Alþýðublaðið - 03.05.1966, Síða 1
WMIMMWWWWWWWWW
MAI MEÐ
500 TONN
Togarmn Maí landar nú í
Hafnarfirði nær 500 tunnum af
fiski eftir 12 daga veiðiferö.
Þennan túr var togarinn við
Austur-Grænland. Mest af afl-
anum er vænn þorskur. Næsta
tú'r á undan var Maí á Ný-
fundnalandsmiðum og kom þá
einnig með ágætan afla. Aflinn
fer til vinnslu bæði í Hafnar-
firði og Reykjavík, mest til
frystingar en einnig í skreið.
Skipstjórinn á Maí er Hall-
dór Halldórsson, kornungur
Hafnfirðingur. Hann er hin
mesta aílakló, eins og sjá má.
Hann hefur verið um það bil
ivö ár með togaranum Maí.
wwwwiwiwwMwwwmw
§l!l!II!!!ll!!l!lllll!llllllllllllllll!lll!lllllll!!!ll>l!l!lll!!IIIIIIii!íllll!|IIIUiil||l||||||II||||||]i!llti!||
1. MAÍ hátiðahöldin í
j ' Reykjavík tóknst hið bezta
B og var kröfngangan mjög
| fjölmenn og sama er að
J segja um fundhis sem hald-
g inn var á Lækjartorgi að
; göngunni lokinni. Þar héldu
m ræður Jón Sigurðsson for-
0 maður Sjómannasambands-
m . ins„ er hún birt á öðrum
■ staff í blaffiUR, og Guðmund
|l ur J. Guffmundsson, vara-
l formaffur Dagsbrúnar
Pétur Pétursson
Tekur sæti
á Alþirtgi
PÉTUR PÉTURSSON forstjóri
tók sssti á Alþingi siðastliðinn
föstudag, en hann er 2. varamaður
landskjörinna þingmanna Al-
þýðuflokksins. Hann tók sæti á
Alþingi l stað Friðjóns Skarphéð-
inssonar, sem nú situr þing Evr-
ópuráðsins í Strassburg.
ÍSLAND BYÐUR TOLLA-
LÆKKUN Á GATT-FUNDI
Reykjavík.
RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveffiff aff freUta þess að bjóða 5#%
lækkun á innflulningstollum hér á nokkru árabili, ef tilsvaraudt
lækkun fæst á tollum af útflutningsvörum okkar, sagði Emll Jójui
son í útvarpsumræffunum í gærkveldi. Emil sagffi cnnfremur, aff
tollalækkun hér væri nauffsynleg til þess aff einhver möguleiki
væri að affildarríki EFTA lækki toll á fiski og fiskafurffum, sem
þau flytja inn frá okkur. Þetta tilboff verffur sett fram á veH-
vangi GATT, en það eru alþjóðasamtök um lækkun tolla «
afnám viffskiptahafta.
í upphafi ræðu sinnar ræddi
Emil Jónsson um gjaldeyrissjóff-
inn, sem nú nemur 2000 milljónum
króna. Hann sagði, að ekki hefði
reynzt mögulegt að eignast þenn-
an gilda sjóð, nema af því að til
hefði komið sparifjárbinding, og
væri furðulegt að stjórnarandstað-
an skyldi hafa gert gagnrýni á
sparifjárbindinguna að höfuðatriði
í málflutningi sínum, þegar þess
væri gætt að bindingin væri í
rauninni forsenda gjaldeyrisvara-
sjóðsins. Þá vék Emil að aukningu
spariinnlána, en þau liafa nærfellt
sexfaldast siðan 1958 og nema nú
6406 milljónum króna. Sýndi þessi
mikla aukning í rauninni það
tvennt, að afkoma almennings í
landinu hefði verið góð og þrátt
fyrir allt verðbólgutal, þá gæti
þjóðin samt sem áður lagt þetta
mikið fyrir, og í öðru lagi sýndi
þetta að þrátt fyrir allan áróður
stjórnarandstöðunnar, hefði al-
menningur greinilega trú á því að
íslenzki gjaldmiðillinn væri ekki I
þeirri hættu sem stjórnarandstæð
ingar vildu vera láta.
— Þegar allt þrýtur hjá stjórn-
arandstöðunni, sagði Emil, þá
gagnrýnir hún ríkisstjórnina fjrrir
að hafa ekki getað stöðvað verS-
bólguna. Það væri rétt, það hefði
ekki tekizt fremur en hjá öðrum
ríkisstjórnum sem hér hafa setið
sl. 25 ár, en Emil benti á og
Framhald á 6. síðu
Batnandi sainbúð ríkis-
stjórnar og verkalýðsins
Emil Jónsson
JÓN ÞORSTEINSSON alþing-
ismaður flutti lokaræffuna fyrra
kvöld eldhúsumræffnanna, sem
útvarpaff var í gærkvöldi. Sagffi
hann í ræffulok, aff íslenzk al-
þýffa yrffi aldrei sameinuff í sam
starfi viff kommúnista — þá
þurfi aff einangra. Þegar þessi
sannleikur rynni upp fyrir Iýff-
ræffissimiuffuni vinnstri mönnum,
mundi meff samvinnu við Al-
þýffuflokkinn skapast grundvöllur
fyrir öflugri sókn íslenzkra alþýffu
stétta til aukinna áhrifa i þjóð
félagi okkar.
Jón kvað það eftirtektarvert,
að sambúð vinstri stjórimrinnar
og verkalýðshreyfingarinnar, sem
var góð í upphafi, fór smátt og
smátt versnandi, unz vinstri
stjórnin missti traust verkalýðs-
hreyfingarinnar og varð að
hrökklast frá völdurn. Á annan
veg er þessu nú fari-ð Segja
má, að í uppliafi háfi sambúð
núverandi ríkisstjórnar og verka
lýðáhreyfingarinnar verið iheld-
ur stirð, en hún hefur sifellt far
Jón Þorsteiusson
ið batnandi. Samkomulag hefur
tekizt milli þessara aðila á und
anförnum árum um mjög mikil-
væg málefni, svo sem vísitöluupp
bætur á kaup, vinnutímastytt-
ingu, húsnæðismál, skattamál og
atvinnumál. Þetta samkomulag
hefur m.a. borið þann árangur,
að kaupmáttur tímakaups verka
manna hefur frá árinu 1963
hækkað um 10% — 17% eftir
þvi, hvaða tegund verkamanna
vinnu er um að ræða.
Jón sagði, að í samningavið-
ræðum við ríkisstjórnina hefði
innan verkalýðshreyfingarinnar
átt sér stað gott samstarf milli
Alþýðuflokksmanna og lýðræðis
sinna í Alþýðubandalag’nu, en
hinir eiginlegu kommúnistar hafi
haft allt á hornum sér og hafi
verið settir til hliðar. Þetta
hafi átt sinn þátt í því, að ár-
Framhald á 6. síðu.
LISTINN Á
ESKIFIRÐI
SJÖ efstu menn á lista Al-
þýðuflokksins við lu-eppsnefnd-
arkosningar á Eskifirði í-vor, eru
þessir:
1. Steinn Jónsson skipstjóri.
2. Vöggur Jónsson framkvæmda-
stjóri.
3. Haukur Þorvaldsson, verka-
maður.
4. Bragi Haraldsson húsvörðuf.
5. Heigi Hálfdánarson verzlupar-
maður.
6. Magnús Bjarnason fulltrúi,
7. Rögnvar Ragnarsson verka-
maður.