Alþýðublaðið - 03.05.1966, Side 4

Alþýðublaðið - 03.05.1966, Side 4
Bttntjftrar: Cylft Gröndnl (áb.) og Benedlkt Grtindsl. — RltstÍ5m«rfull- trúi: ElBur GuSnason. — Slmar: 14900-14903 — Auglýílngaalml: 14900. ASsetur AlþýCubúðlO vifl Hverílsgötu, Iteykjavlk. — PrentsmlOja AlþýOu bUBdna. — AakrUUrgjald kr. 93.00 — I lausasölu kr. S.00 elntaklfl. Utgefandl AlþýOuflokkurlniL Nýja vinnvaflið ÍSLENZKU ÞJÓÐINNI fjölgar ört, að jafnaði um 4.000 manns á ári. Þessi fjölgun kom til skjalanna á ófriðarárunum og hefur haldizt síðan. Hefur þjóðin gert risavaxið átak í húsnæðismálum og skólabygg 'ingum, sem staf-ar ekki sízt af þessari fjölgun. Nú 'gengur bylgjan yfir framhaldsskólana, og fyrstu „stóru árgangarnir“ eru fyrir nokkru komnir á vinnu imarkaðinn. Vitað er, að ekki hefur fólki fjölgað við landbún að eða fiskveiðar Ekki hefur orðið mikil fjölgun í iðnaði, nema helzt fiskiðnaði. Meginþorri hins nýja vinnuafls hlýtur því að hafa farið annað.’ Gylfi Þ. Gíslason gerði þetta mál að umræðu- efni á aðalfundi kaupmannasamtakanna fyrir nokkr um dögum. Veitti hann þær upplýsingar, að síð- Ustu 5 ár hefðu 40% aukins mannafla þjóðarinn ar farið til starfa í þágu viðskipta, og taldi hann þetta óeðlilega mikinn hlut. ; Gylfi skýrði svo frá, 'að áratuginn 1950—60 hefði mannafli í viðskiptum aukizt um 3250 manns eða 52%. Hefðu viðskipti tekið til sín 27% af allri uiannaflaaukningu þjóðarinnar þessi ár, og aukning in aðeins verið meiri í fiskiðnaði. Á síðustu 5 ár- um, 1960—65, hafi mannaflaaukning í öllum 'atvinnu .greinum verið 9%, en í viðskiptum einum 31%. Þessi þróun þarfnast að sjálfsögðu skýringa við. Þegar veimegun þjóða eykst, aukast einnig viðskipti og dregst þá meira og meira vinnuafl í verzlun og aðca þjónustu. Þannig hefur þróun þessara mála ver- ið í öllum löndum. Á síðari árum hefur framleiðsla -usndirstöðu atvinnugreina aukizt vegna tækninnar en ekki vegna aukins starfsmannafjölda. Samt sem áður er óhjákvæmilegt, að uppiýsing- ar Gylfa veki landsmcnn til umhugsunar. Aflabrögð eru óviss, og hvað verður um allt fólkið í viðskipta störfum, ef grundvallarframleiðslan minnkar ár og ár? Slíkar sveiflur hafa íslendingar ávallt búið við og þær eru varla úr sögunni, þótt tækni hafi farið íram. ■Kaupmannasamtökin hafa gert þá athugasemd við upplýsingar Gylfa, að ivið störf í verzlunum sé eins fátt fólk og. unnt.er, en fjölgunin hljóti að vera hjá bönkum, tryggingafélögum og slíkum viðskipta- istoþrunum. Þetta getur vel verið rétt, en nauðsyn- leg ; er að.birtar verði ítarlegri tölur, svo að unnt sé að meia þær og draga af þeim ályktanir. Mikilsvert er, að þjóðin. geri sér grein fyrir, þv£ rnig atvinnuskipting hennar þarf að verða á kom áiicþ. árum, til að afkoma sé sem tryggust. Því verk- efni verður að sinna betur en hingað til. 4 3. maí 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ ÆMWMMMMMWVW4WmWWWWWWVl»WWm%MMWWWWWWWnMV>4VWVWV Þýzkir kvenskór -fC Nýjar sendingar Vorfízkan Sfórglæsilegt úrval SKÓVAL Austurstræti 18 (Eymundssonarkjaliara). itCMÆVVVVVWtMWVVVMVVVVVVVmVVVVVMVVVVWtV TH i t 'ÍTi ÍJLJ d A t i r=i V h! !A_Í 3: B J2_ Íl 