Alþýðublaðið - 17.02.1966, Side 11

Alþýðublaðið - 17.02.1966, Side 11
t=RitstiórÍ~Örn Eidsson Bréf sent íþróttasíðunni Hvers vegna er léleg að- sókn að körfuknattleik í grein G. P. á Íþróttasíðunni i í dag undrast hann hve fáir áhorf- endur sæki körfuknattleikana, sem undanfarið hafa farið fram ' í Laugardalnum. G. P. reiknar út hve margir hafi æft og leikið körfuknattleik hér og spyr: Hvar er þetta fólk? (að það skuli ekki koma að horfa á leikana. í mörg ár tók ég þátt í hand- knattleik, síðan árafjölda í körfu- knattleik, ævinlega þó eingöngu til Þcss að bregða á Jeik eftir hress- andi fimleikastund, og hafði mikla ánægju af. Þegar aldurin færðist yfir hætti ég spriklinu sjálfur, en horfi nú á flesta stórleiki í handknattleik, sem bjóðast og skemmti mér oft konunglega. En svo er það með blessaðan körfukattleikinn! Ég horfði í | liaust á eina 2—3 í Keflavík og býst við ég láti það duga. Og af liverju? Vegna þess að mér finnst allur leikurinn snúast um dómar- ana tvo. Þeir eru auðvitað sí- flautandi, en í stað þess að koma leiknum hið fyrsta í gang aftur, eru þeir með eilífar vangaveltur og skeggræður innbyrðis, og þurfa jafn vel að stika út gólfið æ ofan tWWMMMWMWIWIWMMW Ný stjarna í Ástralíu Ástralía hefur eignast nýja stjörnu, John Coyle, hann er '24 ára gamall. Áður en kcppn istímahil það sem nú stendur yfir i Ástralíu hófst voru beztu tímar Coyles sem hér sepir: 1500 m. 3:54,9 mín. ensk míla, 4:06,1 mín., 2 enskar mílur, 8:54,0 mín., 3 enskar mílur, 13:46,4 mín. og 5000 m. 14:13,8 mín., 3000 m. hindrunarhlaup, 9:03,6 ■min., maraþonhlaup, 2:26. 05„0 klst. 18. janúar s.l. tók Coyle þátt í 5000 m. hlaupi í borg inni Geelong. Clarke var einnig meðal keppenda, en Coyle kom vægast sagt á óvart með því að verða ann- ar á hinum frábæra tíma, 13:38,0 mín. Það, er 13. bezti tími, sem náðst hefur á vega lengdinni frá uphafi. Bob Schul, USA hefur einnig náð þessum tíma. Tveim dögum síðar tók Coyle þátt í 3000 m. hlaupi ásamt Clarke og nú varð keppnin enn jafnari.. Clarke sigraöi á 7:53,6 mín., en Co- yle hljóp á 7:53,8 mín. MMMMMMVMMMMMMHMM í æ (sem raunar ætti að vera búið að framkvæma áður en leikurinn hefst). Sem sagt eilífar tafir svo langar, að spennan í leiknum verður alls engin , en það er einmitt hún sem áhorfendur sækjast eftir. v'ramJiald a XS. síðu Körfubolti í kvöld íslandsmótið í körfuknattleik heldur áfram í kvöld, fimmtudag inn 17. febrúar. Þá fara fram tveifi leikir í fyrstu deild. Fyrri leikurinn verður milli ÍKF og ÍR KF-menn hafa sýnt mikinn bar áttuvilja og dugnað í þeim. leikj um ,sem þeir hafa leikið, en í ÍR liðið vantar einn bezta leikmann inn, Birgi Jakobsson, sem meidd kt á fæti og getur þar af leiðandi ekki leikið með að þessu sinni. síðari leikurinn er milli hinna gömlu keppinauta KR og Ármanns Alltaf hefur verið hörð keppni milli þessara tveggja liða og get ur brugðið til beggja vona nú sem fyrr. Úrslit þessara leikja hafa mik ið að segja, þar sem þrjú lið eru enn taplaus í mótinu eða Ármann (4st.\ ÍR (2st.) og KR (2st.). Eftir þes'-a leiki ættu því línurnar að fara að skýrast í fyrri umferð, en gaman verður að sjá hverju fram vindur, því sjaldan hafa fyrstu deildar liðin verið eins jöfn að styrkleika og nú Keppnin liefst kl. 8,15 að Hálogalandi. Pólland vann Noreg 16-14 Pólverjar sigruðu Noreg með 16 mörkum gegn 14 í landsleik í Osló í gærkvöldi. Staðan í hléi var 10-8 fyrir Pólland. NTB-frétta stofan segir að sigur Pólverja hafi verið verðskuldaður. Pólland byrjaði síðari hálfleik vel og kom:t í 14-9. Síðan lagfærðu Norð menn stöðuna í 14-11 Pólverjar komust í 16h11, en Norðmenn skoruðu þrjú síðustu mörk leiks ins. Klozek skoraði flest mörk Pói verja, 5 talsins. Weglarz og Miele sczuzuk skoruðu þrjú mörk hvor. Per Graver skoraði flest mörk Norðmanna, eða 5, en Inge Han- '■en og Thorstein Hansen 4 hvor og Joan Reinertsen 1. Myndirnar á Íþróttasíð- unni í dag eru frá Hamra- gilsmóti og Stórsvigsmóti Ármanns sem fram fór um helgina: , 1. Björn Þór Ólafsson, Ól- afsfirði. 2. Óðinn Árnason farar- stjóri Akureyringanna ásámt tvíburasonum sínum Ingva (t.v.) og Árna (t.h.) Árni varð sigurvegari í stórsvigi og nr. 3 í svigi. Ingvi varð nr. 3 í stórsvigi. 3. Árdis Þórðardóttir Siglu firði, sigurvegari á báðum mótunum. í kvennaflokki. 4. Eysteinn Þórðarson ÍR , sigurvegari á báðum mótun- um í karlaflokki, 5. Frá vinstri: Karólína Guðmundsdóttir, Akureyri, Marta B. Guðmundsdáttir, KR, Guðrún Siglaugsdótlir, Akureyri, Guðrún Björnss- dóttir, Ármanni, Hrafnhildur Helgadóttir, Ármanni Árdís Þórðardóttir, Siglufirði. 6. Keppendur frá Akureyri. og Reykjavík í drengjaflokki. MIIHMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM' MIHMMMMMMMMMMMMMMMMMMMtMI ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 17. febrúar 1966

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.