Alþýðublaðið - 06.04.1966, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 06.04.1966, Blaðsíða 14
Skipulag Framhald af 1. afBd góða samvinnu við öll borgaryfir- völd í Reykjavík og kvað hana varla hafa getað verið betrL Prófessor Bredsdorff sagði, að ekipulag miðbæjarins hefði verið einna erfiðasti þáttur þessa heild- arskipulags fyrir Reykjavikur- borg, en það hefði þó auðveld- að Iausn þess verulega, að gert er ráð fyrir nýjum miðbæjar- kjarna sunnan Miklubrautar. — Prófessorinn skýrði blaðamönn- um frá því, að líklega hefðu um 30 manns unnið að þessi verki í Ðanmörku síðastliðin fimm ár, en eumir þó aðeins af og til. Geir Hallgrímsson borgarstjóri !ét svo ummælt við blaðamenn, að þegar væri í rauninni byrjað að vinna eftir þessu skipulagi. Fyrsti áfanginn væri að ljúka við gerð Miklubrautarinnar. Næsti áfangi I gatnagerðarmálum verða evo Lækjargata og Kalkofnsvegur og þá Hafnarstræti og Hverfis- gata og síðan Skúlagata og Geirs gata. Borgarstjóri lét einnig svo um- mælt, að nauðsyn væri að auka samstarf sveitarfélaganna á höf- uðborgarsvæðinu eins og nánar er vikið að hér á eftir. Hann sagði einnig, að mjög væri í athugun hjá Reykjavíkurborg að koma upp eérstakri stofnun er hefði með óætlanagerð að gera og sem einn- tg fylgdist með forsendum skipu- lagsins og endurnýjaði nauðsynleg gögn í þessu sambandi. Bók sú, sem nú hefur verið gef- tn út um Aðalskipulag Reykja- víkurborgar 1962—1983 er mikil «ð vöxtum og stór um sig. Bókin er 265 blaðsíður að stærð, henni tfylgja laus kort og í henni eru tfjölda mörg kort, töflur, línurit, margvíslegar skýringarmyndir og nokkrar ljósmyndir frá Reykja- vík. Að öllum frágangi er bókin Iiin vandaðasta. Meginmál er sett t prentsmiðju Jóns Helgasonar en sjálf er bókin offset-prentuð og bundin í Kaupmannahöfn. Mun kostnaður við prentun bókarinnar nema um einni og hálfri milljón Guðmundur Guðmundsson, stór kaupmaður, Kvisthaga 25 Reykja vík, er 60 ára í dag. króna. Hún er gefin út i þrjú þús- und eintaka upplagl og mun verða dýr, eða 1380 krónur eintakið og varla við almenningshæfi að kaupa hana enda varla til þess ætlast. Bókin er að nokkru leyti hugsuð með sölu á erlendum markaði í huga, því megintexti bókarinnar er prentaður samhliða á ensku og íslenzku. Bókin um skipulag borgarinnar skiptist í 9 meginkafla. Borgar- stjóri skrifar formálsorð, þá er I. kafli, Inngangur. II. kafli Forsend- ur aðalskipulagsins. III. kafli Mark mið aðalskipulagsins. IV. kafli Aðalskipulagið. V. kafli Deili- skipulag miðbæjarins og eldri hluta Austurbæjarins. VI. kafli Framkvæmd skipulagsins. VH. kafli Skipulag á borgarlandinu á Seltjarnarnesi. VIII. kafli Skipu- lag á borgarlandinu austan Sel- tjarnarness og IX. kafli Frumdrátt ur að svæðisskipulagi höfuðstaðar- svæðisins. Þá eru fylgiskjöl, kafl- ar um sameinaða skipulagsmögu- leika, umferðarkönnunina 1962, gatnaskipulagið og stefnur í búð- arhúsabyggingu í Reykjavík og loks eru orðskýringar. Hver ein- stakur meginkafli skiptist í all- marga undirkafla eða greinar eft- ir því sem við á. í bókinni er orðið Seltjarnar- nes notað yfir allt landssvæðið milli Elliðaárvogs og Fossvogs, og er ekki víst að allir séu sáttir við þá notkun orðsins, en hana mun mega til sanns vegar færa