1 1 Bréf frá borgarstjóra AF TIJLEFNI pistils míns síð ^tiUiðism latigtþjlag-, sendi Geir Hallgrímsson borgarstjóri mér brcf þá um morguninn og er það svohljóðandi: „Með því að fram kemur í dálkum Hannesar á horn inu í dag, að yður er ekki kunnugt um, hvernig stjórnkerfi Reykja- víkurborgar er háttað, leyfi ég mér að senda yður meðfylgjandi upp lýsingar. — Með kveðju Geir Hali. grímsson." Ég þakka bréfið. Með því fylgdu þrjú meiriháttar skjöl teikningar eða skemar um stofn anir og liliðarstofnanir borgarinn ar, nefndir,. stjórnir og s.frv. ÉG VI8SI- VARLA hvað ég átti við þetta að gera og skildi ekki hvers vegna borgarstjóri var að senda mér þetta. Ég tók því það ráð að' fára að telja alla þessa mörgu reiti eða bása á blöðunum og reyndust mér þeir vera milli 220—230 og það má því segja að borgarstjóri, sem allt þetta heyr ir undir í raun og veru nema ef til vill borgarstjórn og borgarráð, hafi í mörg horn að líta, og þótti mér það sönnun fyrir því, að það væri rétt sem ég hafði sagt í pistli mínum, að það væri ekki á eins manns færi. EITT ER SVO ANNAÐ mál, að ég hef engin skilyrði til að gagn týna þýíssa • b?)liski])tingu eða hvað ég á að kalla það. Mér finnst hálfpartinn, að. þetta sé enn ein myndin af því þegar hagfræðing ar og sticrnunarfélagar eru að búa til teikningar um það hvernig skuli reka fyrirtæki eða sýna hag fræðilegar niðurstöður sem mér IieíUr alltaf fundizt vera álfíka og titidátaleikur barna, og allt annað verður svo upp á teningn um þegar á að fara að stjórna lif andi fólki. ÞA® VAR EINMITT þetta, sem ég gerði að umtalsefni. Ég var að tala um það, að handahóf væri á framkvæmdum, það væri byrjað á mörgu og víða, en ekki væri lokið við neitt áður en á ný væri hafist handa og að fyrirtæki borgarinn ar virtust ekki vita neitt um fram kvæmdir hvers annars. Ég snérl þe-sari gagnrýni að borgarstjóra, þvl að allt þetta heyrir undir hapn síðan Auður Auðuns varð að hætta sem borgarstjóri með hon um. Ég vissi það, að til dæmis borgarverkfræðingur stjórnar flest um framkvæmdum borgarinnar en ■hann heyrir undir borgarstjóra og það þýðir ekkert að senda mór teikningai- til þess að reyna að afsanna það. BORGARSTJÓRINN er búinn að halda marga fundi. Þegar í upp hnjfi sr^rði é|g að þetta væri skemmtileg nýbreytni. Það væri undir gestunum komið og þá einn ig gestgjöfunum, hvernig til tæk ist og þetta gæti orðið gagnleg nýbreytni í opinberum og málefna legum umræffum. Gestirnir brugð ust, því að enginn þeirra virtist hafa tilhúnar spurningar xun meg inatriði I stjórn borgarinnar. Það má því segia að gestgjafinn hafi átt léttan leik. ÞAH ER ÞVÍ ef til vill engin furða þó að horgarstj. áliti að allt sé í Iagi í Revkiavík. En það er langt hví frá að svo sé. Það sýnlr 'ig hvar sem farið er, niður við s.ló og unn um nll holt. Básateikn ingar frá skrifstofu borgarstjóra breyta þar engu um! Söltunarstöð til leigu Lítil en hentug söltunarstöð (Jakobsenstöð) er til leigu á Siglufirði. Nánari upplýsingar gefur undirritaður. Siglufirði, 20. apríl 1966. Bæjarstjórinn (sími 7-13-15).

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.