Alþýðublaðið - 17.02.1966, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 17.02.1966, Qupperneq 4
ÍMitflÆGiMMS) RHstj6r«r: Gylfl GriSndat (4b.) og Benedlkt Gröndal. — Rltstjómarfull- trúl: ElBur GuSnaaon. — Slmar: 14900-14903 - Auglýslngaaíml: 1490«. ABsetur AlþýBuhúslð vlB Hverflsgötu, Heykjavtk. — PrentsmlBja AlþýBu ÖUBslns. — Aakrlftargjald kr. 95.00 — 1 lausasölu kr. 5.00 elntaklO. títgefandl Alþýöuflokkurlnll. ' Beefhoven FLUTNINGUR níundu sinfóníu Beethovens er mikill menningarviðburður á islen2íkan mælikvarða, og er það gleðiefni, hversu mikil aðsókn hefur verið að tónleikunum. Mun láta nærri, að um 5.000 { manns heyri þetta fræga verk, og þarf varla að ; efast um, að sá hópur hefði orðið enn fjölmenn- ! iari, ef kostur hefði verið að endurtaka verkið oftar. • Uefur Beetboven því skotið jafnvel vinsælustu bítl- : um aftur fyrir sig. Þessi anildi áihugi á háklassisku tónverki -er ekki tilviljun. Hið gífurlega átak þjóðarinnar í skólamálum á undanförnum áratugum kemur nú fram í stórauknqm áhuga unga fólltsins á þeim þáttum lista og menningar, sem beztir eru. Þar að auki hefur Ríkisútvarpið átt ríkan þátt í að bæta tónlistarsmekk þjóðarinnar og færa henni þann- ig eina beztu gjöf, sem hún getur hlotið. Það er mikið ánægjuefni, að til skuli vera í röðum þjóðarinnar maður eins og Róbert Abra- ham Ottóson, ,sem hefur kunnáttu, listrænar gáfur og persónuleika til að færa upp slíkt verk. Þ'að er ekki á margra færi að aga tvö hundruð íslend- inga til flutnings slíks verks og takast svo vel sem raun ber vitni. Hafi íslendingar ekki hingað til gert sér ljóst, hvern liðsmann þeir þarna eiga, get- ur engum blandazt um það hugur eftir flutning níundu sinfóníunnar. Útvarp frá Alþíngi ÚTVARPSUMRÆÐUR frá Alþingi eru úreltar og verður að setja um þær nýjar reglur. Fréttaflutn ingur allur frá Alþingi þarf að gefa sem sannasta mynd af þingstörfum, og sjónvarpið á framundan mi'kið hlutverk á þessu sviði. Þetta var kjarninn í frumvarpi, sem Benedikt Gröndal hefur flutt, en þar gerir hann tillögur um ;<nýjar reglur varðandi útvarpsumræður, fréttaflutn- íng frá þingi og sjónvarp þaðan. Hefur málinu ver- ið mjög vel tekin af talsmönnum hinna flokkanna, ekki sízt af forsætisráðherra, dr. Bjarna Benedikts syni. ' Útvarpshlustenc^ur mundu án efa kunna að •meta breytingar á útvarpsumræðum. Þeim finnst flestum, að ræður séu yfirleitt of langar, umræð- ur í heild of langar, iog þingmenn of hneigðir til að tala eins og þeir væru á gamaldags þingmála- ,fundum. > Flokkarnir ættu uú, eins og um var talað á {úngi á þriðjudag, ,að setja ínefnd til að fjalla um þessi mál og semja nýjar og betri reglur. 4 17. febrúar 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ m oooooooooooooooooooooooooooooooo- ir Stöðumælum fjölgar. ic Og stöðugjaldið hækkar um helming. + 20 mínútur í stað 15. „Hún hokin sat á kletti." oooooooooooooooooooooooooooooooo STÖÐUMÆLUM Á AÐ fjölffa mikið í Reykjavík á þessu ári. Það er eng-inn vafi á því að stöðuinael arnir eru ein bezta endurbótin sem gerð hefur verið í samgöngu máliun Reykjavíkur. Með þeim komst á skipuleg regla tun bif- reiðastöður og almenningur neydd ir til að taka tilit til annan-a, en tillitið til annaria er forsenda þess að umferðarmálin komist í lag Það er yfirleitt tillitsleysið, sem veldur mestum vandræðunum. UM LEIÐ og þessi aukning á stöðumælunum á að fara fram, er í ráði að hækka stöðumælagjaldið um undrað prósent, eða úp einni krónu í tvær krónur. Þetta er mjög mikil hækkun. Það má vera að króna sé of lágt gjald, og of lágt má það ekki vera. Þá er það líklegt, að ekki sé hægt að hafa þarna neinn milliveg og vegna tæknilegra atriða verði að fara upp í tvær krónur. En aðra lausn hefði líka verið hægt að finna. MÉR ER SAGT, að hægt sé að stilla mælana á tíma þannig að lengja tímann, til dæmis um fimm mínútur. Þetta hefði átt að gpra að í staðinn fyrir fimmtán mínút ur kæmu tuttugu mínútur og í staðinn fyriin 'hálftíma, kæmu fjörutíu mínútur. Korterið er of stutt. Fólk, sem fer í banka, eða venjulegar verzlanir. verður stund um að faxa úr röð sinni til þess að hlaupa út og borga aftur í mælinn, Ef þessi lenging á tím anum hefði verið gerð, þá var ekk er athugavert við það, að hækka gjaldið um helming eins óg nú hef, ur verið ákveðið. ÉG HEF ÁÐUR minnst á þáttinn Sýslurnar svara. Mór hefur þótt Framhald á 15. síðu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.