samkvæmt gömlum heimildum, en til þessa hefur orðið Seltjarn- arnes aðeins verið notað um vest- asta tanga þessa ness. Meginmál bókarinnar er samið af prófessor Bredsdorff og And- ers Nyvig verkfræðingi, en rit- stjórn og gerð hins íslenzka texta hafa beir Einar B. Pálssoft verk- fræðingur og Páll Líndal borgar- lögmaður. í inngangsorðum Geirs Hall- grímssonar borgarstjóra er greint frá ályktun borgarstjórnar Revkjavíkur um skipulagsmál frá bví i febrúar árið 1960, en í kjöl- far þeirrar álvktunar var prófess or Bredsdorff fenginn borgaryf- irvöldum til ráðuneytis um skipu- lagsmál Borgarstjóri vikur að því jafn- framt, sem unnið verði að fram- kvæmd aðalskipulags, þurfi að leysa af hendi mikið starf við gerð og samræmingu áætlana til langs tima um hvers konar fjárfestingu og mannvirkjagerð, en rætt hefur verið um að koma á fót sérstakri stofnun meðal tæknistofnana borgarinnar, sem hefði þetta hlut- verk með höndum. Þá minntist borgarstjóri á sam- starfið við nágrannasveitarfélögin og segir þar meðal annars: Ekki skal dregin dul á það, að nauð- synlegt mun verða að taka upp hlð fyrsta viðræður og samninga- umleitanir við nágrannasveitarfé- lög okkar um sameiningu eða sam- eiginlega stjórn höfuðborgar- svæðisins í heild að einhverju leyti. Við sem búum á þessu svæði veröum að gera okkur ljóst, að upp úr aldamótum má vænta þess að samfelld byggð verði allt frá Hafnarfirði og upp á Kjalarnes. Ef þessi höfuðborgarbyggð á að leysa hlutverk sitt af hendi, bæði gagnvart íbúunum og landinu í heild, verður vafalitið að koma á allfastrl heildarstjórn sameigin- legra málaþátta. Þess verður varla vænzt, að óformleg lausleg sam- vinna, þótt reynzt hafi vel hingað til, geti ieyst þau vandamál, sem verður viö að glíma á því mikla þróunartímabili, sem í hönd fer. Nauðsynlegt er, að hið bráðasta verði hafizt handa um að koma fastara formi á þá samvinnu, sem nú er hafin og koma henni í það form, að hlutaðeigandi sveitarfé- lög og íbúar þeirra megi vel við una.” Ýmsar nýjar leiðir hafa verið farnar í sambandi við þetta heild- arskipulag, eins og til dæmis könn- un á notkun landrýmis og hús- næðis og könnun á umferö. Skipulagið er eins og fyrr segir miðað fram til ársins 1983 — og segir á bls. 27 í bókinnl, að líta megi á það sem mynd af Reykjavík það ár. í bókinni er að finna mik- ið magn af fróðlegum upplýsing- um um borgina, þróun hennar fram til þessa og líklega þróun næstu tuttugu árin. Það kemur fram í bókinni, að þær framkvæmdir, sem þar er gert ráð fyrir hafa í för með sér geysilegan kostnað. Miðað við verðlag ársins 1965 skiptist sá kostnaður sem hér segir: ÞOOOOOOOOOOOOÓOOOOOOOOOO ►OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOC útvarpið Miðvikudagur 6. apríi 7.00 Morgunútvarp. 12.00 Hádegisútvarp. «■ 13.15 Við vinnuna: Tónleikar. 14.40 Við, sem heima sitjum Rósa Gestsdóttir les minningar Hortensu Hollandsdrottniingar (10). 15.00 Miðdegisútvarp. 16.30 Síðdegisútvarp. 17.20 Framburðarkennsla í esperanto og spænsku. 17.40 Þingfréttir. 18.00 Útvarpssaga barnanna: „Tam'ar og Tóta“ eftir Berit Brænne Sigurður Gunnarsson kennari les eigin þýðingu (6). 18.20 Tónleikar — Tilkynningar. 19.20 Veðurfregnir. 19.30 Fréttir. 