greiða 75 norskar krónur í sakarkostnað. (Arheiderbladet). Glugginn Framhald af 6. sfðu var til. Röð af tveggja hæða húsum liggur í kringum torg við vatnið. Neðrf hæðir hús- anna eru fyrir verzlanir og fyrirtæki. Abstrakt-höggmynd um hefur verið komið fyrir á torginu meðfram húsunum við eina hlið vatnsins. Hinum meg in við vatnið standa hús, sem standa á súlum út í vatnið. Hús in eru tveggja eða þriggja hæða og mismunandi. Og eitt 15 hæða háhýsi stendur í miðri hú'aþyrpingunni. Nokkurra mínútna gang frá vatninu eru 'raðhús, sem eru ólík öllum hinum húsunum. Og örlitlu lengra í burtu eru stór og glæsi leg íbúðarhús. íbúðirnar og húsin eru mjög dýr í verði. í þessari borg á fólkið samt að geta lifað, ekki aðeins hálf lifað. Næg atvinna á að vera fyrir íbúana og næg tækifæri til að stunda íþróttir og útilíf. Mairgir Bandaríkjamenn éru dauðbrevttir á rótleysinu og eirðarleysinu í núHmalífi. Og Reston á að vera draumaborg in. Borgin hefur bæði fengið gagn'rýni og hrós, sumum finnst hún of kuldaleg og herfi leg, öðrum finnst borgin fall eg. Þar séu falleg nútma lista verk, sem standi flestu fram ar. Og skipuleggjendur borg- arinnar og airkáti ^ktar segja: Við höldum því ekki fram, að við höfum gert fullkomna borg. En við erum þess fullvissir, að okkur hefur tekizt vel. Það, sem við höfum byrjað héir á, getur ef til vill verið lausnin á vandamálunum. í Reston verður það manneskjan sjálf, — ekki bíllinn, — sem verður herra á vegunum. Og í Reston eru ekki aðeins boðin ný hús, heldur einnig nýtt líf. Verzlunarmanna- félag Reykjavíkur Framboðsfrestur Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar- atkvæðagreiðslu um kjör stjórnar, trúnaðar- m'annaráðs og endurskoðenda í Verzlunar- mannafélagi Reykjavíkur. Listum eða tillögum skal skila í skrifstofu V.R. eigi síðar en kl. 12 á hádegi 10. janúar n.k. Kjörstjórnin. Jólatrésskemmtun Glímufélagsins Ármanns verður haldin í Sjálfstæðis- (húsinu í dag, föstudaginn 7. janúar kl. 3.45 e.h. Aðgöngumiðar eru seldir í hókabúðum Lárusar Blön- dals, Vesturveri og Skólavörðustíg 2, BóLabúð Kron, Bankastræti og Verzluninni Vogaver og við inngang- inn. Glímufélagið Ármann. Að liðnu 70 ára afmæli mínu sendi ég imínar alúðar- fyllstu þakkir til barna minna, tengdabarna og annarra vina og vandamanna fyrir góðar gjafir, iblóm, skeyti og 'hlý handtök. Hjartans þakkir. Guð blessi ykkur og gefi ykkur farsæld á nýbyrjaða árinu. Guðm. Ágúst Jónsson. t, 10 7. jan. 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.