20.00 Daglegt mál Árni Böðvarsson flytur þáttinn 20.05 Efst á baugi Björgvin Guðmundsson og Björn Jóhanns- son tala um erlend málefni 20.35 Frímerkið í þjónustu póstsins Magnús Jocliumsson fyrrverandi póstmeist- ari flytur erindi. 21.00 Lög unga fólksins Bergur Guðnason kynnir. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. Lestur Passíusálma (48). 22.20 „Heljarslóðarorusta" eftir Benedikt Gröndal Lárus Pálsson leikari les (8). 22.40 Þrjár svítur o.fl. eftir Henry Purcell. Sinfóníubljómsveitin 1 Bartford leikur; Fritz Mahle stjórnar. 23.25 Dagskrárlok. fOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO ÓOö VOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO Vö oezt — KflSll 5000 milljónir: Götur og veglr. 90% heildarkostnaðar). 6600 milljónir: Rafmagnsveita, hitaveita, vatnsveita og hol- ræsi. 1200 milljónir: Skólar (50% af kostnaði), barnaheimili og leik- vellir. 1200 milljónir: Fullbygging núver- andi hafnar, Sundahöfn (fyrstu áfangar) og endurnýjun strætis- vagna. 1000 milljónir: Vistheimili, sjúkra- hús, sundhallir, kirkjugarðar, kirkjubyggingar o. fl. 1000 milljónir: Ráðhús, bókasafn, leikhús, listasafn, félagsheim- ili o. fl. 2000 milljónir: Framlög til íbúða- bygginga, endurbygging eldri borgarhverfa, kaup húseigna og jarða. 18 000 milljónir króna er þetta samtals, sem afla þarf á næstu árum til þeirrar endurbyggingar og endurskipulagningar, sem heildarskipulag Reykjavíkur- borgar árin 1962—1983 gerir ráð fyrir. Er þarna reiknað með um 6,5% aukningu fjárfesting- Tilkynfiing um lóöahreinsun í Reykjavík Samkvæmt 10., 11. og 28. grein heilbrigð- issamþykktar fyrir Reykjavík, er lóðareig- endúm skylt að halda lóðum sínum hreinum og þrifalegum og að sjá um, að lok séu á sorpílátunum. Umráðamenn lóða eru hér með áminntir um að flytja nú þegar brott af lóðum sínum allt, sem veldur óþrifnaði og óprýði og hafa lokið því eigi síðar en 14. maí n.k. Að þessum fresti liðnum verða lóðimar skoð aðar og þar sem hreinsun er ábótavant, verður hún framkvæmd á kostnað og ábyrgð húseigenda, án frekari viðvörunar. Þeir sem kynnu að óska eftir sorptunnu- lokum, hreinsun eða brottflutningi á rusli, á sinn kostnað, tilkynni það í síma 12746 eða 13210. Úrgang og rusl skal flytja í sorpeyðingar- stöðina á Ártúnshöfða á þeim tíma sem hér segir: Alla virka daga frá kl. 7,30 — 23,00 Á helgidögum frá kl. 10,00 — 18,00 Hafa ber samráð við starfsmenn stöðvarinn ar um losun. Sérstök athygli skal vakin á því, að óheim- ilt er að flytja úrgang á aðra staði í borg- arlandinu. Verða þeir látnir sæta ábyrgð, sem gerast brotlegir í því efni. Reykjavík, 4. apríl 1966. Skrifstofur Reykjavíkurborgar, Skúlatúni 2. Hreinsunardeild. ar tra ari tu ars tu iofca tima- bilsins. Gert er ráð fyrir, aö fjár til framkv. verði ekki ein- göngu aflað úr borgarsjóði eða með þjónustugjöldum borgar- fyrirtækja heldur og með lán- tökum og ef til vlll með öðrum framlögum. Björn Sveinbjörnsson hæstaréttarlögmaður Lögfræðiskrifstofa. Sambandshúsinu 3. hæð. Símar: 12343 og 23338. Sveinn H. Valdimarsson hæstaréttarlögmaður Sölhólsgata 4 (Sambandshúsið 3. hæð). Símar 23338 — 12343 Sigurgeir Sigurjónsson hæstaréttarlögmaður Málaflutningsskrifstofa Óðinsgötu 4 - Sími 11043. 14 6. apríl 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.